Örvæntingar gætir meðal umbjóðanda Vinnumálastofnunar 13. janúar 2009 18:51
Nýtt yfirlit Vinnumálastofnunar um stöðuna á vinnumarkaði sýnir að tæplega átta þúsund manns - eða 4,8 prósent - voru skráðir atvinnulausir í desember síðast liðnum og hafði fólki án atvinnu fjölgað um 45 prósent frá því í mánuðinum á undan. Annir eru gríðarlegar á vinnumiðlun Vinnumálastofnunar. ,,Það er mikil breyting frá því sem var fyrir ári síðan þegar voru innan við 1000 manns á skrá," segir Hugrún Jóhannesdóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu. Atvinnuleysið er nú mest á Suðurnesjum, en minnst á Vestfjörðum og jókst það eilítið meira á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni. Hugrún segir atvinnleitendur alla jafna yfirvegaða og rólega, þrátt fyrir að biðin geti verið löng hjá Vinnumálastofnun. En sögurnar eru margar og sumir eru ákaflega illa staddir. ,,Þetta eru afskaplega sérstakar aðstæður sem ekkert okkar sem vinnur hér hefur upplifað áður," Aðspurð hvor hún finni fyrir örvæntingu hjá umbjóðendum sínum hér segir Hugrún: ,,Já, ég held að við gerum það öll, mismikið auðvitað en í einhverjum tilfellum," Horfur á vinnumarkaði í þessum mánuði eru heldur dökkar. Búist er við áframhaldandi samdrætti í mörgum atvinnugreinum og því er spáð að rekstur margra minni fyrirtækja verði afar erfiður. Spár um atvinnuleysi eru settar fram með fyrirvara vegna óvissu í efnahagslífinu, en þó er talið að nú í janúar muni það aukast verulega og fara í allt að tæp 7 prósent. Og þess skal getið að mikilvægt er að fólk skrái sig fyrst á Netinu og fái þar upplýsingar um nauðsynleg fylgigögn. Skráning hjá Vinnumálastofnun á svo ekki að fara fram fyrr en daginn sem fólk verður launalaust.
Tengdar fréttir Vill tryggja að sem fæstir lendi á atvinnuleysisskrá „Atvinnuleysi er því miður að aukast en okkar verkefni er að tryggja að sem fæstir lendi á atvinnuleysisskrá og þeir séu þar sem styst," sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. 13. janúar 2009 12:07 Atvinnuleysi jókst um 45 prósent á milli mánaða Skráð atvinnuleysi var tæp fimm prósent í desember og jókst það um 45 prósent að meðaltali frá mánuðinum á undan. Búist er við að atvinnuleysi aukist verulega nú í janúar. 13. janúar 2009 12:01 Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fleiri fréttir Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Sjá meira
Vill tryggja að sem fæstir lendi á atvinnuleysisskrá „Atvinnuleysi er því miður að aukast en okkar verkefni er að tryggja að sem fæstir lendi á atvinnuleysisskrá og þeir séu þar sem styst," sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. 13. janúar 2009 12:07
Atvinnuleysi jókst um 45 prósent á milli mánaða Skráð atvinnuleysi var tæp fimm prósent í desember og jókst það um 45 prósent að meðaltali frá mánuðinum á undan. Búist er við að atvinnuleysi aukist verulega nú í janúar. 13. janúar 2009 12:01