Fleiri fréttir

Undirbýr aðgerðaráætlun gegn heimilisofbeldi

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur kynnt drög að nýrri aðgerðaráætlun gegn heimilisofbeldi, kynferðisofbeldi og mansali. Vinna í þeim málum hefur verið of ómarkviss segir ráðherrann.

Kosið um lagabreytingu í Framsóknarflokknum í dag

Það skýrist í dag hvort formaður Framsóknarflokksins verður kosinn eftir núgildandi lögum flokksins eða nýjum lögum sem samþykkja þarf í dag. Mikil spenna ríkir um formannskjörið og úrslitin gætu orðið tvísýn. Ef kosið verður eftir nýjum lögum þarf formaður að hljóta yfir 50 prósent atkvæða annars vinnur sá sem fær flest atkvæði.

Víða mótmælt í dag

Boðað hefur verið til mótmæla víða um land í dag. Raddir fólksins með Hörð Torfason í fararbroddi boða til mótmælafundar á Austurvelli fimmtánda laugardaginn í röð en yfirskrift þess fundar er sem fyrr: Breiðfylking gegn ástandinu. Fundurinn hefst klukkan þrjú.

Fundu fíkniefni á ökumanni

Lögreglan stöðvaði ökumann á Vesturlandsvegi við Hvalfjarðargöng um miðnætti í nótt vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Við nánari eftirgrennslan lögreglu fundust fíkniefni á manninum. Hann var handtekinn en látinn laus aftur að lokinni skýrslutöku.

Bílvelta í Hrútafirði

Bíll valt um 10 kílómetra norðan við gamla Staðarskálann í Hrútafirði um áttaleytið í gærkvöld. Bíllinn rann í hálku, fór út fyrir veginn, fór eina veltu og staðnæmdist á toppnum. Fjórir voru í bílnum, en lögreglan á Blönduósi segir að þeir hafi allir verið í bílbeltum og beltin hafi komið í veg fyrir alvarleg meiðsl á fólkinu. Lögreglan segir að fólkið hafi hlotið minniháttar rispur og að læknir hafi gert að sárum þeirra á staðnum.

Formannsefni kynna áherslur sínar í dag

Landsfundi Framsóknarflokksins verður framhaldið í Vodafonehöllinni í dag, en landsfundurinn samþykkti með miklum meirihluta atkvæða í gær að Ísland gangi til aðildarviðræðna að Evrópusambandinu.

Afþakka heimsókn ísraelsks ráðherra

Íslensk stjórnvöld hafa afþakkað komu menntamálaráðherra Ísraels til landsins. Í heimsókninni ætlaði ráðherrann að útskýra málstað Ísraels í stríðinu sem nú stendur yfir á Gaza ströndinni.

Voru að útbúa heimatilbúna sprengju

Lögreglunni á Suðurnesjum barst klukkan rúmlega hálf sjö í kvöld að sprenging hefði orðið í heimahúsi í Grindavík og að tveir drengir 10 og 17 ára væru slasaðir. Greint var frá spreningunni á Vísi fyrr í kvöld.

Starfsmönnum við gerð Héðinsfjarðaganga fækkað

Óvissa hefur ríkt um framvindu Héðinsfjarðarganga þar sem kostnaður við framkvæmdina hefur stóraukist. Tvö fyrirtæki vinna við gerð gangnanna Háfell og tékkneska verktakafyrirtækið Metrostav. Hið síðarnefnda hefur nú ákveðið að fækka starfsmönnum sínum tímabundið um allt að þriðjung. Þetta kom í ljós eftir fund fyrirtækjanna með fulltrúum Vegagerðarinnar í dag.

Sagt upp fyrir að blogga óviðeigandi um mótmælendur

Guðmundi Jóhannssyni sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit hefur verið sagt upp störfum eftir átta mánaða starf. Umdeild bloggfærsla, samskiptaörðugleikar og hátternisvandamál Gumundar eru samkvæmt heimildum fréttastofu ástæður þess að sveitarstjórn vék Guðmundi frá störfum í gær.

Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar krefst breytinga

Ríkisstjórnin þarf að gera nýjan sáttmála við þjóðina, að mati Skúla Helgasonar framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar. Hann vill breytingar á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar og uppstokkun innan Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins.

Hálka og hálkublettir víðsvegar um landið

Hálka og hálkublettir eru um land allt. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að þungfært er á Steingrímsfjarðarheiði, stórhríð og ekkert ferðaveður. Ófært er um Klettsháls. Á Vestfjörðum er annars hálka, snjóþekja og éljagangur.

Vill að skipuð verði neyðarstjórn

„Hættum að berja höfðinu við steininn. Fjölmörgum þjóðum sem komnar hafa verið í þessa stöðu, hafa verið skipaðar neyðarstjórnir. Að vísu „þriðja heims ríkjum“, en það er það sem við erum orðin,“ segir fyrrum borgarfulltrúinn Helgi Pétursson í grein á heimasíðu Samfylkingarinnar. Helgi situr í framkvæmdastjórn flokksins og hann er jafnframt formaður Samfylkingarfélagins í Garðabæ.

Fimmtándi mótmælafundur Radda Fólksins

Fimmtándi mótmælafundur Radda Fólksins verður haldinn á Austurvelli á morgun og sem fyrr hefjst þau klukkan 15. Ræðumenn verða Svanfríður Anna Lárusdóttir sem er atvinnulaus og Gylfi Magnússon dósent í hagfræði við Háskóla Íslands. Fundarstjórn verður í höndum Harðar Torfasonar.

Börn flutt á slysadeild eftir flugeldaslys í Grindavík

Tvö börn voru flutt á slysadeild Landspítalans eftir alvarlegt flugeldaslys í heimahúsi Grindavík fyrir stundu. Þetta kemur frá á fréttasíðunni Víkurfréttir. Börnin eru sögð alvarlega slösuð. ,,Ekki var hægt að fá nánari upplýsingar um slysið nú rétt áðan en að sögn sjónarvotta var viðbúnaður sjúkrabílana mikill," segir í frétt Víkurfrétta.

Framsóknarmenn vilja aðildarviðræður við ESB

Afgreiðslu tillögu um að Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið er rétt að ljúka á flokksþingi Framsóknarflokksins. Allt lítur út fyrir að tillagan verði samþykkt með meirihluta greiddra atkvæða. Áður hafði tillögu um að þingið hafnaði ályktuninni verið felld.

Íþróttir fyrir alla á Akureyri

Átakið Íþróttir fyrir alla fer vel af stað á Akureyri. Verkefnisstjóri átaksins, kunnur handboltakappi, passar börn svo mæður og feður geti stundað jóga áhyggjulaus.

Samfylkingarfólk segja vinnubrögð Guðlaugs gerræðisleg

Stjórn 60 + Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, félags Samfylkingarfólks eldri en 60 ára, mótmælir ákvörðun ráðherra heilbrigðismála Guðlaugs Þórs Þórðarsonar að leggja niður starfsemi St. Jósefsspítala í núverandi mynd. Enn fremur gerir stjórn 60 + alvarlegar athugasemdir við þau gerræðislegu vinnubrögð ráðherra að taka ákvarðanir um veigamikla hagsmuni Hafnfirðinga án samráðs við bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar.

ESB-ályktun framsóknarmanna: Niðurstöðu að vænta

Búið er að loka fyrir mælendaskrá í umræðum um Evrópumál á flokksþingi Framsóknarflokksins er niðurstöðu að vænta. Skiptar skoðanir eru um tillöguna sem liggur fyrir þinginu sem felur í sér að sækja beri um aðild að Evrópusambandinu. Umræður hófust eftir að Valgerður Sverrisdóttir, fráfarandi formaður, hélt yfirlitsræðu sína eftir hádegi.

Vinnuhópur rannsakar siðferði í tengslum við bankahrunið

Forsætisnefnd Alþingis gekk nýverið frá skipan þriggja manna í vinnuhóp sem ætlað er að leggja mat á hvort skýringar á falli íslensku bankanna og tengdum efnahagsáföllum megi að einhverju leyti finna í starfsháttum og siðferði.

Hæstiréttur hafnar farbannskröfu

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem farbannskröfu yfir karlmanni er hafnað. Maðurinn er á meðal þeirra sem dæmdir voru í Keilufellsmálinu svokallaða þegar hópur Pólverja réðst á samlanda sína í húsi í Keilufelli. Sá sem um ræðir fékk tveggja og hálfs árs fangelsisdóm og vildi saksóknari fá hann dæmdan í farbann uns dómur gengi í Hæstarétti. Héraðsdómur hafnaði þessu og undir það tók Hæstiréttur í dag.

Framferði Ísraela á Gaza mótmælt í Háskólabíó

Fjölmörg félagasamtök, stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök gangast fyrir mótmælafundi í Háskólabíói á sunnudaginn klukkan 15:00 undir kjörorðinu: Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza.

Rauði kross Íslands fordæmir árásir Ísraela

Rauði kross Íslands fordæmir árásir á sjúkrahús og vöruhús Rauða hálfmánans í Gaza í gær sem og ítrekuðum árásum á óbreytta borgara og segir þær stríða gegn alþjóðlegum mannúðarlögum og öllum siðrænum gildum í mannlegu samfélagi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Rauða krossi Íslands.

Hættulegt að rannsaka vettvang

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem rannsakar brunann við Klapparstíg 17 í nótt eru aðstæður erfiðar á vettavangi. Húsið er illa farið og beinlínis hættulegt að vera þar við rannsóknarstörf.

Þingmaður ósáttur við aðferð við kvótaúthlutun

Karl V. Matthíasson, þingmaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í sjávarútvegsnefnd er afar ósáttur við þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra að úthluta auknum kvóta til útgerðanna. Karl segir að mun nærtækara hefði verið að setja þau 30 þúsund tonn af þorski sem ákveðið var að bæta við kvótann í dag á markað. Það hefði skilað meiri tekjum í ríkissjóð auk þess sem atvinna hefði skapast fyrir fjölda manns.

Reyndu að afhenda gjafabréf upp á 185 milljónir

Hópur fólks safnaðist fyrir utan höfuðstöðvar Glitnis við Kirkjusand fyrir stundu og framdi nokkurskonar gjörning. Skipti hópurinn í lið í knattspyrnu og reyndu að afhenda Birnu Einarsdóttur bankastjóra gjafabréf upp á 185 milljónir króna. „Fámennur hópur,“ segir upplýsingafulltrúi bankans.

77 prósent brota voru framin á höfuðborgarsvæðinu

77 prósent allra hegningarlagabrota á landinu í desember voru framin á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í Afbrotatölfræði fyrir desembermánuð sem nú hefur verið birt á vef ríkislögreglustjóra.

Setti klút fyrir andlitið og óð inn í logandi húsið

Arnar Halldórsson var að koma úr partýi í miðbænum í nótt þegar hann sá logandi húsið við Klapparstíg 17. Hann heyrði öskur og læti rétt áður en hann setti klút fyrir andlit sitt og óð inn í húsið. Arnar aðstoðaði skelfingu lostið fólk við að komast út úr brenanndi íbúð rétt áður en slökkviliðið mætti á staðinn.

Stóðu ekki fyrir skemmdum á tækjabúnaði

Í frétt sem flutt var í hádegisfréttum Bylgjunnar þann 14. janúar síðastliðinn var ranghermt. Þar var sagt frá söfnun sem hópur fólks hefur boðist til hefja til að greiða fyrir skemmdir sem urðu á tækjabúnaði í Kryddsíldarmótmælunum á gamlársdag.

Framsóknarmenn takast á um ESB

Flokksþing Framsóknarflokksins hófst í morgun. Í dag verður meðal annars tekist á um Evrópumálin en fyrir liggur tillaga um flokkurinn styðji aðildarviðræður.

Reyknesingar virkja tækifærin

Virkjun á Vallarheiði hóf starfsemi sína í gær. Þar verður starfsemi fyrir íbúa á Reykjanesi sem leita nýrra tækifæra í atvinnu eða námi.

Meiri áhrif kvenna hefðu dregið úr kreppunni

Félagsmálaráðherra telur að Ísland hefði farið betur út úr kreppunni ef konur hefðu haft meiri áhrif. Hún hallast að því að setja kynjakvóta til að uppfylla ákvæði stjórnarskrár um jafnan rétt kynjanna.

Árni lækkar laun Ólafs Ragnars

Í framhaldi af úrskurði Kjararáðs sem dagsett var 13. janúar síðastliðið skrifaði forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra Árna M. Mathiesen bréf og óskaði eftir því að laun sín væru lækkuð á sama hátt og laun forsætisráðherra, eins af handhöfum forsetavalds, enda segir í úrskurði Kjararáðs að forseti geti sjálfur óskað eftir slíku við fjármálaráðherra.

Þorskkvótinn aukinn um 30 þúsund tonn

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð þar sem hámarksafli í þorski er aukinn um 30 þúsund tonn.

Útiloka ekki íkveikju - myndband

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er ekki útilokað að kveikt hafi verið í íbúðarhúsi við Klapparstíg 17 í Reykjavík í nótt. Enn eru eldsupptök þó ókunn og vill lögregla ekki tjá sig um málið að svo stöddu enda er rannsóknin skammt á veg komin.

Ólafur Ragnar fær ekki launalækkun

Kjararáð getur ekki lækkað laun forseta Íslands þrátt fyrir að hann hafi farið þess á leit við ráðið að það yrði gert. Á fundi ráðsins þann 13. janúar síðastliðinn varð niðurstaðan sú að hafna erindi forsetans í ljósi þess að það er óheimilt samkvæmt stjórnarskrá.

Eldsneyti hækkar um fjórar til sex krónur

Skeljungur hefur hækkað bensínlítrann um fjórar krónur en verð á dísilolíu er óbreytt. N1 hefur hækkað bensínlítrann um sex krónur og dísillítrann um fjórar krónur.

Íbúð fylltist af reyk eftir eldamennsku

Slökkvilið var kallað að fjölbýlishúsi í Árbæjarhverfi í gærkvöldi þar sem íbúð hafði fyllst af reyk. Húsráðandi var fluttur á slysadeild vegna reykeitrunar en er á góðum batavegi.

Tíu umferðaróhöpp á Akureyri

Tíu umferðaróhöpp urðu á Akureyri frá hádegi og fram að kvöldmat í gær, sem öll eru rakin til flughálku á öllum götum bæjarins. Enginn meiddist alvarlega en þrír leituðu aðhlynningar á sjúkrahúsinu.

Brotist inn í veitingastað á Hvolsvelli

Brotist var inn í veitingastað og sjoppu á Hvolsvelli undir miðnætti og komust þjófarnir undan á bíl. Þrátt fyrir eftirgrennslan lögreglunnar á Hvolsvelli og Selfossi er bíllinn ófundinn. Ekki er ljóst hversu miklu þeir stálu en lögregla og rekstraraðili eru að kanna það.

Handteknir eftir innbrot í gáma og bíla

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá menn í nótt vegna innbrota og þjófnaða. Fyrst voru tveir handteknir í Hafnarfirði þar sem þeir voru að brjótast inn í gáma og bíla.

Sjá næstu 50 fréttir