Fleiri fréttir

Víða hálka og hálkublettir

Hálka og hálkublettir eru um land allt. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum en hálkublettir á Sandskeiði og frá Hveragerði að Selfossi. Snjóþekja er á milli Selfoss og Hvolsvallar. Hálka er víða í uppsveitum. Á Austurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja. Ófært og óveður er á Vatnskarð eystra.

Fulltrúi innistæðueigenda í Belgíu færði ráðherra súkkulaði

Fulltrúi fimmtíuþúsund innistæðueigenda í Kaupþingi í Belgíu sem fundaði með fjármálaráðherra, viðskiptaráðherra og skilanefnd Kaupþings í dag segist hafa fengið loforð en engin skýr svör. Hann kom færandi hendi með belgískt súkkulaði og vottaði íslensku þjóðinni samúð sína.

,,Við eigum ekki pening"

Ferðum varðskipa Landhelgisgæslunnar verður fækkað og verulega dregið úr annarri starfssemi til að mæta vaxandi kostnaði. Stofnunin boðar hópuuppsagnir um næstu mánaðarmót.

Tveir piltar úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna fíkniefnamáls

Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í dag tvo pilta í viku gæsluvarðhald í tengslum við viðamikla aðgerð lögreglunnar á Selfossi í gær þegar framkvæmd var húsleit á sex stöðum á Selfossi, í Hveragerði og í Grímsnesi. Piltarnir eru 17 og 19 ára gamlir

Landhelgisgæslan dregur úr starfsemi - á þriðja tug sagt upp

Í ljósi erfiðs rekstrarumhverfis er einsýnt að draga þarf úr allri starfsemi Landhelgisgæslu Íslands. Dregið verður úr útgerð varðskipa, flugi, sjómælingum sem og annarri starfsemi. Fyrirhugað er að segja upp á bilinu 20 til 30 manns. Uppsagnir starfsmanna og aðrar breytingar í starfsmannahaldi munu snerta allar deildir Landhelgisgæslunnar.

Vilja upplýsingar um arðsemi orkusölusamnings vegna álvers

Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar og Vinstri Grænna segja nauðsynlegt áður en orkusölusamningur Orkuveitu Reykjavíkur og Norðuráls vegna álvers í Helguvík verður lagður fram í borgarráði og afgreiddur í borgarstjórn að borgarfulltrúar fái góða yfirferð yfir arðsemi verkefnisins.

Ljósmæður mótmæla breytingum í heilbrigðiskerfinu

Ljósmæðrafélag Íslands mótmælir fyrirhuguðum breytingum í heilbrigðiskerfinu sem snúa að þjónustu við konur og fjölskyldur þeirra í barneignarferli. Ljóst er að enn fleiri konur en áður munu þurfa að fæða börn fjarri heimili sínu og að breytingarnar munu hafa veruleg áhrif á þá samfélagsgerð sem íslenskar fjölskyldur hafa búið við.

Brennuvargur í gæsluvarðhald

Karlmaður sem handtekinn var í gær grunaður um að hafa kveikt í húsi við Tryggvagötu hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. janúar. Lögregla er enn að taka skýrslur af vitnum en játning mannsins liggur fyrir að mestu leyti. Ung kona var í húsinu þegar eldurinn kviknaði en komst út ómeidd. Húsið er töluvert skemmt.

Verkfræðingur stofnar stjórnmálaflokk

Verkfræðingurinn Friðrik Hansen Guðmundsson hefur ásamt öðrum stofnað Norræna Íhaldsflokkinn. Hann segist horfa til borgaraflokkanna í Skandinavíu og vill að Ísland gangi í Evrópusambandið. Honum hefur fundist íslenskt samfélag hafa færst of mikið í átt til Bandaríkjanna og hér ríki of mikill Tatcherismi. Flokkurinn fer rólega af stað en Friðrik útilokar ekki framboð í næstu kosningum.

Framsóknarmenn vilja sérstakan unglingadómstól

Framsóknarflokkurinn vill að komið verði á fót sérstökum ungmennadómstól sem hafi heimild til að dæma ungmenni til meðferðarvistunar í stað hefðbundinnar fangelsisvistunar. Slíkt úrræði miði að því að byggja upp einstaklinginn og aðstoða hann á ný út í lífið.

Lögregla stöðvar enn eina kannabisræktunina

Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í húsi í Mosfellsbæ í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 50 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Jafnframt var lagt hald á búnað sem tengdist starfseminni sem og fjármuni sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu.

Ungt framsóknarfólk fremur gjörning

Flokksþing Framsóknarflokksins verður sett í fyrramálið klukkan 10:00 í Valsheimilinu að Hlíðarenda. Mikil spenna er fyrir fundinum en þar verður nýr formaður meðal annars kosinn. Drög að öllum ályktunum flokksþingsins hafa nú verið sett fram á vef félagsins.

Enn tveir í haldi á Selfossi

Enn eru tveir í haldi lögreglunnar af þeim sextán manns sem voru handteknir í viðamikilli aðgerð lögreglunnar á Selfossi i gær. Í aðgerðinni voru gerðar húsleitir á sex stöðum á Selfossi, í Hveragerði og í Grímsnesi í gær.

Skólamáltíðir ódýrastar í Reykjanesbæ

Verð á skólamáltíðum grunnskóla er lægst í Reykjanesbæ, eða um 190 krónur, ef miðað er við mánaðar- eða annaráskrift. Ef miðað er við yngstu bekki grunnskóla er verðið lægst í Skagafirði, eða 177 krónur. Þetta kemur fram í frétt á vef Neytendasamtakanna.

Innbrotsþjófur hljóp í flasið á húsráðanda

Sjö innbrot í bíla voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær en tölvum var stolið úr þremur þeirra. Tölvu var sömuleiðis stolið úr verslun í Kópavogi og í miðborginni gekk innbrotsþjófur í flasið á húsráðanda. Þjófurinn lagði á flótta en var handtekinn skömmu síðar.

Vefþjónar Iceland Express hrundu vegna álags

Iceland Express boðaði til rýmingarsölu á flugsætum í morgun sem stendur frá klukkan 12 á hádegi til miðnættis. Í kjölfar þess hrundu allir vefþjónar fyrirtækisins vegna álags en unnið er að viðgerð.

Tjáir sig ekki um öryggismál ráðherra

Guðmundur Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, segir að embættið vilji engar upplýsingar gefa um öryggismál ráðherra þjóðarinnar.

Klámkóngur ákærður fyrir fjárdrátt

Sigurður Valdimar Steinþórsson, sem þekktastur er fyrir að reka vefsíðuna klam.is, hefur verið ákærður fyrir að hafa á árinu 2005 dregið sér fjármuni í starfi við móttöku drykkjarumbúða á endurvinnslustöðvum Sorpu við Jafnasel og Sævarhöfða í Reykjavík og við Dalveg í Kópavogi.

Meintur brennuvargur bíður enn yfirheyrslu

Maðurinn sem var handtekinn í gær í tengslum við bruna á Tryggvagötu hefur enn ekki verið yfirheyrður. Maðurinn var handtekinn fljótlega eftir að það kviknaði í húsinu en grunur leikur á að kveikt hafi verið í. Töluvert tjón varð á húsinu en engan sakaði.

5000 flugsæti á rýmingarsölu Iceland Express

Í ljósi núverandi efnahagsástands hefur Iceland Express ákveðið að efna til rýmingarsölu á 5000 flugsætum í janúar og febrúar. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að útsalan standi yfir í 12 klukkustundir, frá kl. 12 á hádegi til miðnættis.

Íþróttamannvirkin vinsæl í Reykjanesbæ

Fjöldi iðkenda í íþróttamannvirkjum Reykjanesbæjar árið 2008 var um 523 þúsund og hafði þeim fjölgað um tæp 20 þúsund frá árinu 2007. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjanesbæ. Um 5 prósent fjölgun varð á sundgestum í Sundmiðstöðina/Vatnaveröld á milli ára en hana heimsóttu rúmlega 132 þúsund manns.

Missti stjórn á bíl við Kúagerði

Enginn slasaðist þegar ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Reykjanesbraut við Kúagerði í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn hafnaði utan vegar og skemmdist talsvert. Talið er að krapi á veginum hafi valdið því að svona fór.

Brotist inn í vinnuskúr og verslun

Brotist var inn í vinnuskúr á Álftanesi og tölvuverslun í Kópavogi í nótt. Ekki er vitað hverju var stolið úr skúrnum en að minnsta kosti einnar fartölvu er saknað úr búðinni. Þjófarnir eru ófundnir og eru málin í rannsókn.

78 ár á milli elsta og yngsta þingfulltrúa

Flokksþing framsóknarmanna verður haldið um næstu helgi í Valsheimilinu að Hlíðarenda við Öskjuhlíð í Reykjavík. Þar verður tekist á stefnu flokksins í Evrópumálum og ný forysta kjörin. 78 ár eru á milli elsta þingfulltrúans og þess yngsta sem verður 17 ára í mars næstkomandi. Elsti þingfulltrúinn er Vilhjálmur Hjálmarsson, fyrrverandi ráðherra, frá Mjóafirði sem verður 95 ára í september.

Umferðarslys á Reykjanesbraut

Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning rétt fyrir hálf átta í kvöld um umferðaróhapp á Reykjanesbrautinni í Kúagerði. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni sökum krapa á Reykjanesbraut með þeim afleiðinum að hún hafnaði utan vegar á milli akreinanna. Engin slys á fólki en bifreiðin skemmdist talsvert og var flutt af vettvangi með kranabifreið.

Geir biður ekki um aukna vernd

Forsætisráðherra ætlar ekki að óska eftir aukinni vernd eftir að mótmælendur veittust að honum í gær.

Forræði yfir auðlindum - aðildarviðræður við ESB

Lagt er til að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu í ályktunardrögum sem verða lögð fyrir flokksþing Framsóknarflokksins sem hefst á föstudaginn. Einnig eru sett fram markmið í aðildarviðræðum í drögunum og eru fullveldi og óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar grundvallarkrafa í þeim viðræðum.

Víðast hvar hálka og hálkublettir

Hálka og hálkublettir eru um land allt. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að hálkublettir eru á Sandskeiði og á Hellisheiði er hálka og éljagangur og hálka í Þrengslum. Á Vestfjörðum er hálka og hálkublettir á öllum leiðum. Hálka og éljagangur er á Holtavöðuheiði og þá er hálka á Bröttubrekku. Á Norðurlandi og Austurlandi er hálka, hálkublettir og snjóþekja. Hálka og éljagangur er í Vatnsskarði.

350 milljón króna pottur í Víkingalottóinu

Enginn var með allar tölurnar réttar í Víkingalottóinu í kvöld aðra vikuna í röð og verður potturinn því þrefaldur næsta miðvikudag. Á vef Íslenskrar getspár segir að fyrsti vinningur verði allt að 350 milljónir. Ef Ofurpotturinn gengur einnig út ætti potturinn að verða um 500 milljónir króna næsta miðvikudag.

Þurftu ekki að yfirtaka skuldir Icesave

Íslenskir og breskir lögmenn túlka tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar á þá vegu að að íslenska innistæðutryggingasjóðnum, og þar með íslenska ríkinu, bar ekki að ábyrgjast Icesave-skuldbindingar Landsbankans. Svo virðist sem Evrópusambandið hafi óttast ef íslenskir skattgreiðendur tækju ekki á sig ábyrgðina gæti bankakerfi Evrópu riðað til falls. Þetta fullyrðir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, frambjóðandi til formanns Framsóknarflokksins, á bloggsíðu sinni.

Birna íhugar að sækja um

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Glitnis, íhugar að sækja um stöðu bankastjóra þegar hún verður auglýst. Eftir efnhagshrunið voru nýir bankastjórar ríkisbankanna ráðnir með hraði af bráðabirgðastjórnum og ljóst var í gær að bankastjórastöðurnar yrðu auglýstar.

Olíuleitin á Drekasvæðinu skapar störf

Olíuleitin sem verið er að bjóða út á Drekasvæðinu mun velta tugum milljarða króna og byrja að skapa störf og vaxandi umsvif á norðausturlandi þegar upp úr næstu áramótum.

Tjón vegna jarðskjálfta á sjöunda milljarð króna

Áætlað er að tjón vegna jarðskjálftans á Suðurlandi síðasta vor nemi á sjöunda milljarð króna. Af því greiðir ríkið rúmar sjö hundruð milljónir króna í styrki meðal annars vegna tjóns sem ekki fæst bætt hjá Viðlagatryggingu.

Uppsagnir hjá Landhelgisgæslunni

Um tuttugu starfsmönnum Landhelgisgæslunnar verður sagt upp störfum um næstu mánaðamót. Boðað hefur verið til starfsmannafundar á morgun þar sem þetta verður tilkynnt formlega en um 160 manns vinna nú hjá Landhelgisgæslunni.

Ráða lögfræðing vegna deilu við Háskóla Íslands

Félag prófessora við ríkisháskóla hafa ráðið Ragnar Tómaas Árnason lögfræðing til þess að gæta hagsmuna og réttinda félagsmanna vegna ákvörðunar Háskóla Íslands um að auka kennsluskyldu kennara og minnka rannsóknarskyldu þeirra. Félagið telur að þarna sé um kjarabundin starfsréttindi að ræða.

Lönduðu 650 tonnum af gulldeplu í Eyjum

Nýlokið er löndun á 650 tonnum af gulldeplu úr Hugin VE 55 í Vestmannaeyjum. Aflinn veiddist á Grindavíkurdjúpi. Gulldeplan finnst nú í stórum torfum suður af landinu.

Atvinnulausum fjölgar um eitt þúsund á einni viku

Rúmlega 11 þúsund manns eru nú á atvinnuleysisskrá samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Fyrir viku síðan voru atvinnulausir 10.050 og hefur því fjölgað um rúmlega eitt þúsund á einni viku.

Héraðsdómur dæmir handtöku löglega

Íslenska ríkið hefur verið sýknað af bótakröfu karlmanns sem taldi á sér brotið þegar lögreglan handtók hann á skemmtistaðnum Áttunni í Hafnarfirði í febrúar 2007. Maðurinn krafðist einnar milljónar króna í bætur.

Sjá næstu 50 fréttir