Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Líkur á sátt á Alþingi um skipan rannsóknarnefndar Allar líkur eru á að samkomulag takist milli stjórnar og stjórnarandstöðu um skipan rannsóknarnefndar vegna bankahrunsins. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna funduðu í morgun með forsætisráðherra og forseta alþingis um málið. 22.11.2008 12:30
Flaggari handtekinn í Alþingishúsinu í gær Annar þeirra sem flaggaði Bónusfána á Alþingishúsinu í mótmælum fyrir hálfum mánuði var handtekinn í gærkvöldi. Lögregla greip manninn þar sem hann var í vísindaferð með háskólafélögum á Alþingi. Honum var umsvifalaust gert að afplána eldri dóm án lögbundins fyrirvara og það degi fyrir boðuð mótmæli í miðbænum. 22.11.2008 12:16
Vill að erlendir bankar eignist hlut í þeim íslensku Fjármálaráðherra segir æskilegt að þeir erlendu bankar sem eiga inni fjármuni hjá íslensku bönkunum eignist hlut í þeim. Að hans mati getur þetta ekki gerst nógu hratt en viðræður eru þegar hafnar. 22.11.2008 12:15
Össur: Olía mun gera Ísland að ríkustu þjóð í heimi Grunnurinn í íslensku atvinnulífi er sterkur. Það er ástæðan fyrir því að Ísland mun ná sér miklu fyrr upp úr djúpri kreppu sem bankahrunið hratt af stað, að mati Össur Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra. 22.11.2008 11:15
Mótmælt á Austurvelli í dag Í dag fara fram sjöundu skipulögðu mótmælin á vegum Raddir fólksins á Austurvelli frá því fjármálakreppan reið yfir. Mótmælendum hefur heldur fjölgað frá því þau hófust fyrir sjö vikum en síðast liðinn laugardag er talið að á bilinu sex til sjö þúsund manns hafi komið saman á Austurvelli Mótmælin í dag hefjast klukkan þrjú. 22.11.2008 11:00
Bjóða fólki að kasta krónunni og taka upp evruna Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, bjóða landsmönnumum að kasta krónunni og taka upp evruna í dag. 22.11.2008 10:45
Hefja viðræður við hálaunahópa hjá ríkinu um launalækkun Ríkisstjórnin mun á næstu dögum hefja viðræður við fulltrúa hálaunahópa hjá ríkinu um tímabundna launalækkun þeirra til samræmis við þá launalækkun sem ríkisstjórnin óskaði eftir við Kjararáð í gær að komi til framkvæmda hjá æðstu ráðamönnum þjóðarinnar á næsta ári. 22.11.2008 10:09
Talsverð ölvun á höfuðborgarsvæðinu - Nokkrir stútar teknir Töluvert var um ölvun á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Fjórir voru teknir grunaðir um ölvunarakstur og þá komu tvær líkamsárásir inn á borð lögreglu sem voru þó ekki alvarlegar. Að sögn lögreglu gekk nóttin vel þrátt fyrir mikla ölvun í miðbænum og í heimahúsum. 22.11.2008 09:44
„Ertu að rífast við mig drengur?“ G. Pétur Matthíasson fyrrverandi fréttamaður á RÚV birti nú í kvöld á blogginu sínu viðtal sem hann tók við Geir H. Haarde forsætisráðherra í byrjun árs 2007. 21.11.2008 23:01
Icelandair býður 25% afslátt á miðum á Norðurlöndum „Icelandair þakkar kærlega fyrir hjálpina, og kvittar fyrir með 25% afslætti!“ Þetta hefur danski vefmiðillinn Epn upp úr fréttatilkynningu frá félaginu. 21.11.2008 20:03
Margdæmdur íslenskur níðingur dæmdur í Noregi Margdæmdur íslenskur barnaníðingur var fyrr í mánuðinum dæmdur í þriggja ára og níu mánaða fangelsi í noregi fyrir að reyna að nauðga tíu ára stúlku í lok febrúar á þessu ári. 21.11.2008 18:38
Jónas Fr. þarf að vernda fyrir fjölmiðlum Vernda þarf Jónas Fr. Jónsson forstöðumann fjármálaeftirlitsins fyrir fjölmiðlum og sýna þeim að ríkisstjórnin sé stolt og sýni frumkvæði. Þetta er meðal þess sem kemur fram í aðgerðaráætlun sem Norðmaðurinn Bjorn Richard Johansen vann fyrir forsætisráðherra og fjallað var ítarlega um í kvöldfréttum RÚV og Kastljósinu. 21.11.2008 22:23
Nærri 350 tilkynningar um kynferðisbrot í fyrra Nærri 350 tilkynningar um kynferðisbrot, þar af 90 um nauðganir, bárust lögreglunni á síðasta ári. Eru þetta 14 prósentum fleiri brot en að meðaltali árin 2002-2006. Alls voru 346 málin kærð og var um að ræða 265 einstaklinga en langstærstur hluti þeirra var karlar. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra fyrir síðasta ár. 21.11.2008 16:45
Svartir tímar framundan hjá innflutningsfyrirtækjum Lán innflutningsfyrirtækja hafa hækkað um 150 prósent á einu ári. Öll þurfa þau að staðgreiða vörur frá útlöndum og framundan eru svartir tímar, segir framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna. Hann segir ríkið verða að skipta um gjaldmiðil. 21.11.2008 19:48
Ríkisstjórnin vill lækka laun æðstu embættismanna ríkisins Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur skrifað bréf til kjararáðs og óskað eftir því að laun þeirra sem heyra undir kjararáð verði endurskoðuð og ákveðið tímabundið að lækka laun þeirra sem heyra undir ráðið. Þeir sem heyra undir kjararáð eru forseti Íslands, alþingismenn, ráðherrar, hæstaréttardómarar og héraðsdómara, auk forstöðumenn helstu ríkisstofnana. 21.11.2008 17:08
Ekið á vegfaranda hjá Suðurveri Ekið var á gangandi vegfaranda á Kringlumýrarbraut gegnt suðurveri rétt í þessu. Lögregla er á leið á staðinn, en að svo stöddu liggja engar upplýsingar fyrir um líðan hins slasaða. 21.11.2008 18:09
Engum kaupsamningi þinglýst á Akureyri í vikunni Einungis 35 kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í liðinni viku samkvæmt upplýsingum á vef Fasteignamats ríkisins. 21.11.2008 17:37
Elding fær umhverfisverðlaun Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu voru afhent í 14 sinn í gær. Þau komu í hlut Hvalaskoðun Reykjavík ehf. / Elding fyrir „markvissa stefnu og fyrir að hafa sett sér það markmið að vinna að stöðugum úrbótum í umhverfismálum,“ að því er segir í tilkynningu. 21.11.2008 16:56
Nokkrir hafa áhuga á Kaupþingi í Lúxemborg Nokkur félög hafa lýst yfir áhuga á að kaupa starfsemi Kaupþings í Lúxemborg. Frá þessu greindi Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu, á blaðamannafundi í dag eftir fund með belgískum innistæðueigendum sem áttu fé hjá Kaupþingi í Lúxemborg. 21.11.2008 16:20
Frumvarp til að greiða fyrir bílasölu úr landi lagt fram á Alþingi Fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um vörugjald af ökutækjum og lögum um virðisaukaskatt. Með frumvarpinu er lagt til að heimilað verði fram í apríl á næsta ári að endurgreiða virðisaukaskatt og vörugjald af notuðum ökutækjum sem flutt eru úr landi. 21.11.2008 15:49
Dæmdir fyrir stórfelldan þjófnað í Reykjanesbæ Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt þrjár karlmenn á aldrinum 22 til 34 ára í samtals 14 mánaða fangelsi fyrir stórfelldan þjófnað og fjórða manninn í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hylma yfir með þeim með því að geyma þýfið í íbúð sinni. 21.11.2008 15:26
Birgir Ármannsson: Ríkisstjórnin með sterkan meirihluta Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar og segir að þingmenn hafi önnur og brýnni mál að ræða. 21.11.2008 14:59
Misvísandi skilaboð kalla á vantrauststillögu „Í ljósi misvísandi skilaboða þingmanna Samfylkingarinnar er eðlilegt að stjórnarandstaðan kanni það hversu sterkan meirihluta á þingi stjórnin hafi,“ segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, um vantrauststillöguna sem formenn stjórnarandstöðuflokkanna lögðu fram á Alþingi í dag. 21.11.2008 14:52
Sex mánaða fangelsi fyrir að berja og bíta sambýliskonu Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að ganga í skrokk á fyrrverandi sambýliskonu sinni í júlí í fyrra. 21.11.2008 14:33
Höfum ekkert að gera í ESB að óbreyttri fiskveiðistefnu þess Adolf Guðmundsson, nýkjörinn formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, er ómyrkur í máli um Evrópusambandið og fiskveiðistefnu þess í viðtali í Fiskifréttum í dag. 21.11.2008 14:31
Hvað sagði Davíð við Steinunni Valdísi? Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður og fyrrverandi borgarstjóri veltir því nú fyrir sér hvort hún eigi að „upplýsa samskipti sín við fyrrverandi forsætisráðherra eftir umdeilda ræðu á Austurvelli 17. júní 2002 um mannréttindi." Þetta kemur fram á Facebook síðu Steinunnar Valdísar. Þegar Vísir hafði samband við Steinunni vildi hún ekkert meira segja um málið að svo stöddu, hún myndi segja frá þessum samskiptum þegar sér hentaði. 21.11.2008 14:31
Reiddi hátt til höggs Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt 19 ára pilt í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið annan mann með járnáhaldi þannig að hann hlaut djúpt sár á framhaldlegg. 21.11.2008 14:30
Svíar samþykkja Lissabon-sáttmálann Sænska þingið staðfesti í gærkvöldi Lissabon-sáttmálann umdeilda og varð Svíþjóð þar með tuttugasta og fjórða Evrópusambandsríkið til að gera það. 21.11.2008 14:16
Þjóðleikhúsið sníði sér stakk eftir vexti Brýnt er að Þjóðleikhúsið haldi rekstri sínum innan fjárlaga og sníði sér stakk eftir vexti. Þetta er meðal þess sem fram kemur í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á leikhúsinu. 21.11.2008 14:10
Telur ekki að Sjálfstæðisflokkurinn verði fyrir skaða til langs tíma Geir H. Haarde forsætisráðherra telur ekki að Sjálfstæðisflokkurinn verði fyrir skaða, sé til langs tíma litið, þótt gremja fólks bitni að einhverju leyti á flokknum um stund. Nokkuð hefur verið um úrsagnir úr flokknum sem rekja má til aðgerða stjórnvalda í bankakreppunni. 21.11.2008 13:51
Standa fyrir sameiginlegu átak gegn ölvunarakstri Lögregluliðin á Suðvesturlandi hafa hafið sameiginlegt átak gegn ölvunarakstri sem standa mun til áramóta. 21.11.2008 13:47
Róbert beitir sér fyrir samstarfi við virta sjúkrastofnun í Bandaríkjunum Hugsanlegt er að Háskólinn í Reykjavík og heilbrigðisstofnanir hér á landi fari í samstarf við eitt virtasta sjúkrahús Bandaríkjanna í tengslum við rannsóknir á brjóstakrabbameini. 21.11.2008 13:30
Kanna hagkvæmni þess að framleiða eldsneyti hér á landi Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra undirritaði viljayfirlýsingu í morgun með japanska fyrirtækinu Mitsubishi, Heklu, Orkustofnun og Nýsköpunarmiðstöð Íslands um að athuga hvort hagkvæmt sé að byggja og reisa eldsneytisverksmiðju á Íslandi. 21.11.2008 13:03
Endurnýjað umboð nauðsynlegt Katrín Júlíusdóttir þingmaður Samfylkingarinnar segir, að yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að ótímabært sé að ræða kosningar á næsta ári, engu breyta um sína skoðun í málinu. Kjörnir fulltrúar ættu að fá umboð sitt endurnýjað í ljósi breyttra aðstæðna. 21.11.2008 12:57
Yfirheyrðir í viðurvist barnaverndaryfirvalda Lögreglan á Suðurnesjum er búin að hafa uppi á öllum þremur piltunum, sem gengu í skrokk á skólafélaga sínum á lóð Njarðvíkurskóla í gær, þannig að gera þurfti að sárum fórnarlambsins á heilsugæslustöðinni. 21.11.2008 12:36
Stjórnarandstaðan leggur fram vantrausttillögu - Vill rjúfa Alþingi fyrir áramót Formenn stjórnarandstöðuflokkanna, þau Steingrímur J. Sigfússon, Valgerður Sverrisdóttir og Guðjón Arnar Kristjánsson, hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að lýsa vantrausti á ríkisstjórnina. 21.11.2008 12:32
Segir Róbert Wessmann hafa skoðað skurðstofur Róbert Wessmann, stjórnarformaður Salt Investments, var á ferðinni á dögunum með fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins að skoða Heilbrigðsstofnun Suðurnesja og sýndi skurðstofum sem til stendur að loka mikinn áhuga. Þetta fullyrðir Helga Sigrún Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. 21.11.2008 11:47
Erlent eignarhald kemur til greina Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra segir það koma til greina að erlent eignahald verði að hluta á íslensku viðskiptabönkunum í framtíðinni. 21.11.2008 11:41
Ekki rætt um flatan 10 prósenta niðurskurð í heilbrigðisráðuneyti Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segir ekki rætt um flatan tíu prósenta niðurskurð í heilbrigðisráðuneytinu og að ríkisstjórnin geri allt sem hún geti til þess að verja velferðarkerfið, þar á meðal heilbrigðisþjónustuna. 21.11.2008 11:36
Geir staðfestir að breytingar verði á eftirlaunum ráðamanna Frumvarp um breytingar á eftirlaunalögunum verður vonandi lagt fyrir Alþingi í næstu viku, að sögn Geirs H. Haarde forsætisráðherra. 21.11.2008 11:36
Segir auðmann hafa sýnt skurðstofum á Suðurnesjum áhuga Helga Sigrún Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði heilbrigðsráðherra um það á Alþingi í dag í hvaða erindagjörðum einn af þekkstu auðmönnum landsins hefði verið þegar hann skoðaði starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja með starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins á dögunum. 21.11.2008 11:22
Ingibjörg Sólrún: Ótímabært að ræða kosningar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, er ósammála þeim Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra og Björgvini G. Sigurðssyni viðskiptaráðherra að ganga eigi til kosninga á næsta ári. Þetta sagði hún í samtali við fréttamenn eftir ríkisstjórnarfund í morgun. 21.11.2008 11:10
Segir frumvarp um breytingar á eftirlaunalögum verða kynnt stjórnarandstöðu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir að frumvarp um breytingar á eftirlaunalögunum umdeildum verði að líkindum kynnt formönnum stjórnarandstöðuflokkanna. Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Valgerðar Sverrisdóttur, formanns Framsóknarflokksins.Ingibjörg gaf hins vegar ekki upp hvernær slíkt frumvarp yrði lagt fram. 21.11.2008 11:02
Telur ESB-þjóðir ekki munu leggjast gegn aðild Íslands Olli Rehn, ráðherra stækkunarmála hjá Evrópusambandinu, telur ólíklegt að þjóðir sambandsins leggist gegn því að Ísland gerist aðili að sambandinu, svo framarlega sem samkomulag um innistæður í gömlu bönkunum erlendis liggi fyrir. 21.11.2008 10:30
Hætta við jólahlaðborðsferðir frá norskum bæjum til Íslands Norska ferðaskrifstofan Islandsferder, sem sérhæfir sig í ferðum fyrir Norðmenn til Íslands, hefur hætt við jólahlaðborðsferðir sínar til landsins frá völdum stöðum í Noregi. 21.11.2008 10:13