Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Selja vatn á Bandaríkja- og Bretlandsmarkað Byrjað verður að reisa vatnsverksmiðju á Rifi á Snæfellsnesi í næsta mánuði og en reiknað er með að hún muni skapa um 50 störf. Vatnið verður flutt út frá Rifi bæði til Bretlands og Bandaríkjanna. 15.8.2007 12:46
Íslenska loftvarnakerfið undir það evrópska innan nokkurra vikna Íslenska loftvarnarkerfið verður hluti þess evrópska innan fárra vikna. Íslendingar taka við rekstri fjögurra ratsjárstöðva sem því tengjast úr höndum Bandaríkjamanna í dag. NATO leggur mikla áherslu á að rekstri þess verði haldið áfram líkt og íslensk stjórnvöld hafa ákveðið. 15.8.2007 12:38
Höfnuðu írsku ferjunni oftar en einu sinni Sveitarstjóri Grímseyjar segir heimamenn hafa hafnað írsku ferjunni, Oliean Arann, oftar en einu sinni og komið þeim skilaboðum til bæði Vegagerðarinnar og samgönguráðuneytisins. Hann segir fulltrúa Grímseyjar einnig hafa varað báðar stofnanir við því að kostnaður við viðgerð yrði mun meiri en áætlað var - enda hafi skipið litið hrikalega út. 15.8.2007 12:36
Hagkaup innkallar leikfangabíla frá Mattel Hagkaup hefur innkallað ákveðna tegund leikfangabíls sem leikfangarisinnn Mattell framleiddi. Um er að ræða svokallaðan Cars Sarge bíl og eru allir sem keyptu slíkan bíl, bæði stakan og í pakkningu með öðrum bíl á tímabilinu maí til dagsins í dag, beðnir um að skila honum strax í næstu verslun Hagkaupa. 15.8.2007 11:36
Iceland Express flýgur til Barcelona Iceland Express mun fljúga til Barcelona í vetur og hefst sala á hádegi þann 16. ágúst. Flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, á tímabilinu frá 9. nóvember til loka maí að undanskildu hléi frá miðjum desember fram til 1. febrúar. 15.8.2007 10:50
Nýtt hátæknifyrirtæki á Akureyri Ítalska hátæknifyrirtækið Becromal mun hefja starfsemi á Akureyri á næstunni og mun fyrsti áfangi verksmiðjunnar skapa um 40-50 ný störf. Áætlað er að verksmiðjan muni rísa á næstu tveimur árum. 15.8.2007 10:49
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í bílslysi á Þorlákshafnarvegi í fyrrakvöld hét Jóhannes Örn Guðmundsson og var til heimilis að Setbergi 12, Þorlákshöfn. Jóhannes var 41 árs og lætur eftir sig tvö börn, 20 ára og 5 ára. 15.8.2007 10:43
Sýslumenn kostuðu meir en gert var ráð fyrir Á fundi fjárlaganefndar síðdegis í dag verður rætt um skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrir árið 2006. Þar kemur fram hvernig ríkisstofnanir hafa haldið sig innan fjárlaga. Gunnar Svavarsson formaður fjárlaganefndar segir að nýlundan í skýrslunni sé væntanlega sú að dómsmálaráðuneytið fari nokkuð framúr fjárlögum og sé það einkum sökum þess að sameining og breytingar á sýslumannsembættum hafi kostað meir en gert var ráð fyrir á síðasta ári. 15.8.2007 10:37
Kvikmyndagerðarmenn vilja fund með útvarpstjóra Hjálmtýr Heiðdal formaður Félags kvikmyndagerðarmanna segir að FK vilji fá fund með útvarpstjóra hið fyrsta. Á fundi FK í vikunni var m.a. rætt um þjónustusamning þann sem menntamálaráðherra gerði við RUV um framleiðslu á innlendu efni. Á fundinum kom fram að félagsmenn FK telja ófært að óvissa ríki um útfærslu á samningnum og eftirlit með honum. 15.8.2007 10:03
Keilir afhenti fyrstu íbúðirnar í morgun Keilir afhenti tilvonandi nemendum sínum fyrstu íbúðirnar á háskólasvæðinu í morgun. Skólastarf hefst þann 27. ágúst næstkomandi. Þegar hafa verið leigðar út um 300 íbúðir en 30 nýjum íbúðum hefur verið bætt við þann fjölda síðustu daga og verðum þeim úthlutað á næstunni. 15.8.2007 10:00
Reykás ræður ekki við veiðina „Nei, við ráðum bara ekki við meira eins og er. Það hefur veiðst svo vel, sérstaklega úr Rangánum,“ segir Sigurbjörn Guðmundsson í Fiskiðjunni Reykási, þar sem fiskur er grafinn, reyktur og flakaður. 15.8.2007 06:00
Íslensk börn á barnaklámssíðu Myndir af íslenskum börnum má finna á erlendum barnaklámssíðum. Í tenglasafni ákveðinnar rússneskar síðu má finna tengla á myndir af íslenskum börnum, sem hýstar eru á vefsvæði Barnalands. Notendur Barnalands voru varaðir við þessu á spjallþræði á vefnum í gær. 15.8.2007 05:45
Vatnsverksmiðja rís strax Iceland Glacier Products efh og Snæfellsbær hafa skrifað undir samkomulag þess efnis að fyrirtækið reisi vatnsverksmiðju á Rifi í Snæfellsbæ. Greint hafði verið frá fyrirætlunum um þetta í lok júlí, en beðið hefur verið eftir því að fyrirtækið uppfylli öll skilyrði bæjaryfirvalda, að því er fram kemur á vef Skessuhorns. 15.8.2007 05:00
Maðurinn á batavegi Maðurinn sem hlaut alvarleg brunasár í gassprengingu í Fljótsdal 12. júlí er á batavegi og hefur verið útskrifaður af Landsspítalanum. Samkvæmt vakthafandi lækni á bruna- og lýtalækningadeild útskrifaðist maðurinn af deildinni viku eftir slysið. 15.8.2007 03:00
Peningum og fartölvum stolið Brotist var inn á fjórum stöðum í iðnaðarhverfi á Selfossi í fyrrinótt. Tveimur fartölvum, einhverjum peningum og öðrum smámunum var stolið, að sögn varðstjóra lögreglunnar á Selfossi. 15.8.2007 03:00
Yfir 300 manns rannsakaðir Þrír hafa greinst með berkla á Íslandi það sem af er ári. Þetta kemur fram í nýútkomnum Farsóttafréttum, fréttabréfi sóttvarnalæknis. 15.8.2007 02:00
Íbúðalánasjóður hækkar vexti Forsvarsmenn Íbúðalánasjóðs hafa ákveðið að hækka skuli útlánsvexti íbúðalána um 0,05 prósent. 15.8.2007 02:00
Útafakstur á Snæfellsnesi Bíll fór útaf veginum við Fróðarafleggjara á Snæfellsnesi um klukkan hálf sjö í kvöld. Tveir voru í bílnum en þá sakaði ekki að sögn lögreglu. 14.8.2007 21:52
Með kókain og hass í fórum sínum Héraðsdómur Reykjaness þingfesti í dag mál gegn karlmanni á 24. aldursári sem ákærður var fyrir vörslu fíkniefna. Lögreglan fann talsvert magn af kannabisefnum og kókaíni í bifreið mannsins í janúar síðastliðinn. Meira magn fannst við leit á heimili mannsins. 14.8.2007 21:00
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald yfir síbrotamanni Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 31. október næstkomandi. Maðurinn krafðist þess að úrskurður héraðsdóms yrði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi yrði markaður skemmri tími. 14.8.2007 20:13
Veitingamenn svara Það er gott að við fáum að vera með í umræðum um miðbæinn um helgar, segja skemmtistaðaeigendur. Það sé hins vegar hvorki þeirra að sjá um löggæslu, né að bera ábyrgð á að koma mjög drukknu fólki heim í uppábúið rúm. Sölvi í Íslandi í dag hitti tvo menn sem þekkja skemmtanalífið betur en flestir. 14.8.2007 20:10
Hnífamaður ákærður Tuttugu og þriggja ára reykvískur karlmaður hefur verið ákærður fyrir vopnalagabrot, en lögregla fann fjaðurhníf við leit á ákærða. Þá var maðurinn einnig ákærður fyrir vörslu fíkniefna og að aka undir áhrifum fíkniefna. Málið var þingfest í héraðsdómi Reykjaness í dag. 14.8.2007 20:00
Grímseyjarhreppur lagðist gegn kaupum á M/V Oilean Arann Sveitarstjórn Grímseyjarhrepps mælti gegn því að gengið yrði frá kaupum á skipinu M/V Oilean Arann vegna endurnýjunar á Grímseyjarferju. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sveitarstjórninni. Þá vísar sveitarstjórnin því á bug sem fram kemur í skýrslu ríkisendurskoðunar að engar athugasemdir hafi borist frá Grímseyingum vegna málsins. 14.8.2007 19:23
Surtsey skoðuð Fulltrúi Alþjóða náttúruverndarsamtakanna segir Surtsey eiga góða möguleika á að komast á Heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Hann er nú staddur hér á landi fyrir hönd stofnunarinnar til að meta eyjuna og skoðaði hana í gær. 14.8.2007 19:20
Öllum starfsmönnum Ratsjárstofnunar sagt upp Öllum starfsmönnum Ratsjárstofnunar, þar á meðal forstjóra, verður sagt upp. Þetta er liður í endurskipulagningu en spara á í rekstri loftvarnarkerfisins. Samningi Ratsjárstofnunar við Símann um rekstur og viðhald ljósleiðarakerfis verður einnig sagt upp. Síminn hefur fengið 120 milljónir á ári til að vinna verkið. 14.8.2007 19:13
Undirskriftir gegn blokkum á Nónhæð Íbúar á Nónhæð í Kópavogi safna nú undirskriftum til að mótmæla fyrirhuguðum blokkarturnum á kolli hæðarinnar. Árni Jónsson, formaður íbúasamtaka hverfisins, furðar sig á að réttur íbúa til að verja sig sé minni þegar setja á þúsund manna byggð í bakgarðinn - heldur en þegar nágranninn vill hækka girðinguna sína. 14.8.2007 18:53
Flugorrustur æfðar við Íslandsstrendur á Norðurvíkingi Bandarískir og Norskir orrustuflugmenn börðust á F15 og F16 herþotum í lofthelgi Íslands í dag - en einungis í æfingaskyni. Loftvarnir Íslands voru æfðar suður af Reykjanesi á heræfingunni Norðurvíkingur í dag, en hún hefur tekist vel að sögn talsmanns æfingarinnar. 14.8.2007 18:51
Mistök Vegagerðar að skoða ferjuna ekki betur Vegagerðin taldi ekki réttlætanlegt að eyða meiru fé í að skoða írsku ferjuna áður en hún var keypt til Grímseyjarsiglinga. Það leiddi til þess að kostnaður við ferjuna fór hundruð milljóna fram úr áætlun. Vegamálastjóri segir Vegagerðina bera ábyrgðina. Grímseyjarferjan kostar líklega rúmar fimm milljónir á hvern íbúa eyjunnar. 14.8.2007 18:47
Fimm sinnum dýrara að grilla hér en á Spáni Það er fimm sinnum dýrara að grilla úti á Íslandi en í Suður-Evrópu. Íslendingar greiða fimm sinnum hærra verð fyrir gaskútinn en Spánverjar. Innflytjendur á gasi segja að flutningskostnaður og lítill markaður hér ráði miklu um verðmuninn. 14.8.2007 18:44
Vegrifflur geta fækkað slysum um allt að 60 prósent Vegagerðin hyggst auka öryggi vegfarenda með því að fræsa sérstakar "rifflur" í vegarkanta sem gera ökumönnum viðvart þegar bílar rása út í kantana. Reynslan sýnir að þessi aðgerð getur dregið úr slysum um allt að sextíu prósent. 14.8.2007 18:40
Varað við barnaperrum á barnalandi Dæmi eru um að óprúttnir einstaklingar hlaði niður myndum af börnum sem settar eru á vefsíðuna barnaland.is og dreifi áfram sem barnaklám. Á spjallþráði á barnalandi er fullyrt að fjórtán íslenskar vefsíður með myndum af börnum hafi verið misnotaðar á þennan hátt. Fólk er nú hvatt til að læsa síðunum sínum. 14.8.2007 18:01
Öllum starfsmönnum Ratsjárstofnunar sagt upp Öllum starfsmönnum Ratstjárstofnunar, 46 talsins, verður sagt upp frá og með morgundeginum. Samráð er þegar hafið við starfsmennina á grundvelli laga um hópuppsagnir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem utanríkisráðuneytið sendi frá sér fyrir stundu. 14.8.2007 17:10
Ákærður fyrir lyfjaakstur Karlmaður á fertugsaldri var í dag ákærður fyrir fíkniefnalagabrot og lyfjaakstur. Málið var þingfest í héraðsdómi Reykjaness í dag. Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og hann sviptur ökuréttindum. 14.8.2007 16:33
Með fjögur pör af handjárnum og loftbyssu Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir vopnalagabrot. Honum er gefið að sök að hafa haft í vörslu sinni 4 pör af handjárnum, loftskammbyssu og kúlur í byssuna. Lögregla fann vopnin við leit í íbúð ákærða í Hafnarfirði og krefst þess að þau verði gerð upptæk. Málið var þingfest fyrir héraðsdómi Reykjaness í dag. 14.8.2007 16:10
Mattel leikföngin í Leikbæ skaðlaus Elías Þorvarðarson, framkvæmdastjóri Leikbæjar, segir að engin gölluð Mattel leikföng séu í sölu hjá þeim. Hann segir að Leikbær hafi skrifað bréf til bandaríska leikfangaframleiðandans Mattel eftir að fyrirtækið innkallaði níu milljónir leikfanga. Talið var að leikföngin innihéldu blý og segulstál sem gætu verið hættuleg börnum. 14.8.2007 15:21
Hefur áhyggjur af því að frístundakortin verði misnotuð Björn Ingi Hrafnsson, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar, segir að borgaryfirvöld hafi áhyggjur af því að einhver félög kunni að nýta sér frístundakort ÍTR til að hækka gjaldskrár sínar. Því hafi borgin kortlagt gjaldskrár aftur í tímann til að koma í veg fyrir óeðlilegar hækkanir. 14.8.2007 14:23
Vegagerðin ber ábyrgð á mistökum varðandi nýja Grímseyjarferju Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri segir að Vegagerðin ber ábyrgð á því hvernig málum er komið með endurnýjun á Grímseyjarferjunnar og þar með hann. Hann segist ekki ætla segja upp störfum vegna málsins enn sem komið er. 14.8.2007 13:33
Ritar forstjóra Símans bréf og fer fram á skýringar Bæði slökkviliðsstjórinn og bæjarstjórinn í Bolungarvík gagnrýna harðlega þau vinnubrögð sem Síminn viðhafði þegar símasamband í bænum var rofið í nótt. Bæjarstjórinn ritar nú forstjóra Símans bréf þar sem hann fer fram á skýringar á því hvers vegna bæjaryfirvöld og viðbragðsaðilar hafi ekki vitað af málinu fyrr en í gær. 14.8.2007 13:16
Erlendum starfsmönnum fjölgar Júlí er annar mánuðurinn í röð þar sem töluvert fleiri starfsmenn koma til landsins en raunin var á sama tíma í fyrra. Í júlí í ár voru útgefin atvinnuleyfi og fjöldi skráninga samtals 936 samanborið við 450 í júlí í fyrra. 14.8.2007 13:10
HB Grandi segir ekki hvað þeir ætla með milljarða lóð Á fundi stjórnar Faxaflóahafna síðdegis í dag verður m.a. rætt um óskir HB Granda um að fá ca. 8000 fm lóð til afnota í Örfirisey. Eggert B. Guðmundsson forstjóri HB Granda segir í samtali við visir.is að hann sé ekki tilbúinn að greina frá því til hvers fyrirtækið ætli sér að nýta lóðina. Um er að ræða dýrustu lóðir í borginni og má áætla að virði lóðar þeirrar sem HB Grandi sækir um sé ekki undir 1,5 milljarði kr. 14.8.2007 13:00
Æfa flutning liðsafla til landsins á ófriðartímum Heræfingin Norður-Víkingur hófst formlega í morgun, en síðustu þátttakendurnir komu hingað til lands í gær. Alls koma um þrjú hundruð manns að æfingunni, frá Íslandi, Bandaríkjunum, Danmörku og Noregi. Atlantshafsbandalagið kemur einnig að æfingunni. Henni er skipt í tvennt, loftvarnaræfingu og æfingu gegn hryðjuverkum. 14.8.2007 12:58
Vegagerðin skili verk- og kostnaðaráætlun fyrir vikulok Samgönguráðuneytið hefur falið Vegagerðinni að mynda umsvifalaust sérstakan verkefnahóp í kjölfar svartrar skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurbætur á nýrri Grímseyjarferju. Ráðherra hefur einnig óskað eftir nákvæmri verk- og kostnaðaráætlun og á að skila henni nú fyrir vikulok. Stjórnsýsluúttekt verður einnig framkvæmd á Vegagerðinni. 14.8.2007 12:54
Kæra fund til FME þar sem atkvæðaskrá hafi verið röng Deilunum um sameiningu Sparisjóðs Skagafjarðar og Sparisjóð Siglufjarðar virðist hvergi nærri lokið. Hópur smærri stofnfjáreigenda hefur kært aðalfund Sparisjóðs Skagafarðar sem fram fór í gær til Fjármálaeftirlitsins á þeim grundvelli að atkvæðaskrá á fundinum hafi verið röng. Hann sé því ólöglegur. 14.8.2007 12:12
Skýrsla um Grímseyjarferju reiðarslag Kolsvört skýrsla Ríkisendurskoðunar um kaup á Grímseyjarferju er reiðarslag, segir Kristján Möller samgönguráðherra. Hann rekur framúrkeyrsluna meðal annars mega rekja til skipaverkfræðings sem Vegagerðin fékk ráðgjöf hjá. 14.8.2007 12:02
Innbrotahrina á Selfossi í nótt Brotist var inn í fjögur fyrirtæki í Gagnheiði á Selfossi í nótt. Lögreglan segir að peningum og ýmsum lausamunum, þar á meðal tölvum, hafi verið stolið. Þá hafi ýmsar skemmdir verið unnar. Að sögn lögreglunnar er ekki vitað hverjir voru að verki en málið er í rannsókn. 14.8.2007 11:53