Innlent

Öllum starfsmönnum Ratsjárstofnunar sagt upp

Öllum starfsmönnum Ratstjárstofnunar, 46 talsins, verður sagt upp frá og með morgundeginum. Samráð er þegar hafið við starfsmennina á grundvelli laga um hópuppsagnir. Gera má ráð fyrir að uppsagnarfrestur renni út í lok mars 2008 enda verður öllum starfsmönnum gefinn kostur á sex mánaða uppsagnarfresti. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem utanríkisráðuneytið sendi frá sér fyrir stundu.

„Íslensk stjórnvöld munu hinn 15. ágúst næstkomandi taka að fullu yfir rekstur og verkefni Ratsjárstofnunar frá Bandaríkjamönnum en stofnunin hefur hingað til verið rekin á grundvelli bandarískra reglna og starfsemin að fullu kostuð af bandarískum yfirvöldum. Á þessum tímamótum er mikilvægt að yfirtakan raski ekki núverandi starfsemi sem lýtur bæði að öryggis- og varnarmálum og að leitað verði leiða til að auka hagræðingu í rekstri starfseminnar og draga úr kostnaði ríkissjóðs.

Á leiðtogafundi NATO í Riga í nóvember 2006 óskaði forsætisráðherra eftir því að NATO tæki að sér eftirlit með íslenskri lofthelgi. Niðurstaða hermálanefndar bandalagsins 2. júlí og fastaráðsins 26. júlí var að vegna varnarþarfa yrði að tryggja áfram rekstur loftvarnakerfisins og samræmingar þess við evrópska loftvarnarkerfið. Þetta er forsenda þess að hingað til lands komi flugsveitir til tímabundins eftirlits og æfinga a.m.k. fjórum sinnum á ári," segir í tilkynningunni.

Búist er við að margir starfsmenn Ratsjárstofnunar verði endurráðnir að endurskipulagningu lokinni. Þó gerir utanríkisráðuneytið ráð fyrir að horft verði til flutnings starfa frá Reykjavík. Einnig er búist við að hluti ljósleiðaranets loftvarnarkerfisins verði nýttur til borgaralegra gagnaflutninga. Ráðuneytið segir að aðilar á markaði hafi lýst áhuga á að fá aðgang að ljósleiðurunum og starfshópurinn sé því að kanna hvernig, að höfðu samráði við NATO, megi flýta því að almenningur fái aðgang að netinu. Breytingin gæti leitt til þess að gagnaflutningagetan innanlands aukist um allt að 60%.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×