Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hestar og vélhjól fara ekki saman. Hestamenn á Hvolsvelli eru ekki hressir þessa dagana þar sem akstur torfæruhjóla hefur aukist verulega á reiðvegum þeirra. Hestamenn hafa kvartað mikið útaf þessu við lögregluna á staðnum, en það er stórhættulegt að blanda þessum reiðskjótum saman. 24.1.2006 07:27
Pælingar Halldórs Laxnes um kynhneigð á þriðja áratuginum Pælingar Halldórs Laxnes um kynhneigð á þriðja áratuginum er aðal umræðuefni á fyrirlestri sem haldin verður í Háskóla Íslands næstkomandi föstudag á vegum Samtakana 78. 24.1.2006 07:09
Óvíst með loðnukvótann Ekkert liggur enn fyrir um það hvort, eða hvenær kvóti verður gefinn út fyrir loðnuvertíðina í vetur þar sem Hafrannsóknastofnun hefur ekki enn náð nægilegum stofnmælingum til að geta metið veiðiþol stofnsins. Skip hafa nú orðið vör við loðnu úr af Norðurlandi og austur fyrir Langanes, og nokkur skip, sem hafa takmarkaðar veiðiheimildir gegn því að stunda leit, hafa fengið slatta hér og þar, en loðnan hefur verið full af átu og ekki hentað til fyrstingar til manneldis. 24.1.2006 07:07
Bílvelta á Gullinbrú Kona var flutt á slysadeild eftir að bíll hennar valt á Gullinbrú í Grafarvogi um klukkan ellefu í kvöld. Bíll konunnar skall á girðingu sem liggur á milli akreina á brúnni. 23.1.2006 23:52
Allt að 54% verðmunur á matarkörfunni Það getur munað yfir helmingi á matvörukörfunni eftir því hvar verslað er. Þetta kemur fram í verðlagskönnun sem ASÍ gerði í gær. Ódýrust var vörukarfan í verslun Bónus þar sem hún kostaði tæpar 3.300 krónur en dýrust var hún í verslun Tíu-ellefu en þar var vörukarfan á rúmar 5.000 krónur. 23.1.2006 22:46
Oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík segir ekkert í hendi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna, segir ekkert í hendi þótt ný skoðanakönnun sýni að nærri fjórir af hverjum tíu vilji að hann verði næsti borgarstjóri. Dagur B. Eggertsson, sem kemur næstur á eftir Vilhjálmi í könnunninni, telur sig eiga talsvert inni og segir Samfylkinguna geta stöðvað sókn sjálfstæðismanna í borginni. 23.1.2006 22:38
Nær allir starfsmenn Icelandic Asia segja upp 21 starfsmaður Icelandic Asia, sem áður hét Sjóvík, hefur sagt upp störfum hjá fyrirtækinu frá og með deginum í dag. Eftir eru 4 starfsmenn hjá fyrirtækinu. 23.1.2006 22:33
Áhafnarekstur Eimskipa til Færeyja Eimskip hefur ákveðið að skrá allan áhafnarekstur sinn í Færeyjum á næstu vikum en í Færeyjum bjóða stjórnvöld fyrirtækjum á þessu sviði endurgreiðslu á tekjuskattsgreiðslum áhafna upp á 28%. Vélstjórar eru óhressir með þróun mála og hafa ítrekað farið fram á það við íslensk stjórnvöld að þau grípi til aðgerða. 23.1.2006 22:26
Gömlu bækistöðvar Landhelgisgæslunnar hugsanlega seldar Á næstu dögum verður ákveðið hvort ríkið selji lóðina sína við Seljaveg þar sem Landhelgisgæslan hefur haft bækistöðvar sínar í rúmlega hálfa öld. Landhelgisgæslan flutti þaðan um helgina og er óvíst hvort ríkið hafi þörf fyrir húsnæðið áfram. 23.1.2006 22:22
40 milljóna króna styrkur til tækjakaupa Íslandsbanki veitti í dag Krabbameinsfélagi Íslands 40 milljóna króna styrk til kaupa á nýju stafrænu röntgentæki sem nýtist til forvarnarstarfs Krabbameinsfélagsins. 23.1.2006 22:11
Þingmaður Framsóknarflokks ræðst harkalega að forystu flokksins Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokksins ræðst harkalega á forystu flokksins á vefsíðu sinni í dag og sakar hana um sýndarlýðræði. Yfirþyrmandi samansafn helstu valdamanna flokksins hafi lýst stuðningi við Björn Inga Hrafnsson, aðstoðarmann forsætisráðherra og frambjóðanda í forystusætið í Reykjavík. 23.1.2006 22:05
Eimskip skráir skip sín í Færeyjum Eimskip hefur ákveðið að skrá allan áhafnarekstur sinn í Færeyjum á næstu vikum en í Færeyjum bjóða stjórnvöld fyrirtækjum á þessu sviði endurgreiðslu á tekjuskattsgreiðslum áhafna upp á tuttugu og átta prósent. Vélstjórar eru óhressir með þróun mála og hafa ítrekað farið fram á það við íslensk stjórnvöld að þau grípi til aðgerða. 23.1.2006 22:04
Vegagerðin og Landssamband lögreglumanna í hár saman Talsmaður Vegagerðarinnar segir Landssamband lögreglumanna vega að starfsheiðri umferðareftirlitsmanna. Segir hann landssambandið misskilja fyrirhugaðar breytingar á umferðareftirliti Vegagerðarinnar. 23.1.2006 21:58
Slasaðist í Bláfjöllum Stúlka var flutt á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús eftir að hafa slasað sig í Bláfjöllum. Slysið átti sér stað rétt fyrir klukkan átta í kvöld og kvartað stúlkan undan verkjum í mjöð. 23.1.2006 21:20
Kínverskur verktaki býður í Héðinsfjarðargöng Kínverskur járnbrautaverktaki, sem hlotið hefur viðurkenningu kínverskra stjórnvalda fyrir pólitíska uppfræðslu starfsmanna, er meðal þeirra sem fá að bjóða í Héðinsfjarðargöng. Vegagerðin hafnaði sama verktaka fyrir tveimur árum. 23.1.2006 21:03
Viðbrögð æfð Hvernig er best að bregðast við ef gámabíll með þúsund lítra af klórgasi innanborðs veltur með þeim afleiðingum að gámurinn rifnar og klórgas lekur út í andrúmsloftið? Þessari spruningu reyndu þáttakendur á viðamikilli æfingu að svara í dag. 23.1.2006 21:00
Er raforkuverð að drepa laxeldi á Íslandi? Er raforkuverð að drepa laxeldi í landinu? Kristján L. Möller þingmaður spurði að þessu á Alþingi í dag, en raforkuverð er önnur aðalástæða þess að Sæsilfur hættir starfsemi í Mjóafirði. Iðnaðaráðherra sakaði þingmanninn um vanþekkingu og sagði honum að skammast sín. 23.1.2006 20:56
Landlæknir varar einstaklinga og fyrirtæki við því að birgja sig upp af fuglaflensulyfjum Landlæknir varar eindregið við því að einstaklingar og fyrirtæki birgi sig upp af lyfjum vegna fuglaflensunnar. Það geti leitt til þess að birgðir gangi til þurrðar, og það sem verra er, að ótímabær notkun lyfsins vegna venjulegrar flensu geti leitt til ónæmis. Hann segist munu spyrna við fótum ef fyrirtæki taki upp á því í miklum mæli að hamstra lyfið. 23.1.2006 20:50
Íslandsbanki styrkir Krabbameinsfélag Íslands Í dag veitti Íslandsbanki Krabbameinsfélagi Íslands fjörtíu milljóna króna styrk. Styrkurinn verður notaður til að kaupa ný stafrænt röntgentæki sem nýtist til forvarnarstarfs Krabbameinsfélagsins. 23.1.2006 20:30
Frumvarp um Ríkisútvarpið á Alþingi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mælti fyrir frumvarpi um Ríkisútvarpið á Alþingi í dag. Stofnuninni verður breytt í hlutafélag, afnotagjöld lögð niður og tekin upp nefskattur. 23.1.2006 20:12
Bjórinnflytjendur reyna að lokka til sín 15 og 16 ára skólabörn Talsverð brögð eru að því að veitingastaðir og bjórinnflytjendur reyni að lokka til sín skólabörn allt niður í fimmtán, sextán ára. Skólarnir reyna að sporna við þessu en viðurlög við slíkum brotum eru léttvæg. 23.1.2006 19:49
Álverið í Straumsvík rúmlega tvöfaldað að stærð Álverið í Straumsvík verður meira en tvöfaldað að stærð á næstu fjórum árum og fjórar vatnsaflsvirkjanir byggðar í neðri Þjórsá og Tungnaá, samkvæmt áformum Alcan og Landsvirkjunar, sem kynnt voru í dag. Áður hafði Orkuveita Reykjavíkur samið um að útvega nærri helming nauðsynlegrar raforku vegna stækkunar í Straumsvík. 23.1.2006 19:45
Ríkisskattstjóri staðfestir tölur um aukna skattheimtu Indriði H. Þorláksson ríkisskattstjóri staðfestir að tölur Stefáns Ólafssonar prófessors um aukna skattheimtu séu réttar. Indriði segir að rýrnun persónuafsláttar leiði til meiri skattbyrði á lægri tekjur. Hann telur þó að stærsti áhrifavaldurinn í aukinni skattbyrði sé launaþróun og kaupmáttaraukning. 23.1.2006 19:40
Leikskólakennarar óánægðir með launamálaráðstefnu Stjórn og samninganefnd Félags leikskólakennara lýsir yfir miklum vonbrigðum með niðurstöður launamálaráðstefnunnar sem séu í senn óljósar og gefi takmörkuð fyrirheit. 23.1.2006 17:11
Frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða Samkvæmt nýju frumvarpi sjávarútvegsráðherra til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða er lagt til að sett verði hámark á samanlagða krókaaflahlutdeild þannig að enginn hafi yfir meiru að ráða en 6% af krókaaflahlutdeild í þorski, 9% krókaaflahlutdeild í ýsu og 6% af heildarverðmæti krókaaflahlutdeildar. 23.1.2006 16:29
Alcan á Íslandi og Landsvirkjun ræða um raforkusamning Landsvirkjun og Alcan á Íslandi hafa samþykkt að taka upp einkaviðræður um raforkusamning fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Stefnt er að því að þeim viðræðum ljúki fyrir lok þessa árs. 23.1.2006 16:12
Landsvirkjun leggur Norðlingaölduveitu til hliðar Landsvirkjun hefur ákveðið að hætta við undirbúning að Norðlingaölduveitu að svo stöddu. Landsvirkjun mun þess í stað einbeita sér að öðrum virkjunarkostum á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands er ósáttur við að Landsvirkjun sé ekki tilbúin að hætta alfarið við framkvæmdirnar. 23.1.2006 15:25
Actavis eignast tyrkneska samheitalyfjafyrirtækið Fako Tyrkneska samheitalyfjafyrirtækið Fako er nú að fullu í eigu Actavis eftir kaup þess á 11 prósenta hlut í Fako fyrir rúmlega 1,2 milljarða króna. 23.1.2006 14:25
Lögreglan á Selfossi hefur afskipti af veitinga- og skemmtistöðum Lögreglan á Selfossi þurfti að hafa afskipti af fjórum veitinga- og skemmtistöðum um helgina vegna þess að þeir höfðu ekki tilskylin leyfi fyrir starfsemina. Um er að ræða vínveitinga- og skemmtanaleyfi en leyfin voru útrunnin eða þau höfðu ekki verið fengin. 23.1.2006 14:05
Ljóslausir vagnar skapa hættu fyrir ökumenn Lögreglumenn á Hvolsvelli hafa undanfarnar vikur haft nokkur afskipti af ökumönnum dráttarvéla með tengivagna. Margir þessa vagna eru óskráðir og ljósabúnaður þeirra er lítill sem enginn. Vagnarnir sjást því illa í miklu myrkri og geta skapað nokkra hættu fyrir vegfarendur ef þeir sjá ekki vagnana í tæka tíð. 23.1.2006 12:45
GSA fagna fimm ára afmæli samtakanna GSA (Greysheeters Anonymous) halda upp á fimm ára afmæli samtakanna hér á landi með opnum kynnigarfundi næstkomandi fimmtudag. Um þessar mundir er verið að kynna samtökin öllum heilsustéttum í landinu og öðrum sem láta sig málið varða. 23.1.2006 12:23
HB Grandi hefur sagt upp allri áhöfninni á Víkingi AK 100 HB Grandi hefur sagt upp allri áhöfninni á Víkingi AK 100 og ætlar að leggja skipinu eftir loðnuvertíð fram í janúar á næsta ári. Verkefnaskortur er ástæðan segir deildarstjóri HB Granda. 23.1.2006 12:22
Frambjóðendur njóta góðs af valdamiklum stuðningsmönnum Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að valdahópur á landsvísu í flokknum, hafi óeðlileg áhrif á afstöðu framsóknarmanna til prófkjörs flokksins í Reykjavík. 23.1.2006 12:15
Björn segir verið að reyna að koma höggi á sig Björn Ingi Hrafnsson, frambjóðandi í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík, segir það enga tilviljun að sögusagnir af því að stuðningsmenn hans hafi veitt unglingum áfengi séu blásnar upp svo skömmu fyrir prófkjör. Björn sakar stuðningsmenn annars frambjóðanda um að reyna að koma höggi á sig. 23.1.2006 12:05
Fá útköll vegna ölvunar Helgin var róleg í umdæmi lögreglunnar á Álftanesi, í Garðabæ og í Hafnarfirði. Ekki var mikið um útköll vegna ölvunar í heimahúsum og rólegt var á skemmtistöðum. Alls voru fimmtán umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar en engin slys urðu á fólki. Þó varð nokkuð eignatjón í nokkrum þeirra. 23.1.2006 11:09
137 verkefni hjá lögreglunni á Akranesi Lögreglan á Akranesi sinnti alls 137 verkefnum í síðustu viku en þar af voru um 80 sem tengdust umferðinni. Ellefu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Nokkur hálka var á vegum og því voru ökumenn ekki að keyra eftir aðstæðum. 23.1.2006 10:33
Kennsla hefst í kínverskum fræðum í dag Kennsla hefst í kínversku og kínverskum fræðum hjá Símenntun Háskólans á Akureyri í dag. Alls verða kennd þrjú námskeið á þessu misseri, Kínverska I, Kínversk nútímamenning og Viðskipti við Kína. Aðsókn á námskeiðin fór fram úr björtustu vonum og þurfti að vísa nemendum frá. Gert er ráð fyrir að auka námsframboð í framtíðinni en frá og með hausti 2006 munu Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands bjóða upp á sameiginlegt B.A nám í Austur-Asíufræðum. 23.1.2006 10:12
Allri áhöfn Víkings AK 100 sagt upp störfum Allri áhöfn á Víkingi AK 100 var sagt upp störfum síðastliðinn laugardag. Skipið mun þó klára þessa loðnuvertíð ef veiðanleg loðna finnst. Skipinu verður lagt eftir loðnuvertíð fram í janúar á næsta ári. Ástæða uppsagnarinnar er verkefnaskortur segir í uppsagnabréfi til starfsmanna sem undirritað var af Vilhjálmi Vilhjálmssyni deildarstjóri HB Granda. 23.1.2006 08:04
Pólitískur styrkur mismikill meðal stuðningsmanna Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að valdahópur innan flokksins sé búinn að setja stuðningsmenn Önnu Kristinsdóttur og Óskars Bergssonar í prófkjöri flokksins í Reykjavík í þá aðstöðu, að ganga gegn vilja valdamikilla manna í flokknum á landsvísu. 23.1.2006 08:00
Verið að opna vegi á Vestfjörðum Nokkur hálka er á Vesturlandi, í Árnesi og Rangárvallasýslum. Á Vestfjörðum er verið að opna veginn til Patreksfjarðar um Klettsháls og Kleifarheiði og þaðan til Bíldudals um Háldfán. Þá er einnig verið að moka frá Ísafirði um Djúp yfir Steingrímsfjarðarheiði og suður fyrir. Á Öxnadalsheiði er skafrenningur, og hálka eða hálkublettir eru víða á Norðurlandi og Austurlandi. 23.1.2006 07:57
Hafnaði upp á vegriði Drukkinn ökumaður misti stjórn á bíl sínum í nótt með þeim afleiðingum að hann hafnaði upp á vegriði og komst hvorki lönd né strönd. Þetta gerðist rétti við Skeiðarvogsbrúnna yfir Miklubraut og sat ökumaðurinn enn í bílnum, þegar lögregla kom á vettvang. Hún fjarlægði ökumanninn og kranabíll bílinn hans, sem skemmdist nokkuð. 23.1.2006 07:20
Engar áætlunarferðir um sunnanvert Snæfellsnes Engar áætlunarferðir eru lengur um sunnanvert Snæfellsnes eftir að Sæmundur í Borgarnesi hætti sérleyfisakstri um síðustu mánaðamót og nýr aðilli tók við rekstirnum. Þannig geta stut ferðalög á Vesturlandi breyst í langferðir eins og til dæmis ef einhver úr Staðarsveit á sunnanverðu nesinu þarf að komast til Akraness. 23.1.2006 07:18
Skólahald með eðlilegum hætti Skólahald verður með eðlilegum hætti í Fellaskóla í Reykjavík í dag eftir mikla herferð gegn músagangi í skólanum um helgina. Umhverfissvið borgarinnar hafði í vikunni gert skólayfirvöldum að koma í veg fyrir músaganginn, ella yrði ekkert skólahald í dag eða næstu daga. Við úttekt umhverfissviðs á skólanum í gærkvöldi kom í ljós að árngur hafði orðið af alls herjar hreingerningu og holufyllingum í skólanum um helgina. 23.1.2006 07:11
Hækkandi raforkuverð ekki ástæðan Landsvirkjun mótmælir þeirri skýringu, sem stjórnendur Sæsilfurs gáfu nýverið, þess eðlis að hækkandi raforkuverð sé önnur aðal ástæða þess fyrirtækið ætli að hætta öllu laxeldi í Mjóafirði, en þar er meira en helmingur alls laxeldis í landinu. 23.1.2006 07:09
Barna- og fjölskylduguðþjónusta var haldin í Grafarvogskirkju í morgun Barna- og fjölskylduguðþjónusta var haldin í Grafarvogskirkju í morgun og var börnum boðið til hennar úr nágrannakirkjunum til að taka þátt í gleðinni. Íbúar Latabæjar komu í heimsókn en það voru þær Solla stirða og Halla hrekkjusvín sem töluðu við krakkana og fylgdust með guðsþjónustunni. 22.1.2006 18:39