Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þetta er líklegast alvarlegasta ógnin við framtíðarhagsmuni þessarar þjóðar Formaður Landverndar segir atvinnuvegaráðherra hafa afvegaleitt umræðuna um olíuleit og vinnslu á Drekasvæðinu, ákvarðanir um að leyfa mögulegar boranir verða ekki teknar í framtíðinni líkt og ráðherrann hefur sagt því þær hafa þegar verið teknar. 6.1.2013 19:49
Aldrei hugsað um peninga þegar um er að ræða líf Landspítalinn er nú að setja á fót sérstakt teymi vegna Fabry sjúkdómsins og tekur það til starfa á næstunni. Velferðarráðherra segir ekki hugsað um peninga þegar um er að ræða líf eins og í tilfelli bræðranna. 6.1.2013 18:54
"Þetta er í raun og veru bara spurning um líf" Sjaldgæfur erfðasjúkdómur greindist nýlega hjá sex fjölskyldumeðlimum. Hann hefur þegar dregið einn þeirra til dauða og bíða nokkrir hinna eftir að komast í lyfjameðferð. Kostnaður við hana hleypur á tugum milljóna á ári. 6.1.2013 18:40
Bauð þjófóttum vændiskonum í jólagleðskap Sendiherra Hondúras í Kólumbíu var sagt upp störfum í gær eftir að upp komst um ansi vafasamt jólaboð í desember. 6.1.2013 17:08
Fyrirtæki kaupa 32% þýskra bíla Þrátt fyrir slæmt efnahagsástand í Evrópu og dræma bílasölu mun sala BMW, Benz og Volkswagen á nýliðnu ári verða mjög góð, þökk sé miklum kaupum evrópskra fyrirtækja á bílum fyrir starfsmenn sína. Sem dæmi um það á þýska símafyrirtækið Deutsche Telecom 38.000 bíla, eða einn bíl á hverja tvo starfsmenn og fyrirtækið er eitt margra sem nýttu sér skattaafslátt við kaup á bílum fyrir áramótin. Í Bandaríkjunum eru 20% bíla keyptir af fyrirtækjum og opinberum stofnunum. Porsche seldi 71% bíla sinna til fyrirtækja árið 2011 sem eru svo til afnota fyrir starfmenn þeirra, væntanlega háttsettra starfsmanna. Það er til mikils að vinna fyrir starfsmenn að njóta þessara fríðinda, sem byggir á skattalegri meðferð bíla í eigu fyrirtækja. Ef starfsmaður hefur afnot af nýjum BMW 520i þarf starfsmaðurinn að greiða af honum 45% skatt af 1% af kaupvirði hans í hverjum mánuði. Það gerir 181 Evrur á mánuði. Ef hann hefði hinsvegar keypt bílinn sjálfur frá BMW hefði hann þurft að greiða 440 Evrur í rekstrarleigu af bílnum. Þarna munar miklu. 6.1.2013 16:26
Hundrað saknað eftir mikla skógarelda Áströlsk yfirvöld leita nú að eitt hundrað manns sem er saknað eftir mikla skógarelda á eynni Tasmaníu í Ástralíu síðustu daga. Leitað verður í nokkrum bæjum sem eru gjöreyðilagðir eftir eldana. Um þrjú þúsund hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógareldana sem hafa logað síðustu daga. Talið er að eldarnir hafi kviknað í kjölfar hitabylgju þar sem hitastig fór í 42 gráður. Forsætisráðherra Ástralíu, Julia Gillard, sagði í gær að yfirvöld í landinu myndu koma þeim sem misst hafa heimili sín til hjálpar. 6.1.2013 14:59
Mandela á batavegi Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna gallsteina og lungnasýkingar.Hann hefur dvalið á sjúkrahúsi frá því í byrjun desember. Í yfirlýsingu frá Jacob Zuma, forseta SuðurAfríku, segir að Mandela sé nú á batavegi en forsetinn fyrrverandi er orðinn 94 ára gamall. Þetta er lengsta dvöl hans á spítala frá því hann losnaði úr fangelsi árið 1990. 6.1.2013 14:55
Flugeldum og bensínsprengjum rigndi yfir lögreglumenn Hópur öfgafullra mótmælenda lét steina, flugelda og bensínsprengjur rigna yfir lögreglumenn í Belfast á Norður Írlandi í nótt en óeirðir hafa geisað í borginni síðastliðnar þrjár nætur. 6.1.2013 12:04
Ávapaði þjóð sína í fyrsta skiptið í hálft ár Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, kennir utanaðkomandi öflum um uppreisnina í landinu og segir að stríð geisi ekki á milli uppreisnarmanna og stjórnarliða heldur þjóðarinnar og erlendra óvina hennar. 6.1.2013 12:00
Steingímur og Jóhanna eru "grumpy old men“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, segir það ekki vera bjartsýni hjá forsætisráðherra að hafa talað 18 sinnum um Sjálfstæðisflokkinn og einu sinni um skuldavanda heimilanna, í nýársávarpi sínu. 6.1.2013 11:43
Klifraði upp á þak og neitaði að koma niður Karlmaður klifraði upp á þak á íbúðarhúsi á Ísafirði á miðnætti og neitaði hann að koma niður. Fréttavefurinn Vestur.is greinir frá þessu en þar segir að eftir að reynt hafi verið að sannfæra hann um að koma niður en án árangurs hafi verið ákveðið að kalla til lögreglu og slökkviliðs. Eftir stutt spjall féllst maðurinn loksins á að koma niður með aðstoð körfubíls. Ekki er vitað hvað manninum gekk til. 6.1.2013 10:37
Flugvél tískukóngs gufaði upp Árangurslaus leit hefur staðið yfir að lítilli flugvél sem hvarf af ratsjám við strönd Venesúela á föstudag. Um borð voru tveir flugmenn, og fjórir Ítalir, þar á meðal Vittorio Missoni, einn eiganda Missoni tískuhússins og eiginkona hans. 6.1.2013 10:00
Pabbinn vill opinbera nafnið Faðir indversku konunnar sem lést eftir hrottalega hópnauðgun vill að nafn konunnar verði gert opinbert. Hann telur að með því geti hún orðið öðrum fórnarlömbum kynferðisbrota hvatning. 6.1.2013 09:43
Braust inn í Borgó en stal engu Rúmlega tvítugur karlmaður var handtekinn á hlaupum í nágrenni við Borgarholtsskóla í Grafarvogi um þrjúleytið í nótt en sá er grunaður um að hafa brotist inn í skólann. Maðurinn er ekki talinn hafa stolið neinu en hann var í annarlegu ástandi og fundust á honum fíkniefni við leit. Hann gistir nú fangageymslur lögreglu og verður látinn svara fyrir gjörðir sínar þegar víman rennur af honum. 6.1.2013 09:42
Ítalir fórust í snjóflóði Tveir ítalskir skíðamenn fundust í morgun látnir eftir að snjóflóð féll í ítölsku Ölpunum á sama stað og sex Rússar fórust í gærmorgun þegar snjóbíll þeirra hrapaði í brattri fjallshlíð í Val di Fiemme niður 100 metra og ofan í gjá. Skíðamennirnir voru að vinna við lögregluþjálfun í Ölpunum. 6.1.2013 09:40
Dagbókin kom upp um sprengjumann Sautján ára drengur í Alabama fylki í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn vegna gruns um að hann hafi ætlað að koma fyrir sprengju í skólanum sínum. 6.1.2013 09:26
Besti staðurinn til að vera á Hin nepalska Priyanka Thapa fékk tímabundið dvalarleyfi hér á landi á síðasta ári af mannúðarástæðum. Nú lærir hún lyfjafræði við HÍ og brillerar á prófum, auk þess að sinna fötluðum samnemanda sínum sem einnig gengur vel í náminu. 5.1.2013 21:45
Flugdólgurinn öskraði á lögregluna "Það er snákur á fætinum mínum“ Bandaríska blaðið New York Post fjallar um íslenska flugdólginn um borð í vél Icelandair á fimmtudag. 5.1.2013 19:23
Segir olíuskatta ýta undir að frekar verði borað Noregsmegin Olíuleitarstjóri Valiant telur íslenska olíuskatta fæla olíufélög frá Drekasvæðinu og geti valdið því að frekar verði borað Noregsmegin. Atvinnuvegaráðherra telur enga ástæðu til að lækka skattana. Sem leitarstjóri Valiant er Norðmaðurinn Terje Hagevang í lykilstöðu þegar ákveðið er hvar og hvenær er borað og hann segir freistandi að byrja frekar Noregsmegin á Jan Mayen-svæðinu. 5.1.2013 19:16
Tjónabílar þekja heilan flugvöll Tjón af völdum náttúruhamfara eru oft á tíðum lengi fyrir augum þolendanna. Flestir bílar sem urðu illa fyrir barðinu á fellibylnum Sandy eru þó farnir af götunum og bílasölunum. En hvar skildu þeir þá vera? Fjöldi þeirra var svo mikill að ekki dugar minna en heilu flugvellirnir, sem eru ekki í notkun fyrir vikið. Alls er talið að 230.000 bílar hafi skemmst í fellibylnum ógurlega og 15.000 þeirra eru til að mynda geymdir á þessum flugvelli í New York fylki. Þar bíða þeir eftir því að tryggingafyrirtæki ráði úr tjónamálum sínum og búast má við því að margir af þessum bílum birtist síðan á bílasölum sem selja notaða bíla. Þar verða þeir að vera sérmerktir sem flóðabílar og verð þeirra mun væntanlega endurspegla það. Margir vilja þó meina að slíkir bílar eigi allir að fara í endurvinnslu og að þeir séu í raun tifandi tímasprengjur með ónýtt rafkerfi. 5.1.2013 19:15
Facebook og Twitter tromp Íslands Áhugi útlendinga á Íslandi hefur aukist mikið í vetur að mati verkefnastjóra Íslandsstofu og greina má aukninguna vel á samfélagsmiðlum, sem eru að hans mati tromp Íslands í markaðssetningu erlendis. 5.1.2013 18:52
Aðeins á valdi færustu hellakafara að skoða Silfru Það er aðeins á valdi færustu hellakafara að skoða gjánna Silfru þar sem hún er hvað dýpst. Þeir sem hafi lent í slysum í gjánni þekki ekki aðstæður nógu vel, segir köfunarkennari. 5.1.2013 18:45
Sjö ára piltur fótbrotnaði við Smáratorg Sjö ára piltur fótbrotnaði í umferðarslysi sem varð við verslun við Smáratorg í Kópavogi rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Pilturinn var kominn á slysadeild þegar lögreglu var tilkynnt um óhappið. Þá var lögreglan kölluð í laugardalinn klukkan þrjú í dag vegna íþróttaslyss. Tilkynnt var um innbrot í bifreið í Kópavogi og í verslun í Reykjavík í dag. 5.1.2013 17:50
Veist þú hver á þennan hund? Þessi hvolpur var að þvælast um í Nónvörðunni í Keflavík í dag og rataði ekki heim til sín. Hann bíður þess nú á lögreglustöðinni við Hringbraut að eigandinn komi að sækja sig sem verður vonandi fljótlega því annars fer hvolpurinn á hundahótel með tilheyrandi kostnaði fyrir eigandann. Frá þessu er greint á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum. 5.1.2013 17:12
Blóð úr konunni fannst á fötum hrottanna DNA-sýni sem fundust á fötum indversku mannanna fimm, sem eru í haldi lögreglu grunaðir um hrottafengna nauðgun og morð um borð í strætisvagni í síðasta mánuði, tengja þá við verknaðinn. 5.1.2013 16:18
Fimm fórust þegar einkaþota hrapaði Fimm fórust þegar einkaþota hrapaði til jarðar í grennd við borgina Grenoble í suðausturhluta Frakklands í morgun. Vélin hrapaði stuttu eftir flugtak. Ekki er vitað hvað olli slysinu og er það nú í rannsókn. Vélin var skráð í Marokkó og var á leiðinni þangað. 5.1.2013 15:59
Mini fer heljarstökk Bílaframleiðendur eru sífellt frumlegri að ná athygli fólks að nýjum bílum sínum. Mini er þar engin endurtekning með nýjan Countryman bíl sinn og teflir svo djarft að gera “backflip”, eða undirheljarstökk á bílnum á gámasvæði. Meðfylgjandi myndskeið sýnir stökkið, en bara hluta þess, þar sem áhugasamir verða að bíða eftir öðru myndbandi til að finna út úr því hvort lendingin hafi tekist. Allt er þetta hluti af því að búa til spennu kringum þennan bíl. Nokkrir Mini Clubman bílar munu taka þátt í París-Dakar rallinu sem hefst eftir nokkra daga. Einn af ökumönnunum þar, Guerlain Chicherit frá Frakklandi, er einmitt við stýrið á bílnum í myndskeiðinu. 5.1.2013 15:00
Vilborg svöng á pólnum - 220 kílómetrar til stefnu Íslenski Suðurpólsfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir leggur nú til atlögu við síðustu kílómetrana að lokatakmarki sínu. Hún er nú komin yfir á 88.breiddargráðu og á eftir að ganga um 220 km til að ná á pólinn. 5.1.2013 14:49
Kristinn gengur til liðs við Dögun Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður, hefur gengið til liðs við stjórnmálaflokkinn Dögun. 5.1.2013 14:44
Hundruð yfirgefa heimili sín Hundruð manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda sem nú geysa á eynni Tasmaníu í Ástralíu. 5.1.2013 14:30
Mikil eftirspurn eftir skotheldum skólatöskum Kólumbískt fyrirtæki sem framleitt hefur og þróað skotheld vesti um árabil hefur nú hafið framleiðslu á slíkum öryggisbúnaði í barnastærðum. Stjórnendur segjast vera að svara ákalli foreldra í kjölfar fjöldamorðsins í Sandy Hook í Bandaríkjunum í desember síðastliðnum. 5.1.2013 13:58
Mars sem græn og lífvænleg pláneta Um árabil hafa vísindamenn getið sér til um líf á Mars. Vitað er að vatn, sem er forsenda lífs eins og við þekkjum það, var eitt sinn til staðar á plánetunni. Það er hins vegar ekki fyrr en nú sem við fáum að kynnast rauðu plánetunni eins og hún var þegar auðnir hennar voru grænar og gróskumiklar. 5.1.2013 13:31
Fiat eykur enn hlut sinn í Chrysler Enn frekari hlutafjáraukning Fiat í Chrysler hefur verið samþykkt. Eign Fiat eykst um 3,3% og á Fiat eftir hana 65% hlut í Chrysler. Fyrir þennan 3,3% hlut greiðir Fiat 25,5 milljarð króna. Aðeins eru liðin tvö og hálft ár síðan Fiat eignaðist 20% í Chrysler en þá var bandaríski bílasmiðurinn kominn á hnén og gjaldþrot blasti við. Fiat eignaðist þennan hlut með því skilyrði að fyrirtækið útvegaði sparneytnar vélar í Chrysler bíla, efldi sölu Chrysler bíla utan heimalandsins og kæmi að smíði nýs Chrysler bíls sem ekki eyddi meira eldsneyti en 6 lítrum á hundraðið. Allt þetta uppfyllti Fiat og hefur í kjölfarið aukið stórlega við hlut sinn. Óvíst er þó hvort Fiat muni auka af sama krafti við hlut sinn í Chrysler á næstunni . Ástæða þess er ástandið í Erópu og dræm sala á Fiat bílum í álfunni, sem eðlilega hefur mikil áhrif á fjárhagsstöðu Fiat. Líklegt er að hægjast muni á “samrunaferlinu”, eins og Sergio Marchionne forstjóri Fiat orðar yfirtöku fyrirtækisins á Chrysler. Engu að síður er búist við því að Fiat eignist Chrysler að fullu innan nokkurra ára. 5.1.2013 13:15
Ætla að grafa upp 36 Spitfire orrustuflugvélar í Burma Hópur sérfræðinga er nú á leið til Burma en ferð þeirra þangað er lokahnykkurinn í 17 ára langri leit að 36 Spitfire Mark XIV orrustuflugvélum sem grafnar voru í jörðu þar í landi skömmu eftir að seinni heimstyrjöldinni lauk. 5.1.2013 13:04
Hálf milljón Sýrlendinga hefur flúið heimaland sitt Rúmlega fimmhundruð þúsund Sýrlendingar hafa nú flúið heimaland sitt en talið er að fjöldi sýrlenskra flóttamanna eigi eftir að tvöfaldast á næstu mánuðum. 5.1.2013 12:51
Stefnir í óefni með stjórnskipun landsins Það stefnir í óefni með sjálfa stjórnskipun landsins vegna meðferðar ríkistjórnarinnar á stjórnarskrármálinu og því var það rétt af forsetanum að taka á málinu á ríkissráðsfundi. Þetta segir Þorsteinn Pálsson fyrrverandi ráðherra. 5.1.2013 12:19
Flugdólgurinn í New York: Farþegar neituðu að bera vitni Fréttir af íslenskum flugdólg sem var yfirbugaður og bundinn niður um borð í flugvél Icelandair í fyrradag eru meðal þeirra mest lesnu í mörgum erlendum fjölmiðlum. Talið er að maðurinn hafi ekki verið kærður þar sem farþegar neituðu að gefa skýrslu um ógnandi tilburði hans. 5.1.2013 12:11
Sex ára börn borða of lítið af grænmeti, ávöxtum og fisk Mikilvægt er að leita leiða til að bæta mataræði íslenskra barna samkvæmt landskönnun en sex ára börn hér á landi borða of lítið af grænmeti, ávöxtum, fisk og lýsi miðað við ráðlagðan dagskammt. Þá er dagleg fæða barnanna of næringarlítil. 5.1.2013 12:06
Reiðhjól sem týndist fyrir 50 árum fannst í miðju tré Nær hundrað ára gömul kona í Washington ríki hefur fundið reiðhjól sonar síns yfir 50 árum eftir að það týndist. Hjólið fannst inn í miðju stóru tré og hefur tréið greinilega gróið í kringum það í gegnum árin enda er hjólið nú í nokkurra metra hæð frá jörðu. 5.1.2013 11:50
Leystu 43 ára gamla morðgátu en það var ári of seint Lögreglan í Flensborg í Þýskalandi hefur leyst 43 ára gamla morðgátu. Lausnin kom þó ári of seint því morðinginn lést í fyrra. 5.1.2013 10:54
Hekla seldi fjórða hvern bíl Við áramót er forvitnilegt að skoða hvaða nýju bílar höfðuðu mest til Íslendinga og hvaða breytingar hafa helst orðið milli ára. Söluhæsta einstaka bílamerkið var sem fyrr Toyota með 1.329 bíla. Í öðru sæti er hástökkvari ársins, Volkswagen með 1.065 bíla selda og í því þriðja er Kia með 752 bíla. Ef skoðuð er sala eftir umboðum er Hekla langsöluhæst með 2.007 bíla, Toyota og Lexus með 1.356 og BL með 1.299. Árið 2011 var Hekla með 1.170 bíla selda, Toyota og Lexus með 778 og BL með 890 bíla. Hekla heldur því fyrsta sætinu annað árið í röð en Toyota nær öðru sætinu af BL. Mestur hlutfallslegur vöxtur í sölu milli ára var hjá Öskju, sem selur Kia- og Mercedes bíla og nam hann 102%. Salan jókst um 94% hjá Brimborg, 74% hjá Toyota, 72% hjá Heklu og 65% hjá Bernhard. Mestur vöxtur hinsvegar í bílum talið milli áranna 2012 og 2011 var hjá Heklu sem seldi 837 bílum meira. Næst mesta aukningin í bílum talið var 578 hjá Toyota, þá 448 hjá Öskju, 418 hjá Brimborg og 409 bílar hjá BL. Hæstu markaðshlutdeild á Íslandi árið 2012 hafði Hekla með 25,5% hlut, sem óx frá árinu 2011 um 2%. Því seldi Hekla ríflega fjórða hvern nýjan bíl sem keyptur var á liðnu ári. Næstmesta hlutdeild hefur Toyota, eða 17,2% og óx hún um 1,6% milli ára. Í þriðja sæti er BL með 16,5% hlutdeild sem fellur um 1,4% milli ára. Í fjórða sæti er Askja með 11,3% og óx hún um 2,5% frá 2011. Mikill umsnúningur hefur orðið á hlut Heklu á markaði fyrir nýja bíla, en árið 2009 hafði Hekla aðeins 7,3% markaðarins. Það stórjókst strax árið 2010 í 19,8%, í 23,4% árið 2011 og 25,5% í fyrra. En hvað er það sem helst skýrir sterka stöðu Heklu nú og fjórðungshlutdeild? Að sögn Friðberts Friðbertssonar forstjóra Heklu eru skýringarnar nokkrar. Hekla búi að mjög sterkum bílamerkjum, svo sem Volkswagen, Skoda og Audi sem eigi mikilli velgengni að fagna nú. Hekla hafi átt bíla til þegar eftirspurn fór að aukast, en það hafi reyndar ekki átt við fyrst á árinu. “Við seldum mikið af bílum til bílaleiga og tilboð með sérútbúnum bílum hafi fallið viðskiptavinum vel, ekki síst á Skoda bílum”, nefndi Friðbert að auki. “Verð á bílum okkar er hagstætt , markaðsstarf gengur vel, starfsfólk okkar öflugt og þegar allt þetta kemur saman má líklega skýra sterka stöðu fyrirtækisins á markaði”, sagði Friðbert. 5.1.2013 10:51
Grátbað hrottana um að hætta Vinur indversku konunnar sem lést eftir hrottalega hópnauðgun um síðustu helgi hefur nú í fyrsta sinn talað opinberlega um árásina. 5.1.2013 10:05
Skíðasvæðin opin í dag Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á Akureyri verður opið í dag frá tíu til fjögur en þar var logn og tveggja stiga hiti í morgun. Í Oddskarði er einnig opið en þar er búist við úrkomu fyrri hluta dags en flestar leiðir troðnar. Þá er skíðasvæðið í Stafdal á Seyðisfirði opið í dag og þar er gott færi, logn og fjögurra gráðu hiti. 5.1.2013 09:51
Öflugur jarðskálfti upp á 7,7 stig undan ströndum Alaska Öflugur jarðskjálfti upp á 7,7 stig mældist í morgun undan ströndum Alaska. Sökum hans hefur verið gefin út flóðbylgjuviðvörun fyrir nærliggjandi strandsvæði af hálfu bandarískra yfirvalda. 5.1.2013 09:49
Aftur heitt vatn í Þorlákshöfn og Ölfusi Búið er að koma dælubúnaði í hitaveitunni í Þorlákshöfn og Ölfusi af stað að nýju og vatn ætti að vera komið á innan stundar, samkvæmt upplýsingum frá OR. Starfsfólk Orkuveitunnar biður íbúa velvirðingar á óþægindum vegna þessa. 5.1.2013 09:37
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent