Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Minnihlutinn vill dómsmál Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði eiga nú í viðræðum við Rio Tinto Alcan vegna vatnsgjalds. Með vísan í lög frá 2007 lagði Vatnsveita Hafnarfjarðar 66,7 milljóna króna aukagjald á álverið í Straumsvík vegna áranna 2005 til 2009. 18.11.2011 06:30
Komu í heiminn 11.11.11 um 11-leytið og voru 11 merkur Það var ekki vegna dagsetningarinnar sem Anna Sigríður Pálsdóttir, sem gekk með tvíbura, var sett af stað hinn 11. nóvember síðastliðinn. 18.11.2011 06:00
Geta skapað falskt öryggi Vírusvarnir sem í boði eru fyrir snjallsíma gera lítið sem ekkert gagn samkvæmt nýrri rannsókn sem vitnað er til í Vírnum, fréttabréfi sem ráðgjafarfyrirtækið Deloitte gefur út. Hægt er að fá ókeypis vírusvarnir fyrir farsíma sem nota Android-stýrikerfið en þær gera lítið til að verja símann. Þær geta raunar gert ógagn þar sem þær kunna að skapa falskt öryggi hjá símnotendum. 18.11.2011 06:00
Kínverjar gagnrýna Asíuáform Obama Heimsókn Baracks Obama Bandaríkjaforseta setur svip sinn á leiðtogafund tíu Suðaustur-Asíuríkja sem hófst á eyjunni Balí í Indónesíu í gær. Obama hefur kynnt margvísleg áform um sterkari ítök Bandaríkjanna á Kyrrahafinu og allt til Asíu. Þau áform hafa mætt gagnrýni, ekki síst frá Kínverjum, sem virðast telja þessi auknu umsvif beinast gegn sér. 18.11.2011 06:00
Brutust inn og skitu í sundlaug Tveir menn um tvítugt og átján ára stúlka hafa verið ákærð fyrir allmörg brot. Öðrum manninum og stúlkunni er meðal annars gefið að sök að hafa, ásamt tveimur öðrum, brotist inn í sundlaugina á Varmá í Mosfellsbæ og gert þarfir sínar í hana. Hinn maðurinn er ákærður fyrir að hafa stolið bíl, sett á hann stolin númer og ekið honum að verslun Ellingsen þar sem hann stal nær þriggja milljóna króna hjólhýsi, eftir að hengilás hafði verið sagaður sundur. Að því búnu hafi hann haldið á Hellu og síðan að Flúðum, ásamt félaga sínum, þar sem þeir voru handteknir í hýsinu. Bílþjófurinn meinti er jafnframt ákærður fyrir að stela tveimur öðrum bílum. 18.11.2011 06:00
Kaupa gull í gríð og erg Seðlabankar víða um heim hafa keypt gull í stórum skömmtum undanfarið. Á þriðja fjórðungi ársins keyptu þeir samtals nærri 150 tonn af gulli, sem er mesta magn sem þeir hafa keypt áratugum saman. 18.11.2011 05:30
Samfélagið græðir á innflytjendum Amal Tamimi settist í fyrsta skipti á þing í byrjun nóvember í fjarveru Lúðvíks Geirssonar. Hún er fyrsta konan af erlendum uppruna til þess að taka sæti á Alþingi auk þess sem hún er fyrsti múslíminn sem það gerir. "Ég tel mig vera í starfsaðlögun eins og þegar fólk kemur í fyrsta skipti í nýtt starf. Þá þarf bara að sitja og fylgjast með,“ segir Amal. Hún mætir á 18.11.2011 05:00
Færði fé til að leyna halla Fyrrverandi framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar færði rúmar sjö milljónir króna út af Minningarsjóði um Jónsbók, styrktarsjóði LA fyrir listamenn, inn í rekstur félagsins til að leyna rekstrarhallanum. 18.11.2011 05:00
Gert að greiða fyrir eldsneytið Farþegar austurríska flugfélagsins Comtel, sem biðu á flugvelli í Amritsar á Indlandi eftir fari til Bretlands, urðu harla undrandi þegar starfsfólk flugfélagsins krafðist þess að þeir reiddu fram fé svo hægt væri að kaupa eldsneyti til flugsins. Annars væri ekki hægt að fljúga. 18.11.2011 04:30
Fallast á að hætta að spyrja foreldra skólabarna út í fjármálin Fyrirtækið Skólamatur ehf. er hætt að krefjast þess að foreldrar sem kaupa máltíðir fyrir grunnskólabörnin greini frá því ef þeir eru í greiðsluaðlögun. Skilyrðið var tekið út eftir að Persónuvernd fór að kanna málið. 18.11.2011 04:00
Reisir vindmyllur í rannsóknarskyni Landsvirkjun hyggst reisa eina eða tvær 45 metra háar vindmyllur við Búrfellsvirkjun á komandi ári í rannsóknarskyni. Gangi það eftir mun í framhaldinu rísa þar vindmyllugarður líkt og í nágrannalöndunum og gæti vindorka orðið stór hluti af orkuframleiðslu Íslendinga, að mati Óla Grétars Blöndal Sveinssonar, framkvæmdastjóra þróunarsviðs hjá Landsvirkjun. 18.11.2011 04:00
Betri ending og hlaðast hraðar Ný tegund rafhlaðna með tífalt betri endingu en þær rafhlöður sem notaðar eru í raftækjum á borð við farsíma og fartölvur mun koma á markað innan fimm ára að sögn vísindamanna við Northwestern háskólann í Bandaríkjunum. 18.11.2011 03:30
Bókasöfn verði kynnt börnum Efla á notkun almenningsbókasafna meðal yngstu grunnskólabarnanna í Reykjavík. Skóla- og frístundaráð borgarinnar vill að í því skyni verði útfært verkefni sem miði að því að kynna fyrir börnum á frístundaheimilum kosti almenningsbókasafna í þeirra hverfi. 18.11.2011 03:15
Með Twilight húðflúr á bakinu Twilight aðdáandi gekk skrefinu lengra en aðrir og lét húðflúra persónur bókanna á bakið á sér. 17.11.2011 22:18
Sakaður um morðtilræði á hendur Bandaríkjaforseta Maður sem handtekinn var í tengslum við skotárás á Hvíta húsið í Washington hefur verið ákærður fyrir morðtilræði á hendur Barack Obama, forseta Bandaríkjanna. 17.11.2011 21:01
Berlusconi gefur út hljómplötu Nú styttist í að Silvio Berlusconi gefi út sína nýjustu hljómplötu. Berlusconi, sem nýlega yfirgaf embætti forsætisráðherra Ítalíu, samdi lögin sjálfur með hjálp frá góðkunningja sínum. Á plötunni má finna mörg af ástarljóðum Berlusconis. 17.11.2011 20:09
Segir reglurnar eins og menn vilji ekkert fiskeldi á Íslandi Reglur um fiskeldi á Íslandi eru svo fráhrindandi að það er eins og menn vilji ekkert fiskeldi. Þetta segir maður með reynslu frá Noregi sem vill hefja laxeldi á Vestfjörðum. 17.11.2011 19:07
Óheppinn smiður ræktar sinn eigin fingur Kínverski húsgagnasmiðurinn Wang Yongjun varð fyrir því óláni að skera framan af fingri sínum. Læknar ákváðu að sauma stubbinn við magann á Yongjun og vona hið besta. 17.11.2011 23:26
Bin Laden var tilfinningaríkur einstaklingur Arftaki hryðuverkamannsins Osama Bin Laden segir forvera sinn hafa verið viðkvæmann og tilfinningaríkann einstakling. 17.11.2011 21:28
Curiosity mun rannsaka Mars næstu tvö ár Í næstu viku mun NASA skjóta hreyfanlegu rannsóknarstöðinni Curiosity á loft. Markmið verkefnisins er að framkvæma nákvæmari rannsóknir á yfirborði Mars. 17.11.2011 20:39
Slökkviliðsmenn reykræsta í Laufbrekku Slökkviliðið var kallað að húsi í Laufbrekku í Kópavogi nú undir kvöld. Þaðan var tilkynnt um eld í feitispotti og voru slökkviliðsmenn umsvifalaust sendir á staðinn. Samkvæmt upplýsingum Vísis er ekki um neinn eld að ræða en töluverðan reyk leggur frá pottinum. Slökkviliðsmennirnir hafa því hafist handa við að reykræsta. 17.11.2011 20:32
"Herraklippingar" aldrei vinsælli Aldrei hafa fleiri karlmenn farið í ófrjósemisaðgerð og á síðasta ári, þegar einn karlmaður að meðaltali fór í aðgerð á hverjum einasta degi.Við vörum viðkvæma við myndum sem fylgja þessari frétt. 17.11.2011 19:08
Allt logar fyrir norðan vegna dóms í mannslátsmáli "Allt samfélagið fyrir norðan logar skilst mér," segir Ingvar Örn Gíslason, sonur manns sem lést þegar ekið var á hann fyrir fáeinum mánuðum. Ökumaður bílsins var fyrir fáeinum dögum dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökuleyfi í fjögur ár. 17.11.2011 18:45
Landsfundargestir sektaðir fyrir að leggja ólöglega Stöðumælaverðir og lögreglan hjálpuðust að við að sekta bílaeigendur sem höfðu lagt ólöglega fyrir framan Laugardaldshöllina, þar sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram. Á annað þúsund manns er samankominn við setningu landsfundarins sem fer nú fram og því er ljóst að það hefur verið erfitt að finna stæði. Vísir hefur þó ekki upplýsingar um það hversu margir hafa verið sektaðir. 17.11.2011 17:22
Bjarni varði ákvörðun sína í Icesave Bjarni Benediktsson varði ákvörðun sína í Icesavemálinu við setningu landsfundarins. Fundurinn var settur klukkan fimm í dag. Bjarni gagnrýndi jafnframt frammistöðu ríkisstjórnarinnar í málinu. 17.11.2011 17:14
Tóku amfetamin og maríjúana í Árbæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á tæplega 60 grömm af amfetamíni, rúmlega 100 grömm af marijúana og stera við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Árbæ í gær. Tveir karlar voru handteknir. Það voru húsráðandi og gestur hans, en sá síðarnefndi var með í fórum sínum tæplega 40 grömm af amfetamíni og rúmlega 30 grömm af marijúana og var það sömuleiðis tekið í vörslu lögreglu. Mennirnir, sem eru á fertugs- og sextugsaldri, játuðu aðild sína að málinu en báðir hafa þeir ítrekað komið við sögu hjá lögreglu. Fíkniefnaleitarhundur frá tollinum aðstoðaði við leitina. 17.11.2011 16:55
Míla sýnir beint frá Þingvöllum Enn hefur Míla bætt við vefmyndavélaflóru sína og sett upp myndavél í þjóðgarðinum á Þingvöllum. 17.11.2011 16:22
Áfallateymi ræst út á Siglufirði Áfallateymi fyrir svæði sýslumannsins á Akureyri mun funda klukkan fjögur í dag vegna sviplegs fráfalls þrettán ára stúlku á Siglufirði, en hún lést í gærkvöldi þegar ekið var á hana og tvær vinkonur hennar. 17.11.2011 15:33
Kostar tíu milljónir að fjarlægja aspirnar við Ráðhúsið Kostnaður Reykjavíkurborgar við að fjarlægja Aspir í nágrenni ráðhússins nemur um tíu milljónum króna. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri Grænna óskuðu eftir upplýsingum um kostnaðinn og í svari frá garðyrkjustjóra borgarinnar segir að tilboði upp á tæpar níu milljónir hafi verið tekið í verkið. Þá er gert ráð fyrir efniskostnaði allt að einni milljón króna. Þá hafa tvær milljónir króna farið í undirbúning og hönnunarkostnað en sá kostnaður er ekki vegna aspanna við ráðhúsið eingöngu heldur hluti af sambærilegu verkefni um alla borg. 17.11.2011 15:15
Rafhlöðusmygl stöðvað - geta ofhitnað og sprungið Nýlega stöðvaði tollgæslan nokkrar póstsendingar sem innihéldu töluvert magn af fölsuðum Nokia rafhlöðum. Sendingarnar komu frá Hong Kong og var sama fyrirtækið innflutningsaðili á sendingunum. 17.11.2011 14:40
Hvað gerist ef unglingur sniffar metanól? Líffræðingurinn Hjalti Andrason skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann áréttar að metanól sé hættulegt efni. Til að mynda sé metanól stórskaðlegt óléttum konum og efnið skaðar miðtaugakerfið, veldur taugaskemmdum, höfuðverkjum, ógleði, uppköstum, jafnvægisleysi, geðdeyfð og dauða í meira magni en önnur efni. 17.11.2011 13:11
Fjalladrottning Björns féll í klettum - nauðsynlegt að skjóta hana Gangnamenn segja að um líknardráp hafi verið að ræða þegar þeir skutu uppáhalds ær Björns Bjarnasonar fyrrverandi dómsmálaráðherra á færi á afrétti nýverið. 17.11.2011 11:15
Breivik er bara lítill maður - ekki skrímsli Eirin Kristin Kjær var skotin fjórum sinnum í Útey fyrir fjórum mánuðum. Nú er hún komin á sitt annað heimili – til Hafnar í Hornafirði. "Ég er ekki lengur hrædd við að deyja,“ segir Eirin, sem er ekki reið Anders Behring Breivik og mundi vilja tala við hann. 17.11.2011 09:45
Fréttaskýring: Um 20% lands njóta verndar Hvernig standa umhverfismál hér á landi gagnvart Evrópulögum? Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir að framþróun í lagaumhverfi náttúruverndar hafi verið of hæg hér á landi. Laga þurfi umhverfið að því sem tíðkist í Evrópusambandinu (ESB), óháð því hvort Ísland gerist aðili að því eður ei. Hvítbók um náttúruvernd sé stórt skref fram á við í þeim efnum. 17.11.2011 19:00
Fréttaskýring: Endurreisn miðaldardómkirkju í Skálholti Hugmyndir um endurreisn miðaldadómkirkju í Skálholti voru kynntar á kirkjuþingi á þriðjudag. Ef af verður mun rísa vitnisburður um eitt mesta stórvirki íslenskrar menningarsögu sem var svo gott sem gleymt. 17.11.2011 18:00
Elva Dögg fer á kostum í uppistandi Elva Dögg Gunnarsdóttir sem vakið hefur mikla athygli í heimildamyndinni "Snúið líf Elvu" ætlar að hita upp fyrir sýningu á Dagbók Önnu Knúts annað kvöld. Dagbókina hefur leikkonan Anna Svava Knútsdóttir samið og sýnt í Gaflaraleikhúsinu undanfarið við góða undirtektir. 17.11.2011 16:39
BEINT - Setningarræða Bjarna á landsfundi Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins heldur núna klukkan hálf fimm setningarræðu á landsfundi flokksins sem hófst í dag og stendur fram á sunnudag. Von er á viðburðarríkum landsfundi þar sem Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram gegn sitjandi formanni sem sækist eftir endurkjöri. Á laugardag munu frambjóðendurnir halda framboðsræður sínar og á sunnudag verður kosið um embætti formanns og varaformanns. Vísir ætlar að sýna frá fundinum í beinni útsendingu yfir helgina og greina frá helstu viðburðum. 17.11.2011 16:21
Um fjörutíu prósent hafa hugsað um að yfirgefa landið Tæp fjörutíu prósent þeirra sem þátt tóku í nýrri könnun MMR segjast hafa hugsað um að flytja til útlanda á síðustu mánuðum. Tæp 27 prósent segja ástæðuna vera efnahagsástandið í landinu en um 13 prósent segja það vera vegna annara ástæðna. Meirihluti Íslendinga, eða rúm 60 prósent virðast þó ekki vera á þeim buxunum að flytja sig um set á næstunni. 17.11.2011 15:38
Vilja hækka hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi Miðstjórn Bandalags háskólamanna skorar á stjórnvöld að lagfæra réttindi foreldra í fæðingarorlofi með því að hækka hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Í ályktun miðstjórnar segir að árið 2011 hafi aðhaldsaðgerðir stjórnvalda skilað sparnaði upp á 1,2 milljarða umfram áætlanir og því sé svigrúm til að draga til baka skerðingar á réttindum. 17.11.2011 15:20
Bilun hjá Símanum á Norðurlandi Bilun varð í talsímakerfi Símans á Norðurlandi í dag. Sökum hennar voru margar stofnanir á Akureyri, Dalvík og í Fjallabyggð án símasambands. Bilunin varði í stuttan tíma og nú á allt að vera í lagi. Einstaka fólk getur þó lent í truflunum og því er bent á að hafa samband við þjónustuver Símans eftir öðrum leiðum, það er að segja í gegnum farsíma eða tölvu. 17.11.2011 15:09
Sólkross seldist upp í Þýskalandi „Ég vona að hún fari í einhverja tugi þúsunda. Það væri dásamlegt,“ segir Tómas Hermannsson hjá Sögum útgáfu. 17.11.2011 15:00
Tafir á málsmeðferð ráðuneytis - þrjú ár að afgreiða umsókn Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið var þrjú ár og átta mánuði að afgreiða umsókn íslensks fyrirtækis um leyfi til að flytja inn fersk egg frá Svíþjóð. Þetta kemur fram í nýju áliti frá umboðsmanni Alþingis þar sem verulegar athugasemdir eru gerðar við þann tíma sem það tók að afgreiða umsóknina. 17.11.2011 13:00
Gagnrýna Ísland fyrir að fangelsa börn með fullorðnum Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir að íslensk stjórnvöld hafi enn ekki tryggt með lögum að börn í varðhaldi séu aðskilin frá fullorðnum. Heilt yfir sér nefndin Íslands hins vegar sem eins konar fyrirmynd þegar kemur að málefnum barna. 17.11.2011 11:59
Fjáraukalögin samþykkt - samið um fjármögnun Vaðlaheiðarganga Alþingi hefur veitt fjármálaráðherra heimild til að gera samning um fjármögnun Vaðlaheiðarganga um allt að einum milljarði króna. Fjáraukalög ársins 2012 voru samþykkt með tuttugu og níu atkvæðum en flestir stjórnarandstöðuþingmenn mættu ekki til atkvæðagreiðslunnar eins og áður hafði verið boðað. 17.11.2011 11:58
Hægt að skila iPod Nano til Epli.is - fyrirspurnum rignir inn Apple ráðleggur öllum að hætta notkun á iPod nano sem voru framleiddir og seldir á tímabilinu september 2005 til desember 2006 samkvæmt tilkynningu frá Epli.is 17.11.2011 11:08