Komu í heiminn 11.11.11 um 11-leytið og voru 11 merkur 18. nóvember 2011 06:00 Snáðarnir, sem eru fyrstu börn foreldra sinna, fá að fara heim af Landspítalanum í dag. fréttablaðið stefán
Það var ekki vegna dagsetningarinnar sem Anna Sigríður Pálsdóttir, sem gekk með tvíbura, var sett af stað hinn 11. nóvember síðastliðinn. „Ég valdi fyrsta lausa tímann fyrir gangsetningu og hann reyndist vera þennan dag, en ég var komin 37 vikur á leið,“ segir Anna og bætir því við að talan 11 hafi komið nokkrum sinnum við sögu daginn sem strákarnir hennar komu í heiminn. „Sá fyrri var ellefta barnið sem fæddist á Landspítalanum þennan dag. Hann fæddist 15 mínútum fyrir 11 um kvöldið en hinn um klukkan 11. Þyngd beggja við fæðingu var rétt tæpar 11 merkur. Þetta er auðvitað svolítið sérstakt og enn skemmtilegra er að þeir eignuðust frænku sama dag.“ Snáðinn sem kom fyrr í heiminn átti fyrst í svolítilli baráttu, að því er Anna greinir frá. „Hann útskrifaðist af vökudeild í gær og er í fínu lagi núna. Við fáum öll að fara heim í dag.“ Að sögn Önnu vissi hún að hún gekk með stráka og hún hefur þess vegna, ásamt föður þeirra, Jóni Ara Arasyni, haft nægan tíma til þess að huga að því hvaða nöfn eigi að gefa þeim. „Þau verða samt ekki opinberuð fyrr en þeir allra nánustu hafa fengið að vita þau.“- ibs
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira