Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gleypti óvart hálsfesti frá kærastanum Tuttugu og tveggja ára gömul kínversk kona gleypti óvænta gjöf frá kærastanum. Kærastinn hafði falið hálsfesti í bollaköku. Kærastan tók ekki eftir hálsfestinni, sem kostaði kærastann rúmlega níutíu þúsund íslenskar krónur. 30.9.2011 23:00
Braust inn til fyrrverandi eiginmannsins og stal ketti kærustunnar Fyrrverandi eiginkona þingmanns í Birmingham í Bretlandi var dæmd á dögunum fyrir að hafa brotist inn til kærustu þingmannsins. 30.9.2011 22:00
Drukknir sjómenn sigldu á kafbát Rússneskur fiskveiðibátur klessti á kafbát snemma á fimmtudaginn samkvæmt the Moscow times. 30.9.2011 21:30
Vilja banna nærfataauglýsingu með Gisele Bündchen Brasilísk yfirvöld eru ekki sátt við nýja nærfataauglýsingu ofurfyrirsætunnar Gisele Bündchen. Lagt er til að auglýsingin, sem var frumsýnd þann 20. september í Brasilíu, verði bönnuð vegna misvísandi skilaboða. 30.9.2011 21:00
Hægt að vinna lýtaaðgerðir í spilavíti Spilavíti í Atlanta hefur ákveðið að bregða út af vananum og verðlauna fjárhættuspilara með nýstárlegum vinningi. Þannig verður einn fjárhættuspilari dreginn úr potti þann 29. október næstkomandi og fær hann 25 þúsund dollara til þess að eyða í lýtaaðgerðir. 30.9.2011 20:30
Lögreglumenn með undir 200 þúsund í laun eftir skatta Heildarlaun lögreglumanns sem hefur verið næstum fimm ár í starfi og getur ekki, vegna fjölskylduaðstæðna, unnið næturvinnu voru í síðasta mánuði rúmar tvöhundruð sjötíu og fimm þúsund krónur. 30.9.2011 20:00
Noregur treystir áfram á EES, sama hvað Ísland gerir Innganga Íslands í Evrópusambandið mun ekki breyta þeirri afstöðu Noregs að halda fast í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, segir Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs. Hann hóf opinbera heimsókn til Íslands á Akureyri í gær. 30.9.2011 19:45
Íbúðalánasjóður: Aðeins 40 fasteignir á leigumarkað Aðeins 40 fasteignir í eigu Íbúðalánasjóðs munu rata á leigumarkað á næstunni, en framkvæmdastjóri sjóðsins hafði áður gefið til kynna að þær gætu orðið allt að þrefalt fleiri. Leggja hefði þurft út í hundruð milljóna kostnað til að gera allar fasteignirnar íbúðarhæfar. 30.9.2011 19:30
Krabbameinsfélagið bjargaði lífi mínu ,,Krabbameinsfélagið bjargaði lífi mínu" segir kona sem greindist með brjóstakrabbamein í hefðbundinni 40 ára skoðun hjá Krabbameinsfélaginu. Árvekni- og söfnunarátakinu, Bleika slaufan, var hleypt af stokkunum í dag. 30.9.2011 19:15
Þriðji mesti olíufundur í sögu Noregs Gríðarstórar nýjar olíulindir hafa fundist í Norðursjó og er þetta talinn þriðji mesti olíufundur í sögu Noregs. Nýju olíulindirnar eru um 140 kílómetra vestur af Stafangri á svæðum sem kallast Avaldsnes og Aldous. 30.9.2011 19:02
Ekki siglt til Vestmannaeyja í dag - óljóst með morgundaginn Nú er orðið ljóst að allar ferðir Baldurs milli lands og Eyja falla niður í dag föstudaginn 30. september. 30.9.2011 17:18
Datt í það og þarf að ljúka refsingu Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli gegn þrítugum karlmanni sem var dæmdur í skilorðsbundið fangelsi gegn því að hann leitaði sér aðstoðar við vímuefnafíkn sinni. 30.9.2011 17:17
Sýnishorn úr Hollywood-mynd Baltasars Fyrsta sýnishornið úr Hollywood-kvikmyndinni Contraband, sem Baltasar Kormákur leikstýrir og er byggð á íslensku myndinni Reykjavík-Rotterdam, er nú komin á internetið. 30.9.2011 15:46
Merkel gagnrýnir Netanyahu Angela Merkel segir að ákvörðun Ísraelsmanna um að reisa fleiri byggingar í austur-Jerúsalem vekja spurningar um hvort að yfirvöld þar í landi séu yfir höfuð reiðubúin til að komast að samkomulagi við Palestínu. 30.9.2011 16:09
Urban OS mun stjórna taugakerfi stóborgarinnar Vísindamenn telja að stórborg framtíðarinnar muni stjórna sér sjálf og geti fylgst náið með þegnum sínum. Steve Lewis stjórnar hugbúnaðarþróun hjá fyrirtækinu Living PlanIT. Stýrikerfið kallast Urban OS og verið er að setja upp fyrstu útgáfu þess í Portúgal. 30.9.2011 15:19
Verst að búa í Bretlandi Bretland er versta Evrópulandið til að búa í samkvæmt rannsókn sem vefsíðan uSwitch stóð fyrir. Þar kom í ljós að einn af hverjum tíu í Bretlandi væru nú að íhuga að flytja úr landi. 30.9.2011 16:45
Sló stúlku hnefahöggi og hrinti annarri niður stiga Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann á þrítugsaldri í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í morgun. Maðurinn réðst á tvær stúlkur á skemmtistað í Reykjavík í janúar á síðasta ári. Hann sló aðra þeirra en hrinti hinni niður stiga með þeim afleiðingum að hún rifbrotnaði og hlaut fleiri áverka. Maðurinn neitaði sök en dómurinn taldi sannað, meðal annars samkvæmt framburði vitna, að maðurinn hefði ráðist á stúlkurnar. Hann var dæmdur til að greiða annarri stúlkunni 150 þúsund krónur í bætur en hinni 250 þúsund krónur. 30.9.2011 14:57
Keisaraskurður á kirkjugólfinu Þunguð kona var skotin til bana í Sankti Maríu kirkjunni í Madrid í dag. Læknar þurftu að framkvæma keisaraskurð á kirkjugólfinu. Konan lést samstundis en læknum tókst að draga barnið úr kvið konunnar stuttu eftir. Það þurfti svo hjartanudd til að vekja barnið til lífsins. 30.9.2011 14:40
Fölsuð Casio-úr seld Íslendingum Í sumar hefur töluvert borið á vefsíðum, til að mynda á Facebook, sem gerðar eru út af íslenskum aðilum þar sem fölsuð Casio tölvuúr eru auglýst til sölu sem ekta. 30.9.2011 14:37
Meirihlutinn í Vogum sprunginn Meirihluti bæjarstjórnar Voga á Vatnsleysuströnd er fallinn eftir að tillaga um að hafna línulögn í gegnum land Voga var samþykkt á fundi í vikunni. Fulltrúar E-listans greiddu tillögunni ekki atkvæði og tilkynntu samstarfsflokknum, H-listanum í gærkvöldi að ekki væri áhugi fyrir frekara samstarfi. 30.9.2011 14:25
Miðaldra maður tók skólastrák kverkataki Miðaldra maður í Plymouth, Mark Bradford, var handtekinn fyrr dag eftir að hafa tekið 13 ára dreng kverkataki. Hinn 46 ára gamli Bradford segist hafa ráðist á drenginn í stundarbrjálæði. Ástæða árásarinnar var tölvuleikurinn Call of Duty. Bradford sturlaðist eftir að skólastrákurinn hafði drepið hann ítrekað í leiknum og gert grín af honum. 30.9.2011 14:09
Kongómaður vill Tinna úr verslunum Kongómaðurinn Mbutu Mondondo hefur farið fram á við dómstóla í Brussel að hin víðfræga teiknimyndabók Herges, Tinni í Kongó, verði tekinn úr umferð. Ástæðan fyrir þessu liggur í birtingarmynd Afríkubúa í bókinni sem Mondondo telur vera hlaðna kynþáttafordómum. Tinni í Kongó var gefin út árið 1931 og í seinni útgáfum hefur fordómafullt orðabragð verið lagað. Í enskri útgáfu bókarinnar er varað við efnistökunum og minnt á að mikilvægt sé að sjá verkið í ljósi útgáfutíma síns. 30.9.2011 13:53
Ákvörðun tekin klukkan fimm Tekin verður ákvörðun um síðustu ferð Baldurs frá Eyjum klukkan hálf níu í kvöld og frá Landaeyjahöfn klukkan tíu, klukkan fimm í dag. Þrjár fyrstu ferðir vestmannaeyjaferjunnar falla niður í dag vegna mikillar ölduhæðar við Landaeyjahöfn. Farþegar sem eiga bókað far með ferjunni eru beðnir um að fylgjast með framvindu mála á herjolfur.is og á Facebook-síðu Herjólfs. 30.9.2011 13:52
Ljósmæður styðja lögreglumenn Ljósmæðrafélag Íslands styður launakröfur lögreglumanna í landinu. Í tilkynningu frá félaginu segir að allir viti hve mikilvæg störf lögreglumanna séu en að fæstir geri sér grein fyrir hvað liggi að baki heildarlaunum þeirra. „Ljósmæður þekkja vaktavinnuna vel og þær fórnir og það álag sem henni fylgir. Það hlýtur að vera eðlileg krafa lögreglumanna líkt og annarra að geta framfleytt sér og sínum á grunnlaunum,“ segir að auki um leið og félagið hvetur ríkið til að komatil móts við lögreglumenn. 30.9.2011 13:11
Mótmælt á Tahrir torgi Þúsundir mótmælenda er enn á ný samankomnir á Tahrir torgi í Kaíró. Aðgerðasinnarnir krefast þess að herstjórnin komi völdum til fólksins. Enn fremur er farið fram á að yfirvöld taka úr gildi neyðarlög sem Hosni Mubarak kom á meðan byltingunni stóð. Lögin gefa lögreglunni nær ótakmarkað vald til að berja aftur mótmælendur. 30.9.2011 13:06
Hitastig náði tæpum 20 gráðum Hitastig hækkaði mikið um hádegisbilið við Skaftafell undir Öræfajökli. Á tímabili náði hitinn tæpum 20 gráðum en skömmu síðar lækkaði hitastigið aftur og stendur nú í 11 gráðum. 30.9.2011 12:45
Þjófur dæmdur í fangelsi Tvítug stúlka var dæmd í átta mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir þjófnaði. Stúlkan stal snyrtivörum í Lyfju við Smáratorg í Kópavogi fyrir samtals tæplega 23 þúsund krónur og þá braust hún inn í íbúðarhúsnæði í Reykjavík og stal þaðan meðal annars flatskjá, iPod, sjónvarpsflakka og Nintendo-leikjatölvu. Hún játaði brott sitt fyrir dómi en með brotunum rauf hún skilorð frá árinu 2008. 30.9.2011 12:45
Stærsta Boeing-flugvél í heimi í Keflavík Ný Boeing 747 breiðþota er nú hér á landi við prófanir á Keflavíkurflugvelli. Þotan er stærsta farþegaflugvél sem Boeing hefur smíðað og á að vera sparneytnari, hljóðlátari og umhverfisvænni en fyrri vélar félagsins. 30.9.2011 12:15
Veðurblíða á Englandi Veðrið hefur leikið við breta síðustu daga og nú er talið að dagurinn í dag verði sá heitasti hingað til. Það er hins vegar morgundagurinn sem flestir bíða eftir en búist er við að hitinn muni fara yfir 29.4 gráður og þar með slá hitametið frá 1984. Afar sjaldgæft er að hitinn í Englandi sé svo nálægt 30 gráðum. Veðurblíðan mun að öllum líkindum haldast fram yfir helgi og eitthvað inn í næstu viku. 30.9.2011 12:02
Íslenska Kristskirkjan fékk 2,5 milljóna króna styrk Íslenska Kristskirkjan fékk styrk upp á tvær og hálfa milljón króna frá Reykjavíkurborg á síðasta ári. Borgin hafnaði styrkbeiðni frá söfnuðinum í ár vegna skoðana safnaðarmeðlima á kynlífi samkynhneigðra. 30.9.2011 11:54
Japanir hanna sína eigin Örk Japanskt fyrirtæki kynnti í dag björgunarhylki sem ætlað er til að bjarga mannslífum þegar fljóðbylgja skellur á ströndum landsins. Hylkið rúmar fjóra einstaklinga og er málað áberandi gulum lit svo að auðvelt sé að finna það. Við fyrstu sýn lítur hylkið út eins og risavaxinn tennisbolti. Hylkið er kallað Örkin. Talsmenn fyrirtækisins tóku fram að Örkina má einnig nota sem leiktæki fyrir börn. 30.9.2011 11:31
Skotárás í London Þrjár stúlkur á aldrinum 17-19 ára særðust í skotárás í Londoní gær. Árásin átti sér stað í Kensington í vesturhluta borgarinnar. Talið er að skotið hafi verið úr bíl á stúlkurnar þar sem þær stóðu við götuna. Ein stúlknanna var flutt til aðhlynningar í sjúkrabíl, en hinar tvær komu sér sjálfar á spítalann. Árásin hefur vakið mikinn óhug í Londonog er hún áminning um þá miklu hörku sem undirheimar borgarinnar einkennast af. 30.9.2011 11:17
Með fölsuð vegabréf á Keflavíkurflugvelli Tveir georgískir karlmenn voru dæmdir í þrjátíu daga fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum á Keflavíkurflugvelli þann 23. september síðastliðinn. 30.9.2011 11:13
Lífverði Jacksons var skipað að fela lyfjaglösin Réttarhöldin yfir einkalækni poppgoðsins Michael Jacksons standa nú sem hæst. Conrad Murray hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi en Jackson lést af völdum of stórs lyfjaskammts á heimili sínu í Kalíforníu í júní 2009. Lífvörður Jacksons kom fyrir réttinn í gær sem vitni og lýsti því hvernig Murray hafi skipað honum að fela lyfjaglös sem voru í svefnherbergi Jacksons áður en hann hringdi á sjúkrabíl. 30.9.2011 11:09
Þrjár ferðir Baldurs felldar niður - óljóst um þá síðustu Vegna ölduhæðar hafa þrjár fyrstu ferðir Baldurs frá og til Eyja verið fellsdar niður í dag. Í tilkynningu frá Eimskipi segir að útlitið með fjórðu og síðustu ferðina sé einnig slæmt en ákvörðun um hvort hún verði farin verður tekin á næstunni. 30.9.2011 11:03
Stal snyrtivörum og kýldi öryggisvörð Tuttugu og átta ára gamall karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, þjófnað og líkamsárás. 30.9.2011 10:57
Dylan sakaður um höfundarréttarbrot Þjóðlagatónlistarmaðurinn Bob Dylan stendur í ströngu þessa dagana. Fyrr í vikunni opnaði hann sýningu á málverkum sínum í New York. Dylan sagði verkin vera innblásin af upplifunum sínum af Asíu og framandi menningarheimum. En gagnrýnendur tóku fljótt eftir því sum verkin svipuðu mjög til verka þekktra ljósmyndara. 30.9.2011 10:46
Dæmdur fyrir kannabisræktun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fjörutíu og fjögurra ára gamlan mann í fimm mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir að hafa í vörslu sinni 168 kannabisplöntur, tæplega 286 grömm af kannabislaufum og fyrir að hafa um nokkurt skeið staðið að ræktun kannabisplantna. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi en hann hefur ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi áður svo kunnugt sé, segir í dómnum. 30.9.2011 10:43
Utanríkisráðherra Noregs hitti Jóhönnu Utanríkisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre, átti fund með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Stjórnarráðinu við Lækjartorg í morgun en að því búnu hélt norski ráðherrann, ásamt fylgdarliði, í Alþingishúsið til fundar við utanríkismálanefnd Alþingis. 30.9.2011 10:40
Medvedev lofar löglegum kosningum Forseti Rússlands, Dmitry Medvedev, sagði í viðtali fyrir stuttu að það væri rússneska þjóðin sem hefði lokaorðið í forsetakosningunum á næsta ári. Talsverðar áhyggjar eru meðal fólks að atkvæði þeirra hafi lítil áhrif í pólitísku landslagi þar sem einn flokkur hefur verið við völd í tíu ár - einmitt flokkur Vladimir Putin, Sameinað Rússland. 30.9.2011 10:29
Háttsettur stjórnandi Al-Qaeda drepinn Í yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneytinu í Jemen kemur fram að Anwar al-Awlaki hafi fallið í loftárás nú fyrir stuttu. Awlaki var hátt settur meðlimu Al-Qaeda og var efstur lista Bandaríkjanna um eftirlýsta hryðuverkamenn. Loftárásin átti sér stað í austurhluta Jemen. 30.9.2011 10:02
Hver nemandi kostar meira en milljón á ári Meðalrekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum árið 2010 reyndist vera rúmlega 1,2 milljónir og vegin meðalverðbreyting rekstrarkostnaðar frá árinu 2010 til september 2011 var metin 5,1 prósent. Þetta kemur fram í útreikningum Hagstofu Íslands en reiknað var út meðaltalið af kostnaðinum á hvern nemanda í öllum grunnskólum sem reknir eru af sveitarfélögum. Á vefsíðu Hagstofunnar segir að jafnframt sér hægt að áætla að meðalrekstrarkostnaðurinn á hvern nemanda í september 2011 sé rúmlega 1,3 milljón. 30.9.2011 09:35
Yfirvöld í Myanmar hlusta á mótmælendur Yfirvöld í Myanmar ákváðu fyrir stuttu að fresta byggingu á vatnsaflsvirkjun þar í landi. Ákvörðunin var tekin eftir kröftugar mótbárur almennings. Mótmæli af þessum toga eru afar sjaldgæf í Myanmar. Talið er að íbúar landsins séu nú fyrsta að kynnast því hversu langt frelsi þeirra nær, en núverandi ríkisstjórn Myanmar er nær eingöngu setin af yfirmönnum herafla landsins. 30.9.2011 09:31
Starfshópur fundar um kjör lögreglumanna í dag Starfshópur fulltrúa forsætis- innanríkis- og fjármálaráðuneyta annarsvegar og sanmninganefnd lögreglumanna hinsvegar, til að finna lausn á deilum um kjör lögreglumanna, kemur saman til fyrsta fundar í dag. 30.9.2011 08:19
Fóru um borð í flutningaskip og fundu fullan skipstjóra steinsofandi Sjóliðar úr dönsku strandgæslunni réðust í gær um borð í flutningaskip undan Jótlandsströndum, eftir ítrekaðar og árangurslausar tilraunir til að ná sambandi við skipstjórnarmenn. 30.9.2011 08:03