Fleiri fréttir Græna hagkerfið verður eflt Íslenskt atvinnulíf hefur fjölmörg sóknarfæri á sviði grænnar atvinnusköpunar. Þetta er niðurstaða nefndar Alþingis um eflingu græna hagkerfisins sem skilaði af sér skýrslu um málið í gær. 30.9.2011 05:00 Haraldur kallar málflutning Gylfa „kjaftæði“ Bændasamtök Íslands gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Gylfa Arnbjörnssonar, forseta Alþýðusambands Íslands, um matvælaverð og verðbólgu. Haraldur Benediktsson, formaður samtakanna, sagði í samtali við Ríkisútvarpið í gær að málflutningur Gylfa væri „kjaftæði“. 30.9.2011 04:30 Gagnaverið tekur til starfa fyrir áramót Fyrstu einingunni í gagnaver Verne Holding á Ásbrú í Reykjanesbæ verður skipað upp í Keflavík innan tveggja vikna. Gert er ráð fyrir því að starfsemi hefjist suður með sjó á næstu mánuðum. 30.9.2011 04:00 Líkamsárás og áfengisstuldur Tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir hættulega líkamsárás, vopnalagabrot og innbrot á Selfossi. 30.9.2011 03:30 Bókaútgáfa greiði 25 milljóna sekt Bókaútgáfunni Forlaginu er gert að borga 25 milljóna króna sekt fyrir brot á banni við birtingu smásöluverðs bóka og banni við því að mismuna bóksölum með afsláttarkjörum. Forlagið varð til 2008 með samruna JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf. Þegar Samkeppniseftirlitið skoðaði samrunann setti Forlagið fram hugmyndir að skilyrðum til að ryðja burt samkeppnishindrunum. 30.9.2011 03:00 Þjóðverjar ætla að vera með Þýska þingið samþykkti í gærmorgun hlutdeild Þýskalands í stækkun neyðarsjóðs Evrópusambandsins, sem á að styrkja stöðugleika evrunnar með því að koma nauðstöddum evruríkjum til hjálpar. 30.9.2011 03:00 Rík krafa lögreglumanna að fá verkfallsrétt Á fjórða hundrað lögreglumanna gengu fylktu liði frá lögreglustöðinni við Hverfisgötu að fjármálaráðuneytinu um miðjan dag í gær. Með þessari samstöðugöngu vildu þeir undirstrika óánægju sína með niðurstöðu gerðardóms um kjaramál lögreglumanna. 30.9.2011 03:00 Stofnaði lífi tveggja í hættu Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umferðarlagabrot og að stofna lífi tveggja í hættu. 30.9.2011 02:15 20 milljónir úr fatakaupum Rauði kross Íslands afhendir 20 milljón króna framlag fatasöfnunarverkefnis til neyðaraðstoðar í Sómalíu á föstudag. Fjármagnið er fengið fyrir sölu á fatnaði sem fólk gefur Rauða krossinum. 30.9.2011 02:00 Þingið sett í fyrramálið 140. löggjafarþing verður sett í fyrramálið.
Sjá næstu 50 fréttir
Græna hagkerfið verður eflt Íslenskt atvinnulíf hefur fjölmörg sóknarfæri á sviði grænnar atvinnusköpunar. Þetta er niðurstaða nefndar Alþingis um eflingu græna hagkerfisins sem skilaði af sér skýrslu um málið í gær. 30.9.2011 05:00
Haraldur kallar málflutning Gylfa „kjaftæði“ Bændasamtök Íslands gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Gylfa Arnbjörnssonar, forseta Alþýðusambands Íslands, um matvælaverð og verðbólgu. Haraldur Benediktsson, formaður samtakanna, sagði í samtali við Ríkisútvarpið í gær að málflutningur Gylfa væri „kjaftæði“. 30.9.2011 04:30
Gagnaverið tekur til starfa fyrir áramót Fyrstu einingunni í gagnaver Verne Holding á Ásbrú í Reykjanesbæ verður skipað upp í Keflavík innan tveggja vikna. Gert er ráð fyrir því að starfsemi hefjist suður með sjó á næstu mánuðum. 30.9.2011 04:00
Líkamsárás og áfengisstuldur Tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir hættulega líkamsárás, vopnalagabrot og innbrot á Selfossi. 30.9.2011 03:30
Bókaútgáfa greiði 25 milljóna sekt Bókaútgáfunni Forlaginu er gert að borga 25 milljóna króna sekt fyrir brot á banni við birtingu smásöluverðs bóka og banni við því að mismuna bóksölum með afsláttarkjörum. Forlagið varð til 2008 með samruna JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf. Þegar Samkeppniseftirlitið skoðaði samrunann setti Forlagið fram hugmyndir að skilyrðum til að ryðja burt samkeppnishindrunum. 30.9.2011 03:00
Þjóðverjar ætla að vera með Þýska þingið samþykkti í gærmorgun hlutdeild Þýskalands í stækkun neyðarsjóðs Evrópusambandsins, sem á að styrkja stöðugleika evrunnar með því að koma nauðstöddum evruríkjum til hjálpar. 30.9.2011 03:00
Rík krafa lögreglumanna að fá verkfallsrétt Á fjórða hundrað lögreglumanna gengu fylktu liði frá lögreglustöðinni við Hverfisgötu að fjármálaráðuneytinu um miðjan dag í gær. Með þessari samstöðugöngu vildu þeir undirstrika óánægju sína með niðurstöðu gerðardóms um kjaramál lögreglumanna. 30.9.2011 03:00
Stofnaði lífi tveggja í hættu Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir umferðarlagabrot og að stofna lífi tveggja í hættu. 30.9.2011 02:15
20 milljónir úr fatakaupum Rauði kross Íslands afhendir 20 milljón króna framlag fatasöfnunarverkefnis til neyðaraðstoðar í Sómalíu á föstudag. Fjármagnið er fengið fyrir sölu á fatnaði sem fólk gefur Rauða krossinum. 30.9.2011 02:00
Himnahöllin á braut um jörðu Eldflaug sem bar fyrsta hluta kínverskrar geimstöðvar út í geim var skotið á loft frá Góbí-eyðimörkinni í gær. Geimstöðin, sem nefnd hefur verið Himnahöllin, verður ómönnuð til að byrja með en til stendur að senda geimfara um borð á næsta ári. 30.9.2011 00:30
Hátekjuskatturinn varla lengur í myndinni „Þetta verður búið þegar það er búið,“ hafa danskir fjölmiðlar eftir Helle Thorning-Schmidt, leiðtoga danska Sósíaldemókrataflokksins, sem talin er langt komin með stjórnarmyndunarviðræður við hina flokka vinstri blokkarinnar. 30.9.2011 00:00
Sjómenn í vondu formi - áhöfn missti samanlagt einn mann Forvarnarverkefni sem ætlað er að bæta heilsu íslenskra sjómanna hefur skilað góðum árangri með því að fækka veikindardögum og lækka slysatíðni. Forvarnarfulltrúi segir mikla þörf á slíkri íhlutun þar sem stéttin sé almennt illa á sig komin. 29.9.2011 22:00
Fékk heilablóðfall og fór að tala með kínverskum hreim Hin tæplega fimmtuga Debbie McCann, sem er fædd og uppalin í Skotlandi, fékk heilablóðfall í nóvember á síðasta ári. Í fyrstu gat Debbie ekki talað en þegar hún fékk loksins málið á ný kom í ljós að hún talaði með kínverskum hreim. 29.9.2011 21:30
Síðasti bóndinn vill ekki verða algert fífl Síðasti sauðfjárbóndinn á vestasta kjálka Íslands óttast mest að tófan geti riðið búskapnum að fullu. Hann segir fjölskylduna staðráðna í að halda áfram en þau þurfi að passa sig á að verða ekki skrýtin í einangruninni. 29.9.2011 20:45
Jóhanna Sigurðardóttir: Kvótafrumvarpið gallað og rannsókn of hæg Jóhanna Sigurðadóttir forsætisráðherra sagði það rangt sem ríkisstjórnin hefur verið sökuð um, að hún láti sitt eftir liggja í atvinnusköpun hér á landi. Hún sagði í viðtali í Kastljósi, sem var í raun nokkurskonar fyrirspurnartími, að ríkisstjórnin væri búin að greiða fyrir atvinnusköpun hér á landi fyrir 80 milljarða króna. Þannig væru stórar fjárfestingar í gangi, meðal annars á Suðvesturhorni landsins sem og á Norðausturhorninu. 29.9.2011 20:15
Stóð nakinn úti í glugga fyrir framan leikvöll - sagðist vera klóra sér Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni á sjötugsaldri sem var dæmdur fyrir að særa blygðunarkennd nágranna sinna, þegar hann stóð hálfnakinn út í glugga og strauk á sér getnarliminn. 29.9.2011 17:58
Vinnuhópur myndaður til þess að þoka málum lögreglumanna í rétta átt Fulltrúar Landssambands lögreglumanna áttu fund með fjármálaráðherra, ráðuneytisstjórum forsætis-, fjármála- og innanríkisráðuneytisins, meðlimum samninganefndarinnar og aðstoðarmanni fjármálaráðherra vegna óánægju lögreglumanna með úrskurð gerðadóms um kjaramál lögreglumanna. 29.9.2011 17:20
Óhapp á Keflavíkurflugvelli olli marga tíma seinkunn Flugvél Icelandair sem átti að fljúga til Glasgow klukkan hálf átta í morgun fór ekki í loftið fyrr en klukkan korter í fjögur í dag vegna óhapps sem varð á Keflavíkurflugvelli í morgun. 29.9.2011 15:57
Dætur Mandela í raunveruleikaþætti Verið að skipuleggja raunveruleika-sjónvarpsþátt um Mandela fjölskylduna. Nánar tiltekið verður fylgst með dætrum Mandela og ríkmannlegu lífi þeirra í Höfðaborg. Dæturnar þrjár fluttust allar erlendis til að stunda nám en núna eru þær snúnar aftur. Framleiðendur þáttarins telja þetta frábært tækifæri fyrir íbúa Suður-Afríku til að kynnast raunverulegum sjálfstæðum konum. Þetta er hin nýja Afríka segja framleiðendurnir. 29.9.2011 17:19
Interpol eltir son Gaddafi Hin tímabundna ríkisstjórn Líbíu hefur beðið Interpol um setja út alþjóðlega handtökuheimild á hendur Saadi, sem er einn af sonum Muammars Gaddafi. Þetta er í fyrsta sinn sem yfirvöld í Líbíu hafa biðlað til Interpol en áður hafði stofnunin sett fyrrum einræðisherrann, elsta son hans og arftaka Saif al-Islam og fyrrum hernaðarráðgjafa Gadaffi, Abdullah al-Senussi, á sérstakan lista yfir ódæðismenn. 29.9.2011 16:45
Muna að festa trampólínin í kvöld Leiðindaveðri er spáð á höfuðborgarsvæðinu og vill lögreglan minna fólk á að festa lausamuni eða koma þeim í skjól. Þetta á ekki síst við um trampólín en þau eiga það til að fjúka þegar hvessir. Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu næsta sólarhringinn eru vaxandi austanátt og rigning, 8-15 í kvöld en 13-18 í nótt. Suðlægari 13-20 og skúrir á morgun. Hiti 8 til 13 stig. 29.9.2011 16:31
Örlæti í Japan Mikið magn peninga fannst á almenningsklósetti í Japan fyrr dag. Upphæðin, 10 milljón yen, samsvarar rúmlega fimmtán milljónum íslenskra króna. Á miða sem fannst hjá peningunum kom fram að þeir væru ætlaðir til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum í Japan eftir flóðbylgjuna fyrr á þessu ári. Velgjörðamaðurinn tók það einnig fram að hann væri einsamall og lifði einföldu lífi, það væru aðrir sem ættu að njóta góðs af peningunum. 29.9.2011 16:21
Strauss-Kahn hittir ásakanda sinn Dominique Strauss-Kahn var glaðbeittur þegar hann yfirgaf lögreglustöð í miðborg Parísar í dag. Á fundi í lögreglustöðinni hitti Strauss-Kahn ásakanda sinn, Tristane Banon, sem segir hann hafa nauðgað sér árið 2003. Fundir eins og þessir eru algengir í Frakklandi en þar hittast báðir aðilar málsins fyrir dómara og ákveðið er hvernig áskönunum og réttarhaldi verði háttað. 29.9.2011 15:55
Ísland getur skipað sér í fremstu röð sem grænt hagkerfi Ísland getur skipað sér í fremstu röð á alþjóðavettvangi sem grænt hagkerfi, með áherslu á hreina náttúru, sjálfbæran orkubúskap, nýsköpun og menntun til sjálfbærni. Þetta er ein af niðurstöðum nefndar Alþingis um eflingu græns hagkerfis, sem kynnti skýrslu sína á fréttamannafundi í dag. 29.9.2011 15:34
Ekki aftur... Heimsbyggðin andaði léttar þegar gervihnöttur NASA hrapaði fyrr í vikunni á afskekktum stað í suður-Kyrrahafi. En núna virðist mannkynið þurfa að endurtaka leikinn því þýski gervihnötturinn ROSAT verður í frjálsu falli snemma í nóvember næstkomandi. Sporbraut gervihnattarins er á milli 53 lengdargráðu norðurs og suðurs. Sem þýðir hættusvæðið teygist milli Kanada og suður-Ameríku og gengur þvert meðfram jörðinni. 29.9.2011 15:25
Spielberg leikstýrir Móses Tilkynnt var í dag að Steven Spielberg ætli að leikstýra og framleiða kvikmynd byggða á ævi hebreska trúarleiðtoganum Móses. Kvikmyndin er ekki endurgerð á Boðorðunum tíu frá árinu 1956 en efnistökin eru þó að sjáfssögðu svipuð. Warner bros þróa verkefnið en á næstu mánuðum mun fyrirtækið einnig frumsýna kvikmynd byggða á ljóði John Miltons, Paradísarmissi. 29.9.2011 15:13
Ragnhildur Gísladóttir á Norrænum músíkdögum Ragnhildur Gísladóttir söngkona, Sólrún Sumarliðadóttir sellóleikari úr Aaminu og Hafdís Bjarnadóttir, jazzgítarleikari, spila frumsamin tónverk og hljóðgjörninga á Norrænum músíkdögum í Eldborg í Hörpu í næstu viku. 29.9.2011 15:11
Rosalegt verkefni framundan „Það er rosalegt verkefni framundan. Þetta eru fjörtíu milljónir sem mig vantar og ég er bara rétt kominn yfir þrjár," segir Guðmundur Felix Grétarsson. Guðmundur Felix hefur vakið töluverða athygli undanfarið eftir að hann greindi frá því að hann eygði möguleika á því að fá græddar á sig hendur. 29.9.2011 14:54
Garðsapótek ódýrast Garðsapótek við Sogaveg var oftast með lægsta verðið á lausasölulyfjum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í apótekum landsins mánudaginn 26. september. Árbæjarapótek Hraunbæ var oftast með hæsta verðið í könnuninni. 29.9.2011 14:48
Evran styrkist í kjölfar samþykktar um björgunarsjóð Evran styrktist gegn dollaranum eftir að Angela Merkel og kristilegir demókratar í Þýskalandi samþykktu að stækka björgunarsjóði evrusvæðanna fyrr í dag. Aukið fjármagn í sjóðina gerir evruríkjunum sautján færi á að aðstoða ríki innan sambandssins enn frekar. Mun líklegra er nú að mögulegt sé að aðstoða Grikkland enn frekar á komandi mánuðum en mikil óvissa hefur ríkt í þar síðustu vikur. 29.9.2011 14:41
Castro hæðist að Obama Barack Obama sagði nýlega að hann væri reiðubúinn að endurskoða stöðu Bandaríkjanna í garð Kúbu, svo lengi sem yfirvöld þar á bæ sýni vilja til að breyta stjórnarháttum sínum. Bandaríkjaforseti fékk hins vegar kaldar kveðjur frá Fidel Castro í kjölfarið. Í grein sem Castro skrifaði fyrr í vikunni beindi hann orðum að Obama og skaut í kaldhæðni að forsetanum, hversu ótrúlega sanngjarn hann væri eftir allt saman. Í framhaldi velti hann því fyrir sér hvar þessi góðvild hefði verið síðustu fimm áratugi á meðan Bandaríkin hafa viðhaldið viðskiptabanni á Kúbu. 29.9.2011 14:08
Kröfuganga lögreglumanna að hefjast Lögreglumenn eru þessa stundina að safnast saman við lögreglustöðina á Hverfisgötu þaðan sem þeir munu halda í kröfugöngu að fjármálaráðuneytinu. Eins og kunnugt er urðu lögreglumenn svekktir og reiðir eftir að gerðardómur kvað upp úrskurð í kjaradeilu þeirra við ríkisvaldið. Telja þeir sig ekki hafa náð frummarkmiði sínu sem var að laun þeirra myndu hækka til samræmis við viðmiðunarstéttir. Óeirðarhópur lögreglunnar er óstarfhæfur vegna þessarar óánægju lögreglunnar með kjör sín. 29.9.2011 14:02
Tollarar standa með löggunum Tollvarðafélag Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu Landsambands Lögreglumanna. Í yfirlýsingu á vef tollvarða segir að þeir hafi upplifað sömu „óbilgirni frá ríkisvaldinu“ eins og aðrar starfstéttir sem ekki hafa verkfallsrétt. 29.9.2011 13:55
19 prósent erlendra ferðamanna komu með Iceland Express Heildarfarþegafjöldi með Iceland Express hefur aukist um 25,6 prósent fyrstu átta mánuði ársins. 77.100 erlendir ferðamenn komu til Íslands með félaginu, eða um 19 prósent þeirra 406 þúsund útendinga sem komu til landsins með flugi á þessu tímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Express. 29.9.2011 13:41
Spænskir vísindamenn þróa nýtt HIV ónæmingarefni Spænskir vísindamenn hafa lokið tilraunum á nýrri tegund HIV-lyfja. Niðurstöður rannsóknarinnar eru afar jákvæðar og telja vísindamennirnir að lyfið eigi eftir að hjálpa milljónum HIV sjúklinga. 90% af þátttakendum rannsóknarinnar sýndu ofnæmisviðbrögð við HIV vírusnum og 85% héldu viðbrögðunum í heilt ár. Þetta þýðir að lyfið er álíka öflugt og núverandi lyf en möguleikarnir séu þó mun meiri til framtíðar litið. 29.9.2011 13:30
Kokkalandsliðið undirbýr sig fyrir Ólympíuleikana Íslenska kokkalandsliðið heldur sinn árlega styrktarkvöldverð á Lava Restaurant í Bláa lóninu annað kvöld. Kvöldverðurinn er undirbúningur kokkalandsliðsins fyrir „Culinary Olympics", en það eru Ólympíuleikar í matreiðslu sem fara fram á næsta ári. 29.9.2011 12:50
61 árs gömul kona ófrísk Það er ekki á hverjum degi sem fréttir berast af því að konur yfir sextugt beri barn undir belti. En sú er raunin í Brasilíu því sextíu og eins árs gömul kona á von á sér í nóvember næstkomandi. Hún varð ófrísk með gjafaeggi. 29.9.2011 12:46
Björn Valur kjörinn þingflokksformaður VG Björn Valur Gíslason þingmaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs hefur verið kjörinn þingflokksformaður og tekur hann við af Þuríði Backman sem gegnt hefur stöðunni frá í Apríl. 29.9.2011 12:20
Obamacare fer fyrir hæstarétt Stjórn Baracks Obama hefur biðlað til Hæstaréttar þar í landi að styðja breytingar hans á heilbrigðiskerfi Bandaríkjanna. Hið nýja ásigkomulag, oft nefnt Obamacare, tryggir heilbrigðisþjónustu allra þegna Bandaríkjanna. Búist var við því að Obama myndi hafa samband við Hæstarétt með þessum hætti. Ef rétturinn ákveður að fella breytingar Obama úr gildi verður endurkjör forsetans enn erfiðara. 29.9.2011 12:06
Loðnuleit Hafró hætt vegna verkfalls Loðnuleit Hafrannsóknastofnunar hefur verið hætt í miðju kafi vegna verkfalls undirmanna á Hafrannsóknaskipunum, sem hófst í gær. Sjómenn og útvegsmenn segja það bagalegt þar sem loðnuveiðar mega hefjast um mánaðamótin. 29.9.2011 12:06
Cameron setur stórmörkuðum afarkost David Cameron, forsætis ráðherra Bretlands, íhugar nú löggjöf til að stemma stigum við mikilli notkun almennings á plastpokum. Cameron hefur sett stórmörkuðum afarkost og hótar aðgerðum reyni verslanir ekki að minnka plastpoka notkun. Fyrr á árinu var skipulagt átak til að koma í veg fyrir frekari aukningu en aukning varð samt sem áður. Cameron segir þetta vera óásættanlegt og að aðgerðir séu væntanlegar. 29.9.2011 11:43
Vilja endurskrifa fiskveiðistjórnunarfrumvarpið fyrir ráðherra Formaður og varaformaður sjávarútvegsnefndar Alþingis hafa lýst sig reiðubúna til þess að skrifa frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu upp að nýju í umboði ráðherra. Segja þær fordæmi fyrir þessu, meðal annars við smíði frumvarpa í stjórnarráðin. 29.9.2011 11:20
Kína áætlar að skjóta Tiangong-1 á sporbraut Á komandi vikum mun Kína skjóta Tiangong-1 geimvísindastöðinni á sporbraut um jörðina. Geimstöðin mun svífa í 300-400 kílómetra fjarlægð frá yfirborði jarðar. Í fyrstu mun stöðin vera mannlaus en áætlað er að fyrstu geimfararnir, kallaðir yuhangyuans, muni sækja stöðin heim á næsta ári. Tveir til þrír geimfara munu búa í stöðinni, tvær vikur í senn. Geimstöðin mun bera vitni um hæfni kínverja til að byggja vel útbúna geimstöð sem auðveldlega getur keppt við alþjóðlegu geimstöðina ISS. 29.9.2011 11:00
Almenningur virðist sáttur við tillögur Obama um aukaskatt á ríka Ný könnun gefur til kynna að meirihluti Bandaríkjamanna séu sammála því að skattleggja beri milljónamæringa meira en gert hefur verið. Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur mætt mikilli andstöðu á meðal Repúblikana á þingi við þær hugmyndir að hækka skatt á heimilum þar sem tekjurnar nema einni milljón dollara, króna eða meira á ári, sem jafngildir 118 milljónum íslenskra króna. 29.9.2011 10:56