Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rekin úr flokknum fyrir umdeilt ástarsamband Norður-írska þingkonan Iris Robinson hefur verið rekin úr DPU flokknum eftir að upp komst að hún átti í ástarsambandið við 19 ára pilt fyrir tveimur árum síðan. Sjálf var hún 58 ára gömul þegar ástarsambandið stóð yfir. 9.1.2010 17:23
Flugdólgar í klandri Tvær bandarískar herþotur þurftu í gærkvöldi að beina farþegaþotu af leið í innnanlandsflugi í Bandaríkjunum vegna farþega sem lét ófriðlega. Um var að ræða ofurölvaðan farþega sem læsti sig inni á snyrtingu í flugvél á leið frá Atlanta til San Fransisco, en maðurinn neitaði að verða við ítrekuðum óskum flugliða um að setjast í sæti sitt. 9.1.2010 10:02
Skíðasvæðið í Tindastól opið Skíðasvæðið í Tindastól verður opið frá kl 11 til kl 16 í dag. Þar er hæg sunnan átt en gengur á með kviðum. Þá er tveggja gráðu hiti í fjallinu. Göngubrautin er troðin. 9.1.2010 09:26
Böggvisstaðafjall opið Böggvisstaðafjall er opið í dag frá 12- 16 samkvæmt tilkynningu. Þar er milt veður og fínt skíðafæri. Börn úr skíðasveit Reykjavíkur eru við æfingar í fjallinu. 9.1.2010 09:21
Þóttist vera breskur lögreglumaður í þrjú ár Bretinn, Stuart Howatson, var dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir að þykjast vera lögreglumaður í Bretlandi í þrjú ár. Stuart, sem er 31 árs gamall, óf sinn blekkingarvef svo vel að jafnvel eiginkonan hans vissi ekki betur en að hún væri gift stálheiðarlegum lögreglumanni. 9.1.2010 21:00
Stökk út í sjó - myndband Sannkallaður ofurhugi stökk tæpa fimmtíu metra á vélsleða yfir flóðgarðinn úti á Granda í dag, og fór á bólakaf í sjóinn. Lendingin var harkaleg en stökkið var fullkomið. 9.1.2010 18:49
Ellefu vilja efstu sæti í Samfylkingunni í Mosfellsbæ Ellefu frambjóðendur gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ sem fram fer þann 30. janúar næstkomandi. Framboðsfrestur rann út á hádegi í dag. Alls eru 22 einstaklingar í framboði. Þar af eru 5 karlar og sex konur. 9.1.2010 16:29
Þrír menn handteknir á Heathrow grunaðir um hryðjuverk Bresk sérsveit handtók þrjá menn í flugvél á Heatrow flugvellinum í gærkvöldi en þeir er grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðjuverk samkvæmt breska blaðinu The Daily Mail. 9.1.2010 11:28
Samkynhneigðir fagna því að mega ganga í hjónaband Þjóðþingið í Portúgal samþykkti í gær með 125 atkvæðum gegn 99 lagabreytingu sem heimilar samkynhneigðum íbúum þessa kaþólska lands að ganga í hjónaband. 9.1.2010 06:30
Vextir vegna Icesave byggja á kostnaði viðsemjendanna Vextir þeir sem íslenska ríkinu standa til boða í samningum við Breta og Hollendinga vegna Icesave-skuldbindinga ríkisins byggja að mestu á fjármagnskostnaði landanna. Þetta kom fram í símaviðtali sem Íslensk-ameríska viðskiptaráðið skipulagði við Gylfa Magnússon viðskiptaráðherra á fimmtudag. 9.1.2010 06:00
Mannræninginn Priklopil átti sér engan vitorðsmann Austurríski mannræninginn Wolfgang Priklopil, sem hélt stúlkunni Natöschu Kampusch í prísund á heimili sínu í tæp níu ár, stóð einn að verki. 9.1.2010 06:00
Segist hafa gott fylgi sem bæjarstjóraefni „Vegna þeirrar stöðu sem er uppi í Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi ætla ég ekki að taka þátt,“ segir Gunnsteinn Sigurðsson, bæjarstjóri í Kópavogi, sem gefur ekki kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna vegna bæjarstjórnarkosninga í maí. 9.1.2010 06:00
Stjórnin getur vel við unað Ríkisstjórnin getur vel við unað að halda meirihluta kjósenda að baki sér, eins og fram kemur í skoðanakönnun Fréttablaðsins, segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. 9.1.2010 05:30
Siglingaleið gæti lokast Hafís nálgast nú Vestfirði og næstu daga er útlit fyrir að hann færist enn nær landi. Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir að hafísröndin geti náð landi og siglingaleiðin fyrir Vestfirði geti því lokast. 9.1.2010 05:00
Vara við hættu af grýlukertum Slysavarnafélagið Landsbjörg varar við þeirri hættu sem hlýnandi veður hefur í för með sér eftir langvarandi vetrarríki. Félagið hvetur húseigendur og verslunareigendur að hreinsa burtu grýlukerti og snjóþekjur. 9.1.2010 05:00
Óeirðir geisa vegna skotárásar Hundruð innflytjenda, sem flestir eru af afrískum uppruna, hafa undanfarna daga staðið fyrir óeirðum í bænum Rosarno á Suður-Ítalíu. Ástæða óeirðanna er skotárás óþekkts manns þar sem tveir innflytjendur særðust. Kveikjan að árásinni er kynþáttahatur, að sögn innflytjendanna. 9.1.2010 04:45
Stóraukin ásókn er í notaða varahluti Tryggingafélög vilja í auknum mæli nýta notaða varahluti í stað nýrra þegar kemur að lagfæringum tjónabíla. Vegna falls krónunnar hefur verð á nýjum varahlutum tvöfaldast til þrefaldast. 9.1.2010 04:45
Sjö kirkjugestir myrtir Sjö manns létu lífið þegar þrír vopnaðir menn gerðu í fyrrinótt árás á koptíska kirkju í bænum Nag Hammadí í Egyptalandi. 9.1.2010 04:15
Missti sjö tennur eftir árás Tæplega tvítugur maður hefur verið ákærður fyrir Héraðsdómi Suðurlands fyrir að hafa kýlt annan mann í andlitið með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi missti sjö tennur. 9.1.2010 04:15
Dregið um aðgang að Blair Bretland Mikill áhugi er hjá almenningi í Bretlandi á yfirheyrslu yfir Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra, sem verður í lok þessa eða byrjun næsta mánaðar. 9.1.2010 04:15
Afar fátt heillegt eftir í húsinu Líklegt er talið að rekja megi eldinn sem upp kom á Hverfisgötu 28 í fyrrinótt til rafmagnsbilunar. Einn maður á þrítugsaldri lést í brunanum en fimm björguðust. 9.1.2010 04:15
Þrjár milljónir án atvinnu á evrusvæðinu Tíu prósent atvinnuleysi mældist á evrusvæðinu í nóvember í fyrra, samkvæmt upplýsingum sem Eurostat, hagstofa Evrópusambandsins, birti í gær. 9.1.2010 04:00
Oddi tryggir sér Svansvottun Prentsmiðjan Oddi hefur fengið vottun norræna umhverfismerkisins Svansins. Það tryggir að fyrirtækið er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra umhverfis- og heilsuáhrifa. 9.1.2010 04:00
Lánakjör vegna Icesave-samninga Í umfjöllun Gauta B. Eggertssonar um lán vegna Icesave á vef hans er bent á að vextir sem ríkjum Evrópu og Bandaríkjunum standi til boða á lánum til 10 ára séu í sögulegu lágmarki og hlaupi á 3,5 til 4,0 prósenta. Í því samhengi skipti máli að lánin til Íslands séu til 15 ára. Vextir til þessara ríkja hafi síðast í fyrra verið um eða yfir fimm prósent. 9.1.2010 04:00
Harka í hvalastríði Hvalavinir á vegum samtakanna Sea Shepherd yfirgáfu skip sitt, Ady Gil, skömmu áður en það sökk í gær við Suðurskautslandið. Skipið hafði lent í árekstri við japanskt hvalveiðiskip á miðvikudag. 9.1.2010 04:00
ESB fylgist með skatti á Google Evrópusambandið hefur sagst ætla að fylgjast með fyrirætlunum Frakka um að skattleggja auglýsingahagnað Google og beina fénu til tónlistarmanna. 9.1.2010 04:00
Notuð frímerki til hjálparstarfs Samband íslenskra kristniboðsfélaga, í samstarfi við Póstinn, hefur nú hafið söfnun á notuðum frímerkjum. Heiti verkefnisins er: Hendum ekki verðmætum! Söfnunin stendur til 31. janúar 2010 og er tekið við frímerkjum og umslögum á öllum póstafgreiðslum Póstsins um land allt. 9.1.2010 03:45
„Nú tekur þjóðin við kaleiknum“ Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingar, segir að nú taki þjóðin við kaleiknum því Icesave málið sé komið úr höndum Alþingis. Hún segir brýnt að málið fái góða kynningu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. 8.1.2010 22:00
Nærbuxnasprengjumaðurinn neitar sök Nígeríumaðurinn sem reyndi að sprengja upp farþegaflugvél yfir bandarísku borginni Detroit um jólin neitaði sök fyrir alríkisdómstól í Detroit í dag. 8.1.2010 22:22
Þjóðaratkvæðagreiðsla sendir skýr skilaboð Ólafur Elíasson, einn af forsvarsmönnum InDefence hópsins, segir að samstaða sé eina vopn Íslendinga í Icesave deilunni við Hollendinga og Breta. Þjóðaratkvæðagreiðsla sendi skýr skilaboð. „Með þjóðaratkvæðagreiðslunni getum við sagt Bretum og Hollendingum að það eru takmörk fyrir því hversu langt við erum til í að ganga." 8.1.2010 21:44
Krefjast raunverulegra leiðréttinga Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland boða til kröfufundar á Austurvelli á morgun klukkan 15. Þau krefjast raunverulegra leiðréttinga á lánakjörum heimilanna. 8.1.2010 20:54
Lög um þjóðaratkvæði samþykkt Alþingi samþykkti á áttunda tímanum í kvöld frumvarp ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Icsave laganna. 8.1.2010 19:43
Atkvæðagreiðslan hefst eftir hálfan mánuð Þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave lögin fer fram í síðasta lagi 6. mars en utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst eftir hálfan mánuð. Stjórnarandstaðan vill að úrslitatilraun verði gerð til nýrra samninga en það telja margir flókið á meðan þjóðaratkvæðagreiðsla stendur fyrir dyrum. 8.1.2010 18:55
Gróft barnaklám í tölvu Facebook nauðgara Gróft barnaklám fannst í tölvu mannsins sem situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um kynferðisbrot gegn þremur ungum stúlkum sem hann tældi á Facebook. Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldið yfir manninum í dag. 8.1.2010 18:44
Varað við flughálku „Vegna hlýnandi veðurs á landinu og hættu á myndun á flughálku og spá um vaxandi vind á norðvestan- og austanverðu landinu, eru vegfarendur beðnir um að sýna sérstaka aðgát,“ að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 8.1.2010 20:47
Alþingi frestað til 29. janúar Eftir að þingmenn samþykktu frumvarp ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Icesave laganna í kvöld var Alþingi frestað. Þing kemur næst saman föstudaginn 29. janúar. 8.1.2010 19:59
Hávaði frá götusóp yfir leyfilegum hávaðamörkum Hávaði frá götusóp sem notaður hefur verið í miðborg Reykjavíkur er yfir leyfilegum hávaðamörkum. Borgin lét framkvæma hávaðamælingu á tveimur sópum vegna kvartana frá íbúum og hefur notkun sópsins nú verið hætt. 8.1.2010 19:34
Reyndu að laumast um borð á fleka Tveir menn sigldu á fleka að skipinu Reykjafossi þar sem það lá við bryggju í Stundahöfn í nótt og reyndu að laumast um borð. Annar þeirra er Albani en hinn frá Líbýu og báðir hafa dvalist hér í nokkurn tíma. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Þar kom fram að þetta væri þriðja tilraunin sem gerð hafi verið í haust til að lauma sér með skipum Eimskipafélagsins. 8.1.2010 19:16
Smábátar breytast í tröllabáta Smábátar landsins eru að verða æ tröllslegri og beita trillukarlar ýmsum hundakúnstum til að stækka bátana til hins ítrasta án þess þó að þeir hætti að teljast smábátar. 8.1.2010 18:39
Níu manns í haldi vegna aðgerða lögreglu Átta kíló af hvítum efnum og meira en fjögur þúsund e-töflur hafa náðst í aðgerðum lögreglu gegn fíkniefnasmyglurum undanfarnar vikur. Níu manns eru í haldi vegna þessara aðgerða. 8.1.2010 18:38
Forstöðumenn tveggja ríkisstofnanna áminntir Alls hefur tveimur forstöðumönnum ríkisstofnana verið veitt áminning á síðustu tíu árum vegna eyðslu umfram fjárheimildir. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um eyðslu umfram fjárheimildir. Ekki kemur fram um forstöðumenn hvaða stofnanna sé um að ræða. 8.1.2010 18:13
Önnur umræða hafin Allsherjarnefndar hefur fjallað í dag um frumvarp ríkisstjórnarinnar þjóðaratkvæaðagreiðslu en önnur umræða hófst skömmu eftir klukkan sex. Til stóð að þingfundur hæfjist einum og hálfum tíma fyrr. 8.1.2010 18:07
Þingfundi ítrekað frestað Til stóð að önnur umræða um frumvarp ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu hæfist klukkan hálf fimm í dag en þingfundi hefur ítrekað verið frestað. Allsherjarnefnd hefur fjallað um frumvarpið frá því að fyrstu umræðu lauk á þriðja tímanum fyrr í dag. Til stendur að þingfundur hefjist klukkan sex en áætlanir ríkisstjórnarinnar ganga út á að frumvarpið verði orðið að lögum í lok dags. 8.1.2010 17:43
Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir Facebook nauðgara staðfestur Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni á þrítugsaldri, sem grunaður er um kynferðisbrot gegn þremur stúlkum á aldrinum 13 til 16 ára. 8.1.2010 17:08
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna meints kókaínsmygls Karl á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 15. janúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 8.1.2010 16:35