Samkynhneigðir fagna því að mega ganga í hjónaband 9. janúar 2010 06:30 Dálítil hátíðarstemning ríkti í gær fyrir utan þinghúsið í Lissabon þar sem samkynhneigðir fögnuðu niðurstöðu þingsins.fréttablaðið/AP
Þjóðþingið í Portúgal samþykkti í gær með 125 atkvæðum gegn 99 lagabreytingu sem heimilar samkynhneigðum íbúum þessa kaþólska lands að ganga í hjónaband. Lagabreytingin er einföld, því einungis er sleppt því orðalagi núgildandi laga að hjónaband geti einungis verið milli tveggja einstaklinga hvort af sínu kyninu. „Þetta er lítil breyting á lögum, það er rétt,“ segir Jose Socrates forsætisráðherra, sem lagði mikla áherslu á að þessi breyting væri sjálfsagt réttlætismál. „En þetta er mjög mikilvægt og táknrænt skref í áttina að því að tryggja virðingu fyrir gildum sem eru grundvöllur hvers lýðræðislegs, opins og umburðarlynds samfélags: gildi frelsis, jöfnuðar og þess að mismuna ekki fólki.“ Socrates segir lagabreytinguna lið í nútímavæðingu Portúgals, en þar í landi taldist samkynhneigð vera glæpur allt til ársins 1982. Fyrir tveimur árum aflétti stjórn hans banni við fóstureyðingum þrátt fyrir harða andstöðu kaþólsku kirkjunnar. Forseti landsins, hinn íhaldssami Anibal Cavaco Silva, getur þó neitað að staðfesta lögin, en þá fær þingið þau aftur til meðferðar og getur með auknum meirihluta gert neitunarvald forsetans að engu. Verði lögin staðfest geta fyrstu samkynhneigðu pörin gengið í hjónaband í apríl, mánuði áður en Benedikt páfi kemur í heimsókn til landsins. Í nágrannalandinu Spáni voru hjónavígslur samkynhneigðra leyfðar fyrir fjórum árum. Íbúar beggja landanna eru að miklum meirihluta kaþólskir og fyrri tilraunir í báðum löndunum til að heimila hjónavígslur samkynhneigðra höfðu áður strandað á harðri andstöðu kristinna hópa og íhaldssamra þingmanna. Í þetta sinn gekk málið þó greiðlega í gegnum þingið og fulltrúar samkynhneigðra fagna því að landið sé komið í fremstu röð varðandi réttindi samkynhneigðra. Hjónavígslur samkynhneigðra eru nú leyfðar í Belgíu, Hollandi, Svíþjóð, Noregi, Kanada, Suður-Afríku og á Spáni auk þess sem sex af ríkjum Bandaríkjanna hafa lögleitt þær. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira