Smábátar breytast í tröllabáta 8. janúar 2010 18:39
Smábátar landsins eru að verða æ tröllslegri og beita trillukarlar ýmsum hundakúnstum til að stækka bátana til hins ítrasta án þess þó að þeir hætti að teljast smábátar. Ragnar SF, gerður út frá Hornarfirði, taldist raunar aflahæsti smábátur landsins á síðasta fiskiveiðiári. Af því að hann mælist 14,9 brúttótonn, en ekki 15, þá má hann fiska í smábátakerfinu. Svona yfirbyggðum tröllabátum hefur farið fjölgandi á síðustu árum en til að þeir sleppi inn í kerfið er beitt ýmsum kúnstum. Þar sem lengd bátsins virkar þyngst í mælingunni er stefnið haft knappt, skuturinn sléttur, en á móti belgist báturinn út í hæð og breidd, því um borð vilja menn rými fyrir fjóra í áhöfn og afkastamikinn vélakost, þar á meðal stóra beitingavél. Til að auka plássið án þess að það mælist er helsta trikkið að hafa svokallaðar svalir, sem skaga aftur fyrir sjólínu. Arnar Þór Ragnarsson, skipstjóri á Ragnari SF, glottir þegar hann er spurður hvort hægt sé að telja þennan bát sem smábát. Hann segir að reglurnar séu svona og við því sé ekkert að gera. Menn smíði eftir reglunum. En eigi það svo stöðugt á hættu að ráðamenn breyti reglunum. Arnar segir að menn hafi ekki undan að smíða eða hagræða í rekstrinum. Það sé alltaf verið að breyta öllu og menn viti ekki hvar þeir standa á hverjum tíma.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Sjá meira