Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjölmenni á kröfufundi Ríflega 300 manns eru samankomnir á Austurvelli vegna kröfufundar Hagsmunasamtaka heimilanna og samtakanna Nýtt Ísland. Þar er okurlánastarfsemi og blekkingum bankanna mótmælt. Þetta er sjötti sameiginlegi kröfufundur nýs Íslands og Hagsmunasamtaka heimilanna í vetur. 16.1.2010 15:38
Íslendingarnir njóta verndar friðargæsluliða Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin mun í dag vinna í rústum St. James hótelsins í Port au Prince á Haiti. Mun sveitin vinna að þessu verkefni með spænskri björgunarsveit með leitarhunda og undir vernd indverskra friðargæsluliða en talið er að það muni taka allan daginn, að fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar segir að líkurnar á því að finna einhvern á lífi séu því miður ekki miklar þar sem langt er síðan jarðskjálftinn reið yfir. Í hamförum sem þessum sé flestum bjargað á fyrstu 48 klukkutímunum. 16.1.2010 15:23
Óttast um öryggi almennra borgara Óttast er um öryggi almennra borgara í Port au Prince höfuðborg Haítí. Þegar rúmir fjórir dagar eru síðan að harður jarðskjálfti skók landið hafa ýmis vandamál líkt skemmdir á vegum orðið til að erfiðlega hefur gengið að koma hjálpargöngum til þurfandi íbúa. 16.1.2010 15:13
Réttarhöldum yfir Berlusconi frestað aftur Réttarhöldum yfir Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur enn á ný verið frestað og nú til febrúarloka. Í fyrstu stóð til að forsætisráðherrann kæmi fyrir dóm í nóvember vegna áskana í spillingarmáli. 16.1.2010 14:38
Gagnaverið skapar 100 störf Skúli Helgason, formaður iðnaðarnefndar Alþingis, segir að á bilinu 80 til 120 manns fái við vinnu við uppbyggingu gagnavers Verne Holdings í Reykjanes á sjö ára byggingartíma og að um 100 störf skapist við rekstur gagnaversins þegar það er fullbúið. Verðmæti uppbyggingarinnar sé tæpir 90 milljarðar króna. 16.1.2010 14:08
Útvarp Saga styður Júlíus Vífil Útvarp Saga hefur lýst yfir stuðningi við borgarfulltrúann Júlíus Vífil Ingvarsson í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík en prófkjörið fer fram um næstu helgi. 16.1.2010 13:55
Katrín: Ekki til marks um óánægju innan VG Flokksráðsfundur Vinstri grænna stendur yfir á Akureyrir en um 120 manns sitja fundinn. Rúmlega 40 ályktanir hafa verið lagðar fram þar á meðal ályktun um að samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn verði hætt og að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu verði dregin til baka. Varaformaður flokksins segir þær ekki til marks um óánægju innan VG 16.1.2010 13:30
Samstaða í Icesave málinu fagnaðarefni Stjórn Félags íslenskra stórkaupmanna fagnar því að samstaða virðist vera nást meðal stjórnmálaflokka um afstöðu gagnvart viðsemjendum Íslands í Icesave málinu. Ekki þurfi að fjölyrða um mikilvægi þess að Ísland hafi eina rödd í málinu og að óvissu í kringum málið linni sem allra fyrst. 16.1.2010 13:02
Ætlar ekki að færa flokkinn til vinstri Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, segir Verkamannaflokkinn eiga að vera flokk millistéttarinnar. Hann ætlar ekki að svara kalli grasrótarinnar og færa flokkinn meira til vinstri fyrir kosningar. 16.1.2010 12:54
Hafa ekki gefið upp vonina að finna fólk á lífi Vonir eru bundnar við að fólk finnist enn á lífi í rústum húsa sem hrundu í jarðskjálftanum á Haítí í vikunni. Íslenska björgunarsveitin sem verið hefur að störfum í Port au Prince, höfuðborg landsins, síðustu tvo daga heldur áfram leit sinni í dag. 16.1.2010 12:46
Sjö milljónir í neyðaraðstoð á Haítí Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita um sjö milljónum íslenskra króna til neyðaraðstoðar Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna á Haítí. Þörf er á umfangsmikilli neyðar- og mannúðaraðstoð til handa öllum þeim mannfjölda, sem nú býr við mikla neyð, matarskort, lyfjaskort og skort á húsaskjóli í kjölfar jarðskjálftans á Haítí fyrr í vikunni. 16.1.2010 12:19
Jóhanna hóflega bjartsýn Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, er hóflega bjartsýn á að hægt verði að ná betri samningi við Breta og Hollendinga um Icesave. Ríkisstjórnin vonast eftir svari frá Bretum og Hollendingum á næstu dögum um hvort hægt verði að ganga til samningaviðræðna á ný. 16.1.2010 12:12
Sýna björgunarsveitinni vinsemd Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin er nú að rísa úr rekkju á Haítí en þar er klukkan að verða sjö að morgni. Íslendingarnir eru vel stemmdir og tilbúnir til að takast á við verkefni dagsins, að fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Ekki er þó enn ljóst hver þau eru. 16.1.2010 11:53
Kröfufundur á Austurvelli Hagsmunasamtök heimilanna og Nýja Ísland efna til kröfufundar á Austurvelli í dag. Þar verður okurlánastarfsemi og blekkingum bankanna mótmælt, að fram kemur í tilkynningu. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, og Guðrún Dadda Ásmundardóttir, stjórnarkona í Hagmunasamtökum heimilanna, munu taka til máls. 16.1.2010 11:28
Stöðugildum á Landspítalanum fækkaði um 70 Launakostnaður Landspítalans á síðasta ári nam 26.680 milljónum króna sem er rúmlega 1% yfir áætlun. Björn Zoëga, forstjóri spítalans, segir að hlutfallið hafi verið 5% í ágúst og það hafi leitt til róttækra sparnaðaraðgerða sem voru kynntar í september. 16.1.2010 11:11
Auglýst eftir nýjum forstjóra Útlendingastofnunar Embætti forstjóra Útlendingastofnunar hefur verið auglýst laust til umsóknar. Hildur Dungal hefur beðist lausnar sem forstjóri stofnunnar frá 1. apríl næstkomandi, en hún hefur verið í leyfi frá störfum því í júní 2008. Hún gefur kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna í Kópavogi sem fram í næsta mánuði vegna komandi bæjarstjórnarkosninga. 16.1.2010 10:54
Frambjóðendur í Reykjavík kynntir Sjálfstæðisflokkur og Samfylking kynna í dag þá frambjóðendur sem gefa kost á sér á lista flokkanna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Framboðsfrestur í prófkjöri Samfylkingarinnar rennur út á hádegi í dag. 16.1.2010 10:35
Vonast eftir svari frá Bretum og Hollendingum á næstu dögum Ríkisstjórnin vonast eftir svari frá Bretum og Hollendingum á næstu dögum um hvort hægt verði að hefja nýjar samningaviðræður um Icesave. Þreifingar þessa efnis hafa staðið yfir á milli landanna síðan Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, synjaði Icesave lögunum staðfestingar í síðustu viku. 16.1.2010 10:16
Enn er vitað um fólk á lífi Enn er vitað um fólk á lífi í rústum húsa á Haíti. Félagar í íslensku rústabjörgunarsveitinni unnu fram á nótt að íslenskum tíma með bandarískri sveit við leit á tveimur svæðum suður af flugvellinum í Port au Prince. Með þeim voru friðargæsluliðar frá Sameinuðu þjóðunum því mjög er óttast um öryggi hjálparstarfsmanna. 16.1.2010 10:10
Flokksráðsfundur á Akureyri Flokksráðsfundur Vinstri grænna stendur nú yfir á Akureyri en um 120 manns sitja fundinn. Rúmlega fjörtíu ályktanir hafa verið lagðar fram fundinum þar á meðal ályktun um að samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn verði hætt og aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu verði dregin til baka. Kosið verður um ályktanir eftir hádegi en fundinum lýkur um klukkan þrjú. 16.1.2010 10:05
Enn hægt að fá miða Það er orðinn árviss viðburður, að framvarðarsveit íslenskrar popptónlistar komi saman við áramót í Háskólabíói við Hagatorg og troði upp til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Árið í ár er engin undantekning og hefur dagskráin sjaldan eða aldrei verið eins glæsileg, að mati Einars Bárðarsonar sem stendur fyrir tónleikunum sem fara fram síðar í adg. 16.1.2010 10:00
Skíðasvæði opin Þó lítið fari fyrir snjónum sunnan heiða eru flest skíðasvæði á Norðurlandi eru opin í dag. Skíðasvæðið Akureyringa í Hlíðafjalli er opið til fjögur, þar er fremur hægur vindur og eins stigs hiti. Þá er skíðasvæðið á Siglufirði einnig opið og skíðasvæði Dalvíkinga í Boggvisstaðafjalli svo og skíðasvæði Skagfirðinga í Tindastól. 16.1.2010 09:44
Á ofsahraða undir áhrifum Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn rétt fyrir miðnætti í gær fyrir að hafa ekið á 160 kílómetra hraða á Hellisheiði en þar er 90 kílómetra hámarkshraði. Hann var jafnframt undir áhrifum áfengis. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var maðurinn færður á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. 16.1.2010 09:34
Bílvelta skammt frá Akureyri Bifreið valt á hringveginum við Sveinbjarnargerði austan við Akureyri á áttunda tímanum í gærkvöldi. Fólksbifreið og jepplingur lentu saman með þeim afleiðingum að fólksbifreiðin valt og hafnaði utanvegar. Fjórir voru í bifreiðinni og eru meiðsl þeirra ekki alvarleg, að sögn lögreglunnar á Akureyri. Fólkið var þó flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar. 16.1.2010 09:21
Unnið að sendingu átta fanga úr landi Í fangelsum hér á landi sitja í dag ellefu erlendir fangar með þyngri dóm en tveggja ára fangelsi. Tveir þeirra eru í flutningsmeðferð til afplánunar í föðurlandi sínu og sex til viðbótar í brottvísunarferli hjá 16.1.2010 08:30
Undir niðri þrýstir kvika „Frá 950 og til um 1350, fyrir mjög stuttu síðan, var mikið um gos á Reykjanesskaganum allt frá Hellisheiði og vestur um,“ segir Ragnar Stefánsson prófessor í jarðvárfræðum við Háskólann á Akureyri. 16.1.2010 08:00
Teikn eru á lofti um aukinn vanda barna „Í barnaverndinni eru greinileg merki þess að eitthvað er að gerast. Það er óróleiki, fleiri tilkynningar og meira álag,“ sagði Ólafur Ó. Guðmundsson, yfirlæknir á barna- og unglingageðdeild LSH (BUGL), á árlegri ráðstefnu um geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga í gær. 16.1.2010 07:00
Gengur hraðar en í Indónesíu Þórir Guðmundsson, deildarstjóri Alþjóðadeildar Rauða kross Íslands, RKÍ, segir að þrátt fyrir að mörgum þyki hjálparstarf á Haítí fara seint af stað þá gangi það hraðar fyrir sig en eftir hamfaraflóðin í Búrma árið 2008 og í 16.1.2010 06:00
Ekki hægt að safna upp skuldum Fyrirtækið Kredia, sem veitir svokölluð sms-smálán, rekur ábyrga lánastarfsemi þar sem fólk getur ekki safnað upp skuldum, segir Leifur A. Haraldsson, framkvæmdastjóri Kredia. 16.1.2010 06:00
Vinkonur tóku öll verðlaunin Vinkonurnar Anna Ingólfsdóttir og Elísabet Brynhildardóttir áttu saman þær tillögur sem lentu í þremur efstu sætum í forsíðusamkeppni Símaskrárinnar. Þema keppninnar var „Ísland í jákvæðu ljósi.“ 16.1.2010 05:00
Skikka má foreldri til umgengni Nefnd dóms- og mannréttindamálaráðherra leggur til margvíslegar breytingar á lögum sem lúta að forsjá barna, búsetu og umgengni. Nefndin skilaði frumvarpi og greinargerð til Rögnu Árnadóttur ráðherra á þriðjudag. Nefndin var skipuð í desember 2008. 16.1.2010 05:00
Gefur kraft að finna stuðning frá Íslandi „Menn eru mjög ánægðir í svona leiðangri ef þeir ná að bjarga einum. Þannig að við erum mjög ánægðir með þann árangur sem við höfum náð nú þegar,“ sagði Lárus Björnsson, fjarskiptamaður hjá íslensku Alþjóðasveitinni í gær. 16.1.2010 04:00
Frestur lengdur um eina viku Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur framlengt frest sem sveitarfélag Álftaness fékk til að koma skikk á fjármál sín um eina viku. Í desember fengu Álftnesingar frest til 20. janúar til þessa en þurfa nú ekki að skila áætlun sinni fyrr en 27. janúar. „Við vinnum í þessu af krafti. 16.1.2010 03:30
Getum dregið úr neyðinni á Haítí Fjörutíu og sex börn í barnaþorpi SOS í Santo rétt utan við Port-au-Prince á Haíti eiga stuðningsforeldra á Íslandi. Þau sluppu öll heil á húfi frá jarðskjálftanum á þriðjudagskvöld, að sögn Ragnars Schram, hjá SOS á Íslandi. 16.1.2010 03:15
150 kýr komnar í graskögglaverksmiðju Eitt stærsta kúabú landsins, sem komið er í fullan rekstur í aflagðri graskögglaverksmiðju við Hornafjörð, framleiðir næga drykkjarmjólk fyrir sex þúsund manna samfélag. 15.1.2010 18:45
Eldur kviknaði í bílskúr á Álftanesi Eldur kviknaði í bílskúr á Álftanesi um hádegisbil í dag. Slökkviliðsmenn voru fljótir að mæta á staðinn og slökktu áður en stórtjón hlaust af. 15.1.2010 17:45
Íslendingur hlaut Michelin stjörnuna Veitingahúsið Texture í London, sem er í eigu kokksins Agnars Sverrissonar og franska vínþjónsins Xavier Rousset, hefur orðið þess heiðurs aðnjótandi að fá stjörnu í veitingaúsahandbók Michelin, sem þykir einn mesti heiður sem hægt er að hljóta í veitingabransanum. 15.1.2010 17:05
Mikill viðbúnaður lögreglu við Alþingi vegna spennuþáttar Fjölmargir hafa hringt inn á fréttastofu og tilkynnt um mikinn viðbúnað lögreglu við Alþingi. Þar er svæði afgirt af lögreglunni og svo virðist sem mikill viðbúnaður sé til staðar. 15.1.2010 16:19
Borgin tekur yfir þjónustu við geðfatlaða Velferðarráð Reykjavíkurborgar samþykkti samhljóða í gær að gengið verði til samninga við félagsmálaráðuneytið um að sú þjónusta sem geðfatlaðir hafa hingað til fengið frá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra flytjist til borgarinnar. Samþykktin kemur í kjölfar viljayfirlýsingar sem undirrituð var á sínum tíma og er hún einnig í samræmi við stefnu Landssamtakanna Geðhjálpar um að nærþjónusta við alla íbúa, fatlaða sem ófatlaða, eigi að vera á ábyrgð viðkomandi sveitarfélags. 15.1.2010 15:40
Ögmundur: Svíar handrukkarar Breta og Hollendinga Þingmaður Vinstir grænna, Ögmundur Jónasson, er harðorður í garð Svía eftir viðtal Reuters við forsætisráðherra Svía, Fredrik Reinfeldt, sem Vísir birti meðal annars í gær. Í bloggfærslu á heimsíðu sinni segir Ögmundur: 15.1.2010 15:24
Neyðarblys sást á lofti Landhelgisgæslunni og Neyðarlínunni bárust um kl. 14:20 tilkynningar um neyðarblys sem sást í stefnu milli Holtagarða og Úlfarsfells. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að Eir, þyrla Landhelgisgæslunnar hafi verið á flugi og fór hún samstundis á svæðið til að grennslast fyrir um neyðarblysið. 15.1.2010 14:47
Haítí: Íslendingarnir í slagtog með bandarískri sveit Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin mun í dag vinna með bandarísku teymi að rústabjörgun á Haiti. Ekki er alveg ljóst á þessari stundu hvaða verkefni liggur fyrir að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg. 15.1.2010 14:10
Ríkið þarf að greiða skaðabætur fyrir ólögmæta handtöku Íslenska ríkið var dæmt í morgun til þess að greiða karlmanni af erlendum uppruna 300 þúsund krónur í skaðabætur fyrir ólögmæta handtöku. Maðurinn er einn af tólf mönnum sem var handtekinn í október 2008 sem áttu að hafa tengst alvarlegri líkamsárás á tvo lögregluþjóna. Lögregluþjónarnir bönkuðu á dyr íbúðar í Hraunbæ í Reykjavík þar sem kvartanir höfðu borist vegna hávaða. 15.1.2010 13:47
Þótti ekki við hæfi að fulltrúi FME færi fyrir hollenska þingnefnd Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir það rétt að stjórnarformaður FME hafi neitað að koma fyrir hollenska þingnefnd um orsakir fjármálakreppunnar eins og hollenska blaðið Volksrant greinir frá í dag. 15.1.2010 13:38
Ætla að vekja þingmenn á laugardaginn Hagsmunasamtök heimilanna og Nýtt Ísland hvetja fólk enn á ný til að fjölmenna á Austurvöll á laugardaginn 16. janúar klukkan þrjú þar sem þar sem Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi frá Akranesi og Guðrún Dadda Ásmundardóttir, stjórnarkona í HH munu taka til máls auk Birkis Högnasonar formanni ungliðadeildar Sjúkraliðafélags Íslands. 15.1.2010 13:11