Fleiri fréttir

Hveragerði styrkir hjálparsamtök vegna Haítí

Bæjarstjórn Hveragerðis samþykkti á bæjarstjórnarfundi í gær að styrkja Rauða Krossinn og Landsbjörg um 115.300 krónur á hvort félag, sem nemur um það 100 krónum á hvern íbúa bæjarins. Það var forseti bæjarstjórnar, Eyþór H. Ólafsson, sem bar upp tillögu þess efnis sem hljóðaði svo:

Djákninn á Haítí: Svaf úti með ferðatösku sem kodda

„Það er skrítið að upplifa von í augum íbúa í aðstæðum sem virðast vonlausar,“ skrifar djákninn Halldór Elías Guðmundsson sem er staddur á Haítí, þar sem hann hefur verið síðan jarðskjálftinn reið yfir á miðvikudaginn. Hann skrifaði stutta hugvekju á heimasíðuna tru.is og lýsir þar hrikalegu ástandi á Haítí.

Með dóp og stolið mótorhjól

Tveir ungir Karlmenn, urðu aðeins of seinir að kasta fíkniefnum út úr bíl sínum, þegar þeir urðu þess áskynja í gær, að lögreglan á Akureyri ætlaði að hafa afskipti af þeim.

Dauðhræddir við drauga

Skelfingu lostnir hælisleitendur í Þrændalögum í Noregi leituðu í gær til lögreglunnar vegna draugagangs í húsi sem þeim hafði verið fengið til íbúðar.

Vegatálmar úr líkum á Haiti

Þótt flugvöllurinn í Port au Prince sé nú yfirfullur af af flugvélum sem flytja hjálpargögn og björgunarsveitir er björgunarstarf ekki hafið að neinu marki.

Mikil óánægja með samninga

Margar ástæður eru fyrir mikilli óánægju meðal íslensku þjóðarinnar með Icesave-samninginn, segir Jóhanna Sigurðar­dóttir forsætisráðherra í grein

Veit ekki hvað bíður á áfangastað

Hlín Baldvinsdóttir, sendifulltrúi Rauða kross Íslands, hélt af stað til Haítí síðdegis í gær. Hlín kemur til með að gegna stöðu fjármálastjóra í sérfræðingateymi Alþjóða Rauða krossins.

Icesave á ekki að trufla ferlið

„Umsóknin er á áætlun, ekkert hefur breyst hvað það varðar og engar vísbendingar komið fram um annað en að hún hafi sinn gang.“ Þetta segir Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið.

Segir Íslendinga styðja íbúa Haítí

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur sent samúðarkveðjur til forseta Haítí, René Préval. Í kveðjunni tjáði hann Préval stuðning íslensku þjóðarinnar á tímum erfiðleika, sorgar og áfalla.

Þriðjungur lækna í sérnámi segist ekki koma heim aftur

Einungis þriðjungur ungra lækna sem eru í sérnámi erlendis er ákveðinn í því að snúa aftur til Íslands að loknu námi. Þetta gengur þvert á reynslu innan íslensku læknastéttarinnar þar sem mikill meirihluti lækna hefur löngum verið staðráðinn í að snúa aftur heim að námi loknu. Nýleg könnun á vegum Læknafélags Íslands gefur vísbendingar um þessa þróun.

Ástandið í borginni skelfilegt

Íslenska björgunarsveitin fann þrjár konur í rústum matvörumarkaðar í höfuðborg Haítí í gær. Þær eru allar á lífi. Sveitin var meðal fyrstu á svæðið. Friðargæsluliðar fylgja íslensku sveitinni við björgunarstörf.

Segja hjálparbeiðni hafa verið hafnað

Fyrrverandi aðstoðarvarðstjóri Neyðarlínunnar og fyrrverandi lögregluþjónn fullyrða að starfsmaður Neyðarlínunnar hafi neitað að kalla til aðstoð sjúkrabíls og lögreglu eftir að eldri hjón veltu bifreið sinni austan við Hvolsvöll síðla mánudags. Aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir aftur á móti að viðbrögð starfsmanns hafi verið samkvæmt verklagi og boðun í samræmi við eðli atburðarins.

Mál nýrrar bankastjórnar

„Vinna er enn í gangi. Við það er litlu að bæta,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga, um fjárhagslega endurskipulagningu eignarhaldsfélagsins 1998 ehf., móðurfélags Haga, gagnvart Arion banka.

Guðs mildi að þau voru ekki inni á hótelinu

Halldór Elías Guðmundsson var á gangi ásamt hópi skólafélaga um götur Jacmel á Haítí þegar jarðskjálftinn reið yfir. Hann slapp ómeiddur en hluti hótelsins hrundi, þar á meðal herbergi Halldórs, að sögn Jennýjar Brynjarsdóttur, eiginkonu hans.

Svartsýnin viðvarandi í ár

Enginn stjórnandi í fjögur hundruð stærstu fyrirtækjum landsins telur aðstæður í íslensku efnahagslífi góðar um þessar mundir. Meirihluti þeirra, eða 92 prósent, telja aðstæðurnar slæmar og átta prósent telja þær hvorki góðar né slæmar.

Þáðu far frá Haítí til Íslands

Átta manns, sem lentu í jarðskjálftanum á Haítí, voru væntan­legir til Keflavíkurflugvallar í nótt. Þá var flugvél Icelandair, sem flutti íslensku rústabjörgunarsveitina til Haítí væntanleg heim á ný. Íslensk stjórnvöld buðu fram vélina til að ferja útlendinga frá Haítí.

Gamla skattkerfið var gott

Viðskiptaráð Íslands segir skattabreytingar ríkisstjórnarinnar sem tóku gildi um áramót illa ígrundaðar og hafi stjórnin átt að gefa sér betri tíma til að vinna þær og útfæra í stað þess að þrýsta þeim í gegnum þingið.

Óheppilegt að boðið sé upp á ólík úrræði

Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, vill að Arion og Landsbankinn fari að dæmi Íslandsbanka og bjóði öllum skuldurum fasteignalána höfuðstólsleiðréttingu.

21 fallbyssuskoti hleypt af

Forseti Indlands, Pratibha Patil, afhenti í gær Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, Nehru-verðlaunin fyrir árið 2007. Verðlaunin veita indversk stjórnvöld ár erlendum manni, sem talinn er stuðla að friði og skilningi þjóða á milli. Síðastur hlaut verðlaunin á undan forseta Íslands, Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu en áður hafa meðal annars hlotið þau Aung San Suu Kyi, Nelson Mandela og Yasser Arafat.

Telur óeðlilega staðið að könnun í Kópavogi

Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar í Kópavogi, býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar í maí. Þar með fær Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri, keppinaut um leiðtogasætið á framboðslistanum.

Forsetinn talar gegn skilningi stjórnvalda

Fullkomið ósamræmi er í orðum Ólafs Ragnars Grímssonar forseta og ráðherra í ríkisstjórn Íslands um hvað gerist verði lögum um breytingu á Icesave hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu. Forsetinn sagði við blaðamann Fréttablaðsins í síðustu viku að eldri lög yrðu þá í gildi. „Mér finnst skrýtið núna að þau [eldri lögin] séu ómerk og hafi í raun ekkert innihald.“ Þetta áréttaði hann við fréttaveituna Bloomberg í gær.

Forsætisráðherra bjartsýn á nýjar Icesave viðræður

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er bjartsýn á að draga megi Breta og Hollendinga aftur að samningaborðinu vegna Icesave málsins. Þetta kom fram í seinni fréttum Ríkissjónvarpsins. Hún segir að það muni skýrast á allra næstu dögum hvort Bretar og Hollendingar eru tilbúnir að samningaborðinu á nýjan leik, en það gæti dregist framyfir helgi.

Um 500 manns voru viðstaddir opnunarhátíð HR

Um 500 manns komu saman í dag á opnunarhátíð Háskólans í Reykjavík við Menntaveg 1 í Nauthólsvík í dag. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri klipptu á borða og opnuðu þar með nýbyggingu HR með formlegum hætti.

Bandarísk útgáfa af Næturvaktinni í undirbúningi

Alþjóðlega kvikmyndaframleiðslufyrirtækið Reveille hefur fengið til liðs við sig Sony Pictures um að fjármagna og dreifa bandarískri útgáfu af Næturvaktinni þar sem allar helstu sögupersónar þáttanna og söguþráður yrðu staðfærður inn í bandarískt samfélag.

Lamdi vinnufélagann með malbikunarsköfu

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir karlmanni sem lamdi vinnufélaga sinn í andlitið með malbikunarsköfu. Mennirnir voru að vinna við malbikun í júlí á síðasta ári þegar fórnalambið kastar malbikið á skó árásamannsins. Árásarmanninum brá talsvert við að fá malbikið á sig og lamdi manninn í andlitið í kjölfarið.

Íslenska sveitin bjargaði tveimur konum

Liðsmönnum íslensku alþjóðabjörgunarsveitin tókst að bjarga tveimur konum lifandi úr rústum fjögurra hæða húss, Caribbean Market, í höfuðborg Haítí í dag. Konurnar sem eru 25 til 30 ára eru ekki mikið slasaðar, að fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Verið er að hlúa af þeim af björgunaraðilum, meðal annars með vökvagjöf.

Verðlaunafé Ólafs rennur til íslenskra og indverskra vísindamanna

Pratibha Patil, forseti Indlands, afhenti fyrr í dag Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, Nehruverðlaunin við hátíðlega athöfn í Delí. Hann hyggst verja verðlaunafénu sem nemur um 13,5 milljónum króna til að styrkja samstarf íslenskra og indverskra vísindamanna.

Íslendingarnir á Haítí - myndir

Valgarður Gíslason ljósmyndari Fréttablaðsins slóst með í för þegar Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin hélt í gær til Haítí. Sveitin tekur nú þátt í björgunaraðgerðum í borginni Port au Prince sem varð einna verst úti í skjálftanum sem reið yfir eyjuna í fyrrakvöld. Valgarður er nú á leið aftur til Íslands en hann hefur sent nokkrar myndir af því þegar verið var að afferma þotuna á flugvellinum í Port au Prince. Þær má sjá í meðfylgjandi myndaalbúmi.

LÍÚ: Ummæli Jóns öfugmæli

Landssamband íslenskra útvegsmanna segja að það sé samfélag ábyrgð að berjast gegn fyrningarleið stjórnvöld. Ummæli sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fyrr í dag eru því öfugmæli, að mati sambandsins. LÍÚ hafi ekki hótað neinum en það hafi hins vegar ríkisstjórnin gert.

Óskar og Hanna Birna mæta alltaf

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, og Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, eru bæði með 100% mætingu á borgarstjórnarfundi. Haldnir hafa verið 75 borgarstjórnarfundir á kjörtímabilinu og hefur Hanna Birna mætt á þá alla. Óskar tók sæti í borgarstjórn í janúar 2008 og frá þeim tíma hefur hann ekki misst af borgarstjórnarfundi. Þetta kemur fram í samantekt skrifstofu borgarstjórnar á mætingu núverandi borgarfulltrúa frá upphafi kjörtímabils út árið 2009.

Gröndalshús í loftið í kvöld

Í kvöld verður Gröndalshús híft af sökkli sínum að Vesturgötu 16 b og flutt út í Örfirisey þar sem Völundarverk Reykjavík er tímabundið með aðsetur til endurgerðar eldri húsa samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Íslendingarnir í sínu fyrsta verkefni

Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin vinnur nú að sínu fyrsta rústabjörgunarverkefni á Haítí. Tveir hópar sveitarinnar leita í rústum fjögurra hæða húss/verslunamiðstöðvar á Caribbean Market sem er verslunarstaður í Port au Prince og er talið að þrír einstaklingar sem eru á lífi séu fastir í rústunum.

Bílvelta nærri Bauhaus

Smájeppi valt á Vesturlandsveginum, nærri Bauhaus, fyrir stundu. Samkvæmt sjónarvotti sem Vísir ræddi við var um smájeppa að ræða.

Reykjavíkurborg tekur að sér þjónustu við geðfatlaða

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hafa ákveðið að Reykjavíkurborg taki að sér ábyrgð og framkvæmd á þjónustu við geðfatlaða sem Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík hefur sinnt fram til þessa. Tillaga þess efnis var samþykkt samhljóða í velferðarráði Reykjavíkur í gær. Samþykktin er í samræmi við viljayfirlýsingu sem undirrituð var af félagsmálaráðherra og borgarstjóra í lok ágúst 2008.

Höskuldur: Boltinn hjá Jóhönnu

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að boltinn sé hjá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, varðandi næstu skref í Icesave deilunni. Formenn stjórnmálaflokkanna funda í dag um mögulega sátt allra flokka í málinu.

Fáum ekki Norðurlandalán fyrr en endurskoðun lýkur

Forsætisráðherra Svíþjóðar, Fredrik Reinfeldt, segir í viðtali við Reuters í dag að Svíar muni ekki lána Íslendingum fyrr en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) endurskoðar áætlun sína fyrir Ísland. Endurskoðun AGS hefur, að því er virðist, slegið á frest.

Sjá næstu 50 fréttir