Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ólafsfjarðargöng lokuð vegna grjóthruns Ólafsfjarðargöngin lokuðust í gærkvöldi þegar grjót féll úr klæðningunni og á veginn. Bifreið var ekið á grjótið en ökumaðurinn slapp sem betur fer ómeiddur. Vegagerðin lokaði síðan göngunum til að koma í veg fyrir að fleiri óhöpp hlytust af og er óljóst hvenær þau verða opnuð aftur. 8.10.2009 07:08
Bretar leita óþekktra sjávardýra Breska hafrannsóknarstofnunin hyggst gera út leiðangur til að leita að áður óþekktum lífverum á miklu dýpi á suðrænum hafsvæðum. 8.10.2009 07:07
Brotist inn í íbúð í Hveragerði Brotist var inn í íbúðarhúsnæði í Hveragerði í gær og þaðan stolið skartgripum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi höfðu húsráðendur verið að heiman en þegar þeir komu heim um tíuleytið í gærkvöld áttuðu þeir sig á því að óboðnir gestir höfðu gengið um húsið og rótað þar til. 8.10.2009 07:06
Ár liðið frá því að hryðjuverkalögunum var beitt Í dag er eitt ár liðið frá því að bresk stjórnvöld beittu svokölluðum hryðjuverkalögum gegn Íslandi. 8.10.2009 06:58
Drakk stíflueyði og lést eftir líkamsárás Karlmaður og kona voru flutt á gjörgæsludeild Landspítalans eftir líkamsárás í Hörðalandi í Fossvogi snemma í gærmorgun. Karlmaðurinn lést síðdegis í gær og konan var enn í öndunarvél þegar blaðið fór í prentun. Hún var þó ekki talin í lífshættu. 8.10.2009 06:00
Ákært fyrir vændi og mansal í fyrsta skipti Catalina Mikue Ncogo, íslensk kona ættuð frá Miðbaugs-Gíneu, hefur verið ákærð fyrir mansal og vændisstarfsemi. Henni er meðal annars gefið að sök að hafa blekkt unga konu til landsins og haldið henni hér í kynlífsánauð. Aldrei áður hefur verið ákært í mansals- eða vændismáli á Íslandi. 8.10.2009 06:00
Ríkið hirðir ábatann af lægri greiðslubyrði Lækkun á greiðslubyrði heimilanna er fagnaðarefni. Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar kosta um það bil ein mánaðarlán á ári. Skattahækkanirnar taka þann ábata sem lægri greiðslubyrði skilar. 8.10.2009 05:30
Orkuskattur nái ekki út á land Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, vill að áformaður orku-, umhverfis- og auðlindaskattur leggist ekki á fyrirtæki á landsbyggðinni. Slíkir skattar hafi enda slæm áhrif. 8.10.2009 05:00
Katrín tekur vel í hugmynd Steingríms um orkuskatta Gjald upp á 20 til 30 aura á hverja kílóvattstund af rafmagni er miklu nær lagi en ein króna á hverja kílóvattstund, að sögn Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. 8.10.2009 04:00
Fráleitt að EES sé í uppnámi Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið er ekki í hættu þótt ekki takist samningar um Icesave, að mati Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. 8.10.2009 03:00
Stjórnin sögð hefta framþróun Nei – jú pólitík var í hávegum höfð í umræðum um auðlindir, iðnað og stöðugleikasáttmálann á þingi í gær. 8.10.2009 02:30
FME í Bretlandi vill auknar heimildir „Eftirlitsstofnanir Evrópusambandsríkja ættu að hafa heimild til að takmarka starfsemi útibúa erlendra banka sem standa höllum fæti og sæta ekki nægilegu eftirliti heima fyrir,“ hefur Wall Street Journal eftir Adair Turner, stjórnarformanni Fjármálaeftirlits Breta (FSA), í gær. 8.10.2009 02:00
Fatlaðir öðlist aukið sjálfstæði Ísland getur orðið fyrirmynd annarra þjóða hvað varðar réttindi fólks sem þarfnast aðstoðar. Þetta segir Guðjón Sigurðsson, formaður MND-félagsins og fulltrúi í stýrihópi Virkari velferðar, verkefnis sem hrundið hefur verið af stokkunum og hefur það að markmiði að stuðla að sjálfstæðara lífi fatlaðra utan stofnana. 8.10.2009 02:00
Þingflokksfundur Vinstri grænna hafinn Þingflokksfundur Vinstri grænna hófst nú um níu. Fundurinn er sá fyrsti sem er haldinn eftir að þingmennirnir komu saman í síðustu viku eftir að Ögmundur Jónasson sagði af sér sem heilbrigðisráðherra. Síðan þá hefur mikil ólga verið innan þingflokks Vinstri grænna, meðal annars vegna aðallega vegna Icesave málsins. 7.10.2009 21:01
Haförn í læknisaðgerð Haförninn í Húsdýragarðinum gekkst undir læknisaðgerð í dag þar sem gröftur var kreistur úr stóru kýli. Örninn þarf að vera á lyfjakúr næstu fimm daga en vonast er til að hann geti flogið út í frelsið á ný innan tveggja vikna. 7.10.2009 19:08
Ódýrara heimilisrafmagn með fleiri álverum Því meiri stóriðja, því lægra raforkuverð til heimila. Þessi niðurstaða var kynnt á fundi Samorku í morgun. Forrmaður Landverndar segir að taka verði með í útreikningana kostnað við neikvæð umhverfisáhrif. 7.10.2009 18:51
Guðmundur í Byrginu ákærður fyrir stórfelld fjársvik Ákæra hefur verið gefin út á hendur Guðmundi Jónssyni betur þekktum sem Guðmundi í Byrginu fyrir að svíkja undan skatti og að draga sér hátt í 10 milljónir króna þegar hann var forstöðumaður Byrgisins. 7.10.2009 18:34
Þjófar í síbrotagæslu Þrír menn af erlendum uppruna hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald vegna gruns um fjölda innbrota á höfuðborgarsvæðinu. Einn mannanna var handtekinn 13. ágúst síðastliðinn á Laugaveginum. 7.10.2009 17:18
Lagði ólöglega og vildi ekki segja til nafns Karl á þrítugsaldri var handtekinn í miðborg Reykjavíkur síðdegis í gær en viðkomandi neitaði að segja til nafns og reyndi að villa á sér heimildir. 7.10.2009 17:12
Þrettán ára stelpa rúllaði upp köllunum Veðurbarðir breskir bændur stóðu gapandi af undrun þegar þrettán ára gömul telpa á sex tonna John Deere traktor vann sigur í akur-plægingarkeppni í Herefordsskíri á dögunum. 7.10.2009 16:56
E-töflusmyglarar í einangrun Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að tveir pólskir karlmenn skuli sitja gæsluvarðhaldi til 16. október en þeir voru handteknir fyrir að reyna að smygla til landsins tæplega 6000 e-töflum. Mennirnir er jafnframt vegna rannsóknarhagsmuna gert að sitja í einangrun á meðan þeir sitja í varðhaldi. 7.10.2009 16:40
Spyr um kostnað við aðildarviðræður Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram tvær fyrirspurnir á Alþingi til Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, í tengslum við aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Hún vill vita um kostnað ríkisins vegna umsóknarinnar og þýðingar sem tengjast viðræðunum. 7.10.2009 16:27
Krefjast fundar um stöðugleikasáttmálann Samtök atvinnurekenda og verkalýðsfélaga funduðu lengi um stöðugleikasáttmálann í dag. Miklar áhyggjur eru af því hvort hann haldi. Meginniðurstaða fundarins var sú að óska eftir fundi með fulltrúum ríkisstjórnarinnar fyrir helgi um framtíð sáttmálans. Á fundinum verði allir þeir aðilar sem komu að gerð hans. 7.10.2009 16:22
Ameríka.....best í heimi Bandaríkin eru vinsælasta stóra land í heiminum. Þökk sé Barack Obama. Rannsóknarstofnunin GFK Roper sem tengist Associated Press fréttastofunni hefur um árabil gert kannanir á alheimsvísu um stöðu þjóða. 7.10.2009 15:55
Þórður dæmdur í árs keppnisbann Þórður Þorgeirsson, sem rekinn var úr íslenska landsliðinu í hestaíþróttum í ágúst síðastliðinn hefur verið dæmdur í eins árs bann af aganefnd Landssambands hestamannafélaga. Bannið telur frá 3. ágúst 2009. Þetta kemur fram á vefnum hestafréttir.is en úrskurður LH féll 29. september síðastliðinn. 7.10.2009 15:52
VR mótmælir fyrirætlunum stjórnvalda Stjórn VR mótmælir harðlega þeim fyrirætlunum stjórnvalda að ætla ekki að standa við hækkun persónuafsláttar,“ þetta kemur fram í ályktun sem stjórnarmenn hafa samþykkt. Þar segir að slík framkoma sé ekki trúverðug fyrir ríkisstjórn sem kennir sig við velferð og skjaldborg um heimilin í landinu. „Ekki frekar en sú þversögn að á sama tíma og vinstri höndin hækkar álögur á almenning í formi neysluskatta og eykur á skuldavanda heimila og fyrirtækja er sú hægri að leysa þann sama skuldavanda með lánalengingum. Slíkt gengur einfaldlega ekki upp,“ segir í ályktuninni. 7.10.2009 15:32
Fjórðungur frambjóðenda hefur skilað uppgjöri Aðeins lítill hluti frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjörum stjórnmálaflokkanna vegna alþingiskosninganna í vor hefur skilað fjárhagslegu uppgjöri til Ríkisendurskoðunar. Samtals hafa 83 af 321 frambjóðendum skilað inn umræddum upplýsingum, eða rúmlega fjórðungur. 7.10.2009 15:30
Afmælishátíð í Heiðarskóla Nemendur og starfsfólk Heiðarskóla föðmuðu skólann sinn í dag og settu upp ísskúlptúr í tilefni af 10 ára afmæli hans en skólinn var afhentur Reykjanesbæ árið 2000. Í tilkynningu frá Reykjanesbæ segir að Heiðarskóli leggi áherslu á listir og skapandi starf og eru nemendur 460 og starfsmenn 60. Þess má geta að skólinn hefur á þessum 10 árum útskrifað 461 nemendur úr 10. bekk. 7.10.2009 15:25
Óvíst um rafrænar kosningar Óvíst er hvort að fjármagn fáist til að ljúka tilraunaverkefni um rafrænar kosningar en til stóð að kosið yrði með rafrænum hætti í tveimur bæjarfélögum í komandi sveitarstjórnarkosningum. 7.10.2009 15:05
Nýr risahringur um Satúrnus Bandarískir stjarnfræðingar hafa komið auga á áður óþekktan hring í kringum Satúrnus sem er margfallt stærri en þeir sem þekktir eru. 7.10.2009 15:00
Ákærðir fyrir að bjarga flóttafólki Ítalskur dómstóll sýknaði í dag þrjá liðsmenn þýskra hjálparsamtaka af því að hafa aðstoðað ólöglega innflytjendur. 7.10.2009 14:29
Óvíst hvort lagt verður fram frumvarp vegna Icesave Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, telur ekki öruggt að lagt verði fram frumvarp vegna Icesave málsins á næstu dögum eða vikum. Hann segir það þó líklegt. Jafnframt sé óljóst hvort þingmeirihluti sé fyrir slíku frumvarpi. Þá segir ráðherrann ólíklegt að fallist verði á allar kröfur Breta og Hollendinga í málinu. 7.10.2009 14:20
Írakar ráða ekki við kröfur Alþjóða gjaldeyrissjóðsins Forsætisráðherra Íraks sagði í dag að landið gæti ekki orðið við kröfum Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um að lækka laun opinberra starfsmanna. 7.10.2009 14:13
EES-samningurinn ekki í hættu vegna Icesave Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, telur að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið sé ekki í hættu náist ekki niðurstaða í Icesave málinu. Hann segir segir slíkt fráleitt. Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði Össur út í málið á þingfundi í dag. 7.10.2009 14:04
Hannes búinn að missa glæsivillu við Fjölnisveg Hannes Smárason og fjölskylda eiga ekki lengur tvö glæsilegustu hús Fjölnisvegar í Reykjavík. Landsbankinn hefur leyst til sín félagið Fjölnisveg 9, sem var í eigu Hannesar, en það á meðal annars glæsivilluna Fjölnisveg 11 og lúxusíbúð við Pont Street í London sem metin var á rúman milljarð. 7.10.2009 14:02
Vesturgata verður vistgata Framkvæmdir hefjast nú í vikulok við að breyta Vesturgötu milli Aðalstrætis og Grófarinnar í vistgötu. Vesturgötu verður einnig á þessum kafla breytt í einstefnugötu til norðurs. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að gróðurbeðum verði komið fyrir í götunni og hún fegruð. „Efniviður er valinn til að skapa vistlega stemmingu og tengja við Grófartorg og annað sem fyrir er. Gróðurbeð verða úr grásteini og brústeini; pollar verða úr grágrýti, en þeir hindra að bílum sé lagt upp á gangstétt. Þá verður snjóbræðslu komið fyrir á gönguleiðum.“ 7.10.2009 12:41
Óheppnir sjóræningjar Sómölskum sjóræningjum brá heldur betur í brún þegar þeir réðust á það sem þeir héldu að væri varnarlaust flutningaskip undan ströndum landsins í gær. 7.10.2009 12:37
Ögmundur: Stjórnin ekki að springa Ögmundur Jónasson þingmaður Vinstri grænna vill að samstarfsamningi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn verði sagt upp nú þegar og Alþingi taki að nýju á Icesave málinu. Hann segir ríkisstjórnina hafa verið stofnaða til að verja norrænt velferðarkerfi en ekki til að fara í samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. 7.10.2009 12:35
Hættir sem forstjóri Krabbameinsfélagsins Guðrún Agnarsdóttir lætur af störfum sem forstjóri Krabbameinsfélags Íslands um áramótin að eigin ósk. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu nýs forstjóra og verður auglýst eftir umsækjendum á næstunni. 7.10.2009 12:24
Guðmundur Brynjólfsson hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin Guðmundur Brynjólfsson rithöfundur hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin í morgun, en verðlaunin voru veitt í Árbæjarskóla. Bókin heitir Þvílík vika. Guðmundur segir að bókin sé unglingasaga frekar en barnasaga. Hún fjalli um þrjá stráka sem séu að ljúka við tíunda bekk og byrja að fóta sig í samfélaginu. Í samtali við Vísi segist Guðmundur vera afar ánægður með verðlaunin sem hann fékk afhent í dag. 7.10.2009 12:13
Lögregla tók ekki sýni af bíl Rannveigar Lögregla tók ekki sýni af lakkleysi sem var notaður í skemmdarverkum á bílum forstjóra álversins í Straumsvík og Orkuveitu Reykjavíkur. 27 skemmdarverk með málningu á heimilum útrásar- og stóriðjuforkólfa eru enn óupplýst. 7.10.2009 12:13
Sauðkrækingum svíður fjárlagafrumvarpið Sauðkrækingum svíður forgangsröðun stjórnvalda sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Á fréttavefnum Feyki kemur fram að á sama tíma og Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki er gert að spara 100 milljónir á árinu 2010 eða á milli 11 og 12 % af rekstrarfé sínu ætli menntamálaráðuneytið að ráðstafa 100 milljónum í bókamessu í Frankfurt. 7.10.2009 11:45
Hörðalandsárás: Fólkinu haldið i öndunarvél Fólkið, sem flutt var með sjúkrabíl á Landspítalann eftir átök í Hörðalandi í morgun, er sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild. 7.10.2009 11:26
Hrannar undrast þögn Morgunblaðsins Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, undrast að Morgunblaðið hafi ekki gert afsökunarbeiðni Jóhönnu Sigurðardóttur skil blaðinu í dag. Hann gagnrýnir einnig fréttamat Ríkissjónvarpsins. 7.10.2009 11:12
Al-Kaida hvetur til árása á Kína Í myndbandi á vefsíðu islamista varaði Abu Yahya al-Libi kínversk stjórnvöld við því að þeirra biðu sömu örlög og Sovétríkjanna sem liðuðust í sundur fyrir tveim áratugum. 7.10.2009 10:47