Vesturgata verður vistgata 7. október 2009 12:41
Framkvæmdir hefjast nú í vikulok við að breyta Vesturgötu milli Aðalstrætis og Grófarinnar í vistgötu. Vesturgötu verður einnig á þessum kafla breytt í einstefnugötu. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að gróðurbeðum verði komið fyrir í götunni og hún fegruð. „Efniviður er valinn til að skapa vistlega stemmingu og tengja við Grófartorg og annað sem fyrir er. Gróðurbeð verða úr grásteini og brústeini; pollar verða úr grágrýti, en þeir hindra að bílum sé lagt upp á gangstétt. Þá verður snjóbræðslu komið fyrir á gönguleiðum." Gangandi fá forgang Gatan verður merkt sem vistgata og einnig verður hluti Hafnarstrætis frá Aðalstræti að Veltusundi merkt á sama hátt. Verkefnið er hluti af „grænum skrefum" í Reykjavík. „Vistgata þýðir að gangandi og hjólandi vegfarendur hafa forgang fram yfir bílaumferð, eins og segir í umferðarlögum. Gangandi vegfarandi má þó ekki hindra för ökutækis að óþörfu. Heimilt er að dveljast og vera að leik á vistgötu. Hámarkshraði er 15 km á klst. og skal ökumaður sýna gangandi vegfaranda sérstaka tillitssemi og víkja fyrir honum, eins og segir í umferðarlögum." Fyrirtækið Hellur og gras annast framkvæmdina og er áætlað að verkinu verði lokið fyrir 10. nóvember. Verkeftirlit annast verkfræðistofan Hnit. Kostnaður við verkið í heild er áætlaður 7 milljónir króna.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Fleiri fréttir Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Ráðningarferli lögreglustjóra lá niðri vegna sumarleyfa Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Sjá meira