Fjórðungur frambjóðenda hefur skilað uppgjöri Magnús Már Guðmundsson skrifar 7. október 2009 15:30
Aðeins lítill hluti frambjóðenda sem tóku þátt í prófkjörum stjórnmálaflokkanna vegna alþingiskosninganna í vor hefur skilað fjárhagslegu uppgjöri til Ríkisendurskoðunar. Samtals hafa 83 af 321 frambjóðendum skilað inn umræddum upplýsingum, eða rúmlega fjórðungur. „Það hafa ekki verið neinar holskeflur að undanförnu en menn hafa ennþá tíma til að skila," segir Lárus Ögmundsson, skrifstofustjóri hjá Ríkisendurskoðun. Skilafrestur rennur út 25. október. Samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda ber frambjóðendum sem hafa meiri kostnað af prófkjörsbaráttu en 300 þúsund krónur að skila fjárhagslegu uppgjöri vegna hennar til Ríkisendurskoðunar. Fyrr á þessu ári sendi stofnunin frambjóðendum í prófkjörum vegna þingkosninganna í apríl síðastliðnum bréf þar sem kallað var eftir umræddum upplýsingum. Hafi kostnaður frambjóðenda ekki verið meira en 300 þúsund skal viðkomandi skila Ríkisendurskoðun yfirlýsingu þar sem þær upplýsingar koma fram. Lárus segir að Ríkisendurskoðun geti ekki beitt sérstökum úrræðum skili frambjóðendur ekki fjárhagslegu uppgjöri vegna prófkjörsþátttöku. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort að birtur verði listi yfir þá frambjóðendur sem skila ekki uppgjöri til stofnunarinnar. „Við erum ekki búin að taka ákvörðun en það kemur vel til greina," segir Lárus.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira