Ríkið hirðir ábatann af lægri greiðslubyrði 8. október 2009 05:30 Húsnæðismálin í brennidepli Guðmundur Steingrímsson vill að höfuðstóll húsnæðislána verði lækkaður. Auk þess að það gagnist heimilunum kæmi það sér vel fyrir efnahagslífið. fréttablaðið/gva
Lækkun á greiðslubyrði heimilanna er fagnaðarefni. Skattahækkanir ríkisstjórnarinnar kosta um það bil ein mánaðarlán á ári. Skattahækkanirnar taka þann ábata sem lægri greiðslubyrði skilar. Þetta sagði Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðum um stöðu heimilanna á Alþingi í gær. Fagnaði hann aðgerðum félagsmálaráðherra og sagði skattahækkunaráformin ekki honum að kenna, nema að hluta til. Guðmundur Steingrímsson Framsóknarflokki sagði marga kalla eftir leiðréttingu skulda. Aðgerðum ráðherra bæri að fagna, sér í lagi vegna þess að þær væru almennar. Óvissa ríkti þó um raunverulegt virði lána og henni þyrfti að eyða. Lagði hann til að ráðist yrði í lækkun höfuðstóls lána. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra sagði að við hefði blasað að um tuttugu þúsund hefðu farið í gjaldþrot. Um væri að ræða fólk sem hefði áfram sömu eða svipaðar tekjur og fyrir hrun en skuldabyrðin hefði vaxið því yfir höfuð. Hann sagði almennar aðgerðir mæta vanda þessa fólks en það væri á hendi bankanna að veita sértæk úrræði þeim sem þau þyrftu með. Unnur Brá Konráðsdóttir Sjálfstæðisflokki harmaði að ríkisstjórnin hefði ekki farið að tillögum flokks síns frá í sumar. Sagði hún mikilvægt að allir kæmu saman að lausn mála og til hliðsjónar yrði meðal annars sú ríka hefð að Íslendingar byggju í eigin húsnæði. Lilja Mósesdóttir VG sagðist berjast fyrir leiðréttingu höfuðstóls lána og um leið afnámi verðtryggingar. Um leið yrði að efla leigu- og kaupleigukerfi húsnæðis. Margrét Tryggvadóttir Hreyfingunni sagði boðaðar aðgerðir skref í rétta átt en stíga þyrfti stærri skref. Undir lok umræðunnar þóttist Guðmundur Steingrímsson greina samhljóm meðal þingmanna og ítrekaði þá skoðun sína að lækka bæri höfuðstól húsnæðislána. Auk þess að gagnast heimilunum myndi það koma sér vel fyrir efnahagslífið.bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Fleiri fréttir Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásynd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Sjá meira