FME í Bretlandi vill auknar heimildir 8. október 2009 02:00 Piccadilly circus Íslenskar eftirlitsstofnanir áttu í vandkvæðum með að elta hraðan uppgang íslensks fjármálakerfis árin fyrir hrun. Meðal eftirlitsstofnana heimsins er umræða um hvernig koma megi í veg fyrir vandamál viðlíka þeim sem Icesave-reikningar Landsbankans hafa valdið. Fréttablaðið/Valli „
Eftirlitsstofnanir Evrópusambandsríkja ættu að hafa heimild til að takmarka starfsemi útibúa erlendra banka sem standa höllum fæti og sæta ekki nægilegu eftirliti heima fyrir,“ hefur Wall Street Journal eftir Adair Turner, stjórnarformanni Fjármálaeftirlits Breta (FSA), í gær. Adair Turner segir betur fara á að eftirlitsstofnanir ættu rétt á að fá allar viðeigandi upplýsingar um erlenda banka sem reka útibú í landinu, þar á meðal nákvæm gögn um eigið fé, lausafjárstöðu og hvernig staðið er að áhættustýringu. Wall Street Journal segir eftirlitsstofnanir Evrópusambandsríkja fást við þann vanda að eftirlitsstofnanir í heimaríkjum hafi engin formleg yfirráð yfir útibúum erlendra fjármálastofnana, sem þó kunni að vera að safna innlánum meðal þegna landsins. Reglur í Evrópusambandinu og á Evrópska efnahagssvæðinu kveða á um að banki eins ríkis geti stofnað útibú í öðru ríki, en lúti eingöngu eftirliti heimafyrir. Wall Street Journal segir að þessi „gloppa í kerfinu“ hafi komist í hámæli þegar bresk stjórnvöld þurftu að bæta eigendum innlána þar í landi tjón sem komið hafði til vegna hruns íslensku bankanna í fyrra. Formaður breska fjármálaeftirlitsins segir að líkt og alþjóðlegu reikningsskilareglurnar MIFID gefi löndum Evrópska efnahagssvæðisins verkfæri til að stýra því hvernig útibú erlendra banka selji fjárfestingarafurðir þá ætti að vera hægt að ná meiri stjórn á annarri fjármálastarfsemi í hverju landi, svo sem söfnun innlána. Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME), segir tillögu formanns breska fjármálaeftirlitsins um að gefa gistiríki víðtækar heimildir þegar eftirliti heimaríkis fjármálastofnunarinnar sé ábótavant kalla á að svarað sé spurningunni um hverjum sé ætlað að meta hæfi eftirlitsstofnana í heimaríkinu. „Þetta er útfærsluatriði sem þarf að skilgreina betur, en auðvitað getur þetta verið vandamál og ekki bundið við Bretland,“ segir Gunnar og bendir á að sú staða gæti komið upp hvar sem er á Evrópska efnahagssvæðinu að erlendur banki vildi hefja störf þar sem vafi kynni að leika á getu fjármálaeftirlits í heimaríki hans. „Breytingarnar þurfa hins vegar að vera innan ramma tilskipunar Evrópusambandsins,“ áréttar hann. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira