Innlent

Hættir sem forstjóri Krabbameinsfélagsins

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Guðrún Agnarsdóttir ætlar að hætta hjá Krabbameinsfélaginu. Mynd/ Golli.
Guðrún Agnarsdóttir ætlar að hætta hjá Krabbameinsfélaginu. Mynd/ Golli.
Guðrún Agnarsdóttir lætur af störfum sem forstjóri Krabbameinsfélags Íslands um áramótin að eigin ósk. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu nýs forstjóra og verður auglýst eftir umsækjendum á næstunni.

Guðrún hefur verið forstjóri Krabbameinsfélagsins frá árinu 1992, eða í 17 ár, en þar á undan átti hún sæti í framkvæmdastjórn Krabbameinsfélagsins í fjögur ár, frá 1988 til 1992.

„Það hafa verið forréttindi að fá að vinna að þessum góða málstað en nú er tímabært að huga að starfslokum," segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins. „Ég á stóran hóp barnabarna og við hjónin erum skógarbændur fyrir norðan og mér finnst mál að sinna því betur og öðrum áhugamálum," segir Guðrún Agnarsdóttir í tilkynningu til fjölmiðla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×