Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hver á Landsvirkjun? Landsvirkjun virðist hafa orðið sömu loftbólu að bráð og önnur fyrirtæki og íslensku bankarnir, segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. 20.10.2009 12:10
Polanski áfram í fangelsi Svissneskur dómstóll synjaði í dag beiðni leikstjórans Romans Polanski um að fá að ganga laus meðan beðið er endanlegs úrskurðar um hvort hann verður framseldur til Bandaríkjanna. 20.10.2009 11:53
Islendingur stjórnar björgunaraðgerðum á Filippseyjum Ólafur Loftsson, einn af stjórnendum Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar og meðlimur í Hjálparsveit skáta Reykjavík, er á leið til Filipseyja þar sem hann mun næstu tvær vikurnar stýra aðgerðum í björgunarstarfi eftir að mikil aurflóð urðu þar. 20.10.2009 11:13
Mikilvægt að verja löggæsluna „Nauðsynlegt er að fara varlega við fyrirhugaðar breytingar á skipan lögreglumála sem nú eru í undirbúningi,“ segir Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. Í grein sem Haraldur ritar í inngang að ársskýrslu embættisins segir hann að mikilvægt sé að stjórnvöld íhugi vel sérhvert skref sem stigið verður í þeim efnum svo að koma megi í veg fyrir að sú mikla uppbyggingarvinna sem átt hafi sér stað á undanförnum árum fari forgörðum. 20.10.2009 10:30
Fleiri konur en karlar á stofnunum fyrir aldraða Alls bjuggu 3.284 á stofnunum með vistrými fyrir aldraða í desember í fyrra, eftir því sem fram kemur í tölum Hagstofunnar. Þar af voru konur rúm 64%. Tæp 10% þeirra sem eru 67 ára og eldri bjuggu í vistrýmum í desember í fyrra. Þetta hlutfall var rúm 11% á landsbyggðinni en rúm 9% á höfuðborgarsvæðinu. Í fyrra bjuggu rúm 24% fólks 80 ára og eldra í vistrýmum aldraðra. Það á við um rúm 20% karla á þessum aldri og tæp 27% kvenna. 20.10.2009 09:26
Segja lærin hvergi flottari en í Norður-Þingeyjarsýslu Konur í Norður-Þingeyjarsýslu segja að hvergi finnist flottari læri en þar. Svo stoltir eru Norður-Þingeyingar af lambakjötinu sínu að þeir neita að selja það ódýrt. 20.10.2009 09:22
Snorri býður sig fram til formennsku í BSRB Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna hefur tilkynnt að hann bjóði sig fram til formanns Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, eða BSRB, á 42. þingi bandalagsins, sem haldið verður á Grand Hótel í Reykjavík, dagana 21. - 23. október næstkomandi. 20.10.2009 08:32
Stefnir Airbus vegna Air France-slyssins Bandarískur lögmaður hefur stefnt Airbus-flugvélaverksmiðjunum og nokkrum fyrirtækjum sem framleiða hluti í Airbus vélar og krafist bóta vegna dauða átta af þeim farþegum sem fórust í Air France-slysinu 1. júní. 20.10.2009 07:16
Grunaður um njósnir fyrir Ísraelsmenn Bandarískur vísindamaður, sem starfaði á vegum stjórnvalda við ýmis leynileg verkefni tengd geimvísindum, hefur verið handtekinn og ákærður fyrir að reyna að selja manni, sem hann taldi vera ísraelskan leyniþjónustumann, leynileg gögn tengd varnarmálum Bandaríkjanna. 20.10.2009 07:14
Lést úr krabbameini sem fannst ekki við átta skoðanir Tuttugu og sex ára gömul kona í Luton á Englandi lést úr leghálskrabbameini í ágúst 2007 eftir að heimilislækni hennar tókst ekki að finna nein einkenni um sjúkdóminn í átta skoðunum sem hann framkvæmdi á konunni á fjögurra ára tímabili. 20.10.2009 07:12
Íranar hætta við að afhenda auðgað úran Íranar hafa horfið frá samkomulagi frá 1. október um að afhenda Frökkum og Rússum þrjá fjórðu hluta þess úrans sem þeir hafa auðgað síðustu mánuði í neðanjarðarmannvirki í Natanz. 20.10.2009 07:10
Drengur játar íkveikju á Skólavörðustíg 13 ára piltur hefur viðurkennt hjá lögreglu að vera valdur að íkveikju í húsi við Skólavörðustíg í Reykjavík á sunnudag. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag og í blaðinu segir jafnframt að drengurinn hafi játað að hafa átt þátt í íkveikju í húsi við Hverfisgötu um miðjan september. 20.10.2009 06:50
Tilkynnt um tvö innbrot Tilkynnt var um tvö innbrot í nótt á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn lögreglu var brotist inn í lyfjaverslun í Garðabæ en ekki er ljóst hverju nákvæmlega vari stolið. Þjófarnir komust undan og er þeirra nú leitað. Þá var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki í Austurborginni nú í morgunsárið og er lögregla enn á vettvangi. 20.10.2009 06:44
Skuldum vafin þjóð eykur á skuldir sínar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fann samstarfi stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) flest til foráttu í umræðum um samstarfið utan dagskrár á Alþingi í gær. 20.10.2009 06:00
Stím-málið ekki enn borist ákæruvaldinu Mál eignarhaldsfélagsins Stíms hefur hvorki borist efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra né sérstökum saksóknara til ákærumeðferðar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 20.10.2009 06:00
Bíða niðurstöðu í dómsmálum Exista tapaði 1,6 milljörðum evra, eða 602 milljörðum króna, eftir skatta á árinu 2008. Félagið birti í gærmorgun uppgjör vegna ársins. Tapið er það mesta sem íslenskt fyrirtæki hefur kynnt. 20.10.2009 06:00
Ríkið veiti milljarði til Helguvíkurhafnar Forsvarsmenn Reykjanesbæjar kalla eftir svörum um hvort ríkið ætlar að taka þátt í kostnaði við uppbyggingu Helguvíkurhafnar. Sveitarfélagið ætlar að fullgera höfnina óháð aðkomu ríkisins en milljarðalántöku þarf hins vegar til. Slík lántaka gæti reynst þrautin þyngri. Helguvíkurhöfn er ekki á samgönguáætlun og ekkert fjármagn því eyrnamerkt hafnargerðinni. 20.10.2009 06:00
Segir aðra þingmenn hræsnara John O"Donoghue sagði af sér sem forseti írska þingsins í síðustu viku, eftir að upp komst að hann hafði eytt almannafé ótæpilega í eigin lúxuslifnað. 20.10.2009 06:00
Ráðherra vill banna starfsemi Vítisengla Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segir stjórnvöld verða að bregðast við vaxandi hörku í afbrotum hér á landi. Sérstaklega verði að bregðast við hættunni sem fylgir því þegar erlend glæpasamtök reyna að hasla sér völl í gegnum samtök eða félög hérlendis. 20.10.2009 06:00
Njóta mikils trausts landsmanna Mikill meirihluti landsmanna ber traust til Landhelgisgæslunnar, samkvæmt nýrri könnun Markaðs- og miðlarannsókna ehf. Um 77,6 prósent segjast bera mikið traust til Gæslunnar. Einungis fimm prósent svarenda segjast bera lítið traust til Landhelgisgæslunnar. 20.10.2009 05:00
Margar fyrirspurnir í skoðun „Samkeppnishæfni Íslands hefur aldrei verið meiri og fyrirspurnum frá erlendum fjárfestum fjölgað," segir Þórður H. Hilmarsson, framkvæmdastjóri Fjárfestingarstofu Íslands. 20.10.2009 04:00
Hirti nokkrar þvottavélar og þurrkara „Ég hirti nokkrar þvottavélar og þurrkara handa heimilisfólkinu mínu og gaf nokkrum íþróttafélögum nokkur eintök,“ segir Tómas J. Knútsson, sem tók að sér að farga um 300 heimilistækjum af varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. 20.10.2009 03:00
Leggja í stæði fyrir fatlaða Mikið er um stöðubrot í Reykjavík en um helgina hafði lögreglan afskipti af um eitt hundrað ökutækjum vegna þessa samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 19.10.2009 19:29
Katrín til Húsavíkur með nýtt plagg Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra er væntanleg til Húsavíkur á fimmtudag að undirrita nýja viljayfirlýsingu um nýtingu orkunnar í Þingeyjarsýslum. Sveitarstjóri Norðurþings vonast til að samningar við Alcoa um álver á Bakka verði frágengnir innan árs og stóriðjuframkvæmdir fari upp úr því á fullt. 19.10.2009 19:01
Ekki krafist gæsluvarðhalds yfir sjötta manninum Ekki verður krafist gæsluvarðhalds yfir manni sem handtekinn var í gær vegna rannsóknar málsins samkvæmt lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Maðurinn var yfirheyrður í dag og látinn laus í kjölfarið. 19.10.2009 17:23
Mál e-töflusmyglara til ríkissaksóknara Héraðsdómur Reykjaness hefur framlengt gæsluvarðhaldsúrskurð yfir tveimur pólskum karlmönnum sem voru handteknir um miðjan síðasta mánuð með tæplega 6000 e-töflur. Mál þeirra er komið til ríkissaksóknara sem tekur ákvörðun um það hvort að gefin verði út ákæra. 19.10.2009 16:48
Árni mælti fyrir frumvarpi um skuldavanda heimilanna Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra mælti, nú um klukkan hálffimm í dag, fyrir frumvarpi um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins. 19.10.2009 16:34
Talaði um hæð Tryggva Þórs „Þú skalt segja mér það. Þú ert nú hár í loftinu,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, umræðum á Alþingi í dag þegar Tryggva Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kallaði: „Þið eigið ekki að lyppast niður.“ Birgir Ármannsson, flokksbróður Tryggva, gagnrýndi þessi orð Steingríms og sagði þau til skammar. 19.10.2009 16:26
Reyndi að eyða fóstri kærustunnar Breskur læknir hefur verið sakfelldur fyrir að byrla kærustu sinni lyf til þess að eyða fóstri þeirra sem hún gekk með. Edward Erin er 44 ára gamall kvæntur og tveggja barna faðir. 19.10.2009 16:06
Vill auka umræðu um fósturlát Auður Helgadóttir missti fóstur eftir 19 vikna meðgöngu í ágúst síðastliðnum. Hún segist hafa gengið í gegnum mikla sorg síðan og að daglegar athafnir eins og að fara í kjörbúð hafi reynst henni erfiðar í framhaldinu. 19.10.2009 15:45
Hagræðing ástæða fyrir starfslokum Sigurðar „Þetta er bara hluti af breytingum á stöðinni. Við erum að velta öllum steinum hjá okkur og það hefur staðið til að skoða fyrirkomulagið á veðurmálunum eins og fleiru," segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, um brotthvarf Sigurðar Ragnarssonar veðurfréttamanns á 365. 19.10.2009 15:24
Bjarni: Alþingi getur ekki takmarkað ríkisábyrgðina Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir niðurstöðuna í Icesave málinu sem liggur fyrir vera í grundvallaratriðum að Alþingi gefur frá frá sér réttinn til að takmarka ríkisábyrgð vegna samkomulagsins síðar. Bjarni spurði Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, út í málið á þingfundi í dag. „Hvað réttlætir þessa kúvendingu frá því í sumar?“ spurði Bjarni. 19.10.2009 15:24
Í yfirlið þegar konan bar vitni Fjörutíu og níu ára gamall tyrkneskur maður hné í ómegin í réttarsal í Lundúnum í dag þegar eiginkona hans vitnaði gegn honum vegna morðsins á dóttur þeirra. 19.10.2009 15:19
Íslensk stúlka lést af völdum svínaflensu Átján ára fjölfötluð stúlka lést í morgun á Barnaspítala Hringsins af völdu inflúensunnar A(H1N1), eftir því sem fram kom á fundi landlæknis nú fyrir stundu 19.10.2009 15:02
Lamdi kynsystur sína eftir skólaball Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag 19 ára stúlku fyrir líkamsárás fyrir utan 800 Bar á Selfossi í október á síðasta ári. Þá rún reif í hár kynsystur sinnar sem var að koma af skólaballi með þeim afleiðingum að hún féll í götuna. Hin dæmda lét ekki staðar numið þar heldur sparkaði í þá síðarnefnd þar sem hún lá í götunni, með þeim afleiðingum að stúlkan hruflaðist á báðum fótum við hné og á framanverðum fótleggjum og skarst á hægri fæti fyrir neðan hnéskel þannig að sauma þurfti 10 spor. 19.10.2009 14:44
Kisi bjargaði málinu Ólöglegur innflytjendandi frá Bólivíu slapp við að vera vísað frá Bretlandi þegar hann sagði dómnefndinni sem fjallaði um mál hans að hann og bresk kærasta hans hefðu sameiginlega keypt sér kött. 19.10.2009 14:32
Segir Icesave fyrirvarana niðurtætta „Mér sýnist að það sé búið að tæta dálítið niður einstaka af þeim fyrirvörum sem Alþingi setti fyrir samkomulaginu nú í sumar," segir Ragnar Hall hæstaréttarlögmaður um Icesave samkomulagið sem skrifað var undir í hádeginu. Hann segir þó samkomulagið þó vera í skárri búningi en það hafi verið í upphafi. „En ekki finnst mér það nú gott," segir Ragnar. 19.10.2009 14:28
Obama hótar ríkisstjórn Súdans Barack Obama kynnti í dag nýja stefnu Bandaríkjanna gagnvart Súdan, þar sem ríkisstjórnin hefur herjað af miklu miskunnarleysi á íbúa í Darfur héraði. 19.10.2009 14:02
Búið að undirrita Icesave samkomulagið Icesave samkomulagið var undirritað með fyrirvörum í fjármálaráðuneytinu fyrir stundu. Undirritunin markar kaflaskil í einhverri mestu milliríkjadeilu sem Íslendingar hafi staðið í frá lýðveldisstofnun. Viðstaddir undirritunina voru fulltrúar íslenskra, breskra og hollenskra stjórnvalda. 19.10.2009 13:23
Landhelgisgæslan nýtur mikils trausts. Mikill meirihluti landsmanna ber traust til Landhelgisgæslunnar ef marka má nýja könnun MMR. Um 77,6%, segjast bera mikið traust til Gæslunnar. Einungis 5% svarenda segjast bera lítið traust til Landhelgisgæslunnar - sem þýðir með öðrum orðum að 15,5 sinnum fleiri segjast bera mikið traust til Gæslunnar en segjast bera lítið traust til hennar. 19.10.2009 12:44
Icesave fyrirvarar ná ekki til vaxta Efnhagsfyrirvarar Íslands í Icesave samkomulaginu ná ekki til greiðslu vaxta sem eru um fjórðungur af árlegum afborgunum. Greiðslur vegna Icesave munu nema um 55 milljörðum króna á ári. Samningurinn mun draga úr lífsgæðum hér á landi segir fulltrúi Sjálfstæðisflokks í Fjárlaganefnd. 19.10.2009 12:10
24 liggja inni vegna svínaflensu Útbreiðsla svonefndrar svínaflensu er hröð og bárust um 1000 tilkynningar um inflúensulík einkenni í síðustu viku, sem er tvöföldun frá því vikunni á undan. Langflestir ná sér með því að vera rúmliggjandi og fara eftir ráðleggingum lækna, en þó voru 24 inniliggjandi á Landspítalanum í gær, þar af fjórir á gjörgæslu. Sá sem lengst hefur legið á gjörgæslu hefur verið þar í um tvær vikur. 19.10.2009 12:01
Hagfræðingur: Greiðsluþrot verður vart umflúið Greiðsluþrot þjóðarbúsins verður vart umflúið og aðgerðaráætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þarfnast róttækrar endurskoðunar. Þetta kemur fram í bréfi sem Gunnar Tómasson, hagfræðingur, sendi alþingismönnum í gærkvöldi. 19.10.2009 12:00
Sjötti maðurinn handtekinn - stúlkan aðeins 19 ára Sjötti maðurinn, sem talinn er tengjast meintu mansalsmáli á Suðurnesjum, verður yfirheyrður í dag. Litháíska stúlkan sem kom hingað til lands, hugsanlega til að stunda vændi, er nítján ára. Maðurinn, sem einnig er Lithái og búsettur hérlendis, var handtekinn í gærkvöldi. Hann er nú í haldi lögreglu og verður yfirheyrður síðdegis. Í framhaldinu verður tekin ákvörðun um hvort óskað verði eftir gæsluvarðhaldsúrskurði yfir honum. 19.10.2009 11:53
Franklin Steiner ákærður fyrir fíkniefnabrot Hafnfirðingurinn Franklin Stiner hefur verið ákærður fyrir vörslu fíkniefna fyrir ári síðan. Samkvæmt ákæru hafði Franklin rúm 150 grömm af amfetamíni, 33 grömm af kókaini, 23 alsælutöflur og 1 grömm af hassi á sér þegar lögregla gerði leit þann 23. október í fyrra. 19.10.2009 11:30