Erlent

Íranar hætta við að afhenda auðgað úran

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Loftmynd sem sýnir mannvirki þar sem Íranar stunda auðgun úrans.
Loftmynd sem sýnir mannvirki þar sem Íranar stunda auðgun úrans.

Íranar hafa horfið frá samkomulagi frá 1. október um að afhenda Frökkum og Rússum þrjá fjórðu hluta þess úrans sem þeir hafa auðgað síðustu mánuði í neðanjarðarmannvirki í Natanz. Ætlunin var að Frakkar og Rússar breyttu úraninu í eldsneyti sem Íranar hefðu svo notað í friðsamlegum tilgangi í kjarnorkuveri í Teheran. Þessi stefnubreyting kom fram á fundi íranskra ráðamanna með fulltrúum Bandaríkjanna, Frakklands og Rússlands í Vín í gær og mun ekki hafa komið á óvart þar sem Íranar eru þekktir að því að hverfa frá eða breyta samkomulagi sem þeir hafa komist að.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×