Erlent

Polanski áfram í fangelsi

Óli Tynes skrifar
Roman Polanski.
Roman Polanski.

Svissneskur dómstóll synjaði í dag beiðni leikstjórans Romans Polanski um að fá að ganga laus meðan beðið er endanlegs úrskurðar um hvort hann verður framseldur til Bandaríkjanna.

Í rökstuðningi dómstólsins segir að samkvæmt svissneskum lögum sé það reglan að menn séu geymdir í fangelsi þartil framsalsmál séu til lykta leidd.

Auk þess er talin mikin hætta á að Polanski reyndi að flýja eins og hann gerði árið 1977 þegar hann beið dóms í Bandaríkjunum fyrir að nauðga þrettán ára telpu.

Polanski var handtekinn samkvæmt alþjóðlegri handtökuskipun sem gefin var út í Bandaríkjunum. Bandaríkin hafa frest til loka nóvember mánaðar til að senda formlega framsalsbeiðni.

Bandarískir lögspekingar segja að framsalsmál séu flókin og að málareksturinn gegn hinum sjötíu og sex ára gamla barnaníðingi geti tekið mörg ár ef hann berst gegn því að vera framseldur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×