Innlent

Islendingur stjórnar björgunaraðgerðum á Filippseyjum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Loftsson stjórnar aðgerðum á Fillippseyjum.
Ólafur Loftsson stjórnar aðgerðum á Fillippseyjum.
Ólafur Loftsson, einn af stjórnendum Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar og meðlimur í Hjálparsveit skáta Reykjavík, er á leið til Filipseyja þar sem hann mun næstu tvær vikurnar stýra aðgerðum í björgunarstarfi eftir að mikil aurskriður urðu þar.

Flóðin urðu eftir að fellibylur gekk yfir landið fyrir tíu dögum. Ólafur verður hluti af sjö manna teymi sérfræðinga á vegum UNDAG, sem starfar undir hatti Sameinuðu þjóðanna og aðstoðar við samhæfingu viðbragða alþjóðasamfélagsins eftir náttúruhamfarir. Slysavarnafélagið Landsbjörg á fjóra af um 200 sérfræðingum í UNDAG.

Í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu kemur fram að teymið, sem Ólafur er hluti af, muni leysa af hólmi þá stjórnendur sem verið hafa að störfum á svæðinu frá því hamfarirnar urðu og er gert ráð fyrir að hann verði við störf til 4. nóvember.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×