Innlent

Árni mælti fyrir frumvarpi um skuldavanda heimilanna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árni Páll Árnason mælti fyrir frumvarpinu á þingi.
Árni Páll Árnason mælti fyrir frumvarpinu á þingi.
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra mælti, nú um klukkan hálffimm í dag, fyrir frumvarpi um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins.

Frumvarpinu er meðal annars ætlað að takast á við skuldavanda heimilanna vegna gengshruns krónunnar og verðbólgu. Í athugasemdum með frumvarpinu segir að stór hluti af íbúðalánum heimila, eða um 30%, hafi verið gengistryggð fyrir bankahrunið. Fall krónunnar hafi því í mörgum tilvikum leitt til skuldsetningar umfram verðmæti trygginga. Aukin verðbólga í kjölfar falls krónunnar hefur einnig þyngt skuldabyrði þeirra heimila sem skulda verðtryggð íbúðalán.

Þá hafi verð íbúðarhúsnæðis lækkað um 10-15% að nafnvirði á undanförnum missirum. Kaupmáttur hafi lækkað um 10-15% að jafnaði í kjölfar hrunsins og atvinnuleysi hafi aukist í 8-9%. Búist sé við að kaupmáttur muni halda áfram að minnka og gæti hann í heild minnkað um rösk 20% á samdráttarskeiðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×