Innlent

Stím-málið ekki enn borist ákæruvaldinu

Glitnir Grunur leikur á að Glitnir og móðurfélagið FL Group hafi lánað Stími, sem var að stórum hluta í eigu Glitnis, til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group gegn veðum í bréfunum. Þannig hafi átt að hífa upp verðið á bréfunum.
fréttablaðið/heiða
Glitnir Grunur leikur á að Glitnir og móðurfélagið FL Group hafi lánað Stími, sem var að stórum hluta í eigu Glitnis, til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group gegn veðum í bréfunum. Þannig hafi átt að hífa upp verðið á bréfunum. fréttablaðið/heiða

Mál eignarhaldsfélagsins Stíms hefur hvorki borist efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra né sérstökum saksóknara til ákærumeðferðar, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Í júní, fyrir hálfum fimmta mánuði, greindi Morgunblaðið frá því að FME myndi „á næstunni“ senda málið til ákæruvalds.

Stím-málið var eitt fyrsta málið sem tengt er meintum óeðlilegum viðskiptum sem rataði í fjölmiðla eftir hrunið fyrir ári. Stím hét áður FS37 og var stofnað af Fons, eignarhaldsfélagi Pálma Haraldssonar.

Gamli Glitnir, sem var að stórum hluta í eigu eins helsta viðskiptafélaga Pálma, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, tók félagið yfir og skírði það Stím. Félaginu var ætlað að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group fyrir tæpa 24,8 milljarða króna. Helstu viðskiptavinum Glitnis var síðan boðið að kaupa í Stími, en Glitnir var eftir sem áður stærsti eigandinn með 32,5 prósenta hlut.

Glitnir og FL Group lánuðu svo Stími fyrir 90 prósentum af hlutabréfakaupunum með veðum í bréfunum sjálfum.

Fjármálaeftirlitið tók viðskiptin fyrst til skoðunar haustið 2007 án þess að grípa til aðgerða og síðan aftur þegar málið komst í hámæli í fyrra. Þá kom ýmislegt nýtt í ljós og hefur síðan verið í rannsókn hvort um sýndarviðskipti og markaðsmisnotkun var að ræða, til þess ætluð að hífa upp verð á hlutabréfum í Glitni og FL Group.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur málið reynst öllu flóknara en búist var við og rannsókn FME því sóst mun hægar en menn áttu von á í sumar. Heimildir herma að líklega muni málið að endingu lenda hjá sérstökum saksóknara.

Stjórnarformaður Stíms, útgerðarmaðurinn Jakob Valgeir Flosason úr Bolungarvík, var skráður fyrir félaginu. Hann átti jafnframt tíu prósent í félaginu. Jakob Valgeir sagðist í fjölmiðlum á sínum tíma fullviss um að athugun FME á Stími myndi ekki leiða neitt óeðlilegt í ljós.

stigur@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×