Erlent

Reyndi að eyða fóstri kærustunnar

Óli Tynes skrifar

Breskur læknir hefur verið sakfelldur fyrir að byrla kærustu sinni lyf til þess að eyða fóstri þeirra sem hún gekk með. Edward Erin er 44 ára gamall kvæntur og tveggja barna faðir.

Hann átti í stuttu ástarsambandi við Bellu Prowse sem er 33 ára gömul. Þegar hún varð ófrísk neitaði hún að láta eyða fóstrinu.

Erin var sakfelldur fyrir að hafa tvisvar gefið henni drykki með lyfjablöndu til þess að framkalla fóstureyðingu.

Eitthvað grunaði Prowse hann um græsku því hún fór með báða drykkina til lögreglunnar. Í framhaldi af því var hann handtekinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×