Innlent

Landhelgisgæslan nýtur mikils trausts.

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Landhelgisgæslan nýtur mikils trausts. Mynd/ Valgarður.
Landhelgisgæslan nýtur mikils trausts. Mynd/ Valgarður.
Mikill meirihluti landsmanna ber traust til Landhelgisgæslunnar ef marka má nýja könnun MMR. Um 77,6%, segjast bera mikið traust til Gæslunnar. Einungis 5% svarenda segjast bera lítið traust til Landhelgisgæslunnar - sem þýðir með öðrum orðum að 15,5 sinnum fleiri segjast bera mikið traust til Gæslunnar en segjast bera lítið traust til hennar.

Embætti Ríkislögreglustjóra nýtur mikils trausts meðal 47,1% svarenda, samanborið við 19,6% sem segjast bera lítið traust til embættisins. Fangelsismálastofnun nýtur mikils trausts meðal 42,1% svarenda, samanborið við 16% sem segjast bera lítið traust til stofnunarinnar.

Útlendingastofnun sker sig úr að því leitinu til að 28,0% segjast bera lítið traust til hennar, sem eru mun fleiri en segjast bera mikið traust til hennar, en þeir eru 23,3%. Útlendingastofnun er jafnframt sú af ofangreindum stofnunum sem fæstir segjast bera mikið traust til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×