Innlent

Drengur játar íkveikju á Skólavörðustíg

13 ára piltur hefur viðurkennt hjá lögreglu að vera valdur að íkveikju í húsi við Skólavörðustíg í Reykjavík á sunnudag. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag og í blaðinu segir jafnframt að drengurinn hafi játað að hafa átt þátt í íkveikju í húsi við Hverfisgötu um miðjan september.

Lögreglan handtók þrjá 13 ára drengi í kjölfar brunans í auðu timburhúsi við Skólavörðustíg og voru þeir yfirheyrðir á sunnudag og í gær. Málið verður nú sent barnaverndaryfirvöldum til úrlausnar að því er fram kemur í blaðinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×