Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja taka barnaníðinga af lífi Þeirri hugmynd að taka barnaníðinga af lífi jafnvel þótt þeir myrði ekki fórnarlömb sín vex fylgi í Bandaríkjunum. Hæstiréttur í Lousianaríki staðfesti í síðustu viku slíkan dauðadóm. Fimm ríki Bandaríkjanna hafa þegar sett lög sem geta leitt til dauðadóms yfir mönnum 30.5.2007 15:34
Slökkvistarfi lokið í Víðidal Slökkviliðið hefur lokið við að slökkva sinuelda sem kviknuðu í Víðidal fyrr í dag. Það var lögregla sem tilkynnti slökkviliði um eldinn en hann logaði rétt ofan við vatnsveitubrúna, neðan við hesthúsahverfið í dalnum. 30.5.2007 15:33
Lúðvík nýr þingflokksformaður Samfylkingarinnar Lúðvík Bergvinsson var kjörinn formaður þingflokks Samfylkingarinnar á fundi í hádeginu í dag. Hann tekur við af Össuri Skarphéðinssyni sem nú er orðinn iðnaðarráðherra. 30.5.2007 14:49
Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimm ára stúlku Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir mjög alvarlegt kynferðisbrot gegn fimm ára stúlku á leiksvæði við íbúðarhús í Vogahverfi. Þá var hann dæmdur til að greiða stúlkunni 800 þúsund krónur í miskabætur. 30.5.2007 14:41
Bann gegn einkarekinni fjárhættustarfsemi mögulega ólögleg Vafasamt er að meina einkaaðilum að bjóða upp á happdrætti og fjárhættuspil á meðan slíkur rekstur er leyfður án hindrana í góðgerðarskyni. Þetta kemur fram í dómi EFTA dómstólsins varðandi norska löggjöf um happdrætti, veðmál og fjárhættuspil. Dómurinn gerir þá kröfu að löggjöf sem byggir á markaðshindrunum í þessum efnum endurspegli raunverulegan vilja til að fækka tækifærum til spilamennsku. 30.5.2007 14:41
Sinueldar á bökkum Elliðaánna -varpsvæði í hættu Slökkviliðið berst nú við sinuelda í Víðidal. Eldarnir loga rétt ofan við vatnsveitubrúna, neðan við hesthúsahverfið. Reyk leggur yfir íbúðarhús í Seláshverfi. Talið er nokkuð víst þarna hafi verið kveikt í. Það getur verið hættulegur leikur svona nálægt mannabyggð. Þarna er til dæmis leiksvæði barna. 30.5.2007 14:34
Vegabréf Eichmanns fundið Falsað vegabréf sem nazistaforinginn Adolf Eichmann notaði til þess að flýja til Argentínu hefur fundist í Buenos Aires. Eichmann hafði yfirumsjón með helförinni gegn Gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni. Hann lagði meðal annars til breytingar á gasklefunum til þess að þar væri hægt að myrða fleira fólk á skemmri tíma. 30.5.2007 14:05
Vanskil aukast hjá fyrirtækjum Vanskil fyrirtækja hafa aukist um tæplegan helming á síðastliðnum tveimur árum samkvæmt samantekt Fjármálaeftirlitsins. Vanskil fyrirtækja jukust um 0,2 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Á sama tíma lækka vanskil einstaklinga á milli ára. Aukning í vanskilum fyrirtækja tengist fyrst og fremst yfirdráttarlánum. 30.5.2007 13:58
Ávextir síðustu Ástarviku líta dagsins ljós Bolvíkingar geta glaðst þessa dagana því ávextir síðustu Ástarviku, tvö börn, litu dagsins ljós í mánuðinum. Markmið ástarvikunnar er meðal annars að fjölga íbúum í sveitarfélaginu og er óhætt að segja að heimturnar í ár hafi verið betri en í fyrra en þá kom ekkert barn í heiminn. 30.5.2007 13:44
Kambur selur Halla Eggerts Kambur á Flateyri hefur handsalað sölu á tveimur af bátum sínum til fyrirtækja á norðanverðurm Vestjföðrum. Eftir því sem fram kemur á vef Bæjarins besta á Ísafirði er um að ræða bátana Halla Eggerts ÍS og Kristján ÍS. 30.5.2007 13:21
Lítið borið á geitungum í vor Minna hefur borið á geitungum í vor miðað sama tímabil í fyrra og lítið um útköll vegna geitungabúa að sögn meindýraeyða. Þeir segja kuldakastið í byrjun maímánaðar hugsanlega haft áhrif á geitungastofninn hér á landi en alls ekki útilokað að hann muni taka við sér seinna í sumar. 30.5.2007 13:19
Segir vinnubrögð við neðri hluta Þjórsár hefðbundin Landsvirkjun segir það eðileg vinnubrögð að semja við landeigendur við neðri hluta Þjórsár samhliða því að að hanna virkjanir á staðnum. Þessi vinnubrögð séu í samræmi við starfshætti fyrirtækisins á öðrum virkjanasvæðum í gegnum tíðina. 30.5.2007 13:15
Pyntingahandbók al-Kæda Hryðjuverkasamtökin al-Kæda nota meðal annars logsuðutæki, straujárn, rafmagnsbora og kjötkróka við að pynta fanga sína. Bandarískir hermenn fundu fyrir nokkru handbók al-Kæda um pyntingar. Handbókin er með teiknuðum skýringarmyndum. Bókin fannst þegar hermennirnir réðust inn í hús í Bagdad til þess að frelsa fimm Íraka sem þar voru í haldi. Þeir höfðu allir verið pyntaðir. 30.5.2007 13:06
Chavez hótar að loka annarri sjónvarpsstöð Hugo Chavez, forseti Venesúela, hótaði í gær að loka annarri sjónvarpsstöð í landinu sem hefur gagnrýnt stjórn hans. Í síðustu viku fékk stór sjónvarpsstöð í höfuðborginni Caracas leyfi sitt ekki endurnýjað þar sem Chavez sagði stjórnendur hennar hafa á sínum tíma tekið þátt í valdaránstilraun gegn sér. 30.5.2007 13:00
Útgerðir vilja ekki styðja sjómannadaginn á Akureyri Engin opinber hátíðarhöld verða á sjómannadaginn á Akureyri þar sem útgerðirnar í bænum vilja ekki lengur leggja neitt af mörkum til að svo megi verða. 30.5.2007 12:45
Telur Mahdi-sveitir hafa rænt Bretum í Bagdad Enn hefur ekkert spurst til fimm Breta sem rænt var í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Hoshyar Zebari, utanríkisráðherra landsins, sagði í morgun líklegra að liðsmenn Mahdi-herdeildanna, sem tengjast sjíaklerknum Muqtada al-Sadr, hefðu staðið á bak við ránið. 30.5.2007 12:30
Samfylkingin skipar í nefndir og velur þingflokksformann Þingflokkur Samfylkingarinnar hittist nú rétt fyrir hádegi til að undirbúa sumarþingið sem hefst á morgun. Þar er verið að skipa í nefndir og ráð velja þingflokksformann. 30.5.2007 12:27
Blair styður hertar refsiaðgerðir gegn Súdan Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lýsti í morgun yfir fullum stuðningi við hertum refsiaðgerðum Bandaríkjastjórnar gegn súdönsku ríkisstjórninni vegna ástandsins í Darfur-héraði. 30.5.2007 12:15
Áfengisauglýsingar sífellt fyrirferðarmeiri á netsíðum unglinga Áfengisauglýsingar á netinu verða sífellt fyrirferðameiri á netsíðum unglinga. Þær geta skekkt mynd þeirra af því hvað telst hófleg áfengisneysla. Auk þess eru auglýsingarnar oftast kyngerðar og byggja upp kvenfjandsamlega ímynd. Þetta kom fram á morgunverðarfundi í Neskirkju um netið og siðferði. 30.5.2007 12:08
Slysahætta mest á Reykjanesbraut Flest umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu á fyrstu fjórum mánuðum þess árs urðu á Reykjanesbraut eða alls 105 samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Fjölgaði þeim um 13 miðað við sama tímabil í fyrra. Auk Reykjanesbrautar skipa Miklabraut, Bústaðavegur, Hringbraut og Vesturlandsvegur hóp þeirra gatna þar sem umferðaróhöpp eru tíðust. 30.5.2007 12:08
Funduðu um byggingu álvers Alcan í Þorlákshöfn Fulltrúar Alcan í Straumsvík áttu fund með sveitarstjónarmönnum í Þorlákshöfn í gær til að kanna möguleikann á því að reisa nýtt 280 þúsund tonna álver þar. Viðmót Þorlákshafnarbúa gagnvart álveri er allt annað en Hafnfirðinga - segir talsmaður Alcan. 30.5.2007 12:00
Dæmdur fyrir líkamsárás og ölvunarakstur Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, þar af tvo skilorðsbundna, í Héraðsdómir Reykjavíkur í dag fyrir líkamsárás og ölvunarakstur. Hann var jafnramt dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu rúmlega 150 þúsund krónur í skaðabætur og enn fremur var hann sviptur ökurétti ævilagt. 30.5.2007 11:37
Setja 400 milljónir í endurbætur á götum og gangstéttum Áætlað er að endurbætur á götum og gangstéttum á Seltjarnarnesi muni kosta um 400 milljónir króna. Framkvæmdunum er skipt upp í fjóra áfanga sem kláraðir verða á næstu fjórum árum. Búið er að bjóða fyrsta áfangann út en hann nær til endurnýjunar á gangstéttum á Sæbraut, Sólbraut, Selbraut og Skerjabraut. 30.5.2007 11:23
Ákæra ellefu stríðsmenn fyrir hryðjuverk í Nahr el-Bared Líbönsk stjórnvöld gáfu í dag út ákæru á hendur ellefu félögum í samtökunum Fatah al-Islam fyrir hryðjuverkastarfsemi en samtökin hafa tekist á við líbanska herinn í palestínsku flóttamannabúðunum Nahr al-Bared í Trípóli. Átök héldu áfram í búðunum í nótt. 30.5.2007 11:15
Yoko Ono hámaði í sig hund Yoko Ono hámaði í gær í sig hund, ásamt þekktum breskum listamanni. Þetta fór fram í beinni útsendingu á útvarpsþætti. Og það var enginn venjulegur hundur sem þau átu heldur eðalhundur af Corgi kyni, en það er uppáhalds hundakyn Elísabetar drottningar. Yoko Ono og Mark McGowan voru að mótmæla því að Filipus prins eiginmaður drottningarinnar skaut ref fyrr á þessu ári. 30.5.2007 10:58
Demókrataflokkur Taílands sýknaður af ákæru um kosningasvik Stjórnarskrárdómstóll í Taílandi sýknaði í morgun Demókrataflokk landsins af ákæru um að hafa haft rangt við í kosningum í apríl 2006. Hefði dómstóllinn sakfellt flokkinn hefði hann hugsanlega verið útilokaður frá stjórnmálum og sömuleiðis fjöldi flokksmanna. 30.5.2007 10:45
Alþingi kemur saman á morgun Alþingi kemur saman á morgun í fyrsta skipti eftir kosningar. Að venju hefst þingsetning með guðþjónustu í Dómkirkjunni klukkan 13.30 en að henni lokinni ganga alþingismenn fylktu liði ásamt forseta Íslands, biskupi og ráðherrum til þinghússins. Þar mun forseti svo setja 134. löggjafarþing Íslendinga. 30.5.2007 10:35
Íslensku menntaverðlaunin veitt í þriðja sinn Íslensku menntaverðlaunin verða afhent í kvöld í þriðja sinn. Það er forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem það gerir við hátíðlega afhöfn í Ingunnarskóla. 30.5.2007 10:19
Peres tilkynnir formlega um framboð sitt Shimon Peres, varaforsætisráðherra Ísraels, tilkynnti í morgun formlega að hann hygðist bjóða sig fram til forseta landsins. Það er Knesset, ísraelska þingið, sem velur nýjan forseta í stað Moshes Katsavs þann 13. júní næstkomandi. 30.5.2007 10:12
Stúdentar vilja skýr svör frá ríkisstjórninni Ríkisstjórnin þarf að svara því hvort hún hyggist taka upp skólagjöld við opinbera háskóla á kjörtímabilinu að mati stjórnar Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Stúdentaráði. Ráðið gagnrýni að ekki sé tekin afstaða gegn skólagjöldum í opinberum háskólum í stjórnarsáttmálanum og ekki sé minnst einu orði á jafnrétti til náms. 30.5.2007 10:04
Tveggja ára hætt komin í sundlaug Tveggja ára stúlkubarn var hætt komið í sundlaug Íþróttamiðstöðvarinnar að Lágafelli í Mosfellsbæ, í gærkvöldi. Stúlkan var þar ásamt móður sinni og eldri systur. Hún var að leika sér í vatnsrennibraut laugarinnar og kom ekki úr kafi eftir eina ferðina. 30.5.2007 10:00
Barist gegn ofbeldi og fíkniefnum í Reykjanesbæ Yfirvöld í Reykjanesbæ og forsvarsmenn skemmtistaða í bænum skrifuðu í dag undir samning um nýjar leiðir í vörnum gegn ofbeldi of fíkniefnanotkun í bæjarfélaginu. Frá þessu er greint á heimasíðu Víkurfrétta. Meðal fyrirhugaðra aðgerða er styttri opnunartími og beint samband á milli dyravarða og lögreglu. 29.5.2007 23:46
Bandarískur íslamisti hótar árásum sem skyggja myndu á 11. september Bandaríkin mega búast við árásum mannskæðari en þeim sem áttu sér stað 11. september 2001 verði ekki gengið að kröfum al Qaeda. Þetta segir bandarískur íslamisti í myndbandi sem sett var á Netið í dag. 29.5.2007 23:22
Foreldrar Madeleine fá áheyrn Páfa á morgun Foreldrar Madeleine McCann sem rænt var í Portúgal í byrjun mánaðarins héldu í dag til Rómar en þau munu hitta Benedikt Páfa á morgun. Þau Gerry og Kate McCann flugu frá Faro í Portúgal í einkaþotu sem enski milljónamæringurinn Sir Philip Green lánaði þeim. 29.5.2007 22:42
Zoellick verður næsti forseti Alþjóðabankans George Bush, forseti Bandaríkjanna hefur skipað nýjan forseta Alþjóðabankans en núverandi forseti, Paul Wolfowits lætur af embætti í lok júní í skugga hneykslismáls. Robert Zoellick mun taka við að Wolfowitz. 29.5.2007 21:47
Jeppi ók aftan á fólksbíl og valt í kjölfarið Árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi nú fyrir stundu þegar jeppi og fólksbifreið skullu saman. Jeppinn virðist hafa ekið aftan á bílinn og oltið í kjölfarið. Óhappið átti sér stað við aðreinina inn á Kársnesbraut í Kópavogi. Sjúkralið kom óvenju fljótt á vettvang, því sjúkrabíll átti leið hjá rétt eftir að slysið hafði átt sér stað. 29.5.2007 21:38
Nordica verður hlekkur í Hilton keðjunni Icelandair Hotels, dótturfyrirtæki Icelandair Group og Hilton Hotels Corporation hafa gert með sér samning þess efnis að Nordica hótelið í Reykjavík verði hluti af Hilton hótelkeðjunni og heiti framvegis "Hilton Reykjavik Nordica". 29.5.2007 21:22
Impregilo vísar ásökunum á bug Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo sendi í kvöld frá sér ítarlega tilkynningu vegna meintra ásakana sem fyrirtækið segir að bornar hafi verið á það að undanförnu. Impregilo segir um rangfærslur að ræða. 29.5.2007 21:05
Chavez á enn í stríði við sjónvarpsstöðvar Ríkisstjórn Venesúela hefur ásakað þarlenda sjónvarpsstöð um að hvetja til þess að forseti landsins Hugo Chavez verði myrtur. Ásökunin kemur strax í kjölfar þess að stjórnin lét loka annari sjónvarpsstöð í landinu en sú ákvörðun olli uppþotum í höfuðborginni Caracas og víðar. 29.5.2007 20:45
Leitað að fólki sem gæti hafa smitast af illvígum berklum Bandarísk heilbrigðisyfirvöld leita nú logandi ljósi að fóli sem kann að hafa smitast af ólæknandi berklum um borð í tveimur flugvélum fyrr í mánuðinum. Þessi tiltekna tegund berkla er ónæm fyrir hefðbundnum berklalyfjum. Bandarískur ríkisborgari sem var um borð í báðum flugvélunum hefur verið greindur með berkla af þessari tegund og er nú leitað að fleirum sem kunna að hafa smitast. 29.5.2007 20:17
Mikill verðmunur á milli skólamötuneyta Neytendastofa hefur gert verðkönnun í skólamötuneytum um land allt. Í könnuninni kemur margt fróðlegt fram en sérstaklega var kannað hvort skýrir skilmálar væru í gildi í grunnskólum um verðmyndun og verðlagningu. Í ljós kom að algengt er að skilmálar séu óljósir um kostnaðarskiptinguna á milli hráefnis og annars kostnaðar við máltíðirnar. 29.5.2007 19:42
Portúgalski sendiherrann á leið til landsins Sendiherra Portúgals í Noregi hefur boðað komu sína til Íslands til að kanna aðstæður landa sinna á Kárahnjúkum. Fyrrverandi verkamenn þar líkja starfinu við þrælahald. Upplýsingafulltrúi Impregilo býður sendiherrann velkominn á Kárahnjúka. 29.5.2007 19:25
Keppt um nýra í beinni Þátttakendur í hollenskum raunveruleikaþætti munu keppa um nýra úr dauðvona konu næstkomandi föstudag. Stjórnvöld hafa biðlað til sjónvarpsstöðvarinnar um að hætta við sýningu þáttarins, en aðstandendur þáttarins segja umræðuna varpa ljósi á erfiða stöðu líffæraþega. 29.5.2007 19:23
Prjónar og málar - einhent Hún er í sextíu prósent vinnu við að kenna geðfötluðum - án þess að þiggja laun. Hún málar og prjónar - með einni hendi. Catherine Ness er engin venjuleg kona. 29.5.2007 18:48
Stjórnarandstaðan gagnrýnir breytingatillögur ríkisstjórnarinnar Stjórnarandstaðan gagnrýnir hugmyndir ríkisstjórnarinnar um breytingar á nefndarskipan Alþingis til samræmis við breytingar á lögum um stjórnarráð Íslands. Þá telur formaður Framsóknarflokksins ekki skynsamlegt að færa landbúnaðarháskólana frá landbúnaðarráðuneyti yfir til menntamálaráðuneytisins. 29.5.2007 18:46