Impregilo vísar ásökunum á bug 29. maí 2007 21:05
Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo sendi í kvöld frá sér ítarlega tilkynningu vegna meintra ásakana sem fyrirtækið segir að bornar hafi verið á það að undanförnu. Impregilo segir um rangfærslur að ræða. „Undanfarna daga hafa íslenskir fjölmiðlar fjallað um ásakanir fyrrum starfsmanns við Kárahnjúka , er lúta að aðbúnaði verkamanna þar," segir í tilkynningunni. „Umræddur starfsmaður starfaði við gangnagerð á virkjunarsvæðinu fyrr í þessum mánuði - í tæpar tvær vikur." Fyrirtækið segir starfsmanninn fara með rangfærslur, ekki sé rétt að fyrirtækið búi illa að starfsfólki sínu, að aðstæður séu frumstæðar og að þjóðerni starfsmanna skipti máli hvað varðar kaup og kjör. Impregilo segir alrangt að fyrirtækið mismuni fólki með launagreiðslum. „Enginn fær meira eða minna greitt fyrir sömu vinnu - það sama gengur yfir alla. Laun eru byggð á þeim töxtum sem íslensk verkalýðsfélög hafa samið um við aðila vinnumarkaðarins. Forsvarsmenn verkalýðsfélagana og hafa ítrekað staðfest þetta og hafa aðgang að bæði launaútreikningum og launaseðlum starfsmanna Impregilo." Þá segir í tilkynningunni að sögur af 14 tíma löngum vöktum séu í besta falli misvísandi og í versta falli rangar. „Við Kárahnjúka er vinnan skipulögð í tvær til þrjár vaktir á dag, allt eftir því hversu langt í burtu vinnustaðurinn er frá svefnskálum starfsmanna." Þó er þess getið að sökum þess hversu langt sé á vinnusvæðið í sumum tilfellum geti ferðalög til og frá vinnu tekið allt að þrjá tíma. „Þessu til viðbótar má bæta við allt að tveggja tíma langri rútuferð frá svefnskálunum að gangnamunnanum. Ferðalög fyrir einstaka verkamenn geta því orðið allt að fimm klukkustundir á einum vinnudegi. Þetta á þó aðeins við í einstökum tilfellum. Verkamenn þiggja laun á meðan ferðalögunum stendur. Yfirvinna er greidd þegar það á við." Þá er bent á að allir sem starfað hafi við gangnagerð viti að vatnsrennsli í slíkum göngum getur verið umtalsvert. „Í göngunum við Kárahnjúka eru - og hafa verið frá upphafi starfseminnar - öflugar dælur sem draga verulega úr rennsli vatns á vinnusvæðum. Engu að síður er ómögulegt að búa svo um hnútana að alls ekkert vatn renni í göngunum. Á þeim örfáu stöðum þar sem vatn er allt að hnédjúpt vinna starfsmenn í vöðlum og eru klæddir í ullarnærföt." Mötuneytin við Kárahnjúka eru alls fjögur og þar er fólk að störfum 20 tíma á dag, segir einnig. „Frá upphafi hafa verið útbúnar yfir 3.5 milljónir máltíða fyrir starfsmenn Impregilo og undirverktaka." Þá er sagt að á nokkrum vinnustöðum við Kárahnjúka sé ómögulegt að flytja starfsmenn í mötuneyti á matmálstímum. „Slíkt myndi hafa í för með sér gríðarlega truflun á vinnunni, sökum þess langa tíma sem færi í ferðalög á milli staða. Í þeim tilfellum sem þetta á við, er aðeins um eina máltíð á dag að ræða, sem snædd er inni í göngunum. Maturinn sem um ræðir er sá hinn sami og útbúinn er í mötuneytum við Kárahnjúka. Maturinn er fluttur í hitapakkningum á vinnusvæðið og berst starfsmönnum heitur." Ennfremur segir að sökum þess hve fjölþjóðlet vinnuaflið á svæðinu sé, reyni menn að tryggja fjölbreytileika í mötuneytum fyrirtækisins, svo allir geti vel við unað. „Meginreglan er að tryggja að maturinn sé næringarríkur, í nægu magni fyrir hvern og einn og að fólk geti valið úr nokkrum möguleikum. Matreiðslumenn fyrirtækisins eru meðal annars frá Ítalíu, Kína, Indlandi og Tyrklandi." Þá segir að aðstæður við Kárahnjúka séu mjög erfiðar og alls ekki fyrir hvern sem er. „Starfsmenn þurfa því að geta aðlagast erfiðum aðstæðum, sem mörgum reynist erfitt. Fyrirtækið kappkostar þó að betrumbæta aðstæður þar sem því verður viðkomið og tryggja öryggi starfsmanna sinna. Öllum starfsmönnum er útvegaður allur sá búnaður sem nauðsynlegur er, þar með talinn besti öryggisbúnaður sem völ er á. Aðbúnaður starfsmanna uppfyllir allar kröfur sem gerðar eru til fyrirtækisins af íslenskum stjórnvöldum. Að mörgu leyti gengur fyrirtækið mun lengra en lögin kveða á um hvað varðar aðstæður og aðbúnað, en umhverfis- og starfsmannastefna fyrirtækisins gengur að nokkru leyti lengra en íslensk lög og reglugerðir." Áréttað er í tilkynningunni að fylgst sé afar vel með mengun í göngunum. Þegar mengun fer tímabundið yfir viðmiðunarmörk sé gripið strax til aðgerða. Stundum mun skyggni vera takmarkað í göngunum sökum „þoku" sem getur myndast á nokkrum stöðum, sökum þess að hitamunur þéttir raka í loftinu. Að síðustu er vikið að vinni á frídögum í tilkynningu Impregilo og sagt að stundum sé unnið á sunnudögum og almennum frídögum. „Þegar unnið er á slíkum dögum geta starfsmenn valið það sjálfir hvort þeir vilji vinna eða ekki. Hærra kaup er greitt fyrir vinnu á frídögum og helgidögum, rétt eins og kveðið er á um í kjarasamningum," segir að endingu.
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Fleiri fréttir Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Sjá meira