Innlent

Nordica verður hlekkur í Hilton keðjunni

MYND/Stefán

Icelandair Hotels, dótturfyrirtæki Icelandair Group og Hilton Hotels Corporation hafa gert með sér samning þess efnis að Nordica hótelið í Reykjavík verði hluti af Hilton hótelkeðjunni og heiti framvegis "Hilton Reykjavik Nordica". Á næstu vikum verður merkingum og ýmsu varðandi starfsemi hótelsins breytt í samræmi við staðla Hilton fyrirtækisins.

Samningurinn felur í sér að rekstur hótelsins verður áfram á vegum Icelandair Hotels en Hilton leggur til „hina heimþekktu gæðaímynd keðjunnar og margvísleg markaðs- og kynningartækifæri á alþjóðavísu," eins og segir í tilkynningu frá Icelandair.

Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels, segir samninginn við Hilton staðfesta gæði Nordica hótelsins. "Hilton gerir strangar kröfur um gæði og aðstöðu á þeim hótelum sem bera nafnið og það hefur verið ánægjulegt að sjá að við þurfum ekki að gera neina stórvægilegar breytingar til þess að uppfylla þær. Þvert á móti hefur komið fram að hótelið er leiðandi ráðstefnuhótel á alþjóðavísu sem býr yfir frábæru starfsfólki. Með samningnum opnast okkur margskonar tækifæri sem byggja á þeirri staðreynd að Hilton er þekktasta og virtasta nafnið í heiminum í þessari atvinnugrein og býr yfir gríðarlega öflugu markaðs- og sölukerfi, sérstaklega í funda- og ráðstefnuhaldi og gagnvart viðskiptaferðamönnum."

Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group, segir samninginn vera til marks um metnaðarfullan og kröftugan rekstur Icelandair Hotels og að það sé mikilvægt að fá jafn sterkt vörumerki og Hilton með sér í lið til að efla reksturinn enn frekar.

Fyrsta Hilton hótelið mun hafa verið stofnað í Cisco í Texas í Bandaríkjunum af Conrad Hilton árið 1919, en þau eru nú um 500 talsins um allan heim. Auk þess rekur Hilton fyrirtækið aðrar hótelkeðjur, sem saman telja meira en 2.800 hótel.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×