Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir réttlætanlegt að myrða Blair Breski þingmaðurinn George Galloway á á hættu að verða sviptur embætti sínu vegna ummæla sem hann lét falla í viðtali við breska tímaritið GQ. 27.5.2006 10:45
Kjörfundur er víðast hafinn Sveitarstjórnakosningar hófust stundvíslega klukkan níu í morgun. Í Reykjavík fór atkvæðagreiðsla rólega af stað en á Akureyri var biðröð við Oddeyrarskóla þegar kjörstaður þar var opnaður klukkan níu. 27.5.2006 10:07
Fasteignasala á höfuðborgarsvæðinu undir meðaltali Fasteignasala á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var talsvert undir meðaltali síðustu tólf vikna. Alls seldust 147 eignir í vikunni en það er nær 30 færri eignir en sem nemur meðaltali síðustu þriggja mánaða. Kaupverð var þó tveimur og hálfri milljón króna yfir meðaltali. 27.5.2006 09:38
Mikil umferð austur á Kirkjubæjarklaustur Mikil umferð var austur á Kirkjubæjarklaustur seinnipartinn í gær og fram á nótt í tengslum við mótorkrossmót sem haldið er þar um helgina. Talið er að á annað þúsund manns séu nú samankomin á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni, þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni 27.5.2006 09:35
Erilsöm nótt hjá slökkvi- og sjúkraliði höfuðborgarsvæðisins Nóttin var nokkuð erilsöm hjá slökkvi- og sjúkraliði höfuðborgarsvæðisins. Dælubílarnir voru þrisvar kallaðir út. Það kviknaði í ruslageymslu í ASÍ húsinu við Grensásveg og lagði reyk um hæðirnar. 27.5.2006 09:29
Öflugur jarðskjálfti reið yfir indónesísku eynna Jövu Að minnsta kosti 1.700 manns eru taldir hafa týnt lífi þegar öflugur jarðskjálfti reið yfir indónesísku eynna Jövu í nótt. Miklar skemmdir hafa orðið á húsum á skjálftasvæðinu en engrar flóðbylgju hefur þó orðið vart á svæðinu. 27.5.2006 09:17
Hnúfubakur í höfninni í Reykjavík Kennarar úr Klébergsskóla fengu óvæntan bónus í skemmtiferð á hvalaskoðunarbáti Eldingar um Faxaflóa í gærkvöldi. Þegar þeir sigldu inn hafnarmynnið í gömlu höfninni birtist stærðarinnar hnúfubakur rétt við endan á Ægisgarði. 27.5.2006 09:13
Porti Hafnarhússins breytt í óperusal Heldur óvenjuleg óperusýning var frumsýnd í porti Hafnarhússins í kvöld. Óperan Föðurlandið, Le Pays, fjallar um ástir fransks sjómanns og íslenskrar sveitastúlku og margt bendir til að óperan byggi á sönnum atburðum. 26.5.2006 22:56
Mótmælaganga vegna morða í Belgíu Þúsundir manna gengu um götur í Belgíu í dag til að sýna andstöðu sína við kynþáttahatur. Mótmælagangan er tilkomin vegna morðs á tveggja ára stúlku og barnfóstru hennar þar í landi á dögunum. 26.5.2006 22:00
Þrír palestínskir unglingspiltar létust á Gaza Þrír palestínskir unglingspiltar létust þegar þeir voru að fikta við sprengiefni á Gaza í dag. Þá særðust þrjár erlendar konur í átökum á Vesturbakkanum. 26.5.2006 21:26
Bush og Blair viðurkenna mistök George Bush og Tony Blair viðurkenna að ákvörðunin um innrásina í Írak hafi verið byggð á fölskum forsendum. Þeir segja að fjölmörg mistök hafi verið gerð við uppbyggingu landsins. 26.5.2006 20:45
Loftið er lævi blandið í Dili Á þriðja tug manna liggur í valnum á Austur-Tímor en þar hefur verið afar róstusamt undanfarna daga. 26.5.2006 20:00
Hraunið streymdi upp úr sjávarbotninum Japanskir vísindamenn birtu í dag einstæðar myndir af neðansjávareldgosi skammt norður af Kyrrahafseynni Gvam. 26.5.2006 19:15
Kulajeff fékk ævilangt fangelsi Dómstóll í Rússlandi dæmdi í morgun tsjetsjenskan hryðjuverkamann í ævilangt fangelsi fyrir aðild sína að gíslatökunni í barnaskólanum í Beslan í september 2004. 330 létust í þeim hildarleik, röskur helmingur þeirra börn. 26.5.2006 18:45
Nýr flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslunnar Geirþrúður Alfreðsdóttir hefur verið ráðin flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslunnar. Geirþrúður hefur starfað sem flugstjóri hjá Icelandair, deildarstjóri flugöryggisdeildar Flugmálastjórnar Íslands og formaður rannsóknarnefndar flugslysa. 26.5.2006 18:45
Elsti kjósandinn er 108 ára Elsti kjósandinn í sveitarstjórnarkosningunum á morgun er 108 ára en um sextán þúsund og fimm hundruð manns mega kjósa í fyrsta sinn. 26.5.2006 18:06
Klippt framan af fingri manns Klippt var framan af fingri manns á fimmtugsaldri með garðklippum og tveir aðrir menn beittir harðræði í húsi í miðbæ Akureyrar fyrir hádegi í gær. Þá er talið að annar mannanna sé hugsanlega nefbrotinn. 26.5.2006 17:58
Yfir tíu þúsund hafa þegar kosið Yfir tíu þúsund manns hafa kosið utankjörfundar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hjá Sýslumannsembættinu í Reykjavík. Þetta eru mun fleiri en kusu alls utankjörfundar fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar. 26.5.2006 17:48
Vildi frekar sprengja skemmtistað en flugvöll Upptökur með samtölum manna sem skipulögðu sprengjutilræði á skemmtistaðnum Ministry of Sound í Lundúnum fyrir rúmum tveimur árum voru spiluð í réttarhöldunum yfir þeim í dag. Þar kemur meðal annars fram að forsprakki hópsins ætlaði að fá sér vinnu á staðnum til að auka líkurnar á tilræðið myndi heppnast, auk þess sem honum fannst æskilegra að spregja skemmtistað en flugvöll því öryggisgæslan væri minni. 26.5.2006 17:47
Telur íkvekju ekki óhugsandi Tvær rosknar konur komust naumlega út úr húsi þegar eldur kviknaði í fjölbýlishúsi við Vesturgötu í nótt. Önnur kvenanna Ragnhildur Árnadóttir segir ekki lokum fyrir það skotið að einhver hafi kveikt í íbúðinni hennar en þar blossaði eldurinn upp. 26.5.2006 17:45
Sviftivindar tíðir yfir fjöllum Flugvél á leið frá Akureyri til Reykjavíkur lenti í miklum sviftivindum yfir Esjunni fyrr í vikunni. Farþegum var að vonum brugðið en þeim var boðin áfallahjálp og einn farþegi þáði námskeið fyrir flughrædda í boði Flugfélags Íslands. 26.5.2006 17:36
Erlendum ferðamönnum fjölgar Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 5,4% fyrstu fjóra mánuði ársins, samkvæmt talningum Ferðamálastofu sem fara fram í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. 26.5.2006 17:33
Villandi upplýsingar um mengun álvers í Helguvík Frambjóðendur Vinstri hreyfingarinnar -græns framboðs í Reykjanesbæ segja að mengun af völdum álvers í Helguvík verði mun meiri en hingað til hefur verið haldið fram. 26.5.2006 17:30
Þrjár erlendar konur særðust í átökum á Vesturbakkanum Átök brutust út þegar mótmæli fóru fram í dag gegn múrnum sem Ísraelsmenn hafa verið að reisa undanfarin misseri á Vesturbakkanum. Fjórir eru sagðir hafa særst í átökunum, einn ísraelskur hermaður og 26.5.2006 17:21
Mótmæli gegn frístundabyggð Orkuveitunnar við Úlfljótsvatn "Hópur sem lætur sér framtíð og náttúru Úlfljótsvatns varða" afhenti borgarstjóra í dag mótmæli gegn fyrirhuguðum framkvæmdum Orkuveitunnar við Úlfljótsvatn. 26.5.2006 17:00
Geirþrúður Alfreðsdóttir flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslunnar. Geirþrúður Alfreðsdóttir hefur verið ráðin flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslunnar. Geirþrúður hefur m.a. starfað sem flugstjóri hjá Icelandair, deildarstjóri flugöryggisdeildar Flugmálastjórnar Íslands og formaður rannsóknarnefndar flugslysa segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Geirþrúður er m.a. með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, C.S. próf í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og atvinnuflugmannspróf. Auk þess hefur hún sótt fjölda námskeiða í flugöryggismálum og flugslysarannsóknum. Geirþrúður mun hefja störf á næstu vikum. 26.5.2006 16:53
HB Grandi tapar 1.337 m.kr. HB Grandi birti uppgjör fyrsta ársfjórðungs eftir lokun markaða síðastliðin miðvikudaginn og var niðurstaðan tap upp á 1.337 m.kr. samanborið við 763 m.kr. hagnað á sama tímabili í fyrra. 26.5.2006 16:31
Tekur við innanlandsfluginu 1. júní Samningar hafa náðst um kaup Flugfélags Vestmannaeyja á flugvélum og tilheyrandi búnaði sem Landsflug hefur notað í innanlandsfluginu. Um er að ræða tvær nítján sæta Dornier 228 vélar og eina sex sæta Chivtainflugvél sem Landsflug hefur notað í sjúkraflugi. 26.5.2006 16:11
Engar fregnir af mannfalli í Washington Engar fregnir hafa borist af mannfalli eftir að skothvellir heyrðust í bílageymslu hinnar svokölluðu Rayburn-byggingar, í næsta nágrenni við þinghúsið í Washington í Bandaríkjunum, á þriðja tímanum að íslenskum tíma. 26.5.2006 16:02
Sumarskóli fyrir nýja Íslendinga Sumarskóli sem rekinn er af nokkrum stofnunum Reykjavíkurborgar, verður starfræktur í sumar, en hann er ætlaður þeim sem búið hafa á Íslandi skemur en fjögur ár. Nýjum Íslendingum á öllum aldri býðst nú í sumar kennsla í íslensku og fræðsla um íslenskt samfélag. 26.5.2006 15:22
Snjóflóð féll úr hlíðinni ofan við Gimbrakletta á Siglufirði Snjóflóð féll úr hlíðinni ofan við Gimbrakletta á Siglufirði um eitt leitið í dag. Svo virðist sem sólbráð hafi komið flóðinu af stað, en sólkskin er búið að vera á Siglufirði í dag. Talið er öruggt að varnagarðar sem eru í hlíðinni hafa varnað því að flóðið náði til byggða, en flóðið stækkaði ört eftir því sem neðar dró. 26.5.2006 15:11
Skothríð heyrðist í þinghúsinu í Washington Skothríð heyrðist í eða við þinghúsið í Washington í Bandaríkjunum fyrir stundu. Byggingunni hefur verið lokað og enginn fær að fara inn í eða út. Ekki liggja fyrir nánari fregnir af þessu á þessari stundu en við munum að sjálfsögðu greina frá þeim um leið og þær berast. 26.5.2006 15:03
Yfir 9300 hafa nú kosið utan kjörfundar í Laugardalshöllinni. Yfir 9300 hafa nú kosið utan kjörfundar í Laugardalshöllinni. Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar árið 2002 kusu alls um 9000 manns utan kjörfundar í Laugardalshöllinni og því eru utankjörfundaratkvæði þegar orðin fleiri en þá. 26.5.2006 13:55
Kannanir um fylgi stjórnmálaflokkanna misvísandi Kannanir um fylgi stjórnmálaflokkanna í Reykjavík eru misvísandi. Í tveimur af þremur þeim nýjustu nær Sjálfstæðisflokkurinn ekki meirihluta í borginni og í þeirri þriðju er meirihluti flokksins mjög tæpur. 26.5.2006 13:50
Hægt að hringja og senda SMS þó inneign klárast Nú geta viðskiptavinir í Og Vodafone Frelsi hringt eða sent SMS þó svo að inneign þeirra klárist. Um er að ræða þjónustu sem nefnist S.O.S. en hún gerir notanda, sem hefur litla eða enga innistæðu, mögulegt að nota GSM símann áfram þegar mikið liggur við. 26.5.2006 13:46
Löggæsla stórefld á Kirkjubæjarklaustri Löggæsla á Kirkjubæjarklaustri verður stórefld um komandi helgi en tilefnið er árlegt mótorkrossmót sem haldið verður í grennd við Kirkjubæjarklaustur þessa helgi og er eitt fjölmennasta akstursíþróttamót landsins, þetta kemur fram á vef lögreglunnar. 26.5.2006 13:33
Úrslit í mjólkurfernusamkeppni Í morgun var tilkynnt um úrslit í samkeppni MS um texta á mjólkurfernur. 64 textar hlutu verðlaun en höfundunum var sett fyrir að svara spurningunni "Hvað er að vera ég?" í 60-100 orðum. Hver af þessum 64 textum mun birtast á um 600 þúsund mjólkurfernum næstu tvö árin, þannig að höfundarnir ungu munu fá mun betri dreifingu en flest íslensk skáld. 26.5.2006 13:01
DV braut gegn siðareglum Blaðamannafélagsins Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands segir ritstjórn DV hafa brotið gegn siðareglum félagsins með umfjöllun sinni um framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja í janúar síðastliðnum. 26.5.2006 12:15
Dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir gíslatöku í Rússlandi Téténskur aðskilnaðarsinni, sem ásamt öðrum, hélt 1.000 börnum í gíslingu í skóla í Beslan í Rússlandi árið 2004, var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi. 330 manns létu lífið í gíslatökunni. 26.5.2006 11:51
Könnun á fylgi flokka á Álftanesi Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði skoðanakönnun fyrir íbúasamtökin Betri Byggð á Álftanesi, um fylgi stjórnmálaflokka á Álftanesi vegna bæjarstjórnakosninga í vor. Könnunin fór fram dagana 17. til 18. maí og stuðst var við 600 manna úrtak íbúa Álftanes 18 ára og eldri. Svarhlutfall í könnuninni var um 60%. 26.5.2006 11:31
Klippti af fingri manns með garðklippum Lögreglan á Akureyri handtók í gær þrjá menn sem réðust á aðra þrjá í húsi í miðbæ Akureyrar um hádegisbil í gær. Klippt var framan af fingri eins mannsins með garðklippum. 26.5.2006 10:54
Ferðamönnum fjölgaði um 5,4% fyrstu fjóra mánuði ársins Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 5,4% fyrstu fjóra mánuði ársins, samkvæmt talningum Ferðamálastofu sem fram fara í Leifsstöð. Þannig voru erlendir ferðamenn rúmlega 73.400 talsins samanborið við 69.700 erlenda ferðamenn á sama tímabili í fyrra, þetta kemur fram á vef ferðamálastofu. 26.5.2006 10:34
Sprengt við markað í Bagdad Í það minnsta fjórir létust og 30 slösuðust þegar bílsprengja sprakk í Bagdad í morgun. Sprengjan sprakk rétt eftir að forsætisráðherra Íraks sagði það eitt allra mikilvægasta verkefni nýrrar stjórnar að berjast gegn ofbeldi í höfuðborginni. 26.5.2006 10:27
Frumvarp um ríkisborgararétt ólöglegra innflytjenda samþykkt Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær umdeilt frumvarp sem gefur milljónum ólöglegra innflytjenda rétt á að sækja um ríkisborgararétt í Bandaríkjunum. 62 voru fylgjandi frumvarpinu en 36 greiddu atkvæði gegn því. Frumvarpið kveður einnig á um stóraukið landamæraeftirlit á landamærunum við Mexíkó til að stemma stigu við straumi ólöglegra innflytjenda frá Suður-Ameríku. 26.5.2006 09:45
Friðargæslulið frá Ástralíu kom til Austur-Tímor í gær. Aukafriðargæslulið frá Ástralíu kom til Austur-Tímor í gær. Þessir 150 fyrstu munu tryggja öryggi flugvallarins í höfuðborginni Dili en alls hafa Ástralir sagst munu senda þrettán hundruð hermenn til þess að hjálpa til við að koma á friði í landinu unga. 26.5.2006 09:39