Erlent

Vildi frekar sprengja skemmtistað en flugvöll

Upptökur með samtölum manna sem skipulögðu sprengjutilræði á skemmtistaðnum Ministry of Sound í Lundúnum fyrir rúmum tveimur árum voru spiluð í réttarhöldunum yfir þeim í dag. Sjö menn eru þar ákærðir fyrir aðild sína að skipulagningu ódæðsisins. Í samtölunum kemur meðal annars fram að forsprakki hópsins, Jawad Akbar, ætlaði að fá sér vinnu á staðnum til að auka líkurnar á tilræðið myndi heppnast, auk þess sem honum fannst æskilegra að spregja skemmtistað en flugvöll því öryggisgæslan væri minni. Mennirnir eru einnig ákærðir fyrir að hafa 600 kg af efnum til sprengjugerðar í fórum sínum. Fjölmargir Íslendingar hafa sótt Ministry of Sound skemmtistaðinn í ferðum sínum til Lundúna í gegnum tíðina.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×