Innlent

Elsti kjósandinn er 108 ára

MYND/Einar

Elsti kjósandinn í sveitarstjórnarkosningunum á morgun er 108 ára en um sextán þúsund og fimm hundruð manns mega kjósa í fyrsta sinn.

Nítján Íslendingar ná átján ára aldri á kosningadag á morgun og geta meðal annars haldið upp á afmælisdaginn með því að kjósa í fyrsta skipti. Um sextán þúsund og fimm hundruð manns að auki geta í fyrsta skipti greitt atkvæði í sveitarstjórnarkosningum.

Alls eru rúmlega tvö hundruð og sextán þúsund manns á kjörskrá á öllu landinu. Skiptingin milli kynjanna er nokkuð jöfn en konur á kjörskrá eru tæplega hundrað og níu þúsund og karlar tæplega hundrað og áttaþúsund.

Erlendir ríkisborgarar sem búsettir eru á Íslandi og fá að kjósa eru tæplega fjögur þúsund og fimmhundruð.

Kosið er í 79 sveitarfélögum en sveitarfélögum á landinu hefur fækkað nokkuð frá síðustu sveitarstjórnarkosningum en þá voru þau 105. Mikill munur er á stærð þessara sveitarfélaga. Landfræðilega er Fljótsdalshérað stærsta sveitarfélag landsins eða 8.884 ferkílómetrar að stærð. Íbúafjöldi þar er 3.990. Minnsta sveitarfélagið er Seltjarnarneskaupstaður sem er 2 km2 að stærð og telur um 4.470 íbúa.

Sveitarfélagið sem hefur flesta kjósendur er Reykjavík, höfuðborgin sjálf, en þar eru hátt í 86.000 manns á kjörskrá. Næst á eftir kemur Kópavogur.

Það sveitarfélag sem hefur fæsta íbúa á kjörskrá er Árneshreppur á Vestfjörðum en þar eru 43 á kjörskrá. Kosningin þar er óhlutbundin sem þýðir að engin listi hefur boðið sig fram og allir íbúar yfir 18 ára eru í framboði.

Í Tjörneshrepp og Breiðdalshrepp fara ekki fram kosningar þar sem þar er sjálfkjörið.

Kjörstaðir verða opnaðir frá klukkan 9 til 12 og verður lokað í síðasta lagi klukkan tíu annað kvöld. Á flestum stöðum á landinu eru kjörstaðir opnir frá klukkan níu að morgni til tíu um kvöldið. Á stóru stöðunum byrjar talning um sex leytið og verða fyrstu tölur birtar fljótlega eftir að kjörstöðum verður lokað klukkan tíu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×