Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nær öruggt talið að Abbas sigri Forsetakosningar fara fram í Palestínu í dag. Sjö manns eru í framboði en nær öruggt er talið að Mahmoud Abbas beri sigur úr býtum og taki þar með við af Jasser Arafat sem lést í nóvember. Abbas er frambjóðandi Fatah, stærstu fylkingarinnar innan Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO). Hamas-samtökin ætla að sniðganga kosningarnar. 8.1.2005 00:01
Mat dreift til allra Enginn sem komst lífs af eftir hamfarirnar í Asíu mun deyja úr hungri að sögn Jim Morris, yfirmanns matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Hann segir að eftir viku verði búið að dreifa mat til til nánast allra þeirra sem lifðu hamfarirnar af. 8.1.2005 00:01
Færri Svíar látnir en talið var Mun færri Svíar létust og er saknað eftir hamfarirnar í Asíu en sænsk yfirvöld héldu fram. Samkvæmt opinberum tölum sem fréttastofan AP birtir er staðfest að 52 Svíar hafi látist og 637 sé saknað. 8.1.2005 00:01
Forsetakosningarnar lítt spennandi Lítil spenna ríkir vegna forsetakosninga í Palestínu, sem fara fram á morgun, enda eru úrslitin nánast gefin. Mahmoud Abbas verður kjörinn þó að enginn virðist hafa trú á stefnu hans. Talið er að hann hafi 100 daga til að skila árangri. 8.1.2005 00:01
Raforkuinnkaup eftir ár Rafmagn verður að neysluvöru sem almenningur getur valið sér eftir hentugleika og verðsamanburði að ári liðnu. Í dag geta íbúar í fjölbýlishúsi í Breiðholti, eftir breytingar á raforkulögum, stofnað með sér félag um raforkukaup. 8.1.2005 00:01
Hryggbrotnaði í vélsleðaslysi Vélsleðamaður hryggbrotnaði þegar hann kastaðist af vélsleða sínum austan við Sauðafell á Mosfellsheiði á tólfta tímanum í gærmorgun. Maðurinn hafði ekið sleðanum ofan í dæld í landslaginu og kastaðist við það af sleðanum. 8.1.2005 00:01
Ekið á barn í Breiðholti Ekið var á barn á gangbraut á gatnamótunum við Stekkjarbakka og Þarabakka í Breiðholti laust fyrir klukkan tvö í gær. Barnið hlaut höfuðhögg við ákeyrsluna og var flutt á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Fossvogi til aðhlynningar. Betur fór en á horfðist og komst barnið fljótt til meðvitundar en það er enn á sjúkrahúsi. 8.1.2005 00:01
Um 40% háskólanema á lánum hjá LÍN Tæplega fjórir af hverjum tíu stúdentum Háskóla Íslands nýttu námslán Lánasjóðs íslenskra námsmanna síðustu tvo vetur. Þeim fjölgar um nær sjö prósentustig frá árunum tveimur þar á undan samkvæmt tölum sjóðsins. 8.1.2005 00:01
Eldsvoðí á Hverfisgötu Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að brennandi húsi við Hverfisgötu 61 klukkan þrjú aðfaranótt laugardags. Efri hæð hússins var alelda þegar slökkviliðið bar að, en húsið reyndist mannlaust þegar að var gáð. 8.1.2005 00:01
Átta hundruð á hvern Íslending Samanlögð framlög Íslendinga til hjálparstarfs á hamfarasvæðunum í Asíu er minna en flestra Norðurlanda en mun meira en forystuþjóða Vesturlanda miðað við höfðatölu. </font /></b /> 8.1.2005 00:01
Missti fingur í flugeldaslysi Karlmaður missti fingur þegar flugeldur sprakk á þrettándabrennunni við Ásvelli í Hafnarfirði í gærkvöld. Eftir því sem fram kemur í Víkurfréttum er ekki vitað um hvers konar skoteld var að ræða. Þar segir að maðurinn sé á miðjum aldri og hafi verið á brennunni ásamt fjölskyldu sinni, misst fingur og orðið fyrir augnmeiðslum. 7.1.2005 00:01
Hættuástandi aflýst í Bolungarvík Almannavarnanefnd Bolungarvíkur hefur aflétt hættuástandi vegna snjóflóðahættu í bænum að fullu. Því geta um tuttugu íbúar í húsum við Dísarland og Traðarland efst í bænum snúið heim en þeir hafa verið fjarri heimilum sínum síðan á sunnudagskvöld. 7.1.2005 00:01
Lögreglustjóri sakar IRA um rán Írski lýðveldisherinn, IRA, stóð fyrir bíræfnu bankaráni á Norður-Írlandi í síðasta mánuði. Þessu heldur Hugh Orde, lögreglustjóri á Norður-Írlandi, fram. Gert er ráð fyrir því að orð hans valdi uppnámi í stjórnmálum á svæðinu og geti enn á ný orðið til þess að friðarviðræður þar fari út um þúfur. 7.1.2005 00:01
Flugþjónar neita að bera fram mat Flugþjónar hjá ítalska flugfélaginu Alitalia eru óánægðir með kjör sín og fóru í óvenjulegt verkfall til að vekja athygli á því. Allir farþegar í Evrópuflugi félagsins fóru hungraðir frá borði í morgun þar sem starfsfólkið neitaði að bera fram mat og drykk. 7.1.2005 00:01
Stefnir NBC vegna uppkasta Karlmaður í Cleveland í Ohio hefur stefnt sjónvarpsstöðinni NBC vegna atriðis í veruleikaþættinum Mörk óttans sem m.a. er sýndur á Stöð tvö. Þátttakendur þurfa að láta ýmislegt yfir sig ganga og leggja sér margt til munns. 7.1.2005 00:01
Lægsta hassverð í fjögur ár Verð á hassi hérlendis hefur ekki verið lægra síðan SÁÁ hóf að kanna verð meðal sjúlkinga á Vogi í janúar 2000. Þetta kemur fram í nýjust könnun samtakanna. Grammið af hassi kostar nú 1.340 krónur á götunni en kostaði tæpar þrjú þúsund krónur í upphafi árs. 7.1.2005 00:01
Norsk stjórnvöld sögð nísk Norðmönnum finnst stjórnvöld heldur nísk á fjárframlög til hjálparstarfa á flóðasvæðunum í Suðaustur-Asíu. Kaupsýslumenn og biskup, lista- og íþróttamenn hafa skorað á ríkisstjórn Kjells Magnes Bondeviks að tífalda fjárframlagið, en stjórnvöld hafa þegar heitið einum komma einum milljarði norskra króna til starfsins. 7.1.2005 00:01
Zoellick í utanríkismálin George Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti fyrir stundu að hann hygðist tilnefna Robert Zoellick aðstoðarutanríkisráðherra og á hann að taka við embætti um leið og Condoleezza Rice verður utanríkisráðherra, síðar í þessum mánuði. 7.1.2005 00:01
Rætt um sameiningu sveitarfélaga Bæjarstjórinn í Hafnarfirði og sveitarstjórinn í Vatnsleysustrandarhreppi áttu í dag fund með nefnd um sameiningu sveitarfélaga í kjölfar könnunar sem gerð var fyrir jól. Hún leiddi í ljós að meirihluti íbúa Vatnsleysustrandarhrepps vildi sameinast Hafnarfirði. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. 7.1.2005 00:01
Opinn hugarflæðisfundur í Garðabæ Opinn hugarflæðisfundur um menningarmál í Garðabæ verður haldinn í næstu viku. Á fundinum gefst fóki tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri á óformlegan og auðveldan hátt, segir í tilkynningu á heimasíðu Garðabæjar. Ráðgjafafyrirtæki var ráðið til að stýra fundinum. Niðurstöður fundarins eru sagðar munu nýtast vel í þeirri vinnu sem fram undan er við að móta menningarstefnu fyrir Garðabæ. 7.1.2005 00:01
Ríkið gefur 150 milljónir Miðað við höfðatölu hefur hver Íslendingur gefið átta hundruð og tuttugu krónur til að lina þjáningar bágstaddra eftir hamfarirnar á annan jóladag við Indlandshaf. Heildarupphæð íslenskra framlaga er komin í 240 milljónir króna. Munar þar mestu um framlag ríkisstjórnarinnar, alls 150 milljónir sem samþykkt var á föstudag. 7.1.2005 00:01
Dánartíðni hefur lækkað ört Tíðni kransæðasjúkdóma hefur verið á niðurleið á síðustu árum og einkum áratugum, að sögn Vilmundar Guðnasonar yfirlæknis hjá Hjartavernd. 7.1.2005 00:01
Veðurspá dró úr flugeldasölu Sala á flugeldum fyrir áramót og þrettándann stóð í stað á höfuðborgarsvæðinu í ár, en fram til þessa hefur orðið aukning á milli ára, að sögn Friðfinns Guðmundssonar hjá slysavarnarfélaginu Landsbjörg. 7.1.2005 00:01
Kosningar í skugga víga Tveir Palestínumenn og einn Ísraeli létust í þremur aðskildum atvikum á Vesturbakkanum og Gasaströndinni fyrr í dag. Þetta varpar skugga á kosningar Palestínumanna en þeir velja eftirmann Jassirs Arafats nú um helgina. 7.1.2005 00:01
Fimmtungur barna of feitur Samkvæmt niðurstöðum rannsókna eru um 20 prósent íslenskra barna, níu til fimmtán ára, yfir kjörþyngd. Þetta segir Jórlaug Heimisdóttir verkefnisstjóri á Lýðheilsustöð. 7.1.2005 00:01
Harkalegt að fá höfnun Guðni Ágústsson, ríflega sjötugur maður, sem er í endurhæfingu á endurhæfingadeild Landspítala háskólasjúkrahúss á Grensási var einn þeirra sem var neitað um ferðaþjónustu fyrir fatlaða, þegar sótt var um fyrir hann. 7.1.2005 00:01
Endurálagning er rútína Hofsfjölskyldan hefur fengið endurálagningu upp á samtals um 100 milljónir króna. Þau verða að greiða fyrir miðjan mánuð og geta svo áfrýjað til yfirskattanefndar. Lilja Pálmadóttir býst við að gera það. 7.1.2005 00:01
Impregilo fær ekki sérmeðferð Talsmaður Impregilo er ósáttur við gagnrýni á fyrirtækið síðustu daga. Hann telur flestar fullyrðingar verkalýðshreyfingarinnar rangar og ekki rétt að Impregilo hafi hótað Íslendingum. 7.1.2005 00:01
Eþíópíumenn áfram í haldi Gæsluvarðhald yfir þremur Eþíópíumönnum var framlengt um viku í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Einn þeirra er sænskur ríkisborgari en hinir voru með sænsk vegabréf sem eru í eigu annarra þegar þeirm komu til landsins rétt fyrir áramót. 7.1.2005 00:01
Ekki verður aðhafst frekar Bogi Nilsson ríkissaksóknari segir að ekki verði frekar aðhafst vegna aðgerðarleysis lögreglumanns þegar kynferðisbrot var framið á sautján ára pilti. Bogi segir embættið alltaf líta á rannsóknir og komi með ábendingar ef eitthvað má betur fara. 7.1.2005 00:01
Fjórtán létust í lestarslysi Fjórtán létust og rúmlega fímmtíu slösuðust í lestarslysi á Ítalíu skömmu eftir hádegi í dag. Farþegalest og vöruflutningalest rákust á skammt frá lestarstöð í Bologna á Norður-Ítalíu, en þær voru báðar á sama spori. 7.1.2005 00:01
Allir komnir heim 26 íbúar við Traðarland, Dísarland, á Geirsstöðum og Tröð fengu að fara heim til sín eftir að hættuástandi var aflétt í Bolungarvík í hádeginu í gær. Einar Pétursson bæjarstjóri segir enn vera viðbúnaðarstig og að grannt verði fylgst með veðurspám. 66 íbúar fengu að fara til síns heim í fyrradag. 7.1.2005 00:01
Óvíst með Portúgalana Óvíst er hvort hópi Portúgala, sem Impregilo hefur fengið til vinnu við Kárahnjúkavirkjun, verði skipt út fyrir kínverska starfsmenn. Impregilo hefur nú bætt fjörutíu portúgölskum mönnum í starfslið sitt vegna þeirra tafa sem orðið hafa á komu Kínverjanna. 7.1.2005 00:01
Flóðhestur hænist að skjaldböku Flóðhestakálfurinn Owen fannst yfirgefinn og illa haldinn á víðavangi í Kenía fyrir mánuði. Verðir á dýraverndarsvæði fundu hann og fluttu á svæðið, þar sem honum var veitt aðhlynning. Þar fann hann dýr sem var eins á litinn og fullorðinn flóðhestur og hjúfraði sig upp að því. 7.1.2005 00:01
Illgerlegt að meta mannfall Opinberar tilkynningar um fjölda látinna í Indónesíu eru ekki líklegar til að vera nákvæmar og stjórnvöld hafa þurft að meta mannfallið gróflega. í sumum tilfellum beita þau aðferðum á borð við það að margfalda fjölda líka í einni fjöldagröf með heildarfjölda grafa. Í sumum þorpum er íbúafjöldinn áætlaður, eftirlifendur taldir og gert ráð fyrir að aðrir hafi farist. 7.1.2005 00:01
Svikamylla í nafni Arafat Tölvupóstur gengur nú manna á milli þar sem Suha Arafat, ekkja Yassir Arafat, óskar eftir einhverjum til að geyma fyrir sig 1,2 milljarð íslenskra króna sem núverandi stjórnvöld í Palestínu séu að reyna að hafa af henni. 7.1.2005 00:01
Hækkanir umfram verðlagsbreytingar Alþýðusamband Íslands hefur áhyggjur af hækkunum ríkis og sveitarfélaga á gjaldskrám og áhrifum þeirra á verðbólgu. Forseti ASÍ segir að hið opinbera eigi að sýna betra fordæmi. 7.1.2005 00:01
Rafmagn til húshitunar hækkar Þingmaður Samfylkingarinnar segir að talað hafi verið um að þegar ákvarðaðar niðurgreiðslur dugi ekki, verði bætt úr því. Formaður iðnaðarnefndar segir stöðu þessara rafnotenda verða skoðaða. 7.1.2005 00:01
60 prósent fram úr áætlun Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að kostnaður við höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur hafi farið tæp 62 prósent fram úr áætlun, en ekki rúm 30 prósent eins og kynnt var. 7.1.2005 00:01
Framsóknarmenn missaga í Íraksmáli Jónína Bjartmarz, fulltrúi Framsóknarflokksins í utanríkismálanefnd Alþingis, fullyrðir að stuðningur Íslands við innrásina í Írak hafi aldrei verið ræddur í utanríkismálanefnd. Formaður Framsóknarflokksins staðhæfði í fjórgang í sjónvarpsviðtali fyrir mánuði að málið hefði verið rætt í nefndinni. 7.1.2005 00:01
Framlag Íslands hækkað Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hækka framlag sitt til neyðaraðstoðar og uppbyggingar vegna hamfaranna í Asíu upp í hundrað og fimmtíu milljónir. Níutíu og fimm milljónir króna hafa safnast í söfnun Rauða krossins. 7.1.2005 00:01
Barátta Abbas er rétt að byrja Allar líkur eru á að Mahmoud Abbas verði eftirmaður Yassers Arafat en forsetakosningar fara fram í Palestínu á morgun. Nái hann kjöri bíður hans erfitt verk sem forvera hans mistókst. 7.1.2005 00:01
Sporgöngumenn Abbas Öruggt er talið að Mahmoud Abbas beri sigur úr býtum í forsetakosningunum í Palestínu á morgun. Sex aðrir eru þó í kjöri, þar af eru fjórir óháðir frambjóðendur. 7.1.2005 00:01
Sagðir nota neyðarhjálp sem vopn Neyð fórnarlamba flóðbylgjunnar í Asíu er notuð sem vopn í höndum skæruliða og uppreisnarmanna og stjórnvalda sem berjast við þá. Ásakanir um að neyðarbirgðum sé ekki beint á óvinasvæði ganga á víxl. 7.1.2005 00:01
Skínandi skíðatímabil framundan Útlit er fyrir að gott skíðatímabil sé í uppsiglingu. Snjór er með mesta móti á skíðasvæðunum og sala á skíðum og snjóbrettum hefur verið með ágætum, enda ekki vanþörf á eftir mörg mögur ár. 7.1.2005 00:01
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent