Framlag Íslands hækkað 7. janúar 2005 00:01
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hækka framlag sitt til neyðaraðstoðar og uppbyggingar vegna hamfaranna í Asíu upp í hundrað og fimmtíu milljónir. Níutíu og fimm milljónir króna hafa safnast í söfnun Rauða krossins. Ákveðið var á fundi ríkisstjórnarinnar í dag að hækka framlag Íslendinga til neyðaraðstoðar og enduruppbyggingar. Það verður samtals hundrað og fimmtíu milljónir. Þar af hafa þrjátíu og fimm milljónir þegar farið í að flytja slasaða Svía til síns heima og tuttugu og fimm milljónum hafði þegar verið ráðstafað til þróunaraðstoðar á Srí Lanka. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir þetta ekki viðbrögð við gagnrýni. Ríkisstjórnin hefði sagt strax eftir atburðina að hún myndi einbeita sér að Srí Lanka. Þar hefði átt að verja 25 milljónum í þróunaraðstoð en ákveðið hefði verið að hækka upphæðina í 75 milljónir. Það hefði smám saman verið að koma í ljós hversu umfangsmiklir þessir atburðir hefðu verið og hversu miklu verra ástandið væri en talið hefði verið í upphafi. Halldór var spurður af hverju upphæðin hefði ekki verið hækkuð fyrir, í ljósi gagnrýni á fimm milljóna króna framlag í upphafi. Hann sagði að unnið hefði verið að málinu, í dag hefði verið fyrsti ríkisstjórnarfundur eftir áramót og þetta hefði alltaf legið fyrir. Til samanburðar má geta þess að Norðmenn gefa ellefu milljarða íslenskra króna eða sem samsvarar tvö þúsund og fjögur hundruð krónum á hvert norskt mannsbarn. Framlag Íslendinga jafngildir sex hundruð krónum á hvern Íslending. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri afhenti Rauða krossinum tíu milljónir í dag en alls hafa safnast 90 í söfnun vegna hamfaranna. Um helmingur er frá einstaklingum í framlögum eða símasöfnun í númerinu 907 20 20. Samtök bankamanna gáfu það sem ellegar hefði farið í að halda upp á sjötíu ára afmæli samtakanna eða 70 milljónir. Nýstárlegasta söfnunin fór fram í Menntaskólanum í Reykjavík í morgun þar sem nemendur gripu til undarlegra uppátækja til að safna peningum. Einn nemandi hélt á Lofti í 30 mínútur. Loftur virtist kunna afar vel við sig á baki félaga síns. MR-ingar ákváðu að safna með alls kyns áheitum fyrir undarleg tiltæki. Einn þeirra fékk t.d. helming ríkisstjórnarinnar til að faðma sig í þágu góðs málefnis: Guðna Ágústsson, Árna Mathiesen, Geir Haarde, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Árna Magnússon og Sturlu Böðvarsson.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Innlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Fleiri fréttir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Sjá meira