Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tugþúsundir mótmæltu Tugþúsundir ísraelskra landnema á Gaza og stuðningsmenn þeirra efndu til mótmæla í Jerúsalem, höfuðborg Ísraels, gegn áformum Ariels Sharon forsætisráðherra um að flytja landnemana á brott frá Gaza. Mótmælin fóru friðsamlega fram en nokkrir forystumenn landnema hafa varað við að nauðungarflutningar kunni að leiða til borgarastríðs. 13.9.2004 00:01
Í vanda vegna verkfalls Tugþúsundir barna og fullorðinna gengu, hjóluðu eða húkkuðu sér far í vinnuna í hellirigningu eftir að strætisvagnabílstjórar í Helsinki fóru í sólarhringslangt verkfall í gær. 13.9.2004 00:01
Glæpatíðni í sögulegu lágmarki Glæpatíðni í Bandaríkjunum hefur aldrei verið lægri en á síðasta ári, frá því dómsmálaráðuneytið byrjaði á því árið 1973 að gera kannanir á því hversu stór hluti þjóðarinnar hefði orðið fyrir barðinu á glæpamönnum. 13.9.2004 00:01
Mál Mijailovic fyrir Hæstarétt Hæstiréttur Svíþjóðar hefur ákveðið að taka fyrir mál Mijailo Mijailovic sem fundinn var sekur um að myrða Önnu Lindh, þáverandi utanríkisráðherra, fyrir ári síðan. 13.9.2004 00:01
Hófdrykkja á meðgöngu ekki til Verðandi mæður eiga ekki að dreypa á áfengi á meðgöngu sinni. Jafnvel minnsta áfengisneysla móður á meðgöngu getur orðið til þess að börn þrói með sér hegðunarvandamál þegar þau eldast. Þetta er meðal þess sem fram kom á ráðstefnu sérfræðinga um áhrif áfengis á fóstur í móðurkviði 13.9.2004 00:01
Veggfóðrað með peningum Nýstárlegt veggfóður prýðir útvegg Þingholtstrætis 3. Á því eru fimm hundruð tuttugu og átta myndir af Benedikti Sveinssyni á alvöru þúsund króna seðlum. Það eru forsvarsmenn fasteignafélagsins Eikar sem vilja með þessu vekja athygli á sér og telja frumlegri leið en að kaupa auglýsingar í fjölmiðlum. 13.9.2004 00:01
Lágir vextir í Noregi Vextir á íbúðalánum eru nú frá 2,9% og lánin eru óverðtryggð í Noregi. Þar í landi bjóða lánastofnanir allt önnur kjör en íslenskar stofnanir hreykja sér af. 13.9.2004 00:01
Umdeilt skipulag komið í nefnd Rúmlega 160 manns undirrituðu mótmælaskjal gegn deiliskipulagi Suðurstrandar á Seltjarnarnesi. Þá höfðu nítján aðrar skriflegar athugasemdir borist bæjarskrifstofunum á föstudag þegar frestur til að skila inn athugasemdum rann út. 13.9.2004 00:01
Morðmál Önnu Lindh tekið upp á ný Morðmál Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, verður tekið upp á ný. Stutt er síðan dómstóll í Svíþjóð felldi úr gildi upphaflega dóminn yfir morðingjanum Míhajlovich, og úrskurðaði að hann skildi vistaður á réttargeðdeild. 13.9.2004 00:01
Tafir vegna fjárhagserfiðleika Framkvæmdir við íþróttamannvirki í Salahverfi í Kópavogi hafa tafist um meira en ár vegna fjárhagserfiðleika aðalverktakans. Nokkrar beiðnir um að verktakafyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta liggja fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en fyrirtækið tapaði stórfé á því að byggja Barnaspítala Hringsins. 13.9.2004 00:01
Fellibylurinn Ívan á leið til Kúbu Ívani grimma vex enn ásmegin. Fellibylurinn er einhver sá öflugasti sem um getur og stefnir hraðbyri á Kúbu. Þar hefur ríflega milljón manna verið flutt frá þeim svæðum þar sem óttast er að tjónið verið mest. 13.9.2004 00:01
Deila öryrkja og stjórnvalda Öryrkjabandalagið, heilbrigðisráðherra og stjórnarandstaðan eru sammála um að ríkisstjórnin hafi ekki staðið að fullu við samkomulag við öryrkja um hækkun örorkubóta. Forystumenn stjórnarflokkanna segja hins vegar að staðið hafi verið við samkomulagið. 13.9.2004 00:01
Pokapeningar í Gullfoss Fimmtán krónurnar sem landsmenn greiða fyrir hvern plastpoka í verslunum fara að hluta í Gullfoss, samkvæmt tillögu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Formaður Pokasjóðs og forstjóri ÁTVR afhentu Siv Friðleifsdóttur umhverfisráðherra nú síðdegis fjórar milljónir króna 13.9.2004 00:01
Heilsuskóli Sjóvá og Íslandsbanka Íslandsbanki og Sjóvá - Almennar hafa skipulagt skólahald fyrir börn starfsmanna, komi til verkfalls grunnskólakennara, sem hefjast á eftir viku og fáir virðast hafa trú á að hægt verði að afstýra. 13.9.2004 00:01
Batman í Buckinghamhöll Leðurblökumaðurinn tók sér stöðu á svölum Buckinghamhallar í dag. Reyndar var þetta karlmaður í búningi Leðurblökumannsins, ekki sjálf ofurhetjan. Maðurinn vildi mótmæla meintri mismunum breskra dómstóla, en samtökin Feður fyrir réttlæti segja þá einatt styðja mæður í skilnaðar- og umgengnisréttarmálum. 13.9.2004 00:01
Fréttablaðið styrkir sig í sessi Sjö af hverjum tíu landsmönnum lesa Fréttablaðið á hverjum degi. Blaðið er sá fjölmiðill sem flestir nota. Lestur Fréttablaðsins á landsbyggðinni hefur aukist. </font /></b /> 13.9.2004 00:01
Valgerður segir gjald í lagi Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra telur að viðskiptabönkunum sé heimilt að taka gjald fyrir uppgreiðslu nýju fasteignalánanna. Gjaldið megi hins vegar ekki vera hærra en sem nemur kostnaði bankanna. ASÍ hyggst senda kæru til Samkeppnisstofnunar vegna málsins á næstu dögum. 13.9.2004 00:01
Ísjaki til Parísar Íslendingar geta, þora og vilja, segir Sigríður Snævarr, sendiherra í París, og vonast til að innan tíðar verði þessi staðreynd öllum Frökkum ljós. Þar bindur hún vonir við árangur af umfangsmestu kynningu á Íslandi til þessa, þriggja mánaða vísinda- og menningarhátíð sem hefst í París í lok mánaðarins. 13.9.2004 00:01
Hestamannaþorp í Holtum Rangæingar vonast til að fá hestamenn til að flytja af mölinni og út í sveitina í sérstakt hestamannaþorp sem verið er að skipuleggja í Holtum. 13.9.2004 00:01
Pútín herðir tökin Völdin færast á fárra hendur í Rússlandi, þar sem Vladímír Pútin, forseti , vill herða baráttu gegn hryðjuverkum. Til þess að það gangi sem best leggur hann til breytingar sem færa honum meiri völd en nokkri sinni síðan að Sovétríkin liðu undir lok. 13.9.2004 00:01
Vélar og þjónusta keyrt í þrot Fyrirtækið Vélar og þjónusta sem seldi landbúnaðarvélar er gjaldþrota. Allir 39 starfsmenn fyrirtækisins hafa fengið vinnu hjá nýstofnuðu fyrirtæki í eigu sömu fjölskyldu; Vélar og þjónusta ehf. KB banki vildi ráða starfsmennina til sín til að hámarka rekstrarvirði félagsins fyrir uppgjör þess. 13.9.2004 00:01
Daggæsla ekki verkfallsbrot Íslandsbanki og Sjóvá-Almennar tryggingar bjóða börnum starfsfólks síns í Heilsuskóla komi til verkfalls kennara, samkvæmt fréttum Stöðvar 2. Um 40 börn hafa verið skráð í skólann og verður áherslan lögð á leiki, hreyfingu og list. 13.9.2004 00:01
Túnfiskveiðar í vísindaskyni Fimm japönsk túnfiskveiðiskip hafa veitt innan landhelgi Íslands í samvinnu við Hafrannsóknastofnunina í ár. Í athugun er gegnd fisksins á Íslandsmiðum og veiðanleiki. 13.9.2004 00:01
Leigja fermetrann á þúsund krónur Á Reyðarfirði hefur leiguverð á íbúðum hækkað eftir að framkvæmdir við álverið og gangagerð hófust. Heimamenn ræða um að verktakafyrirtækið Bechtel, sem reisir álver Alcoa, óski eftir húsnæði til leigu á 1.000 til 1.100 krónur á fermetra. 13.9.2004 00:01
Rjúpan á válista Ítarleg endurskoðun og túlkun á fyrirliggjandi gögnum um rjúpnastofninn sem gerð var af Náttúrufræðistofnun Íslands í samstarfi við Reiknistofu Raunvísindastofnunar Háskólans staðfestir að veruleg fækkun hafi orðið á rjúpu. 13.9.2004 00:01
Réttar skýrslur hagur veiðimanna ;Á síðasta ári skiluðu nokkrir veiðimenn inn vitlausum veiðiskýrslum til hefna sín og lýsa reiði sinni á rjúpnaveiðibanninu," segir Arnór Þórir Sigfússon, hjá verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, sem er bæði fuglafræðingur og skotveiðimaður. Hann hvetur veiðimenn til að skila inn réttum skýrslum. 13.9.2004 00:01
Rannsókn að mestu lokið Lögreglumennirnir tveir, sem rúmlega þrítugur maður lést í höndunum á í síðustu viku, höfðu réttarstöðu grunaðra þegar þeir voru yfirheyrðir af lögreglunni í Reykjavík, sem sér um málið. 13.9.2004 00:01
Báðir hafa játað Salvar Halldór Björnsson, sem ákærður er ásamt Sigurjóni Gunnsteinssyni fyrir innflutning á tæpum 325 grömmum af kókaíni, játaði við fyrirtöku málsins í gær að hafa flutt inn þau 166 grömm af kókaíni sem fundust innvortis í honum. Sigurjón og Salvar voru teknir með efnin á Keflavíkurflugvelli annan desember á síðasta ári. 13.9.2004 00:01
Bættar greiningaraðferðir riðu Yfirdýralæknisembættið tekur í næsta mánuði upp nýjar aðferðir í baráttunni við sauðfjárriðu. Beitt verður nýrri aðferð við sýnatöku í sláturhúsi og sýnin send fyrst í stað til útlanda til frekari greiningar. Á næsta ári er svo vonast til að sinna megi greiningunni hér heima líka. 13.9.2004 00:01
Sölu Símans skotið á frest Í síðustu viku var útlit fyrir að einkavæðingu Símans yrði hrundið af stað nú þegar. Nú er málið komið í biðstöðu á ný. Framsóknarmenn vilja öflugt dreifikerfi. Sjálfstæðismenn vilja gott verð. 13.9.2004 00:01
Síminn ekki seldur með hraði Davíð Oddsson segir forsætisráðherraskipti tefja sölu Símans en áfram sé stefnt að því að ljúka henni fyrir lok kjörtímabilsins. Á morgun tekur hann við starfi utanríkisráðherra og segist kveðja miðbæinn og Kvosina með trega enda fari hann í fyrsta skipti á starfsævinni úr miðbænum "upp í sveit". 13.9.2004 00:01
Geir leysir Davíð af Geir H. Haarde fjármálaráðherra flytur ræðu Davíðs Oddssonar, verðandi utanríkisráðherra, á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í næstu viku. Davíð Oddsson sagði í viðtali við Fréttablaðið að hann og Halldór Ásgrímsson myndu leysa hvorn annan af hér eftir sem hingað til, þrátt fyrir stólaskipti þeirra í ríkisstjórn. 13.9.2004 00:01
Deiliskipulag komið í nefnd Rúmlega 160 manns undirrituðu mótmælaskjal gegn deiliskipulagi Suðurstrandar á Seltjarnarnesi. Þá höfðu nítján aðrar skriflegar athugasemdir borist bæjarskrifstofunum á föstudag þegar frestur til að skila inn athugasemdum rann út. 13.9.2004 00:01
Eldur í blokkaríbúð í nótt Eldur kviknaði í blokkaríbúð við Álfaskeið í nótt. Eldurinn náði ekki að breiðast út og greiðlega gekk að slökkva hann. Húsráðandi, kona á miðjum aldri, var flutt á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun. Hún fékk að fara heim að lokinni skoðun. </font /> 12.9.2004 00:01
14 látnir á Jamaíka Nú er talið að að minnsta kosti fjórtán manns hafi látið lífið þegar fellibylurinn Ivan fór yfir Karíbahafseyjuna Jamaíka í gær. Fellibylurinn stefnir nú óðfluga á Kúbu og þar undirbúa menn sig undir það versta. 12.9.2004 00:01
Kertalogi læsti sig í gardínu Kona var flutt á sjúkrahús eftir að eldur kom upp í blokkaríbúð í Hafnarfirði í nótt. Hún fékk að fara heim að lokinni skoðun. Eldurinn kviknaði eftir að kertalogi læsti sig í gardínu. Slökkvistarf gekk vel en íbúðin er talsvert skemmd. 12.9.2004 00:01
Kjarnorkusprenging í Norður-Kóreu? Gríðarmikil sprengja virðist hafa sprungið í Norður-Kóreu í síðustu viku og um tíma var óttast að um kjarnorkusprengju hafi verið að ræða. Það hefur þó ekki fengið staðfest. 12.9.2004 00:01
Villtust við Heklu Flugbjörgunarsveitin á Hellu var kölluð út á öðrum tímanum í nótt eftir að tveir menn um tvítugt sem höfðu gengið á Heklu fyrr um daginn óskuðu aðstoðar við að komast til baka að bíl sínum. Mennirnir höfðu lagt á Heklu um klukkan tvö í gærdag og áætluðu að vera komnir til baka áður en myrkur skylli á. 12.9.2004 00:01
Sharon tekur hart á öfgahópum Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, virðist ætla að taka hart á hægri öfgahópum í landinu. Hann var afar harðorður í garð öfgahópa í dag, sakaði þá um að reyna að egna til borgarastyrjaldar í landinu og boðaði herta löggjöf til að hafa hemil á þessum hópum. 12.9.2004 00:01
Lítið miðar í viðræðunum Lítið miðar í samningvaviðræðum grunnskólakennara og sveitarfélaganna, þrátt fyrir fundalotur í húsakynnum ríkissáttasemjara síðustu daga. Deilendur eru enn í því ferli að fara yfir málin og engin tilboð hafa verið lögð fram. Takist samningar ekki skellur á verkfall í grunnskólunum þann 20. september, eftir rúma viku. 12.9.2004 00:01
Togbátur fékk trollið í skrúfuna Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Hannes Þ. Hafstein frá Sandgerði, var með 230 tonna togbát í togi um 6 sjómílur vestan við Sandgerði rétt fyrir klukkan 10 í morgun. Togbáturinn fékk trollið í skrúfuna í nótt þegar hann var staddur sextán sjómílur vestan við Sandgerði að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landsbjörg. 12.9.2004 00:01
Sjö manns drepnir í Afganistan Að minnsta kosti sjö manns voru drepnir í átökum stuðningsmanna Ismail Khan, fráfarandi leiðtoga Herat-héraðsins í Afganistan, og afgönsku lögreglunnar í höfuðborg héraðsins í morgun. Mótmæli brutust út í héraðinu eftir að Hamid Karzai, forseti Afganistan, rak Khan úr embætti í gærdag. 12.9.2004 00:01
Björgunarskip dró netabát að landi Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Oddur V. Gíslason frá Grindavík, var kallað út í morgun eftir að ellefu brúttólesta netabátur varð vélarvana um eina sjómílu fyrir utan innsiglinguna við Grindavík. Björgunarskipið var komið að netabátnum um tíu mínútum eftir að aðstoðar var óskað og dró hann aftur til hafnar. Komið er í ljós að gírinn hafði bilað. 12.9.2004 00:01
Stóriðjuframkvæmdir á Norðurlandi Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra vonast til að stóriðjuframkvæmdir á Norðurlandi geti fylgt í kjölfar uppbyggingar á Austurlandi. Stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi hafa þegar hrundið af stað verulegri uppbyggingu í þeim fjórðungi. 12.9.2004 00:01
Drepa konurnar eftir sólarhring Írakskur öfgahópur, sem heldur tveimur ítölskum hjálparstarfsmönnum í gíslingu í Írak, hefur hótað að drepa konurnar, dragi Ítalíustjórn ekki herlið sitt frá Írak. Hópurinn, sem kallar sig Islamic Jihad, birti kröfur sínar Netinu og gefur ríkisstjórn Ítalíu sólarhring til að verða við kröfum sínum. 12.9.2004 00:01