Valgerður segir gjald í lagi 13. september 2004 00:01
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra telur að viðskiptabönkunum sé heimilt að taka gjald fyrir uppgreiðslu nýju fasteignalánanna. Gjaldið megi hins vegar ekki vera hærra en sem nemur kostnaði bankanna. ASÍ hyggst senda kæru til Samkeppnisstofnunar vegna málsins á næstu dögum. Alþýðusambandið hefur lýst því yfir að gjald sem viðskiptabankar krefjast fyrir uppgreiðslu fasteignalána áður en lánstíma lýkur orki tvímælis og sé jafnvel lögbrot. Fasteignalán bankanna falli undir lög um neytendalán frá 1994 og túlkar ASÍ sextándu grein þeirra laga á þann veg að ekki sé hægt að taka aukagjald fyrir að greiða upp lán snemma. Að auki gerir Alþýðusambandið athugasemdir við þau ströngu skilyrði um langtímaviðskipti sem bankarnir setja fyrir lánveitingu. Viðbrögð bankanna um helgina voru að draga í efa að fasteignalánin teldust neytendalán í skilningi laganna. Valgerður Sverrisdóttir, viðskiptaráðherra, segir engan vafa leika á því í sínum hug að fasteignalánin falli undir lög um neytendalán. Hún segir að þegar neytandinn sé festur við viðkomandi lánastofnun, megi velta því fyrir sér hvort það sé ekki orðið samkeppnishamlandi, en eðlilegt sé að eitthvert gjald sé tekið, en að það sé sanngjarnt. Valgerður segir bankana verða að geta fært rök fyrir því að gjaldið svari til kostnaðar, en það sé annarra að meta hvort prósentin tvö sem bankarnir krefjast falli undir þá skilgreiningu.
Fréttir Innlent Mest lesið Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Selenskí mun funda með Trump Erlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fleiri fréttir Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Fíkniefnarannsókn á Raufarhöfn „langt frá því að vera lokið“ Segir eldislaxinn sannarlega eldislax: „Það eru þeirra mistök“ Segir undirverktaka ekki hafa látið vita af gatinu „Stórfurðulegt“ að bjóða foreldrum ekki strax á fund Litlu mátti muna þegar ferðamaður svínaði fyrir hjón á Hellu Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Pólitískur refur og samningamaður mætast „Maður skilur ekki alveg hvernig á þessu stendur“ Spá því að vextir muni ekki lækka frekar á árinu Kynferðisbrot gegn barni til rannsóknar, leiðtogafundur og eldislax Netlaust í Ráðhúsinu vegna öryggisráðstafana Bíða þess enn að ráðherra svari neyðarkalli um mönnun Mannanafnanefnd: Nú má heita Kaleo Stefán Kristjánsson er látinn Ungur leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni Spá eldingum á Vesturlandi Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann „Hamfarir og ekkert annað“ Sjá meira