Innlent

Umdeilt skipulag komið í nefnd

Rúmlega 160 manns undirrituðu mótmælaskjal gegn deiliskipulagi Suðurstrandar á Seltjarnarnesi. Þá höfðu nítján aðrar skriflegar athugasemdir borist bæjarskrifstofunum á föstudag þegar frestur til að skila inn athugasemdum rann út. 924 Seltirningar undirrituðu mótmæli gegn breytingum á aðalskipulagi Seltjarnarness sem voru fyrr í þessum mánuði afhent Jónmundi Guðmarssyni bæjarstjóra. Deilt er um fjölbýlishús sem á að reisa við Suðurströnd þar sem nú er íþróttavöllur. Jónmundur segir að skipulagsnefnd bæjarins muni nú fara yfir athugasemdirnar. Hún muni leggja faglegt mat á þær og gera tillögur um hvernig staðið verði að framhaldinu. Hann segist ekki vita hvenær þessu starfi verði lokið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×