Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
13 látnir og 61 særður Átök halda áfram í Írak en þrettán létust og að minnsta kosti 61 særðist í árásum þegar þyrlur Bandaríkjahers skutu á hóp Íraka sem hafði safnast við brennandi farartæki hersins í Bagdad. Á öðrum stað í Bagdad létust níu Írakar í átökum við hermenn. 12.9.2004 00:01
Skáru trollið úr skrúfunni Kafarar á björgunarskipi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Hannesi Þ. Hafstein frá Sandgerði, luku um hádegi við að skera úr skrúfunni á 230 tonna togbáti sem flæktist í trolli um sextán sjómílur vestur af Sandgerði. 12.9.2004 00:01
Rússar vilja alþjóðlega samvinnu Varnarmálaráðherra Rússa, Sergei Ivanov, sagði í dag að Rússar myndu efla öryggisveitir sínar og leita eftir alþjóðlegri samvinnu til að ná hryðjuverkamönnunum sem drápu að minnsta kosti 327 gísla í Beslan í Norður-Ossetíu. Helmingur þeirra sem lést voru börn. 12.9.2004 00:01
Maður féll úr stiga Maður féll í stiga í Njarðvík í dag og var hann fluttur á Landspítalann í Fossvogi til aðhlynningar. Maðurinn var að klæða svefnloft í sumarbústað sem er í smíðum við Njarðarbrautina í Njarðvík þegar hann féll niður úr stiganum. Hann kvartaði yfir verkjum í baki, öxlum og hálsi og var því fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur.</font /> 12.9.2004 00:01
Tveir með skurði á höfði Á fimmta tímanum í nótt voru tveir menn fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja með skurði á höfði að sögn Víkurfrétta. Annar þeirra hafði verið sleginn í andlitið á skemmtistað í Keflavík og var saumaður skurður á vör. Hinn hafði dottið í heimahúsi í Njarðvík og fengið skurð á höfuðið sem sauma þurfti. 12.9.2004 00:01
21 talíbani felldur Allt að tuttugu og einn skæruliði talíbana var felldur þegar árásarþyrlur Bandaríkjamanna skutu á hóp þeirra sem lagt hafði á flótta undan sameiginlegri framsókn Bandaríkjamanna og Afgana, skammt frá Kandahar. 12.9.2004 00:01
Skaftafellsþjóðgarður stækkaður Umhverfisráðherra kynnti á opnum fundi í Skaftafellsstofu í þjóðgarðinum í Skaftafelli í dag áætlun um stækkun þjóðgarðsins. Siv Friðleifsdóttur tókst ætlunarverk sitt, að sigla verkefninu í höfn áður en hún hættir sem ráðherra. 12.9.2004 00:01
Hörðustu bardagar í margar vikur Einhverjir hörðustu götubardagar í margar vikur hafa geisað síðasta sólarhringinn í Bagdad, höfuðborg Íraks. Óöld ríkir þar og svo virðist sem enginn hafi stjórn á ástandinu. 12.9.2004 00:01
Vika í verkfall Engin hreyfing er komin á samninga grunnskólakennara og sveitarfélaganna en vika er í boðað verkfall. Líkt og síðustu daga hafa samninganefndir grunnskólakennara og sveitarfélaganna fundað í húsakynnum ríkissáttasemjara um helgina, án teljandi árangurs. 12.9.2004 00:01
Sorgin fært heimsbyggðina nær Íbúar í Beslan, Madrid, New York og í Jakarta hafa persónulega reynslu af hversu lífið er hverfult og þjáning þeirra hefur leitt íbúa heimsins þéttar saman. 12.9.2004 00:01
Lögregluskýrslan tilbúin "Skýrslan er tilbúin á borði mínu og nú er ég að vega og meta næstu skref í málinu," segir Helgi Jensson, sýslufulltrúi á Egilsstöðum, en lögreglan hefur lokið rannsókn sinni á tildrögum banaslyssins sem varð í Hafrahvammagljúfrum í mars. 12.9.2004 00:01
Rækjuveiðimenn hlunnfarnir Stofn innfjarðarrækju í Húnaflóa er hruninn og þær útgerðir sem enn standa og gerðu út á þær veiðar berjast í bökkum. Útgerðarmenn telja sig hlunnfarna og mæta engum skilningi hjá Sjávarútvegsráðuneytinu. </font /></b /> 12.9.2004 00:01
Ríkið vinni að dreifikerfinu Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir afstöðu framsóknarmanna skýra varðandi uppsetningu dreifikerfis um land allt. Jafnvel komi til greina að ríkið vinni að uppbyggingu slíks kerfis, þótt Síminn verði kominn úr eigu þess. 12.9.2004 00:01
Ívan grimmi hefur fellt fimmtíu Fellibylurinn Ívan, sem fengið hefur viðurnefnið grimmi, gengur nú yfir Cayman-eyjur og stefnir á Kúbu. Um fimmtíu manns liggja í valnum eftir yfirreið Ívans um Karíbahaf. Veðurofsinn í fellibyljum er sambærilegur við allra verstu veður sem verða á Íslandi. 12.9.2004 00:01
Kjarnorkusprenging í Norður-Kóreu? Uppnám ríkir á Kóreuskaga í kjölfar frétta um að gríðarmikil sprenging hafi orðið í Norður-Kóreu í síðustu viku. Sá orðrómur er á kreiki að kjarnorkusprenging hafi orðið þótt sérfræðingar hafi vísað því á bug. 12.9.2004 00:01
Aðrir gengið fram fyrir skjöldu "Mér finnst það heldur kaldranalegt af Davíð að halda því fram að sérstakur vinnufriður hafi ríkt í hans valdatíð," segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins. 12.9.2004 00:01
Bush vottar virðingu George Bush, forseti Bandaríkjanna, heimsótti rússneska sendiráðið í Washington öllum að óvörum í gær og vottaði samúð sína með fórnarlömbunum í bænum Beslan með því að skrifa í minningarbók þeim til handa. 12.9.2004 00:01
Kostnaður langt yfir áætlun Líkur eru á að grísk stjórnvöld þurfi að glíma við gífurlega fjárlagahalla næstu árin en forsætisráðherra landsins hefur viðurkennt að Ólympíuleikarnir hafi kostað mun meira en nokkurn óraði fyrir. 12.9.2004 00:01
Olíuhækkun í pípunum Gert er ráð fyrir að lágmarksverð fyrir tunnu af olíu verði 30 dollarar eftir fund OPEC ríkjanna sem verður í vikunni. 12.9.2004 00:01
Nýr El Nino að myndast Loftslagsfræðingar telja að nýr El Nino sé að myndast í Kyrrahafinu en slíkt fyrirbrigði getur haft áhrif á veðurfar víða um heim. 12.9.2004 00:01
Skammarlegt fyrir ríkisstjórnina Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður segir skammarlegt ef ríkisstjórnin ætli að láta öryrkja draga sig í fjórða sinn fyrir dómstóla vegna vanefnda á samningum. Hún segir málið prófraun fyrir framsóknarmenn þegar Halldór Ásgrímsson tekur við stjórnartaumunum. 12.9.2004 00:01
Áróðursmyndir Hitlers um Ísland Sjötíu ára gamlar áróðursmyndir um Ísland, sem fundust í ríkissafni Hitlersstjórnarinnar, er meðal þess sem Kvikmyndasafn Íslands sýnir í Bæjarbíói um þessar mundir. Áróðursmyndirnar voru gerðar með það fyrir augum að útlista kosti landvinninga á fjarlægum slóðum. 12.9.2004 00:01
Síðasta smalamennska á Reykjanesi Þúsund ára sögu smalamennsku á Reykjanesskaganum er lokið. Næsta ár verður lausaganga sauðfjár bönnuð á svæðinu. 12.9.2004 00:01
Þjóðahátíð á Austfjörðum Þjóðahátíð á Austfjörðum tókst hið besta en hún er haldin undir þeim einkunnarorðum að fræðsla sé grundvöllur þess að margar þjóðir geti búið saman. 12.9.2004 00:01
Tekist á um nýbúaskýrslu Alþjóðahúsið gagnrýnir nýútkomna skýrslu um þjónustu Hafnarfjarðarbæjar við nýbúa. Í skýrslunni segir meðal annars að skoða þurfi vandlega samstarf við Alþjóðahúsið vegna þess hversu miklir fjármunir eru settir í þennan eina þátt. 12.9.2004 00:01
Árangurslaus fundur Ekkert markvert gerðist á samningafundi grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna í gær. Vika er í boðað verkfall kennara. 12.9.2004 00:01
Villtust við Heklurætur Tveir menn sem gengið höfðu á Heklu á laugardag óskuðu aðstoðar við að komast að bíl sínum, á öðrum tímanum í fyrrinótt. Flugbjörgunarsveitin á Hellu var kölluð út og kom mönnunum til hjálpar og komust þeir að bíl sínum heilir á húfi. 12.9.2004 00:01
Klór geymdur á opnu svæði Fimmtán prósenta klór var geymdur úti á plani við Vesturvör í Kópavogi og var öllum aðgengilegur. Eigandi efnanna er fyrirtækið Mjöll-Frigg ehf. sem hefur sótt um leyfi fyrir klórgasframleiðslu og lagerhalds hjá Kópavogsbæ. Lögreglan hefur beðið forráðamann fyrirtækisins að fjarlægja klórinn. 12.9.2004 00:01
Svepplaga ský myndaðist Risastórt svepplaga reykský sást á myndum veðurtungla eftir mikla sprengingu sem átti sér stað í Yanggang héraði í norðurhluta Norður-Kóreu nærri landamærum Kína skömmu fyrir hádegi síðasta fimmtudag. Skýið var um 3,5 til 4 kílómetrar í þvermál. 12.9.2004 00:01
Undrast leirfokstölur Landsvirkjun "Heildarrúmmál á jarðvegi sem lendir undir vatni í Hálslóni þegar það er í hámarki, en er ofan vatnshæðar að vori þegar lægst stendur í lóninu, getur verið um 30 milljónir rúmmetra, bara austan megin við lónið," segir sérfræðingu sem Skipulagsstofnun fékk til að fara yfir matsskýrslur um Kárahnjúkavirkjun á sínum tíma. 12.9.2004 00:01
Til stendur að fjölga sérfræðingum "Það er vilji til þess, að halda áfram að vinna í samræmi við þær hugmyndir sem starfsstjórn um málefni Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins skilaði af sér á síðasta ári," sagði Þór Þórarinsson skrifstofustjóri Félagsmálaráðuneytisins um fyrirhugaða fjölgun sérfræðinga við stöðina. 12.9.2004 00:01
Vara við borgarastyrjöld Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, var ómyrkur í máli á sunnudag þegar hann gagnrýndi þau öfl sem setja sig upp á móti áætlunum hans um að afnema landnemabyggðir gyðinga á Gaza-ströndinni og draga ísraelskar hersveitir burt frá svæðinu. 12.9.2004 00:01
Ryðsveppur að breiðast út Ryðsveppur í ösp er að breiðast út um landið. Asparryðs hefur orðið vart á Norðurlandi og á Suðurlandi er ástandið slæmt á Kirkjubæjarklaustri. Fyrst kom sveppurinn fram í Hveragerði og á Selfossi árið 1999. 12.9.2004 00:01
Skaftafell í 5 þúsund ferkílómetra Fyrir liggur áætlun um stækkun þjóðgarðsins í Skaftafelli. Hana kynnti Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra á fundi í Skaftafellsstofu í þjóðgarðinum í Skaftafelli í gær. 12.9.2004 00:01
Svöðusár í andliti Flóans Verktakar sem rutt hafa möl ofan af toppi Ingólfsfjalls í Ölfusi hafa stöðvað þá vinnu, eftir að Skipulagsstofnun úrskurðaði efnistöku með þeim hætti óheimila. Efnistakan sögð "eins og svöðusár í andliti." </font /></b /> 12.9.2004 00:01
Málshöfðun fastur liður "Í öll þau skipti sem ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar hefur verið dæmd, að minnisblaðsmálinu meðtöldu, hafa þeir bakað ríkinu ómældan kostnað með ósvífnu málastappi. Setji þeir þetta í sama farveg verður þetta orðinn fastur útgjaldaliður í ríkisbókhaldinu." 12.9.2004 00:01
Ræningjar meiri skaðvaldar en Ívan Fellibylurinn Ívan gekk á land á Jamaíka í nótt með úrhellisrigningu og hávaðaroki. Tré og ljósastaurar rifnuðu upp umhverfis Kingston, höfuðborg Jamaíka, í veðurofsanum og rigningavatn flæddi um götur borgarinnar. Við fyrstu sýn virðist þó sem ræningjar, sem notuðu tækifærið og létu greipar sópa í miðborginni, hafi valdið öllu meiri skaða en fellibylurinn 11.9.2004 00:01
Nóttin róleg Nóttin var mjög róleg hjá Lögreglunni í Reykjavík. Fáir voru í miðbænum en tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur sem telst varla til tíðinda, enda segir lögregla að það sé eins og að degi til í miðri viku. Sömu sögu var að segja um mest allt land, á Akureyri og víðar. 11.9.2004 00:01
Liðsforingi viðurkennir brot Bandarískur liðsforingi hefur viðurkennt fyrir dómstólum að hafa brotið gegn föngum í hinu illræmda Abu Ghraib fangelsi í Bagdad. Spurður hvers vegna hann hefði látið afklæða fangana sagði hann að hann hefði tengt þá mönnum sem drepið hefðu tvo bandaríska hermenn. 11.9.2004 00:01
Bílsprengja í Sádi-Arabíu Sprenging varð í bíl í Jedda í Sádi-Arabíu í morgun. Sjónarvottar segja að bílstjórinn hafi slasast. Sprengjan var í farangursrými bílsins sem lagt var við hraðbanka. 11.9.2004 00:01
Ók yfir handlegg barns og stakk af Ökumaður jeppabifreiðar ók yfir handlegg á barni í Keflavík fyrr í vikunni og stakk af frá vettvangi samkvæmt vef Víkurfrétta. Lögreglan í Keflavík lýsir nú eftir ökumanninum og vill hafa af honum tal. 11.9.2004 00:01
Dæmdur fyrir brotin í Abu Ghraib Fyrsti hermaður þeirrar deildar bandaríska hersins er sér um njósnir og upplýsingaöflun, sem dreginn var fyrir rétt fyrir brotin í Abu Ghraib fangelsinu í Bagdad, fékk í dag átta mánaða fangelsisdóm, lækkun í tign og brottvikningu úr hernum. 11.9.2004 00:01
Nú styttist í þessu „Nú styttist í þessu,“ sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra við fréttamenn þegar hann mætti í Stjórnarráðið í morgun til að fara á fyrsta ríkisstjórnarfund sinn eftir veikindi og þann næst síðasta á samfelldum þrettán ára ferli sínum sem höfuð ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherraskiptin verða 15. september. 11.9.2004 00:01
17 enn á sjúkrahúsi Sautján af þeim 47 sem slösuðust í lestarslysinu í Svíþjóð í gær eru enn á sjúkrahúsi í Kristianstad og einn hefur verið fluttur á spítalann í Lundi. Tveir eru á gjörgæsludeild, alvarlega slasaðir en ekki í lífshættu. Tveir lestarstjórar létust í árekstrinum þegar lestin ók inn í hliðina á flutningabíl sem var fastur á teinunum. Ökumaður bílsins hafði náð að forða sér. 11.9.2004 00:01
KÍ semur við Barnaskóla Hjalla Fulltrúar Hjallastefnunnar og Kennarasambandið undirrituðu í gær samning um að framlengja gildandi kjarasamning með nokkrum breytingum fyrir grunnskólakennara við Barnaskóla Hjalla. Verkfalli þar hefur því verið afstýrt. Þetta er fyrsti kjarasamningurinn sem KÍ undirritar í haust. 11.9.2004 00:01