Vélar og þjónusta keyrt í þrot 13. september 2004 00:01
Fyrirtækið Vélar og þjónusta sem seldi landbúnaðarvélar er gjaldþrota. Allir 39 starfsmenn fyrirtækisins hafa fengið vinnu hjá nýstofnuðu fyrirtæki í eigu sömu fjölskyldu; Vélar og þjónusta ehf. KB banki vildi ráða starfsmennina til sín til að hámarka rekstrarvirði félagsins fyrir uppgjör þess. Stefán Bjarnason, fjármálastjóri og eigandi Vélar og þjónustu, segir starfsmennina hafa hafnað boði bankans. Stefán er ósáttur við vinnubrögð KB banka. Hann segir reksturinn hafa verið að rétta sig við eftir gríðarlegt tap í kjölfar lágs gengis krónunnar. Útlit hafi verið fyrir rúmlega 30 milljóna króna hagnað á árinu. Þeir hefðu óskað eftir fresti til 25. september til að leita endurfjármögnunar á fyrirtækinu og bregðast þannig við innheimtu allra krafna bankans sem hefðu verið 65 til 70 prósent af heildarkröfum fyrirtækisins. Það hafi ekki gengið eftir né 15 daga frestur sem skilyrtur sé í greiðsluáskorunni. "Fimm dögum eftir fund með bankanum var hann búinn að loka öllum tékkareikningum félagsins. Frysta allar birgðir og útistandandi kröfur," segir Stefán. Stefán óttast að KB banki sé að reyna að sölsa undir sig ábátasömum rekstri. Bankinn hafi leitað eftir því að endurráða starfsfólkið og halda rekstrinum áfram: "Frá okkar bæjardyrum séð lítur út fyrir að þeir hafi hreinlega ætlað að bola okkur út úr fyrirtækinu og njóta hagnaðarins sem loksins náðist eftir margra ára baráttu." Helgi Sigurðsson, yfirlögfræðingur KB banka, segist aðeins óska eftir gjaldþrotaskiptum fyrirtækja telji hann aðrar leiðir ófærar: "Þeir gátu ekki sýnt fram á að félagið gæti staðið við fjárhagslegar skuldbindingar sínar." Helgi segir það í höndum skiptastjóra hvernig eignir félagsins verði hámarkaðar til að greiða kröfur þess upp. "Þegar félag verður gjaldþrota skiptir miklu máli að reyna að tryggja rekstrarvirði þess. Það er gert til hagsbóta fyrir þá sem eiga kröfu í fyrirtækinu en ekki til þess að einstakir hluthafar stofni nýjar kennitölur og hirði út eignir þess. Það er hin almenna regla gjaldþrotalaga."
Fréttir Innlent Mest lesið Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Ofbeldi í garð fangavarða eykst Innlent Dettifoss komið til hafnar Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent Þinglokasamningur í höfn Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Sjá meira