Vika í verkfall 12. september 2004 00:01
Engin hreyfing er komin á samninga grunnskólakennara og sveitarfélaganna en vika er í boðað verkfall. Líkt og síðustu daga hafa samninganefndir grunnskólakennara og sveitarfélaganna fundað í húsakynnum ríkissáttasemjara um helgina, án teljandi árangurs. Raunar hefur lítið gerst frá því í vor þegar kennarar lögðu fram kröfur um launahækkanir og lækkun á kennsluskyldu sem hefðu í för með sér ríflega 40 prósenta kostnaðaraukningu fyrir sveitarfélögin. Sveitarfélögin lögðu þá fram tillögur sem hefðu þýtt sautján prósenta kostnaðaraukningu. Þá kom yfirlýsing frá kennurum um lokasamning sem þýddi 35 prósetna kostnaðarauka en það er upphæð sem hleypur á milljörðum. Formaður félags grunnskólakennara, Finnbogi Sigurðsson, segir að meðal annars sé stefnt að því að grunnlaun umsjónarkennara, eldri en þrjátíu ára, verði 250 þúsund krónur í lok samningstímans. Byrjarlaun eru nú um 180 þúsund krónur. Vinnuskylda grunnskólakennara er að jafnaði 40 tímar á viku en 43 þegar skólar eru starfandi. Þannig vinna kennarar af sér frídaga. Þeir vilja halda sömu vinnuskyldu en lækka kennsluskyldu til að sinna þeim störfum sem kennslunni fylgja og eru sífellt að verða viðameiri. Kennslustundir grunnskólakennara eru nú 28. Þeir vilja að þær verði 26 sem þýddi að fjölga þyrfti kennurum við skólana. Þrátt fyrir að breitt bil sé að milli 17 prósenta og 35 prósetna kostnaðarauka og vika sé í boðað verkfall tekur formaðurinn fram að margt geti gerst á stuttum tíma. Menn væru jú að tala saman og töluðu sama tungumálið. Þrátt fyrir að engin formleg tilboð hafi verið lögð fram telur ríkissáttasemjari ekki tímabært að hann skerist í leikinn með miðlunartillögu.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Innlent „Það er orrustan um Ísland“ Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Fleiri fréttir Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Forsætisráðherra veit ekkert hvernig þetta hefur verið!“ „Enginn vafi á að fyrirkomulag Bílastæðasjóðs er löglegt“ Nóróveira líkleg orsök hópsýkingar á Laugarvatni „Það er orrustan um Ísland“ „Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Sjá meira