Fleiri fréttir

Viðgerðum í Selárdal lokið

Viðgerðum á húsi og listaverkum Samúels Jónssonar í Selárdal er nú lokið en verkin hafa legið undir skemmdum um áratugaskeið.

Japönsk menning í Kópavogi

Kópavogsbúar tóku japanskri menningu opnum örmum í dag því hátt í 500 manns létu sjá sig á japönskum degi sem haldinn var hátíðlegur í Salnum í Kópavogi í dag.

Krefst aðgangs að öllum gögnum

Helga Jónsdóttir borgarritari krefst aðgangs að öllum gögnum félagsmálaráðherra vegna skipanar hans í stöðu ráðuneytisstjóra. Hún fer einnig fram á rökstuðning fyrir valinu. Undrun og hneykslun er innan raða framsóknarmanna. </font /></b />

Árni segir Ragnhildi hæfasta

"Ábyrgðin er mín og það er mitt mat að Ragnhildur hafi staðið fremst af þeim þremur umsækjendum sem kallaðir voru til viðtals vegna starfs ráðuneytisstjóra," sagði Árni Magnússon félagsmálaráðherra um val sitt í starfið.

Laxeldi eykst um helming

Búist er við 45 prósenta heildaraukningu í fiskeldi milli ára. Búist er við meira en helmingsaukningu í laxeldi frá því í fyrra. Enn eru miklar væntingar til þorskeldis, sem þó er enn á þróunarstigi. </font /></b />

Njósnari í Pentagon?

Leyniþjónusta Bandaríkjanna kannar nú hvort háttsettur embættismaður í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafi stundað njósnir fyrir Ísrael. Grunur leikur á að embættismaðurinn hafi komið leynilegum gögnum um stefnu bandarískra stjórnvalda í málefnum Írans til ísraelsku ríkisstjórnarinnar. Stjórnvöld í Ísrael þverneita þessum ásökunum.

Umsóknarfrestur útrunninn

Frestur til að sækja um stöðu hæstaréttardómara í stað Péturs Kr. Hafstein, sem senn lætur af embætti, rann út í gær. Fréttastofu er kunnugt um fjóra umsækjendur: Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmann, Eirík Tómasson lagaprófessor, Hjördísi Hákonardóttur dómstjóra og Allan Vagn Magnússon héraðsdómara.

Dýrum leikfangabílum stolið

Fimm rafstýrðum bensínknúnum leikfangabílum var stolið úr versluninni Tómstundahúsinu í austurborg Reykjavíkur í nótt. Andvirði bílanna er allverulegt eða hátt í tvær milljónir króna.

Mögnuð miðborg í dag

Miðborg Reykjavíkur verður mögnuð í dag ef marka má fréttatilkynningu Þróunarfélags miðborgarinnar. Þar segir að „Mögnuð miðborg“ sé yfirskrift skipulagðrar dagskrár í miðborginni og í dag stendur miðborgargestum til boða að skoða, sjá og heyra ýmislegt.

Sprenging á Spáni

Sprenging varð í miðstöð pílagríma í spænsku borginni Santiago de Compostela nú fyrir skömmu eftir því sem Reuters-fréttastofan hefur eftir útvarpsstöð þar í borg. Talið er að ekkert mannfall hafi orðið en hryðjuverkasamtökin ETA eru sögð hafa varað við sprengingunni stuttu áður en hún sprakk.

Sýknaður af manndrápsákæru

Hálffimmtugur Þjóðverji hefur verið sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi í Héraðsdómi Reykjaness. Maðurinn ók bifreið sem valt út af veginum á leiðinni frá Kleifarvatni í átt að Hafnarfirði þann 24. júlí síðastliðinn með þeim afleiðingum að félagi hans kastaðist út, hafnaði undir bifreiðinni og lést af áverkunum fimm dögum síðar.

Merki UNESCO afhjúpað á Þingvöllum

Merki heimsminjaskrár Sameinuðu þjóðanna verður afhjúpað á Þingvöllum við hátíðlega athöfn í dag klukkan hálf þrjú. Francesco Bandarin, yfirmaður heimsminjaskrifstofu UNESCO, verður á meðal gesta við athöfnina og flytur hann ávarp ásamt Birni Bjarnasyni, formanni Þingvallanefndar og Margréti Hallgrímsdóttur, formanni samráðsnefndar um heimsminjaskrá.

Slökkvilið Akureyrar með opið hús

Slökkvilið Akureyrar er með opið hús í dag milli klukkan 12 og 16 í tilefni Akureyrarvöku og afmælis Akureyrarbæjar. Sýnd verða tæki og tól undir leiðsögn slökkviliðsmanna og fólki gefst kostur á að fara upp í körfubíl, sprauta með brunaslöngu og ganga um í reykfullu húsi. </font /></font />

Báðum vélunum grandað

Leifar sprengiefnis, sem talið er að sé hexógen, hefur nú fundist í braki beggja flugvélanna sem hröpuðu í Rússlandi fyrr í vikunni. Í gær var greint frá því að sprengiefni hafi fundist í annarri vélinni en í dag tilkynnti rússneska rannsóknarnefndin að hexógen hafi einnig fundist í braki hinnar vélarinnar.

Uppskeruhátíð í Grasagarðinum

Árleg uppskeruhátíð fer fram í Grasagarði Reykjavíkur í dag. Frá klukkan eitt hefur gestum og gangandi verið boðið upp á fræðslu um matjurtaræktun og einstakar tegundir mat-, krydd- og lækningajurta.

Hátt í 300 mótmælendur handteknir

Lögreglumenn í New York handtóku hátt í 300 manns eftir mótmæli gegn George W. Bush Bandaríkjaforseta og stefnu hans í Írak. Nokkur þúsund manns tóku þátt í mótmælunum aðfaranótt laugardags. Mótmælendur hjóluðu um götur New York, kölluðu slagorð gegn Bush og trufluðu umferð.

Undirbúa málsvörn

Lögmenn Augusto Pinochet eru byrjaðir að undirbúa sig fyrir málsvörn einræðisherrans fyrrverandi gegn ákærum fyrir mannréttindabrot í stjórnartíð hans. Hæstiréttur Síle ákvað síðasta fimmtudag að svipta Pinochet friðhelgi sem honum var veitt þegar hann fór frá völdum.

Tengsl lýðræðis og upplýsingatækni

Upplýsingaráðherrar Norðurlandanna óskuðu eftir aukinni samvinnu við Eystrasaltsvæðið og Evrópusambandið um þróun upplýsingatæknihluta norrænu víddarinnar á fundi um framtíð lýðræðis í upplýsingasamfélaginu sem fram fór í Reykjavík í gær. 

Stjörnuleitin hófst í dag

Fyrsta áheyrnarprófið fyrir Idol-stjörnuleitina hefur farið fram á Hótel Loftleiðum í dag. Tæplega 500 manns hafa þanið þar raddböndin, dómurunum ýmist til ánægju eða pínu. Mikil stemning er á göngum hótelsins á meðan keppendur bíða eftir að röðin komi að þeim og er hálger útihátíðarstemning hjá þeim allra hressustu.

Fyrirhugaðar framkvæmdir stöðvaðar

Byggingafulltrúi hefur fyrirskipað að ekki megi hefja framkvæmdir við nýtt hótel í Eimskipafélagshúsinu sem áttu að hefjast tíunda september þar sem ekkert byggingaleyfi er fyrir hendi. 

Hryðjuverkahópar grönduðu vélunum

Ummerki um sprengiefni hafa nú fundist í flökum beggja rússnesku farþegaflugvélanna sem fórust fyrr í vikunni með áttatíu og níu menn innanborðs. Það þykir því liggja nokkuð ljóst fyrir að hryðjuverkahópar hafi grandað vélunum.

Óviðeigandi að svara segir Björn

Dómsmálaráðherra segir óviðeigandi að svara því hvort hann ætli að fara að tilmælum umboðsmanns Alþingis við ráðningu nýs hæstaréttardómara. 

Sílikonbrjóst valda heilaskaða

Þá er það staðfest; sílikonbrjóst geta valdið heilaskaða. Komið hefur í ljós að allt að þrisvar sinnum meira magn af þungmálminum platínu, öðru nafni hvítagulli, finnst í líkama þeirra kvenna sem hafa látið stækka brjóstin á sér með sílikoni. Og eins og það sé ekki nóg, þá berst efnið líka í börn sem þessar konur eignast og hafa á brjósti.

Bandaríkin saka Ísrael um njósnir

Stjórnvöld í Ísrael hafa í dag þverneitað því að hafa stundað njósnir í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Rannsókn er hafin á því hvort embættismaður í ráðuneyti Rumsfelds hafi stolið trúnaðarupplýsingum um Miðausturlönd og smyglað þeim áfram til Ísraels.

Sprengjur í báðum flugvélum

Ummerki um sprengiefni hafa fundist í flökum beggja rússnesku farþegaflugvélanna sem fórust nær samtímis á þriðjudagskvöld. Þar með þykir ljóst að hryðjuverkamenn hafi grandað báðum flugvélunum en rússnesk yfirvöld héldu lengi opnum þeim möguleika að eitthvað annað hefði eytt flugvélunum.

Sjóðurinn grefur undan bönkunum

Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, segir alvarlegt mál ef opinber stofnun eins og Íbúðalánasjóður reyni að grafa undan trúverðugleika bankanna. 

Ísraelar grunaðir um njósnir

Embættismaður í bandaríska varnarmálaráðuneytinu er grunaður um njósnir í þágu Ísraela. Þeir neita öllu og segjast hafa hætt að njósna um Bandaríkin þegar njósnari þeirra var handtekinn þar fyrir tuttugu árum.</font /></b />

Uggur vegna kosninganna

Talsverð spenna og uggur ríkir í aðdraganda forsetakosninganna sem fara fram í Tsjetsjeníu í dag. Þar á að kjósa eftirmann Akhmads Kadyrov sem ráðinn var af dögum fyrr á árinu.

Tryggingar gegn kjarnorkuvopnum

"Sem múslimar getum við ekki notað kjarnorkuvopn. Þeir sem geta ekki notað kjarnorkuvopn framleiða þau ekki," sagði Mohammad Khatami, forseti Írans, þegar hann reyndi að fullvissa umheiminn um að Íranar myndu ekki koma sér upp kjarnorkuvopnum.

Barist í Bagdad

Sadr-hverfið í Bagdad logaði í bardögum í gær og biðu í það minnsta fimm bana auk þess sem tugir manna særðust. Vígamenn úr röðum sjíamúslima börðust við bandaríska hermenn og sprengjum rigndi yfir hverfið.

Skátar í fangelsi

Skátum skýtur stundum upp þar sem menn eiga síst von á. Nú er þeim farið að fjölga innan veggja nokkurra fangelsa í Kentucky þar sem fangelsisyfirvöld telja skátastarf geta hjálpað föngum við að verða nýtir þjóðfélagsþegnar þegar þeir ljúka afplánun dóma sinna.

Undrast sýknudóm yfir Þjóðverjanum

Formaður Umferðarráðs undrast sýknudóm yfir Þjóðverja sem varð farþega sínum að bana þegar hann ók ölvaður út af veginum frá Kleifarvatni að Hafnarfirði. Hann segir dóminn senda röng skilaboð út í þjóðfélagið.

Engar kærur í jafnréttismálum

Ekkert nýtt mál hefur komið inn á borð kærunefndar jafnréttismála síðan í apríl þegar hún gaf það álit að dómsmálaráðherra hefði brotið jafnréttislög. Hæstaréttarlögmaður segir ummæli ráðherra í kjölfar álitsins ekki hafa aukið traust almennings á nefndinni.

Powell fór ekki til Aþenu

Grískir andófsmenn fögnuðu sigri í dag og sögðust hafa þvingað Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til að hætta við að heimsækja Ólympíuleikana í Aþenu. Ekki aldeilis segja aðstoðarmenn Powells; ráðherrann hefur bara of mikið að gera. 

Ragnhildur hæfust segir Árni

Árni Magnússon félagsmálaráðherra segist hafa talið Ragnhildi Arnljótsdóttur hæfasta umsækjandann um stöðu ráðuneytisstjóra í Félagsmálaráðuneytinu. Félagsmálaráðherra segir að Helga Jónsdóttir hafi beðið um rökstuðning fyrir því áliti að Ragnhildur Arnljótsdóttir hafi verið hæfust og hún muni fá hann. Að öðru leyti ætli hann ekki að tjá sig frekar um málið.

Stærð rúma vanreiknuð

Stærð rúma var vanreiknuð í hönnun viðbyggingar við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, sem þó var ætluð undir legudeild. Forstjóri sjúkrahússins vill ekki, frekar en heilbrigðisráðherra, draga neinn til ábyrgðar en segir að taka hefði átt viðbygginguna í notkun fyrir löngu.

15 sekúndur á listasafni

Unglingar voru áberandi á Listasafni Reykjavíkur í dag. Í Hafnarhúsinu var sýnt myndbandsverk sem ber yfirskriftina „15 sekúndur“. Titillinn er ekki tilviljun því listamennirnir, sem voru fjölmargir unglingar, fengu 15 sekúndur til að vera einir með myndavélinni og láta ljós sitt skína.

Lína langsokkur í Kringlunni

Lína langsokkur var uppi um alla veggi Kringlunnar í Reykjavík í dag. Börn alls staðar af landinu hafa í sumar tekið þátt í teiknimyndasamkeppni Borgarleikhússins og teiknað myndir af Línu í sumarfríi. Hluti myndanna eða um 200 stykki verða til sýnis í Kringlunni næstu daga en úrslit samkeppninnar voru tilkynnt í dag.

Olíuverð að sliga veiðar

Árni Bjarnason, formaður Félags skipstjórnarmanna, segir á brattann að sækja hjá útgerðum þar sem lágt afurðaverð fáist fyrir rækju og olíuverð sé í sögulegu hámarki. Yfirmönnum á tveimur rækjuveiðiskipum hjá Þormóði ramma hefur verið sagt upp. </font /></b />

Ráðherra sigldi gámaskipi

"Hún lék á alls oddi og náði að sigla skipinu í höfn eftir að hafa lent í þrumuveðri á leiðinni," sagði Jón B. Stefánsson, skólameistari Vélskólans og Stýrimannaskólans, um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra eftir að hún tók véla- og siglingaherma skólans í notkun á föstudag.

Sækja um stöðu Hæstaréttardómara

Eiríkur Tómasson, lagaprófessor, Hjördís Hákonardóttir, dómstjóri, og Allan Vagn Magnússon, héraðsdómari, eru á meðal umsækjenda um stöðu Hæstaréttardómara, en frestur til að sækja um stöðuna rennur út í dag.

Vottur af sprengiefni fannst

Hryðjuverk er nú talið langlíklegasta skýringin á því að tvær rússneskar farþegaþotur fórust fyrr í vikunni. Sprengiefni fannst í braki annarrar vélarinnar og öryggisþjónusta Rússlands telur nokkra farþega grunsamlega. 

Ógni ekki öryggi starfsmanna

Talsmaður Impregilo segir að hvorki ástand sjúkrabíla, né deilur við sjúkraflutningamenn, ógni öryggi starfsmanna við Kárahnjúka. Fjórir sjúkraflutningamenn hafa sagt upp störfum.

Friður í Najaf

Friður hefur loks náðst í helgu borginni Najaf í Írak. Í Bagdad brutust hins vegar út átök þegar bandarískar hersveitir birtust. Bush Bandaríkjaforseti hefur viðurkennt í fyrsta sinn að hafa gert mistök í Írak. 

Níu tilkynntu bílaþjófnað

Níu manns hringdu í Lögregluna í Reykjavík nótt og tilkynntu um þjófnað á bifreiðum í ýmsum hverfum borgarinnar. Þegar betur var að gáð kom í ljós að Sýslumaðurinn í Reykjavík hafði fjarlægt viðkomandi bifreiðar vegna skulda bifreiðaeigenda við hið opinbera.

Sjá næstu 50 fréttir