Fleiri fréttir

Ítalskur blaðamaður drepinn

Ítalskur blaðamaður, sem rænt var í Írak fyrir skömmu, hefur verið drepinn. Mannræningjarnir sendu frá sér yfirlýsingu þess efnis, að Enzo Baldoni hefði verið myrtur, þar sem ítölsk stjórnvöld hefðu ekki kallað hersveitir sínar heim frá Írak. Ítölsk stjórnvöld hafa staðfest að Baldoni hafi verið drepinn.

Hefur ekki kært nauðgun

Sautján ára stúlka sem tilkynnti nauðgun til lögreglunnar, á Menningarnótt Reykjavíkur, hefur ekki lagt fram kæru, og óvíst hvort hún geri það. Stúlkan skýrði lögreglunni frá því að tveir menn hefðu ráðist á sig og annar þeirra komið fram vilja sínum. Aðvífandi kona hafi hins vegar hrætt árásarmennina á brott. Sú kona hefur ekki gefið sig fram við lögregluna.

Grunaður um kynferðisofbeldi

Fjörtíu og sex ára gamall maður er grunaður um að hafa beitt tíu ára telpu kynferðislegu ofbeldi í Stykkishólmi, fyrr í þessum mánuði. Atvikið varð á Dönskum dögum, í Stykkishólmi, hinn fimmtánda þessa mánaðar.

Ísland vel á vegi statt

Cherie Blair segir Ísland vel á vegi statt í jafnréttisbaráttu kynjanna en þó sé hlutur kvenna í æðstu stöðum dómskerfisins enn of rýr hér á landi.

Konungur Svíþjóðar í heimsókn

Konungur Svíþjóðar, Karl XVI Gústaf og Silvía drottning ásamt Viktoríu krónprinsessu munu koma í opinbera heimsókn til Íslands í boði forseta Íslands dagana 7. - 9. september nk.

Breyta ekki stefnu sinni

Ítalska ríkisstjórnin lýsti því yfir í dag að hún myndi í engu breyta stefnu sinni, í Írak, þrátt fyrir morðið á ítölskum blaðamanni, þar í landi. Ræningjar Enzo Baldonis myrtu hann, í dag, eins og þeir höfðu hótað, ef ítalska ríkisstjórnin kallaði ekki hermenn sína heim, frá Írak.

Hringdi fyrir 2 milljónir

Írakskur hreingerningamaður fór á hreint símafyllerí, eftir að hann stal síma úr skóla sem hann var að þrífa, í Osló, meðan sumarfrí stóð yfir. Á fimm vikum hringdi hann fyrir sem svarar tveim milljónum íslenskra króna, aðallega til heimalandsins.

Fjöldi bænda handteknir

Lögreglan í Zimbabwe hefur handtekið sex hvíta bændur fyrir að neita að yfirgefa búgarða sem ríkisstjórnin hafði tekið eignarnámi, án nokkurra bóta. Tuttugu og fjórir aðrir bændur mega eiga von á að vera handteknir á næstunni.

Coca Cola sýknað

Dómstóll í Suður-Kóreu hefur sýknað Coca Colaverksmiðjurnar af því að bera ábyrgð á því hvað tennurnar í manni að nafni Lee Cheol-ho eru skemmdar.

Sýknaður af manndrápsákæru

Þjóðverji sem ók ölvaður með þeim afleiðingum að bíllinn fót út af og valt við Vatnsskarð var í dag sýknaður af ákæru um manndráp í Héraðsdómi Reykjaness. Félagi mannsins lést í slysinu.

Merki UNESCO afhjúpað á Þingvöllum

Merki heimsminjaskrár Sameinuðu þjóðanna verður afhjúpað á Þingvöllum við hátíðlega athöfn á morgun. Meðal gesta verður Francesco Bandarin, yfirmaður heimsminjaskifstofu UNESCO, sem mun flytja ávarp ásamt Birni Bjarnasyni, formanni Þingvallanefndar, og Margréti Hallgrímsdóttur, formanni samráðsnefndar um heimsminjaskrá.

Flóttamenn rændu flugvél

Sjötíu og átta manna hópur frá Erítreu, sem var verið að vísa úr landi í Líbíu til heimalandsins, rændi flugvélinni sem var að flytja þá og sneru henni til Súdans. Þar gáfust þeir upp. Örvænting mannanna er skiljanleg þar sem ólöglegir innflytjendur sem eru sendir aftur til Erítreu eru yfirleitt handteknir við heimkomuna og pyntaðir, jafnvel myrtir.

Málþing um ungt fólk

Norrænt málþing um neyslustaðla og lífsstíl unga fólksins verður haldið hér á landi í næstu viku. Til umfjöllunar verða m.a. útfærslur hinna norðurlandanna á svonefndu „standard budsjett“, eða neyslustöðlum, en enginn sambærilegur staðall er til á Íslandi að því er segir í tilkynningu frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu.

Samkeppni um brúðkaupstónlist

Dómkórinn í Reykjavík hefur ákveðið að efna til verðlaunasamkeppni um tónlist til flutnings við hjónavígslur. Leitað er eftir sönglögum sem höfða til ungs fólks. Tónmenntasjóður Þjóðkirkjunnar veitti nýlega styrki til nýsköpunar og ákvað Dómkórinn að nota það fé sem hann fékk úthlutað til að auðga úrval kirkjulegrar, íslenskrar brúðkaupstónlistar.</font />

Árásir á gyðinga tvöfaldast

Hatursárásir á gyðinga hafa rúmlega tvöfaldast á einu ári í Frakklandi. Árásir á gyðinga og eignir þeirra voru eitthundrað og sextíu á fyrstu sjö mánuðum þessa árs en voru sjötíu og fimm á sama tímabili á síðasta ári.

Sprengjueyðingarsveitir með æfingu

Fjölþjóðleg æfing sprengjueyðingarsveita, Northern Challenge 2004, hefst mánudaginn 30. ágúst og stendur til 3. september næstkomandi. Landhelgisgæslan stendur fyrir æfingunni í samvinnu við Varnarliðið.

Lífeyrissjóðirnir fylgja bönkunum

Lífeyrissjóðirnir munu fylgja í kjölfar Íbúðalánasjóðs og viðskiptabankanna og lækka vexti á lánum til sjóðsfélaga. Lækkunin tekur einnig til þeirra sem þegar greiða af lánum til sjóðanna. 

Annarri vélinni grandað

Hryðjuverkamenn grönduðu í það minnsta annarri rússnesku farþegaþotunni sem fórst fyrr í vikunni. Íslamskur öfgahópur segist hafa rænt báðum vélunum og sprengt þær í hefndarskyni fyrir morð á múslímum í Tsjetsjeníu. 

Hefur ekki enn gefið sig fram

Kona sem lögreglan hefur óskað eftir að gefi sig fram vegna nauðgunar sem tilkynnt var um á menningarnótt í Reykjavík hefur enn ekki haft samband við lögregluna. Sautján ára stúlka greindi lögreglunni frá því að tveir menn hefðu ráðist á sig í miðborginni og annar þeirra komið fram vilja sínum.

Útför Gylfa Þ. Gíslasonar í dag

Útför Gylfa Þ. Gíslasonar, fyrrverandi ráðherra og prófessors, var gerð frá Dómkirkjunni í dag. Gylfi fæddist 7. febrúar árið 1917 en lést 18. ágúst síðastliðinn. Hann var einn helsti stjórnmálaleiðtogi þjóðarinnar á síðustu öld og sat á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn í þrjátíu og tvö ár.

Eiríkur og Hjördís sækja um

Eiríkur Tómasson, sem Hæstiréttur taldi í fyrra heppilegan til að gegna stöðu hæstaréttardómara, sækir aftur um stöðuna nú. Það gera líka Hjördís Hákonardóttir og Allan Vagn Magnússon.

Neytendur hagnast segir SUF

Samband ungra framsóknarmanna fagnar því að bankakerfið bæti þjónustu sína við almenning í landinu með því að bjóða húsnæðislán fyrir allt að 80% af kaupverði og á vöxtum sem eru sambærilegir við lánskjör Íbúðalánasjóðs. Í ályktun SUF segist sambandið telja löngu tímabært að bankakerfið taki á þennan hátt þátt í fjármögnun íbúðarhúsnæðis landsmanna.

Sjóðurinn gæti orðið gjaldþrota

Ef húseigendur kjósa í ríkum mæli að endurfjármagna lán sín hjá bönkunum í ljósi betri kjara gæti Íbúðalánasjóður orðið gjaldþrota að mati forstöðumanns Hagfræðistofnunar Háskólans. Hann ráðleggur Íbúðalánasjóði að bjóða endurfjármögnum húsnæðislána í takt við það sem gerist nú á frjálsum markaði.

Færri á fundum Heimdallar

Mikillar óánægju gætir meðal fjórtán félaga fyrrum jafnréttis- og frjálshyggjudeildar í Heimdalli; félags ungra Sjálfstæðismanna. Nýkjörin stjórn ákvað að sameina deildirnar nýjum nefndum félagsins án samráðs við nefndarmenn.

Verð gæti hækkað tímabundið

Ný húsnæðislán bankanna gætu orðið til þess að húsnæði hækkaði tímabundið í verði á höfuðborgarsvæðinu. Íbúðaverð gæti hins vegar lækkað aftur og niður fyrir veðsetningu. Þá gæti húseignin rétt hrokkið fyrir lánunum, neyddist fólk til að selja.

Íslendingar í góðum málum

Bæði karlar og konur eiga og vilja taka virkan þátt í heimilislífi og atvinnulífi, en ekki bara öðru hvoru, segir Cherie Blair. Hún segir Íslendinga almennt vel á vegi stadda í jafnréttisbaráttu kynjanna og samtök íslenskra kvenlögfræðinga geti með samvinnu við Evrópusamtök kvenlögfræðinga gert fólk um alla Evrópu upplýstara í jafnréttisbaráttunni.

Loftið í Najaf lævi blandið

Loftið í Najaf er lævi blandið eftir að friðarsamkomulag náðist í nótt. Bardagamenn hafa yfirgefið helga mosku þar en undir niðri kraumar tortryggni og óvissa. 

Marco fær ekki dóttur sína

Hæstiréttur Íslands dæmdi í gær í máli ítalska fréttamannsins Marcos Brancaccia gegn Snæfríði Baldvinsdóttur, sem hann sakar um að hafa numið dóttur þeirra ólöglega á brott frá Mexíkó. Rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að samkomulag hefði verið milli Snæfríðar og Marcos um að dóttir þeirra yrði aðeins um skamma hríð í Mexíkó. <font face="Helv"></font>

Krefur ráðherra um rökstuðning

Helga Jónsdóttir borgaritari hefur óskað eftir rökstuðningi félagsmálaráðherra fyrir því að hafa ráðið Ragnhildi Arnljótsdóttur lögfræðing í stöðu ráðuneytisstjóra í félagsmálaráðuneytinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, segir það vera með ólíkindum að gengið sé fram hjá Helgu. 

Sýknaður af manndrápi af gáleysi

Fjörtíu og fjögurra ára Þjóðverji var, í Héraðsdómi Reykjaness, sýknaður af manndrápi af gáleysi þegar hann ók ölvaður og velti bíl á Krísuvíkurvegi þann 24. júlí síðastliðinn. Einn farþeganna í bílnum lést af áverkum sínum fimm sólarhringum eftir slysið. Bílstjórinn var sakfelldur fyrir ölvunarakstur og sviptur ökuréttindum í sex mánuði.

Kærður fyrir kynferðisofbeldi

Fjörutíu og sex ára gamall maður er grunaður um að hafa beitt stúlku á ellefta ári kynferðislegu ofbeldi í Stykkishólmi þegar Danskir dagar voru haldnir þar fyrr í mánuðinum. Málið var kært til lögreglu.

Lausn á næstu dögum?

Reynt verður að finna lausn á vanda eldri nemenda sem ekki komast inn í framhaldsskóla á næstu dögum segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra. Hún segir ekki komið á hreint hve margir nemendur fái ekki inni í skólunum í haust en æskilegast að allir sem þangað eigi erindi komist inn.

Gagnagrunnur ekki enn að veruleika

Þrátt fyrir fyrirætlanir fjögurra Evrópulanda um að koma á gagnagrunni með heilbrigðis- og erfðaupplýsingum hefur það enn ekki orðið að veruleika. Fjárskortur, málaferli og persónuvernd er meðal þess sem sett hefur strik í reikninginn.

Íslenskunám á Netinu

Útlendingar geta nú lært íslensku á Netinu því vefnámskeiðinu Icelandic Online var formlega komið í gagnið í Norræna húsinu í dag. Þetta er gagnvirkt námsefni sem samsvarar 45-90 klukkustunda námi og er öllum opið, án endurgjalds.

Minnst fimm sækja um

Umsóknarfrestur um stöðu hæstaréttardómara rann út á miðnætti en fimm hafa staðfest við Fréttablaðið að hafa sent inn umsókn sína.

Bæta má stöðu jafnréttis á Íslandi

Cherie Booth, lögmaður og eiginkona Tony Blair, sagði á málþingi í gær að staða kvenna á Íslandi mætti vera betri, samkvæmt tölulegum upplýsingum væri enn langt í land í jafnréttisbaráttunni </font /></b /></font /></b />

Fátt nýtt í svörtu kössunum

Eftir að hafa rannsakað svörtu kassa rússnesku flugvélanna tveggja sem fórust í gær eru rannsóknarmenn engu nær um ástæður slysanna. Þó er vitað að áhöfn annarrar flugvélarinnar þrýsti á neyðarhnapp áður en slysið varð en ekkert var tilkynnt í gegnum talstöð.

Líklegt að Halldór hlusti ekki

Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður segir hafa verið áhugavert að fylgjast með hvernig konurnar í Framsóknarflokknum hafi tekið karlana í flokknum á hné sér og rassskellt þá fyrir að vanvirða konur í flokknum og brjóta jafnréttisáætlanir hans. Jóhanna spyr í nýjasta pistlinum á heimasíðu sinni hvort konurnar ætli að fylgja málnu eftir.

Stenst samanburð

Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri stenst fyllilega samanburð við Landspítala - háskólasjúkrahús og hliðstæð bresk sjúkrahús þegar metin eru afköst og gæði þeirrar þjónustu sem veitt er, segir í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar, á sjúkrahúsinu.

Mótmæla áróðri gegn þorski

Utanríkisráðuneytið sendi í dag bandarísku samtökunum Monteray Bay Aquarium bréf, þar sem brugðist er við áróðursherferð samtakanna gegn neyslu íslenska þorsksins í Bandaríkjunum og í Kanada.

Fengu ekki umbeðin gögn

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins mættu ekki til fundar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í gær, þar sem afgreidd var viljayfirlýsing um samningaviðræður Orkuveitunnar og Ogvodafone um kaup á Línu.net sem er í eigu Orkuveitunnar.

Notar ólympíuleika í auglýsingum

Bandaríska Ólympíunefndin hefur formlega beðið George Bush forseta, um að hætta að nota myndir frá Ólympíuleikunum í kosningaauglýsingum sínum. Í auglýsingunni er birt mynd af fánum Íraks og Afganistans.

Borgarfyrirtæki í samkeppni seld

Samstaða er um það innan R-listans að selja borgarfyrirtækin Vélamiðstöðina og Malbikunarstöðina. Hafa loks fallist á okkar sjónarmið, segir oddviti D-listans. Tilboð Vélamiðstöðvarinnar í verkefni fyrir Sorpu óheppilegt, segir forseti borgarstjórnar.

Hélt sig hafa brennst af lýsi

Flugvél Icelandair tafðist um 9 klukkustundir á Heathrow-flugvelli í Lundúnum í gær, vegna ótta um að eiturefni væru um borð. Meint eiturefni reyndist vera íslenskt lýsi.  Farþegum Icelandair á Heathrow-flugvelli brá heldur í brún í gærdag þegar þeim var ekki hleypt um borð í vél félagsins sem var á leið heim til Íslands.

Selja ætti Símann sem allra fyrst

Samstaða er innan Sjálfstæðisflokksins að selja Landssímann sem fyrst, segir Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar og þingmaður Sjálfstæðisflokks.

Sjá næstu 50 fréttir