Óviðeigandi að svara segir Björn 28. ágúst 2004 00:01
Dómsmálaráðherra segir óviðeigandi að svara því hvort hann ætli að fara að tilmælum umboðsmanns Alþingis við ráðningu nýs hæstaréttardómara. Frestur til að sækja um stöðu Hæstaréttardómara rann út á miðnætti í gær. Nöfn umsækjenda verða birt á mánudag en þegar er vitað að lagaprófessorarnir Jón Steinar Gunnlaugsson og Eiríkur Tómasson sækjast eftir stöðunni, svo og héraðsdómararnir Hjördís Hákonardóttir, Eggert Óskarsson og Allan Vagn Magnússon. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir stöðuna hafa verið auglýsta eins og venja sé til. Hann ætli ekki að tjá sig neitt um skipan hæstaéttardómara á þessu stigi málsins enda væri slíkt óviðeigandi. Hann svaraði því þess vegna ekki í dag hvort sóst væri eftir ákveðnum hæfileikum eða þekkingu sem ekki væru tilgreindir í auglýsingu líkt og í tilfelli Ólafs Barkar Þorvaldssonar. Dómsmálaráðherra rökstuddi þá ákvörðun sína að ráða Ólaf Börk Þorvaldsson í embætti að hann hefði verið ráðinn á grundvelli þekkingar sinnar í Evrópurétti en það kom öðrum umsækjendum gersamlega í opna skjöldu. Samkvæmt úrskurði Umboðsmanns alþingis í máli umsækjendanna Eiríks Tómassonar og Ragnars H. Hall, sem Hæstiréttur taldi hæfasta til að gegna starfinu, hefði dómsmálaráðherra borið að tilgreina sérstaklega þá þekkingu sem sóst var eftir þegar starfið var auglýst í samræmi við lög um dómstóla. Hæstiréttur hefði ennfremur þurft að leggja mat á hæfni annarra umsækjenda með tilliti til þessara sérstöku óska ráðherrans, en annað brýtur í bága við rannsóknarreglu stjórnsýslulaga. Dómsmálaráðherra sagði seinna á Alþingi að hann myndi skoða álit umboðsmanns alvarlega en sagði líka að hann væri ósammála álitinu og teldi sig ekki hafa brotið lög með ráðningunni.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira