Fyrirhugaðar framkvæmdir stöðvaðar 28. ágúst 2004 00:01
Byggingafulltrúi hefur fyrirskipað að ekki megi hefja framkvæmdir við nýtt hótel í Eimskipafélagshúsinu sem áttu að hefjast tíunda september þar sem ekkert byggingaleyfi er fyrir hendi. Byggingafulltrúi skrifaði verkfræðistofunni VSÓ-ráðgjöf á dögunum að allar framkvæmdir væru óheimilar við húsið þar sem byggingaleyfi þyrfti fyrir framkvæmdinni. Einungis hefur verið sótt um að breyta notkun hússins en þar voru, sem kunnugt er, áður skrifstofur Eimskipafélagsins. Slíkt leyfi er ekki til staðar. Til að leyfi vegna breytingar á notkun hússins fáist þarf að fara fram grenndarkynning sem tekur í það minnsta sex vikur. Geri nágrannar alvarlegar athugasemdir gæti slíkt dregist miklu lengur. Þá er húsið friðað að utan og að hluta til að innan sem torveldar allar breytingar og krefst þess að Húsafriðunarnefnd komi að málinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu er gert ráð fyrir sjö gluggum á eldvarnarvegg sem bæði er andstætt byggingareglum og kallar auk þess á leyfi húsafriðunarnefndar þótt veggurinn sé ekki hluti af upprunalegri gerð hússins. Eimskipafélagið hefur sótt um leyfi til að taka friðaðar innréttingar út ur húsinu til geymslu annars staðar. Húsafriðunarnefnd hefur enn sem komið er ekki gefið samþykki sitt fyrir því en nefndin hóf að fjalla um málið í byrjun júlí. Magnús Skúlason, forstöðumaður Húsafriðunarnefndar, segir að það hafi orkað tvímælis að nefndin skyldi leyfa á sínum tíma að innréttingar Reykjavíkurapóteks yrðu teknar niður og geymdar í kössum. Hann sagði að álit nefndarinnar lægi þó ekki fyrir en leyfi hennar þarf til framkvæmdarinnar. Magnús sagði hart að ekki væri hægt að nota þessar innréttingar í viðhafnarsal hótelsins en eigendur telji það ógerlegt. Andri Már Ingólfsson hótelstjóri hefur sagt í viðtölum við fjölmiðla að þegar sé farið að bóka gesti á hótelið frá og með næsta vori.
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira